Fréttablaðið - 21.09.2021, Page 8

Fréttablaðið - 21.09.2021, Page 8
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is En þetta virkar ekki svona, enginn er hafinn yfir réttmæta umfjöllun og aldr­ ei hef ég starfað fyrir fjöl­ miðil þar sem slíkar hótanir hafa orðið til þess að prentvélar séu stöðv­ aðar. Þegar kemur að umhverfis­ málum, er munurinn sá að við munum eftir náttúru­ verndinni. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Við Vinstri græn lögðum nauðsyn leg an grunn að fram­ förum í lofts lags mál um á kjör tíma bil inu eftir pólitísk­ an doða áranna á undan. En við viljum taka stærri skref og hlaupa hraðar til að ná enn frekari árangri. Nýlega kynntu Ungir umhverfissinnar Sólina, einkunnir fyrir stefnur stjórnmálaflokkanna í umhverfismálum. Stefna VG fékk næsthæstu einkunn allra flokka. Einungis munaði 0,9 stigum á fyrsta og öðru sætinu. Atkvæði greitt VG er atkvæði greitt árangri í loftslags­ málum með náttúruvernd í öndvegi. Það höfum við sýnt. Við í VG sjá um tæki fær in sem fel ast í breytt um heimi með lágkolefnishagkerfi, sterku hringrás ar hag­ kerfi, græn um störf um og lofts lagsvænni ný sköp un. VG vill að Ísland setji sér sjálfstætt markmið um samdrátt í losun um að minnsta kosti 60% árið 2030 og að landið verði óháð jarðefnaeldsneyti í síðasta lagi árið 2045. Við viljum að umskiptin yfir í grænt hagkerfi verði réttlát og sanngjörn. Við viljum banna olíuleit og olíuvinnslu við Ísland og efla almenningssamgöngur og hjólreiðar. Við viljum tryggja sjálfbæra nýtingu lands og halda áfram að efla endurheimt votlendis, því þannig getum við dregið stórkostlega úr losun Íslands. Við viljum auka landgræðslu og skógrækt enn frekar og binda þannig meira kolefni úr andrúmsloftinu. Á kjörtímabilinu höfum við snúið blaðinu við í lofts­ lagsmálum og lagt grunn að loftslagsvænni framtíð með fjölda aðgerða. Munurinn á Vinstri grænum og öðrum stjórnmálaflokkum þegar kemur að umhverfis­ málum er sá að við munum eftir náttúruverndinni. Við viljum ná orkuskiptum í öllum geirum án þess að ráðast í óásættanlegar fórnir á stórbrotinni nátt­ úru Íslands. Án inngripsmikilla virkjana sem skerða víðerni og sökkva landi. Og það er vel hægt. Hægri­ og miðjuflokkar gefa að venju lítið fyrir náttúruverndina og minna hefur heyrst frá öðrum flokkum vinstra megin í pólitík hvað hana varðar. VG boðar aukinn metnað og hugrekki til að takast áfram á við loftslagsmálin af krafti með náttúruvernd í öndvegi. Það skiptir máli hver stjórnar. n Hugrekki og metnaður í loftslagsmálum Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og skipar 1. sæti á lista VG í Suð- vesturkjördæmi Ferskur fiskur og fiskréttir, lax á grillið og humarsúpan í hádeginu. Sjávarhornið - fiskverslun, Bergstaðarstræti 14 Síðastliðinn föstudag birtu ritstjóri og aðstoðarritstjóri DV yfirlýsingu þar sem þeir segja herferð hafa verið setta í gang til að þagga niður umfjöllun blaðsins sem tengdist landsþekktum einstaklingi. Sögðu ritstjórarnir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa fjallað í miðli sínum um málið og lýstu þöggunartilburðum þeim sem hafðir voru uppi. Í raun ganga þau svo langt að tala um að reynt hafi verið að koma í veg fyrir téða umfjöllun með áreitni í þeirra garð, andlegt of beldi og hótanir um að birting fréttarinnar myndi hafa afleiðingar fyrir þau persónulega. Umrætt mál er ekki til umfjöllunar í þessum pistli heldur þetta umhverfi sem blaðamenn starfa í. Ritstjórarnir tóku fram í yfirlýsingu sinni að þeir hefðu á ferli sínum oftsinnis rætt við aðila sem jafnan teljist hættulegir samborgurum sínum. Þeir aðilar hafi þó ekki gerst líklegir til að beita slíkum brögðum til að koma í veg fyrir umfjöllun. Það sé fremur elíta landsins, fólkið sem telur sig yfir umfjöllun hafið. Það er nefnilega fólkið sem ræður sér fjöl­ miðlafulltrúa til að stjórna umfjöllun um sig. Fólkið sem getur ráðið dýra lögmenn til að hóta lögsókn ef neikvæð umfjöllun birtist og fólkið sem hefur virkilegra hags­ muna að gæta í því að aðeins sé fjallað um hið jákvæða í fari þess og störfum, sem áreitir fjölmiðlafólk. Tilburðir Samherja í þessa átt eru líklega lifandi í minni lesenda. Það eru oft landsþekktir aðilar með teng­ ingar á æðstu staði sem telja ekki eftir sér að hringja nokkur símtöl og kippa í spotta. En þetta virkar ekki svona, enginn er hafinn yfir réttmæta umfjöllun og aldrei hef ég starfað fyrir fjölmiðil þar sem slíkar hótanir hafa orðið til þess að prentvélar séu stöðvaðar. Þvert á móti. Að þurfa að liggja undir ámæli um annarlegar kenndir, áreiti á heimili sínu og háværar hótanir frá aðilum máls eða jafnvel fjölmiðlafulltrúum sem innst inni vita mögulega að málstaðurinn sem þeir fá greitt fyrir að verja er vafasamur, er ólíð­ andi starfsumhverfi. En þó eitthvað sem alltof margir blaðamenn, og ég þar með talin, hafa upplifað. Ég fagna yfirlýsingu ritstjóranna enda fullkominn óþarfi að þegja yfir slíkri hátt­ semi sem í besta falli truflar líf fólks sem er einfaldlega að vinna vinnu sína og í versta falli skaðar eðlilega fréttaöflun. n Fyrir fína fólkið benediktboas@frettabladid.is arib@frettabladid.is KR-ingur leitaði í orð séra Friðriks Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður KR, gekk vasklega fram gegn Víkingi á lokasek­ úndum leiksins um helgina og uppskar rautt spjald fyrir ólætin. Kjartan baðst afsökunar á Twitter og leitaði í einkunnarorð Vals. „Lét kappið bera fegurðina ofurliði í gær ásamt fleirum. Ekki í lagi og biðst aftur afsökun­ ar á því,“ skrifaði Kjartan Henry meðal annars. Á brjóstmynd af séra Friðriki Friðrikssyni, sem var reist að Hlíðarenda árið 1961, standa einmitt þessi einkunnar­ orð sem eiga að vera leiðarljós og takmark allra Valsmanna í leik og starfi. Og nú KR­inga. Hí á þig Háskóli Íslands hefur ráðist í allsherjar yfirhalningu á merki sínu og þar með ímynd. Í stað grámyglulegrar latínu verður opinbera heitið nú High­School Iceland Connect. Er það gert til að laða að f leiri skiptinema og útlenska fræðimenn. Þá verður alfarið hætt að tala um Háskóla Íslands, heldur aðeins sem HÍ, mun það stytta boðskipti­ leiðir um tugi mínútna á ári. Móttóið verður „Hí á þig“. Þá hefur myndinni af Aþenu úr grísku goðafræðinni verið skipt út fyrir Loka úr Marvel­goða­ fræðinni. n ? SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.