Fréttablaðið - 21.09.2021, Síða 36
Það var góð stemning í
hönnunarbúðinni Kiosk á
laugardaginn í tilefni þess að
ár er liðið síðan verslunin var
opnuð á ný á Granda. Búðin er
rekin af þeim Eygló Margréti,
Helgu Lilju, Magneu, Anitu og
Hlín, en þær eru sammála um
að svæðið sé í mikilli sókn.
steingerdur@frettabladid.is
Ein flottasta hönnunarbúð lands
ins, Kiosk, hélt upp á það á laugar
daginn að ár er liðið síðan versl
unin var opnuð á ný á Granda og
var margt góðra gesta. Búðin er
rekin af fatahönnuðunum Magn
eu Einarsdóttur, Anitu Hirlekar,
Eygló Margréti Lárusdóttur, Helgu
Lilju Magnúsdóttur og skartgripa
hönnuðinum Hlín Reykdal. Merkin
heita eftir þeim ef frá er skilið merki
Helgu Lilju, Bahns. Einnig er ýmis
hönnunarvara seld í versluninni og
ný sending af ilmvötnum frá And
reu Maack kom loks í hillurnar í
tilefni dagsins. Búðin var áður stað
sett í miðbænum. Þær ákváðu eftir
stutta pásu að opna verslunina á
Granda enda eru þær sammála um
að svæðið sé í mikilli sókn. Aðdá
endur búðarinnar mættu að sjálf
sögðu í afmælið og létu sig hafa
leiðindaveður bara til að komast í
gleðskapinn.
Eygló segir að það hafi verið mikið
stuð í afmælinu.
„Heldur betur! Enda mikil upp
söfnuð þörf hjá fólki fyrir að komast
út og lyfta sér upp.“
Kiosk var fyrst stofnuð árið 2010
af nokkrum fatahönnuðum.
„Þar á meðal Eygló og Hlín. Við
sáum að það var vöntun á stað fyrir
unga fatahönnuði að taka sín fyrstu
skref. Verslunin hefur nú á þessum
ellefu árum alið af sér margan
framúrskarandi hönnuðinn. Nú
þegar við opnuðum verslunina
aftur á Grandanum ákváðum við
að hafa aðeins aðrar áherslur en við
eigendurnir erum nú allar með þó
nokkra reynslu að baki,“ útskýrir
Helga Lilja.
Glæsilegur blöðruveggur skreytti
einn vegg búðarinnar. Gestir fengu
svo glæsilegan vönd með nál og á
endanum fengu allir að stinga á
blöðru, en inni í þeim voru veglegir
vinningar.
„Ég er mikil bingódrottning og
við Erna blöðrubína vorum að
hafa það huggulegt á Kaffibarnum
þegar þessi skemmtilega hugmynd
kom upp. Erna er með verslunina
Pippa. is og er sérfræðingur í blöðru
skúlptúrum og ég er þekkt fyrir að
gjörsamlega elska svona leiki og gott
bingó,“ segir Eygló.
Hún segir það magnað og gleði
legt hversu fyrsta árið hefur gengið
vel.
„Við eigum sterkan kúnnahóp
enda höfum við allar verið starf
andi í áratug eða svo. Covid virðist
ekki hafa haft neikvæð áhrif á
reksturinn, jákvæð ef eitthvað er,
enda hefur fólk ekki komist mikið
til útlanda. Við finnum líka alltaf
fyrir auknum meðbyr frá íslensk
um kúnnum þegar einhvers konar
kreppa skellur á.“
„Við höfum einnig fundið fyrir
aukinni sölu í gegnum netverslunina
okkar, kioskgrandi.com, en þar er
að finna það nýjasta og einnig eldri
vörur hjá okkur, “ bætir Anita við.
Hvað kom til að þið ákváðuð að
flytjast út á Granda?
„Við sáum rýmið auglýst en það er
ekki hlaupið að því að fá pláss hérna
í verbúðunum. Við erum komnar til
að vera á þessum stað. Grandinn
hefur allt sem hægt er upp á að
bjóða, æðislega veitingastaði, kjöt
búð, matarverslanir, bílaþvottastöð,
ísbúðir, granólabar. Nefndu það!
Svo ekki sé minnst á gott aðgengi og
ókeypis bílastæði. Hvernig er annað
hægt en að elska Grandann?“ ■
Kiosk hélt upp á eins árs veru úti á Granda
Eygló Margrét,
Magnea, Hlín
og Anita voru
gríðarlega
ánægðar með
mætinguna.
MYNDIR/KATRÍN
LILJA ÓLAFSDÓTTIR
Allir sem mættu á viðburðinn fengu að stinga á blöðru í
tilefni afmælisin en þær innihéldu allar fína vinninga.
Leikkonan Þuríður Blær Jóhannsdóttir var ánægð með vinninginn sinn.
Þorbjörg Þórðardótttir, Þórður Hall, Hadda Fjóla Reykdal
og Jóhanna Vigdís Þórðardóttir létu sig ekki vanta.
Hönnuðirnir eru sammála um að sala hafi jafnvel aukist í heimsfaraldrinum.
Heinz og Ilze mættu í afmælið.
Blöðruveggurinn vakti mikla lukku
hjá yngri kynslóðinni.
Mæðgurnar Hlín Reykdal, Jóhanna Vigdís Þórðardóttir og
Hadda Fjóla Reykdal skemmtu sér konunglega í boðinu.
Við finnum líka alltaf
fyrir auknum meðbyr
frá íslenskum kúnnum
þegar einhvers konar
kreppa skellur á.
Eygló
16 Lífið 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGUR