Fréttablaðið - 21.09.2021, Side 1
1 8 5 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 2 1 . S E P T E M B E R 2 0 2 1
Kiosk hélt upp
á afmælið
Stagbætt, spengt
og stoppað í göt
Lífið ➤ 16 Tímamót ➤ 32
Útflutningstekjur af hug-
verkaiðnaði hafa tvöfaldast á
átta árum. Um var að ræða 16
prósent af öllum útflutningi
frá Íslandi í fyrra. Skattafrá-
dráttur af rannsóknum og
þróun hefur mikil áhrif, segir
framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins.
mhj@frettabladid.is
IÐNAÐUR Útflutningstekjur vegna
fyrirtækja í hugverkaiðnaði námu
160 milljörðum króna í fyrra, sem er
16 prósent af öllum útflutningi frá
Íslandi og tvöföldun frá árinu 2013.
Fyrirtæki sem fengu endurgreiðslu
vegna rannsókna- og þróunarverk-
efna fóru úr rúmlega 200 í rúmlega
300 á milli áranna 2019 og 2020.
Sig urður Hannesson, f ram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
(SI), segir að ef rétt er haldið á spöð-
unum geti hugverkaiðnaðurinn
orðið ein stærsta útflutningsgreinin
í íslensku hagkerfi.
„Þetta sýnir svart á hvítu að
jarðvegurinn er frjór. Það er mikil
gróska í gangi. Það eru fleiri og fleiri
fyrirtæki sem eru að taka verulega
vaxtarkippi, eins og Controlant,
Nox Medical og Kerecis. Hug verka-
iðnaðurinn hefur alla burði til að
vera langöf lugasta útf lutnings-
greinin á Íslandi ef rétt er á málum
haldið. Hann getur orðið mikil-
vægari en ferðaiðnaðurinn og orku-
iðnaðurinn og aðrar greinar,“ segir
Sigurður.
Á árum áður hafi verið talið að á
hverjum áratug myndi eitt fyrirtæki
ná verulegri stærð eins og Össur,
Marel og CCP en nú sé slíkum fyrir-
tækjum að fjölga.
Um áhrif þessa segir Sigurður að
dregið geti úr sveif lum í hagkerf-
inu. „Við verðum ekki eins háð því
að hingað komi ferðamenn eða að
við getum veitt nógu mikinn fisk
úr sjónum og svo framvegis. Þetta
sáum við svart á hvítu á síðasta ári
þegar fyrirtæki í ferðaþjónustu urðu
fyrir verulegum samdrætti út af
Covid. Á sama tíma voru fyrirtæki
í hugverkaiðnaði að ráða til sín fólk
og velta þeirra jókst. Þau nýttu tæki-
færið og sóttu fram.“
Sigurður segir að ák vörðun
stjórnvalda um að hækka skattafrá-
drátt vegna rannsókna og þróunar
hafi skipt miklu máli í þessu sam-
hengi.
„Eina vandamálið er að sú aðgerð
er tímabundin og rennur út núna
um áramótin,“ segir Sigurður. SI
hafi heyrt af fyrirtækjum sem vildu
bæta verulega í starfsemi sína en
hafi haldið að sér höndum vegna
þess að það vantaði meiri fyrir-
sjáanleika. „Ég held að það sé hægt
að leysa enn meiri krafta úr læðingi
á þessu sviði með því að gera þessa
hvata ótímabundna,“ segir hann.
Þá gæti þessi iðnaður orðið stærsta
stoðin í íslensku hagkerfi.
„Fyrsti áratugur aldarinnar var
áratugur fjármálageirans, annar
áratugurinn var áratugur ferðaþjón-
ustunnar. Þriðji áratugurinn getur
svo sannarlega verið áratugur hug-
verkaiðnaðar og nýsköpunar. Við
erum í dauðafæri en það er háð því
að réttar ákvarðanir verði teknar á
næstu vikum og mánuðum,“ segir
Sigurður. ■
Íslenskur hugverkaiðnaður tekur vaxtarkipp
Sigurður
Hannesson,
framkvæmda-
stjóri SI
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir fólk í einangrun eða sóttkví hófst á sérútbúnum kjörstöðum í gær. Um er að ræða bílakosningabása sem kjósandi ekur inn í á bíl sínum. Kjósandanum er óheimilt að
opna dyr eða glugga bifreiðarinnar. Hann fær engin kjörgögn í hendur heldur er honum gert að upplýsa kjörstjóra um hvernig hann vilji greiða atkvæði, til dæmis með því að sýna blað með listabókstaf
framboðs eða á annan hátt sem kjörstjóri telur öruggan og nægilega skýran. Kjósandinn á myndinni ók inn í kjörklefa við Skarfagarða í Reykjavík í gær og greiddi þar atkvæði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR