Morgunblaðið - 21.05.2021, Page 33
Enginn valkvíði
Ég spyr Ölmu að því hvort hún hafi ekki
fengið neinn valkvíða þegar kom að því að
velja innréttingar inn á heimilið segir hún svo
ekki vera.
„Það var nokkuð áreynslulaust. Mér fannst
að innréttingarnar þyrftu að vera hlutlausar
þar sem bakgrunnurinn er frekar skraut-
legur,“ segir hún.
Hvað ertu ánægðust með inni á heimilinu?
„Mér finnst íbúðin, húsið, umgjörðin og
staðsetningin dásamleg. Ég hætti ekki að
dásama þetta allt. Ætli ég sé ekki bara ánægð-
ust með hvað okkur líður vel hérna.“
Á íbúðinni er afar fallegt parket með fiski-
beinamunstri. Alma segir að hún hafi upp-
haflega valið annað parket en skipti um skoð-
un þegar hún sá verðið á því.
„Ég valdi annað parket til að byrja með en
það var svo dýrt að þau kaup hefðu líklega
endað með hjónaskilnaði. En við erum mjög
ánægð með það sem varð fyrir valinu sem er
reykt olíuborin eik úr Birgisson. Síldar-
beinamynstrið flæðir á milli rýmanna, aðMorgunblaðið/Árni Sæberg
Innréttingin er látlaus og klass-
ísk. Hún var keypt í Eirvík og
liturinn á henni er „casmere
grey“ sem fer vel við parketið
og litina á veggjunum.
„Þar sem ég starfa við hús-
vernd og hef áhuga á öllu sem
viðkemur eldri húsumþá
skipti migmáli að halda í
upprunaleikann. Þegar blasir
við að fara þurfi í jafn yfir-
gripsmiklar framkvæmdir og
við fórum í þá stendurmaður
auðvitað frammi fyrir alls-
konar ákvörðunum en
markmiðið var alltaf að allt
væri gert af virðingu við
byggingarstíl hússins.
Hornið í eldhúsinu
er vel nýtt. Skáp-
urinn er fallegur
hvort sem hann er
opinn eða lokaður.
Voel-gluggatjöldin koma
með hlýju inn á heimilið.
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 33