Fréttablaðið - 21.09.2021, Qupperneq 26
Eitt af hlutverkum arkitekta
og innanhússarkitekta er að
þarfagreina og aðstoða við-
skiptavini við að byggja upp
draumaheimili sín.
sjofn@frettabladid.is
Berglind Berndsen, innanhúss
arkitekt FHI, er þekkt fyrir
hönnun sína og vandvirkni en
markmið hennar er ætíð að skapa
fallega umgjörð og örva upplifun
fólks af hönnun rýmisins og inn
viðum þess. Sjálf hefur hún sinn
persónulega stíl á sínu heimili og á
sér fyrirmyndir.
Berglind er sjálfstætt starfandi
með sitt eigið fyrirtæki á Fiskislóð.
Hún lauk mastersgráðu í innan
hússarkitektúr frá Fachochschule
Trier í Þýskalandi árið 2007 og
M.Art.Ed.gráðu frá Listaháskóla
Íslands árið 2012. Hún er gift,
mjög aktíf í útivist og hreyfingu,
tveggja barna móðir og býr á Sel
tjarnarnesi þar sem hún unir sér
vel með fjölskyldu sinni.
Hvað heillar þig mest við starfið?
„Fjölbreytileiki verkefna og allt
það fólk sem ég kynnist í kringum
verkefnin. Það er líka mjög gefandi
og skemmtilegt að hverju verkefni
fylgja nýjar áskoranir, nýir kúnnar
og nýir iðnaðarmenn. Einnig nýt
ég þess að vera minn eigin herra,“
segir Berglind.
Getur lýst hefðbundnum vinnu-
degi hjá þér?
„Ég byrja að vinna klukkan átta
alla daga vikunnar og vinn til
fimm. Ég borða næringargóðan
Persónulegur stíll gerir hús að heimili
Berglind Berndsen, innanhússarkitekt. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
hafragraut alla morgna áður en ég
fer til vinnu og fæ mér gott kaffi
um leið og ég sest við tölvuna þar
sem að ég gef mér um hálftíma
til að lesa ólesna pósta og bæta
við í „To do“ lista dagsins. Oftast
er ég búin að skipuleggja daginn
fyrir fram svo hægt sé að dúndra
sér strax í verkefnavinnu. Ég næ
yfirleitt mesta f læðinu snemma á
morgnana og til hádegis. Ég skipu
legg mig því vel fyrir fram svo ég
nái sem mestu út úr deginum. Ég
skipulegg fundi á vissum dögum
vikunnar svo ég sé ekki fram og
til baka allan daginn, annars
yrði lítið úr vinnu. Svo tek ég mér
oftast 30 mínútna hádegishlé en
stundum gerum við krakkarnir á
stofunni vel við okkur og förum
út í hádeginu. Ég reyni líka alltaf
að taka æfingu fyrir eða strax eftir
vinnu.“
Er eitt verkefni sem þú hefur
tekið þátt í í meira uppáhaldi en
annað?
„Öll verkefni sem ég tek að mér
eru mér jafn mikilvæg, hvort sem
þau eru lítil eða stór. Það eru þó
alltaf einhver verkefni sem standa
mér mjög nærri og þá helst fyrir
fyrir það trausta og góða samband
sem ég á við kúnnana mína og alla
þá sem að verkinu koma. Kúnn
arnir hafa þá í f lestum tilfellum
lagt allt sitt traust á mínar hendur
og þau verkefni verða óneitanlega
einstök og algjör draumaverkefni
út af fyrir sig. Ég hef ávallt verið
þakklát fyrir þá góðu viðskipta
vini sem ég hef átt í gegnum árin.
En ef ég ætti að nefna eitthvað eitt
af verkum sem standa upp úr er
það Skuggahótel sem ég hannaði
ásamt Helgu Sig innanhúsarki
tekt. Þar fengum við að ákveða allt
konsept hótelsins með eigendum.
Það er ekki á hverjum degi sem
maður fær að hanna heilt hótel.“
Hvað er það sem þér finnst gera
heimili að heimili?
„Persónulegur og sjálfstæður
stíll. Hlutir fólks sem segja ein
hverja sögu.“
Geturðu lýst þínum stíl?
„Ég er með einfaldan og hráan
stíl í grunninn, frekar skandinav
ískan. Svo hefur heimilið einhvern
veginn þróast í að verða hlýlegra
og mýkra með árunum.“
Áttu þér fyrirmynd í arkitektúr-
heiminum?
„Högna hefur alltaf verið mín
fyrirmynd. En það eru margir
erlendir arkitektar og hönnuðir
sem ég horfi til í minni hönnun,
til að mynda Tamizoarkitektar,
Joseph Dirand, Space og f leiri
ungir hönnuðir. Rut og Einrúm
arkitektar hafa einnig alltaf verið
mínar fyrirmyndir og hef ég lært
mikið af þeim í gegnum árin og
sérstaklega þegar ég var að taka
mín fyrstu skref sem hönnuður.“
Uppáhaldsárstíðin þín og hvers
vegna?
„Það er eitthvað við haustið sem
heillar mig mest. Litabreytingar
í náttúrunni, kyrrðin áður en
haustlægðir skella á, lyktin í
loftinu. Þetta er tími árs sem
ég huga að heimilinu, kveiki á
kertum þegar byrjar að rökkva,
kaupi falleg, afskorin blóm, elda
góðan kvöldmat og kaupi erikur
í garðinn. Ég er dugleg að hreyfa
mig í náttúrunni og finnst haustið
svo frábært til útiveru, hvort sem
það er að hlaupa eða hjóla.“
Uppáhalds litirnir þínir?
„Grænn og blár.“
Hvar líður þér best?
„Ein úti í náttúrunni að hlaupa
og heima hjá mér með fólkinu
mínu. Ég er mjög heimakær.“
Svalasti veitingastaðurinn á
Íslandi í dag?
„Ég fór mikið á Héðin í sumar
og finnst hann geggjaður, eitthvað
nýtt og spennandi í veitingastaða
flóruna. Svo er Rok alltaf einn af
mínum uppáhalds.“
Er einhver byggingarstíll sem
heillar meira enn annar?
„Bauhaus og funkisstíll hefur
alltaf heillað mig mest. Funkis
byggingar og sjónsteypa. Það getur
ekki klikkað.“ n
Daníel
Sigurðarson.
MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
Hafðu samband
info@husavidgerdir.is
Sími 565-7070
Finndu okkur á
ALHLIÐA MÚRVERK
ÞAKVIÐGERÐIR
GLUGGASKIPTI
6 kynningarblað 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGUREININGAHÚS
Það krefst mikils undir-
búnings að flytja einingahús
milli landshluta. Nota þarf
sérbúna bíla og eiga í sam-
skiptum við ýmsa opinbera
aðila.
starri@frettabladid.is
Það þarf að huga að ýmsu þegar
einingahús eru flutt á milli lands
hluta. Tilbúin einingahús koma
gjarnan með skipum til landsins
og þau þarf ekki bara að flytja á
sérútbúnum bílum heldur þarf að
afla ýmissa leyfa og eiga gott sam
starf við yfirvöld, þar á með lög
regluna og Samgöngustofu, segir
Daníel Sigurðarson, framkvæmda
stjóri DS Lausna, sem hefur flutt
einingahús hér á landi um margra
ára skeið. „Þótt flutningurinn
sjálfur sé alltaf krefjandi verkefni
má segja að mesta vinnan liggi
í undirbúningnum. Meðal leyfa
sem þarf að útvega eru byggingar
leyfi og flutningsleyfi, það þarf að
eiga samskipti við lögregluna og
Samgöngustofu upp á flutninginn
sjálfan en lögreglan fylgir bílnum
okkar eftir á áfangastað. Og svo
eigum við auðvitað í samstarfi við
kaupendur sjálfa.“
Reddingar hér og þar
Hefðbundið ferli fer þannig fram
að einingahúsið er híft með krana
af skipi á bílinn en fyrirtækið notar
sérbúna vagna sem henta vel á
þröngum sveitavegum og troðn
ingum. „Að kvöldi dags mætir
svo lögreglan og fylgir okkur úr
Undirbúningurinn skiptir öllu máli
Hér eru starfs-
menn DS
Lausna að flytja
einingahús í
fallegt sumar-
bústaðarland.
MYND/AÐSEND
Öflugur krani sér um að hífa einingahúsin á grunninn. Allt ferlið tekur ótrú-
lega skamman tíma. MYND/AÐSEND
bænum að áfangastað en yfirleitt
leggjum við af stað úr borginni
eftir klukkan 21 eða 22. Morgun
inn eftir eru húsin yfirleitt hífð á
sökkla með sérstökum krana sem
getur lyft jafnþungum einingum
og húsin eru.“
Yfirleitt er verið að flytja ein
býli og sumarhús en Daníel segir
starfsmenn flytja allar gerðir af
húsum. „Við höfum flutt allt að
200 fermetra einbýlishús þannig
að þetta geta verið ansi stórar og
þungar einingar. Stærri einingum
fylgir að iðulega þarf að taka niður
eitt og eitt skilti og standa í ýmsum
smáreddingum hér og þar. Það
hefur alveg komið fyrir að bíl
stjórar rekist á ljósastaur en heilt
yfir gengur flutningurinn yfirleitt
áfallalaust fyrir sig.“
Sjálfur segist Daníel einblína
mest á undirbúningsvinnuna
þótt hann gangi í f lest verk innan
fyrirtækisins. „Ég er ekki mikið að
keyra sjálfur þótt það komi alveg
fyrir en oftast læt ég mér flinkari
menn ganga frekar í þau verk.“
Stuttur verktími
Hann segir það oft vera óvenjulega
en um leið skemmtilega tilfinn
ingu að sjá húsin komin á sinn
stað á svo skömmum tíma. „Ferlið
gengur yfirleitt svo hratt fyrir sig.
Við hífum húsin oftast á grunn
inn um morguninn þannig að um
kvöldið stendur húsið tilbúið að
utan, oft meira að segja með sól
palli. Auðvitað er eftir að klára þau
að innan en mörg þessara húsa
koma líka með tilbúnum innrétt
ingum og innanstokksmunum. Ég
segi stundum í gríni að ég hafi náð
að byggja eitt hús í dag, svo fljótt
gengur vinnan fyrir sig. Verktím
inn er því aðalatriðið ef við berum
einingahúsin saman við hefðbund
in hús sem eru smíðuð spýtu fyrir
spýtu. Margir kjósa líka forsteypta
sökkla undir húsin. Þá náum við
yfirleitt að setja sökkulinn niður,
flytja húsið á staðinn og setja upp
daginn eftir á um 40 klukkutímum
Þetta er allt annað líf en að vera
með smiði í vinnu í langan tíma.“
Sniðug og hagkvæm lausn
Hann segir alls konar fólk velja
einingahús fram yfir aðra kosti.
„Fyrst og fremst er þetta fólk
sem kýs skjótan byggingartíma.
Kostnaðarlega eru einingahús
líka oft hagkvæmari, sérstaklega
sumarhúsin. Einingahúsum fylgir
ekki þessi óvissa með breytilega
þáttinn og því minni áhætta þegar
kaupendur gera áætlanir sínar.“
Daníel spáir því að fleiri
Íslendingar eigi eftir að velja slíkar
lausnir í framtíðinni. „Auðvitað
hangir þetta allt á kostnaðarhlið
inni en persónulega er ég í engum
vafa um að einingahúsin séu mjög
sniðug og hagkvæm lausn. Þau eru
framleidd við kjöraðstæður inni í
verksmiðju þar sem er minni hætta
á göllum, ýmissi yfirsjón og jafnvel
lekum. Í landi eins og Íslandi, þar
sem þú veist aldrei hvort þú sért að
fá tvo góða daga eða tuttugu góða
daga í röð yfir byggingartímann,
þá eru einingahúsin pottþétt snjöll
lausn.“ n