Fréttablaðið - 21.09.2021, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 21.09.2021, Blaðsíða 25
Hjá BYKO er nú mögulegt að kaupa staðlaðar stálgrindar- skemmur sem framleiddar eru fyrir íslenskt veðurfar. Skemmurnar fást í fjórum stærðum og hægt er að gera smávægilegar breytingar á þeim eftir því sem viðskipta- vinurinn óskar. Þegar eru nokkrar staðlaðar BYKO skemmur komnar til landsins og eru nú í byggingarferli. „Staðlaðar stálskemmur stytta byggingar- tímann verulega þar sem hönnun húsanna er fullkláruð þegar gengið er frá kaupum,“ segir Halldór Þ. W. Kristinsson, söluráðgjafi tækni- vara hjá BYKO. Skemmurnar eru hannaðar af íslenskum verkfræðistofum, Eflu og Faglausn, og taka mið af ýtrustu kröfum byggingarreglugerðar. „Í gegnum árin höfum við selt ýmsar gerðir og stærðir af stálgrindar- húsum en fundum út að mikill áhugi var á litlum og meðalstórum vélaskemmum á viðráðanlegu verði. Svo við ákváðum að slá til og láta hanna fyrir okkur staðl- aðar skemmur í fjórum stærðum. Viðskiptavinurinn sparar bæði tíma og fjármuni við kaupin því hönnun húsanna er þegar til staðar. Viðbrögðin hafa verið vonum framar,“ segir Halldór. „Stálskemmurnar eru hannaðar sem vélaskemmur eða geymslu- skemmur og uppfylla allar kröfur byggingarreglugerðar um slík hús. Mögulegt er að gera smá- vægilegar breytingar á skemm- unum, til dæmis að fjölga hurðum og gluggum eða nota þykkari einangrun, svo eitthvað sé nefnt. Mögulegt er að bæta við rennum ef þess er óskað. Gríðarlegur áhugi er á þessum stálskemmum, enda bæði einfaldara og hagstæðara að byggja staðlaðar byggingar fremur Stálgrindarskemmur fyrir íslenskt veðurfar Halldór Þ. W. Kristinsson, söluráðgjafi tæknivara hjá BYKO, segir að stálgrindarhúsin séu hönnuð á Íslandi og gerð fyrir íslenskar aðstæður hvar á landinu sem þau eru staðsett. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Svona líta húsin út fullgerð. Mögulegt er að gera smávægi- legar breytingar á skemmunum, til dæmis að fjölga hurðum og gluggum. Húsin eru í fjórum stærðum; 80 m², 150 m², 250 m² og 350 m². Húsið á myndinni er 150 fermetrar. Þetta er 250 fermetra hús. Þetta er stærst, 350 fermetrar. en sérhannaðar,“ greinir Halldór frá og bætir við: „Stálgrindurnar eru heitgalvaniseraðar og eru sér- smíðaðar fyrir íslenskar aðstæður. Húsin standast mestu snjó- og vindálagskröfur sem gerðar eru í byggð á Íslandi og henta því sem geymslu- og vélaskemmur í öllum landshlutum. Húsin eru í fjórum stærðum; 80 m², 150 m², 250 m² og 350 m². Þau eru klædd 60 mm PIR- yleiningum á veggi og 80/125 mm yleiningum á þök.“ Mögulegt er að velja liti á klæðningarnar að utan sem innan. Húsunum fylgja svo allar áfellur svo hægt er að ganga frá húsunum án þess að þurfa að sérsmíða þær hér heima. Yleiningarnar festast á gal- vaniseraða z-prófíla. Húsunum fylgja allar nauðsynlegar teikn- ingar til að fá byggingarleyfi ásamt teikningum af grunni og vinnu- teikningum, einni keyrsluhurð, einum glugga og tveimur göngu- hurðum. Reyklosunargluggar eru á þaki sem hleypir inn birtu. Nánari upplýsingar um þessar nýju stálgrindarskemmur má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið bondi@byko.is. „Við sendum þá um hæl kynningar- teikningar og svokallað saman- burðarblað sem viðskiptavinurinn getur notað til þess að bera saman verð við aðra söluaðila,“ segir Halldór. n Skemmurnar eru hannaðar af íslenskum verkfræði- stofum, Eflu og Fag- lausn, og taka mið af ýtrustu kröfum bygg- ingarreglugerðar. kynningarblað 5ÞRIÐJUDAGUR 21. september 2021 EININGAHÚS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.