Fréttablaðið - 21.09.2021, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Lagið fjallar um að
halda að maður sé
búinn að missa vitið,
sé bara með ranghug-
myndir eða lygari og
eigi ekki hlutdeild í
þessum heimi.
Nú á dögunum gaf Annalísa
Hermannsdóttir út mynd-
band við lagið Ég er bara
að ljúga er það ekki? Lagið
fjallar um upplifun þolenda
af kynferðisofbeldi og öðrum
tegundum ofbeldis.
steingerður@frettabladid.is
Annalísa Hermannsdóttir er nýút-
skrifaður sviðshöfundur frá LHÍ,
leikstjóri og tónlistarkona. Hún gaf
út fyrstu plötuna sína, 00:01, í fyrra.
„Ég hef leikstýrt öðrum tón-
listarmyndböndum, til dæmis
fyrir hljómsveitina Milkhouse og
svo K.óla en ég er líka meðlimur
„live“-hljómsveitar hennar þar sem
ég spila á hljómborð og syng bak-
raddir.“
Á fimmtudaginn kom út fyrsta
tónlistarmyndband Önnulísu, við
lagið Ég er bara að ljúga er það ekki?
„Það er blanda af lagi og hljóð-
mynd. Ég samdi það snemma árið
2020 innblásin af upplifun þolenda
hvers kyns of beldis. Þeim tilfinn-
inga- og ofhugsanarússíbana sem
því fylgir. Lagið fjallar um að halda
að maður sé búinn að missa vitið, sé
bara með ranghugmyndir eða lyg-
ari og eigi ekki hlutdeild í þessum
heimi, en þolendur upplifa sig oft
utan við raunveruleikann í kjölfar
áfalla. Ég samdi lagið og f lyt það,“
segir Annalísa.
Afneitun ásakana
Hún segir myndbandið vera sam-
suðu tónlistarmyndbands og stutt-
myndar.
„Tónlistarmyndbandsverk er
kannski besta orðið til þess að lýsa
því. Myndbandið fjallar um þær
margslungnu tilfinningar og hugs-
anir sem ég tala um hér fyrir ofan á
myndrænan hátt,“ segir hún.
Lagið og myndbandið urðu til
út frá verki sem hún gerði á 2. ári á
Sviðshöfundabraut í Listaháskóla
Íslands. Í verkinu skoðaði hún
áföll og ofbeldi út frá persónulegri
reynslu þolenda.
„Nú hefur kynferðisof beldi,
kærumál og ærumál verið mikið
í umræðunni, enn meira en áður
fyrr, og við erum mikið búin að vera
að velta því fyrir okkur hvernig við
eigum að takast á við þessi mál sem
samfélag. Hvernig við getum tekist
á við að einhverjir sem við litum
upp til séu allt í einu orðnir þau
„skrímsli“ sem skrímslavæðingin
gerir gerendur. Þegar þessir ger-
endur voru guðir og eru allt í einu
sagðir skrímsli þá er auðveldara
að loka augunum fyrir þeim stað-
reyndum sem lagðar eru á borð eða
jafnvel afneita þeim,“ segir hún.
Flókin staða
Umræðan hefur mikið snúist um
það hverju eða hverjum maður eigi
að trúa, að sögn Önnulísu.
„Við höfum rætt að konur geti
logið til um of beldi, spunnið það
upp og eyðilagt orðspor og æru
manns út frá lygum einum og þar
fram eftir götum. Við höfum talað
um að tölfræðin segi okkur samt
annað, að það séu gríðarlega litlar
líkur á því að þolendur ljúgi. Margir
opinbera heldur aldrei sögu sína. Í
þessari umræðu gleymum við að
ræða það að þolandi trúir sér oft
ekki sjálfur, skilur ekki hvað gerð-
ist, hvernig sér líður, afneitar því,
vill ekki trúa því, vill bara frekar
hafa gaman, gleyma þessu. Við
höfum ekki talað mikið um þær
svakalegu afleiðingar sem ofbeldið
hefur á þolandann, miklu frekar
gerandann. Af hverju fær reiðin
mín, sorgin, dofinn minn, kvíðinn
minn, þunglyndið mitt, hræðslan
mín ekki jafn stórt pláss og æran
þín? Af því að ég er bara að ljúga er
það ekki?“
Hún segir gerð myndbandsins
hafa gengið vel.
„Það gekk mjög vel, það var
geggjað að vinna með þessum stór-
kostlegu konum sem ég vann með,
þeim Katrínu Helgu Ólafsdóttur
sem framleiddi myndbandið og var
mín hægri hönd í gegnum þetta allt
saman, Rakel Ýri Stefánsdóttur sem
skaut það og Söru Ósk Þorsteins-
dóttur sem aðstoðaði á setti með
ljós og fleira. Ég klippti svo mynd-
bandið, sem var auðvitað krefjandi
þar sem ég leik í því og leikstýri
sjálf, en það var líka mjög gefandi
og skemmtilegt.“
Hægt er að nálgast myndbandið
á YouTube. n
Gerði myndband
um upplifun þolenda
Myndbandið var frumsýnt síðasta fimmtudag í Bíó Paradís. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
� 22. SEPTEMBER, KL. 20.00
� FLÓA, HÖRPU
Miðasala á harpa.is og tix.is
Fönkuð, kraftmikil og klúbbvæn tónlist
Þýsk-Rúmenska stórsveitameistarans frá
áttunda áratuginum.
Stjórnandi: Samúel J Samúelsson
P�Tee�
hheerrbbbbbooooooollzzzzzzz
�eeI�Err
30 ���
SÖNGTRÍÓIÐ SKEL
HLJÓMSVEIT
Ú T G Á F U T Ó N L E I K A R
og fleiri, ásamt
Í KVÖLD ER ALLT SVO
UNDARLEGA HLJÓTT
-lögin sem glötuðust
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021, kl:13
FRÍKIRKJUNNI Í REYKJAVÍK, MIÐAVERÐ: 3000 kr.
LÖG EGGERTS THORBERGS
KJARTANSSONAR
OG SAMTÍMA DJASSPERLUR
MIÐASALA Á TIX.IS OG VIÐ INNGANGINN
18 Lífið 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ