Fréttablaðið - 21.09.2021, Side 14
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
2 kynningarblað 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGUREININGAHÚS
Fullbúnu húsin henta hvort
tveggja sem sumarhús eða heils-
árshús, þau koma algerlega tilbúin
á staðinn og þarf ekkert að gera
nema setja þau á undirstöður og
tengja inn vatn og rafmagn. Allt
kemur tilbúið. „Það eru komin
tvö ár síðan við í Húsasmiðjunni
hófum þessa vegferð að bjóða
upp á fullbúin hús sem koma til-
búin til kaupanda,“ segir Sveinn
Enok Jóhannsson, vörustjóri hjá
Húsasmiðjunni, „og enn sér ekki
fyrir endann á vinsældunum. Við
ákváðum fyrst að taka inn ein-
faldar lausnir, þar sem við bjóðum
upp á hús í einni einingu, allt að 52
fm að stærð. Viðskiptavinir voru
greinilega þyrstir í þess háttar
lausn því salan gekk algerlega
vonum framar á síðasta ári. Húsa-
smiðjan getur svo boðið þessi hús á
ótrúlega hagstæðu verði sem auð-
vitað ýtir enn undir vinsældirnar,“
segir Sveinn Enok.
Sveinn Halldór Skúlason, verk-
efnastjóri fagsölusviðs Húsasmiðj-
unnar, bætir við: „Í sumar ákváð-
um við að eyða enn meira púðri
í fullbúnu húsin og prófuðum að
bjóða upp á stærri fullbúin hús
frá 64 fm upp í 92 fm. Við vorum
búin að setja saman heljarinnar
auglýsingapakka til að auglýsa
nýjungarnar, en þegar á hólminn
var komið sáum við að það tók því
varla að auglýsa. Við réðum varla
við að taka niður pantanir því
eftirspurnin var svo mikill.
Það kom okkur algerlega í opna
skjöldu hve mikill áhuginn var.
Ég er á því að þetta er að hluta til
Covid-faraldrinum að þakka. Fólk
hefur allt í einu tíma og fjármuni
til að byggja sér sumarhús. Svo eru
sumarhús orðin mjög góð fjár-
festing því verðið á þeim fer bara
hækkandi. Einmitt þessa vegna
koma fullbúnu húsin okkar svona
sterk inn á markaðinn sem hag-
kvæmur, einfaldur og ódýr kostur.
Þegar sumarhúsið er komið til
landsins líða aðeins örfáir dagar
uns fjölskyldan getur notið sín í
sveitasælunni,“ segir Sveinn Enok.
Vinsæll og einfaldur kostur
Það er auðvelt að gera sér í hugar-
lund af hverju fullbúnu húsin frá
Húsasmiðjunni eru svo vinsæll
kostur í dag. „Margir aðilar á mark-
aðnum bjóða upp á einingahús,
en það sem okkar hús hafa fram
yfir einingahúsin er að þau koma
algerlega tilbúin. Fullbúnu húsin
frá Húsasmiðjunni eru svokölluð
„Key ready – Plug and play“-lausn,
sem þýðir að þau eru samsett með
öllu sem til þarf, raflögnum, pípu-
lögnum og öðru, og það eina sem
þarf að gera við þau á staðnum er
að tengja þau við rafmagn, vatn og
klóak,“ segir Sveinn Halldór.
Húsasmiðjan aðstoðar enn
fremur viðskiptavini við alla ferla
sem falla fyrir utan verkahring
Húsasmiðjunnar. „Við aðstoðum
fólk og komum því í samband við
verktaka sem getur steypt sökkla
fyrir húsið og sett það saman á
staðnum ef þess þarf,“ segir Sveinn
Halldór.
Ennþá sér ekki fyrir endann á
þessum mikla áhuga á fullbúnu
húsunum. „Það er brjálað að gera
hjá okkur í þessu og nú erum við
á fullu að undirbúa næstkomandi
vetur, vor og sumar. Við erum
með fjölda húsa sem við munum
afhenda á næstu mánuðum og
næstkomandi vor. Við stefnum á
að fjölga valkostum umtalsvert og
bjóða þannig upp á staðlaða kosti
sem henta sem flestum. Það mun
einfalda okkar störf sem og val við-
skiptavina en einnig tryggja styttri
og skilvirkari afgreiðslutíma,“
bætir hann við.
Margt í boði
Það hefur verið vinsælt hjá
Íslendingum að kaupa fullbúnu
húsin og nota sem sumarbústaði.
„Með stærri valkostum verður
Þeir Sveinn og
Sveinn segja að
vinsældir full-
búnu húsanna
frá Húsasmiðj-
unni hafi komið
skemmtilega á
óvart.
Fullbúnu húsin frá Húsasmiðjunni
eru björt og skemmtileg með
stórum gluggum.
Sýningarhús-
næðið fyrir utan
Húsasmiðjuna
í Skútuvogi er
glæsilegt. Um er
að ræða 52 fm
einingahús með
tveimur svefn-
herbergjum,
baðherbergi og
opnu eldhúsi og
stofu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Húsin koma
fullbúin með
rafmagni, pípu-
lögnum og öllu.
Í tilfelli stærri
húsanna þarf
rétt að klára
frágang á milli
eininganna að
innan og utan.
Herbergin eru rúmgóð og björt.
Baðherbergið er
stórglæsilegt og
innréttað með
hágæða hrein-
lætistækjum.
það síalgengara að nýta húsin sem
heilsárshús. Enda uppfylla full-
búnu húsin frá Húsasmiðjunni öll
þau skilyrði sem þarf hvað varðar
byggingarreglugerðir, einangr-
unargildi, hurðarop, brunavarnir
og annað.
Minnsta fullbúna húsið okkar er
15 fm stúdíóeining með baðher-
bergi og eldhúskrók. Einnig erum
við með 40 fm einingu sem skiptist
í tvær stúdíóíbúðir. Þessa tegund
hefur ferðaþjónustan mikið nýtt
sér. Þá erum við með fjölda fyrir-
spurna og undirbúningsverkefna
í gangi á Suðausturlandi fyrir
ferðaþjónustuna þar,“ segir Sveinn
Halldór.
„Stærstu fullbúnu húsin okkar
eru 92 fm einbýlishús og koma í
tveimur hlutum sem þarf að setja
saman á staðnum. Þá þarf að hífa
einingarnar saman á sökkulinn,
ganga frá saumum á milli, þaki og
listum að innan. Þetta er verkþátt-
ur sem er teljandi í dögum, en ekki
vikum eða mánuðum eins og með
flóknari einingahús. Húsin eru
með þremur rúmgóðum herbergj-
um, baðherbergi og opnu eldhúsi
og stofu. Það er skemmtilegt að
segja frá því að fyrir stuttu seldum
við enn eitt svona sem heilsárshús
og var verið að taka það í notkun
núna á dögunum í Tjarnabyggð á
Selfossi,“ bætir Sveinn Enok við.
Vinaleg raðhús
Sveinn Enok minnist á þá tíma
þegar algengt var að fólk byggði
sín eigin hús. „Það er ekki langt
síðan það var venjan. Oft tóku
nokkrar vinafjölskyldur sig saman
og byggðu saman raðhús. Það
finnst mér afar falleg og rómantísk
hugmynd. Ég sé alveg fyrir mér að
raðhúsabyggðir úr okkar húsum
geti verið afar vænlegur kostur
fyrir fólk sem vill byggja í dag. Við
höfum nú þegar verið í viðræðum
við tvö sveitarfélög um byggingu
á raðhúsum sem kæmu á staðinn
í fullbúnum einingum sem settar
væru saman á verkstað og tilbúnar
til notkunar á innan við viku eftir
samsetningu.“
Lægri flutningskostnaður
Húsasmiðjan þjónustar viðskipta-
vini um land allt um fullbúin hús í
fjölbreyttum stærðum og gerðum.
„Stærð húsanna sem við bjóðum
upp á í dag takmarkast í raun ekki
við neitt annað en hurðaropið á
verksmiðjunni,“ segir Sveinn og
kímir. „Fullbúnu húsin koma frá
Litáen og eru öll afhent í höfn í
Reykjavík af flutningaskipinu
okkar sem flytur meðal annars
evrópskt stál og timbur mánaðar-
lega frá Eystrasaltinu. Með því að
flytja með okkar eigin skipi náum
við að halda flutningskostnaði í
lágmarki fyrir viðskiptavini. Við
leggjum áherslu á að bjóða upp á
vandaða lausn á hagstæðu verði og
það skýrir auðvitað vinsældirnar.
Fullbúnu húsin frá Húsa-
smiðjunni eru mun ódýrari kostur
en að steypa upp hús frá grunni.
Við höfum nú þegar reist tvö slík
hús fyrir norðan. Svo eru þriðja
og fjórða húsið á leiðinni þar upp
núna í vor.
Það hefur jafnvel komið upp sú
hugmynd að bjóða mönnum upp á
að flutningaskipið stoppi fyrst við
fyrir norðan og skili af sér húsum
þar ef fleiri þar taka sig saman og
panta á sama tíma. Það myndi
strax minnka flutningskostnaðinn
sem og auðvitað minnka kol-
efnissporið við flutninginn,“ segir
Sveinn Halldór.
Spennandi nýjungar
„Helstu fréttir hjá okkur eru þær að
stefnan er tekin á að byrja að bjóða
samhliða upp á fullbúin hús frá
öðru fyrirtæki, sem starfar meira
inni á lúxusmarkaðnum. Við erum
þessa dagana að ákveða hvaða
lausnir henta íslenska markaðnum
og erum að vinna með gríðarlega
öflugum framleiðanda. Sá fram-
leiðandi stílar inn á meiri munað í
innréttingum og efnisvali. Sá val-
kostur verður þá eitthvað dýrari og
höfðar frekar til viðskiptavina sem
vilja enn meiri lúxus.
Þessi hús yrðu einnig „Key ready
– Plug and play“ fullbúin hús eins
og við bjóðum upp á í dag. Þá væri
hægt að panta þau næstum eins og
flatböku. Menn myndu velja liti á
innréttingum, efni, og fleira. Þetta
yrði allt sett upp í einfalt pönt-
unarform og þú sæir breytingarnar
á húslíkani á sama tíma. Í þessum
pöntunarlista væri einnig hægt að
panta hús sem er utan rafveitu-
nets, og er þá útbúinn sólarpanell
svo að hægt sé að vera sjálfum sér
nógur um orku,“ segir Sveinn Enok
að lokum. ■
Hægt er að sjá verð, teikningar og
nánari upplýsingar á husa.is