Morgunblaðið - 31.05.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000
Verona
Verð frá kr.
19.950
önnur leið m/ handfarangri
Verð frá kr.
39.900
báðar leiðir m/ handfarangri
TAKTU FLUGIÐ TIL ÍTALÍU Í SUMAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu
mun byrja að boða handahófskennt í
bólusetningar í
vikunni. Áður en
farið verður í það
verður reynt að
tæma alla for-
gangslista. „Þetta
er fólk sem hefur
áður fengið boð
um bólusetningu
en hefur ekki
komist eða hefur
hafnað boðinu,
meðal annars
vegna þess að það hefur ekki viljað
það bóluefni sem er í boði,“ segir
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins. Nokk-
ur þúsund manns eru eftir á þessum
listum og ekki liggur fyrir hversu
margir munu svara kallinu.
Á þriðjudag verða 7.700 skammtar
af Pfizer gefnir. Á miðvikudag verður
bóluefni frá Moderna notað, 5.000
skammtar, og á fimmtudag verða
gefnir um 600 skammtar af Janssen.
Áhafnir skipa og flugfélaga hafa verið
í forgangi þegar kemur að bóluefni
Janssen þar sem aðeins þarf að gefa
einn skammt af því.
Dregið um árganga
Um leið og það liggur fyrir hversu
margir af forgangslistunum munu
mæta í bólusetningu verður tekin upp
handahófskennd boðun. Ragnheiður
segir fyrirkomulagið verða einfalt.
Árgöngum verður skipt í tvennt eftir
kyni. Miðar prentaðir með árgangi og
kyni, þeir settir í tvær krúsir, karla-
krús og kvennakrús, og svo dregið til
skiptis svo kynjahlutfallið haldist
jafnt. Síðan verða árgangar boðaðir
eftir hefðbundnum leiðum með SMS-
skilaboðum.
„Það átti fyrst að fara að forrita
kerfi en svo var svo mikið af verk-
efnum hjá forriturunum okkar. Þann-
ig að við sáum að þetta yrði einfald-
ast. Þessi leið er nokkuð sanngjörn og
við munum grípa til hennar þegar við
sjáum hvernig mætingin verður á
þriðjudag,“ segir Ragnheiður.
Árgangar frá 1975 til 2005
Hún gerir ráð fyrir að árgangur
1975 verði elsti árgangurinn í handa-
hófskenndu boðuninni og því verður
31 árgangur í pottinum. Meðalfjöldi
fólks í hverjum árgangi frá 1975 til
2005 er um 3.400.
Um 20.000 skammtar af bóluefni
Pfizer eru á leiðinni til landsins í vik-
unni og er þetta stærsta sendingin til
þessa. Að sögn Júlíu Rósar Atladótt-
ur, framkvæmdastjóra Distica, munu
álíka stórar sendingar koma frá lyfja-
fyrirtækinu í hverri viku í júnímán-
uði.
Dregið handahófskennt í vikunni
- Tæma lista yfir forgangshópa - Einfaldasta leiðin varð fyrir valinu - Árgöngum skipt eftir kyni
Ragnheiður Ósk
Erlendsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Laugardalshöll Yfir 13 þúsund skammtar af bóluefni verða gefnir í vikunni.
Tilvalið er að ganga um borgina nú þegar lifnar yfir og
laufin á trjánum fara að birtast. Það vita þessar þrjár
sem fóru leiðar sinnar fótgangandi um borgina á dög-
unum. Þær urðu á vegi ljósmyndara Morgunblaðsins en
kipptu sér ekki upp við það, nema sú aftasta, sem horf-
ir undrunaraugum í átt að myndavélinni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gengið um höfuðborgina í góða veðrinu
Loks sjást lauf á trjám borgarinnar
Samherji hefur gengið of langt í við-
brögðum sínum við umfjöllun fjöl-
miðla um fyrirtækið og biðst fyrir-
tækið afsökunar á framgöngu sinni.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá
félaginu sem birtist í gær.
Vísar félagið þar væntanlega til
tölvupóstsamskipta starfsmanna fé-
lagsins sín á milli, sem Kjarninn
gerði opinber á dögunum.
Þar ræddi hópur starfsmanna fé-
lagsins, sem kallaði sig „skæruliða-
deild fyrirtækisins“, um leiðir til að
koma höggi á blaðamenn sem hafa
staðið í stafni í umfjöllun um starf-
semi Samherja í Namibíu og meint-
ar mútugreiðslur, einkum Helga
Seljan, auk þess að leggja á ráðin
um hvernig beita megi ítökum sínum
til að hafa áhrif á formannskjör í
Blaðamannafélaginu og prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í Norðaustur-
kjördæmi.
Ekki náðist í Þorstein Má Bald-
vinsson, forstjóra Samherja, vegna
málsins í gær og Þorbjörn Þórðar-
son, fjölmiðlafulltrúi Samherja, neit-
aði að tjá sig.
Samherji hf.
baðst í gær
afsökunar
- Segja að of langt
hafi verið gengið
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðs-
stjóri Kjöríss, bar sigur úr býtum í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi og Njáll Trausti
Friðbertsson þigmaður gerði slíkt
hið sama í Norðausturkjördæmi.
Prófkjör flokksins í kjördæmunum
tveimur fóru fram á laugardag.
Vilhjálmur laut í lægra haldi
Í Suðurkjördæmi hafði Guðrún
betur gegn Vilhjálmi Árnasyni þing-
manni, sem einnig hafði boðið sig
fram til að leiða listann, en hann varð
annar í prófkjörinu. Í fyrsta sæti
munaði 274 atkvæðum á Guðrúnu og
Vilhjálmi. Þriðji varð Ásmundur
Friðriksson þingmaður, sem hafði
óskað eftir öðru sætinu. Í fjórða sæti
hafnaði Björgvin Jóhannesson en í
því fimmta varð Ingveldur Anna Sig-
urðardóttir.
Í Norðausturkjördæmi varð Njáll
Trausti efstur, en Gauti Jóhannes-
son, forseti sveitarstjórnar Múla-
þings, sem einnig hafði gefið kost á
sér til forystu, varð þriðji. Hann hef-
ur ákveðið að þiggja ekki sæti á lista.
Önnur í prókfjörinu varð Berglind
Ósk Guðmundsdóttir lögfræðingur.
Í fjórða sæti lenti Berglind Harpa
Svavarsdóttir en í því fimmta varð
Ragnar Sigurðsson.
Stærstur í báðum kjördæmum
Í Suðurkjördæmi hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn þrjá þingmenn, Pál
Magnússon, Ásmund Friðriksson og
Vilhjálm Árnason. Páll Magnússon
gaf ekki kost á sér en athygli vekur
að Vilhjálmur hafnaði fyrir ofan Ás-
mund í nýafstöðnu prófkjöri.
Í Norðausturkjördæmi hefur
Sjálfstæðisflokkurinn tvo þingmenn,
Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, og
Njál Trausta Friðbertsson, nýkjör-
inn oddvita.
Guðrún og Njáll nýir odd-
vitar Sjálfstæðisflokksins
- Prófkjör fóru fram í tveimur kjördæmum um helgina
Guðrún
Hafsteinsdóttir
Njáll Trausti
Friðbertsson
Karlmaður á miðjum aldri var úr-
skurðaður látinn á Landspítala í
gær eftir að hafa lent í slysi í Pat-
reksfirði. Samkvæmt tilkynningu
lögreglu lenti maðurinn í miklum
straumi í hyl undir Svuntufossi í
Patreksfirði.
Lögregla, sjúkralið og björg-
unarsveit voru kölluð á vettvang en
tilkynning barst Neyðarlínunni
klukkan 11:19 fyrir hádegi í gær.
Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar
einnig kölluð til og flutti hún hann
síðar á Landspítala í Reykjavík þar
sem hann var úrskurðaður látinn.
Í tilkynningu segir að maðurinn
hafi reynt að fara út í hylinn undir
fossinum í Ósá, sem er fyrir botni
fjarðarins. Þar virðist hann hafa
misst fótanna, lent í sjálfheldu und-
ir straumnum og fest þar til nær-
staddir komu honum til hjálpar.
Hann hafði þá misst meðvitund en
nærstaddir hófu endurlífgun uns
hjálpin barst. Rannsókn á til-
drögum slyssins er í höndum lög-
reglunnar á Vestfjörðum. Ótíma-
bært þykir að greina frá nafni
mannsins að svo stöddu en fjöl-
skyldu hans hefur verið tilkynnt
um andlátið.
Lést eftir
slys í Pat-
reksfirði