Morgunblaðið - 31.05.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.05.2021, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021 ✝ Pétur Geir Helgason fædd- ist í Álftafirði við Ísafjarðardjúp 15. nóvember 1932. Hann lést í Reykja- vík 21. maí 2021. Hann var sonur hjónanna Helga Benediktssonar, f. 29. október 1893, d. 12. des 1975, og Jónínu Péturs- dóttur, f. 11. júní 1905, d. 31. mars 1985. Systkini Péturs Geirs voru: Benedikt Helgason, f. 1923, lát- inn, Guðmundur Helgason, f. 1925, látinn, Birna Benjamíns- dóttir, f. 1927, Guðmundur Helgason, f. 1929, látinn, Lúðvíg Helgason, f. 1936, látinn, og Sig- ríður Helgadóttir, f. 1941, látin. Guðmunda Jóna Pétursdóttir, f. 5. apríl 1901, d. 23. janúar 1993, móðursystir Péturs Geirs, tók hann í fóstur þegar hann var fjögurra mánaða gamall og ól hann upp, fyrst með Pétri Janusi Oddssyni, f. 10. janúar 1902, d. 27. október 1976, en ein eftir að þau skildu. Fyrir átti Guðmunda Jóna dótturina Fanneyju Hall- dórsdóttur, f. 26. febrúar 1924, d. þau fram til ársins 1988 þegar þau fluttu á Árskógsströnd í eitt ár en bjuggu eftir það jöfnum höndum á Akureyri og Kópaskeri til ársins 2007. Það var vinnan sem réð flutn- ingum þeirra. Pétur Geir var lengst af sjómaður og útgerð- armaður á Ísafirði, var bæði með vélstjórapróf og skipstjórnarpróf og þá lærði hann niðursuðu ung- ur að árum í París. Í nokkur ár var hann yfirfiskmatsmaður hjá Fiskmati ríkisins. Hann var verk- stjóri í rækjuverksmiðju á Kópa- skeri í þrjú ár og forstjóri rækju- verksmiðju á Árskógsströnd í um þrjú ár. Eftir það stundaði hann trilluútgerð á sumrin frá Kópa- skeri fram til ársins 2002 þegar hann og Ósk seldu sumarhús sitt þar. Haustið 2007 fluttu Pétur Geir og Ósk til Reykjavíkur þar sem hún lést síðan hinn 30. janúar 2008. Eftir það bjó Pétur Geir einn en síðustu mánuðina var hann á Landakoti, Vífilsstöðum og loks Droplaugarstöðum þar sem hann lést. Útförin fer fram frá Neskirkju í Reykjavík í dag, 31. maí 2021, klukkan 16. Erfidrykkja verður í safnaðarheimilinu eftir útför. Vegna sóttvarnaráðstafana eru þeir sem ekki tilheyra nán- ustu fjölskyldu beðnir að hafa samband við Heimi Má á netfang- inu heimirmar@me.com hafi þeir áhuga á að mæta við útför- ina. 5. október 2008, og leit Pétur Geir alla tíð á hana sem syst- ur sína. Pétur Geir kvæntist árið 1952 Ósk Norðfjörð Ósk- arsdóttur, f. 9. júní 1934, d. 30. janúar 2008, frá Hrísey. Börn þeirra eru: 1) Óskar Geir, f. 1. september 1952. 2) Rúnar Þór, f. 21. september 1953. 3) Guðmunda Jóna, f. 13. september 1958. 4) Heimir Már, f. 20. maí 1962. Pétur Geir og Ósk ólu einnig upp að mestu dótt- urdóttur sína Ósk Norðfjörð yngri. Barnabörn Péturs Geirs og Óskar eru sextán talsins, barna- barnabörn eru tuttugu og níu og barnabarnabarnabörn þrjú. Pétur Geir og Ósk bjuggu fyrstu tuttugu og þrjú búskaparár sín á Ísafirði, lengst af á Selja- landsvegi 30 sem þau byggðu og fluttu inn í árið 1961. Árið 1976 fluttu þau til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu í eitt ár áður en þau fluttu til Kópaskers þar sem þau bjuggu í þrjú ár áður en þau fluttu aftur til Ísfjarðar. Þar voru Pabbi var ástríðumaður í öllu, einkalífinu, samskiptum sínum við fólk og í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var eigin- lega svo mikill tilfinningamaður að hann hefði sómt sér vel í stórri ítalskri fjölskyldu. Lífið með hon- um var á köflum eins og í Fellini- kvikmynd, oft eins og í Chaplin- mynd því hann hafði mikinn húm- or og gat verið grallari en stund- um eins og í Bergman-kvikmynd því hann gat líka verið mjög dramatískur. Pabbi gerði aldrei neitt til hálfs. Þegar hann var rækjusjómaður dugði ekkert annað en að vera bestur og það gat verið erfitt því margir rækjukarlar vestur á Ísa- firði voru bestir. Hann var feng- sæll, heppinn með áhöfn alla tíð og fundvís á ný mið. „Þar sem fræð- ingarnir fyrir sunnan segja að aldrei finnist rækja, þar fann ég rækju,“ sagði hann og hló, oft. Þegar hann var opinber yfir- fiskmatsmaður ríkisins á Vest- fjörðum og síðan yfirmatsmaður rækjuvinnslu í öllu landinu gaf hann aldrei þumlung eftir í kröf- um um gæði íslenskra sjávaraf- urða, hvort sem vinir eða kunn- ingjar áttu í hlut eða bláókunnugir menn. Ónefndur ráðherra þrýsti eitt sinn á hann að snúa við ákvörðun sinni um að stöðva út- flutning á úldnum fiski eftir að út- gerðarmaðurinn hafði skælt á öxl ráðherrans. Það kom ekki til greina og sagði pabbi ráðherran- um að hann gæti þá gefið út út- flutningsleyfið sjálfur fyrst hann hefði svona mikið vit á fiskgæðum. Pabbi hugsaði um orðspor Ís- lands. Svo fór að ráðherrann gaf sig ekki en það gerði pabbi ekki heldur og sagði upp störfum. Síð- ar var hann aftur ráðinn til rík- isins af öðrum ráðherra til að fara með gæðaeftirlit á rækju á öllu landinu. Það tók þau nítján ára Ísfirð- inginn og sautján ára Hríseyjars- nótina ekki langan tíma að fella hugi saman eftir að hún kom vest- ur á Húsmæðraskólann sem hét hennar nafni haustið 1961. Þau eignuðust okkur fjögur systkinin og fylgdust að allt þar til mamma dó hinn 30. janúar 2008. Pabbi var unnandi tónlistar og spilaði á nokkur hljóðfæri. Hann var í Lúðrasveit Ísafjarðar í mörg ár, spilaði í danshljómsveitum og á efri árum tók hann að yrkja. Árið 2011 kom út ljóðabókin Sólrúnir sem hann hafði alltaf í farteskinu á ferðum sínum um landið og seldi eins og heitar lummur. Pétur Geir var félagsmaður enda réttsýnn og heiðarlegur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Fór fyrir félagi smábátasjómanna á Ísafirði í mörg ár og var ástríðu- fullur stuðningsmaður og fram- kvæmdastjóri ÍBÍ til margra ára. Margir segja að hann hafi rifið fé- lagið upp úr þriðju deild sem þá var upp í þá fyrstu. Hann blés strákunum baráttuanda í brjóst. Tók upp nýjungar eins og áheita- kerfi og gerði út hersveit fjöl- skyldu og sjómanna sem sá til þess að enginn fór á leik án þess að borga fyrir það. Við sem þekktum hann best minnumst bæði gleði- og sorgar- stunda í lífi okkar með þessum mikla manni, honum föður okkar. Hann kenndi okkur bæði að fyr- irgefa og biðjast fyrirgefningar þannig að frá lífinu fer hann skuld- laus. Far í friði pabbi minn. Óskar Geir, Rúnar Þór og Heimir Már. Elsku afi minn, ég kveð þig með gleði í hjarta og full þakklætis. Ég þakka Guði fyrir eina af mínum stærstu blessunum að hafa fengið að alast upp hjá þér og ömmu. Afi, þú hefur alltaf verið klett- urinn í mínu lífi. Þú og amma kennduð mér gildi þess að eiga fjölskyldu. Sameiginleg ást ykkar til barna minna mun lifa um ókomna tíð. Þið gáfuð allt ykkar í að styðja börnin ykkar og barna- börn og alltaf varst þú til staðar, minn besti vinur og faðir sem ég hefði getað hugsað mér. Þið amma gerðuð æsku mína dásamlega og á ég ykkur allt að þakka. Ég, Svenni og börn erum þér ævinlega þakklát fyrir allar stundirnar með þér, ekki síst að þú hafir komið með okkur til Flór- ída í fyrra. Sú minning er og verð- ur í hávegum höfð alla okkar tíð. Elsku afi, ég treysti því að nú sértu í partíi á himnum. Þú og amma sameinuð á ný. Við kveðj- um þig, elsku afi minn, full þakk- lætis fyrir allt það sem þú varst, þangað til við hittumst á ný. Ósk, Sveinn og börn. Við fjörðinn fagra heima á Ísa- firði eigum við margar góðar minningar. Pétur Geir og fjöl- skylda eiga mikinn hluta þeirra góðu minninga. Það var daglegur samgangur á milli heimilanna. Pétur og mamma (Fanney Hall- dórsdóttir) voru systrabörn og uppeldissystkini því Pétur kom í fóstur hjá ömmu, Guðmundu J. Pétursdóttur, nokkurra mánaða gamall. Alltaf var talað um Pétur bróður með hlýju og var mikill systkinakærleikur á milli þeirra. Ég rakst á ljóð í gamalli dagbók sem mamma skildi eftir sig en hún dó árið 2008. Ljóðið var skrifað við afmælisdag Péturs: Ég vil þér vera systir góð þó stundum sé ég nokkuð hljóð. Ljós og yl vil færa bróður mínum kæra. Í æskuminningum voru það líf- legar umræður og rökræður um sjávarútveg, pólitík og margt fleira sem stendur upp úr. Pétur var orkumikill og frumkvöðull í sér. Hann var einn af þeim fyrstu til að veiða djúprækjuna og varð síðan verksmiðjustjóri í rækju- vinnslu. Hann var einnig yfirfisk- matsmaður þar sem hann fór á milli fiskvinnsluaðila og báta til að skoða og ráðleggja. Ung fór ég að hafa áhuga á sjávarútvegi og gat gjarnan leitað ráða hjá Pétri og fetaði í fótspor hans að nokkru leyti í atvinnu. Við kenndum bæði hjá Starfsfræðslunefnd fiskvinnsl- unnar og unnum hjá Framleiðslu- eftirliti sjávarafurða og hittumst þó nokkuð á ferðum okkar um landið og þá var gaman að spjalla um heima og geima. Pétur Geir og Ósk eru dýrmæt minning hjá okkur systkinum. Nú fá þau að vera saman og ég veit að það verður vel tekið á móti okkar kæra frænda í Sumarlandinu. Óskar, Rúnar, Munda og Heim- ir, við systurnar Fríða og Fanney sendum fjölskyldunni okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Nanna Bára Maríasdóttir. Þeir voru nú ekki beinlínis að flíka mjúku hliðinni karlmennirnir í faðmi fjalla blárra á síðustu öld. Þegar við bættist hrjúfur og mikill raddstyrkur vandaðist málið enn frekar. En eftir örfá orð komu mjúku tónarnir í ljós. Í orðsins fyllstu merkingu. Þannig var Pét- ur Geir í minningu neðribæjar- púkans. Hrjúfur en ljúfur sæúlfur. Einn af þessum mönnum sem maður kunni fljótlega skil á eftir að reglubundnar bryggjuferðir æskunnar hófust. Þá trúlega var hann orðinn útgerðarmaður á Pól- stjörnunni. Hann fór aldrei langt frá hafinu og því sem það gaf af sér. Haustið 1980 var hóað saman sex mönnum á Engjaveginn til Kitta og Hansínu. Vart var hægt að hugsa sér ólíkari hóp manna. Þeir höfðu samt allir áhuga á fót- bolta og tóku það að sér að reyna að láta villta drauma rætast um sæti til handa ÍBÍ meðal þeirra bestu á landinu. Efniviðurinn í íþróttamönnunum hafði verið til staðar en einhvern veginn hafði þetta aldrei smollið saman tuttugu árin þar á undan. Þetta kvöld hófst vinátta okkar sem aldrei bar skugga á síðan. Ásamt félögum okkar gengum við til verka og náðum með samstilltu átaki íbúa að láta drauminn ræt- ast. Hvað sem titlar okkar stjórn- armanna gáfu til kynna var hann potturinn og pannan í þessu starfi. Hugmyndaauðgi hans í fjáröflun- um var óþrjótandi og á stundum virkuðum við hinir eflaust eins og bölvaðar bremsur á hann á köfl- um. Við unnum einstaklega vel saman þessi ár. Þó hann tæki starf sitt mjög alvarlega setti glaðværð hans og glettni einatt skemmtileg- an svip á fjölmörg ferðalög þess- ara ára. Þá spratt líka stundum fram tónlistarmaðurinn í honum. Eftirminnileg er minningin um kvöldverðarhófið í þýska bænum að afloknum sigurleik okkar manna. Þar rak hann augun í nikku eina mikla. Hún var á auga- bragði komin í fang hans og ljúfir tónar bárust um salinn þýskum gestgjöfum okkar til mikillar undrunar og gleði. Haustið 1981 komust drengirnir okkar í hóp þeirra bestu eins og stefnt var að. Það voru dýrðar- tímar. Grettistakið sem Pétur Geir lyfti á þessum árum gleymdist knattspyrnuforystunni ekki og árið 2007 var hann, fyllilega verðskuld- að, sæmdur gullmerki KSÍ. Mikið vorum við montnir það kvöld. Svo tóku önnur verkefni við. Pétur Geir gerðist rækjuverkandi í Eyjafirði enda þekktu fáir menn kampalampann betur en hann. Aftur lágu leiðir okkar saman í forystu rækjuverkenda. Þar var hann líkt og fyrrum góður og traustur liðsmaður. Réttum fjörutíu árum eftir að fyrstu leikirnir voru leiknir, sem mörkuðu upphaf ævintýrisins, hefur Pétur Geir kvatt þetta jarð- líf. Í fjölmörgum samtölum okkar síðla kvölds forðum daga kom í ljós að hann var mjög trúaður maður, sem er raunar mjög al- gengt meðal sjómanna. Um leið og ég votta öllu hans góða fólki sam- úð mína enda ég á orðum hagyrð- ingsins Péturs Geirs. Minn frelsari ég fel þér öll mín ráð og fagna þér að dögum mínum töldum. (PGH) Halldór Jónsson. Pétur Geir afi minn er fallinn frá. Ég var svo heppinn að geta ver- ið hjá þér síðustu dagana og í friði og ró fékk ég að halda í hönd þína þegar þú tókst síðasta andardrátt- inn, það var lýsandi um svo margt sem var á milli okkar afa. Ég er elsta barnabarn ömmu og afa og voru þau okkur bræðrum ómetan- leg í okkar uppvexti. Það var ansi oft komið við á Seljalandsveginum bæði sísvangir og drulluskítugir púkar eftir að hafa verið á leikvelli Ísafjarðar sem var allur undir. Það var sama hvort það voru bygging- ar, bátar, bryggjur, slippurinn eða hvaðeina, þá stóð ekki á ömmu að lesa yfir litlu gröllurunum, skrúbba hendur og gefa að borða og athuga reglulega hvort skóbúnaðurinn væri ekki í lagi. Það er svo margt sem kemur upp í hugann en þá fyrst og fremst mikið þakklæti því þið voruð okkur svo góð. Afi, þú gafst mér oft góð ráð og nálgaðist mig alltaf af mikilli nær- gætni og virðingu þegar ég var ungur og ráðvilltur sem varð alltaf til þess að manni þótti ástæða til að hlusta og leggja sig fram við að fara eftir ráðum þínum. Sömu að- ferð hef ég lagt mig fram um að sýna og kenna mínum börnum og barnabörnum. Nú veit ég að þú ert kominn til ömmu sem þú hafð- ir saknað svo lengi. Þú verður allt- af í hjarta mínu og veit ég að þú átt eftir að vaka yfir okkur og fylgja mér á sjónum, við vorum búnir að ganga frá því. Guð geymi þig, elsku afi minn. Erling Arnar Óskarsson. Pétur Geir Helgason ✝ Ingibjörg Jóna Magn- úsdóttir fæddist í Reykjavík 16. júlí 1992. Hún lést á bráðamóttöku Landspítalans 17. maí 2021. Foreldrar henn- ar eru Magnús Einarsson Höj- gaard og Eva Jóna Ásgeirsdóttir. Eig- inkona Magnúsar er Kristín Halla Magnúsdóttir og sambýlis- maður Evu Jónu er Guðjón Ing- ólfsson. Systkini Ingibjargar eru Kristín Líf, Þorbjörn Ari, Perla Sóley, Björg Halla, Róbert Dag- ur og Kristbjörg Sigríður. Unnusti Ingibjargar er Gest- ur Ingi Reynisson, f. 19. janúar 1993. Gestur og Ingibjörg kynntust vorið 2018 og keyptu sér íbúð í Fellahverfi. Þau trú- lofuðu sig í ágúst 2020 og ætl- uðu að gifta sig í júní 2022. Hún gekk með ófætt barn þeirra sem átti að fæðast í október. Foreldrar Gests Inga eru Reynir Valdimars- son og Hlíf Gests- dóttir. Ingibjörg ólst upp í Reykjavík og gekk í Fellaskóla og síðar í Ölduselsskóla. Hún bjó lengst af hjá móður sinni eftir að foreldrar hennar skildu en dvaldi mik- ið með föðurfjöl- skyldunni á sumrin í Reykjadal í Þingeyjarsveit. Ingi- björg hélt miklu sambandi við fjölskyldu föður síns og öll systkini sín. Hún vann ýmis þjónustustörf, m.a. hjá Pítunni og American Style, hjá Póstinum og síðast hjá Dýrabæ. Útför Ingibjargar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 31. maí 2021, klukkan 13. Útförinni verður streymt á: https://hljodx.is/index.php/ streymi/. þar er einnig að finna sálma- skrá. Virkan hlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat/. Við áttum ekki von á því að þurfa að skrifa minningargrein um ástkæra tengdadóttur okkar. Hún var skyndilega kölluð frá okkur í blóma lífsins. Lífið blasti við henni og Gesti syni okkar og áttu þau von á sínu fyrsta barni í október. Þau voru búin að skipu- leggja brúðkaup næsta sumar. Við kynntumst Ingu fyrir rúmum þremur árum þegar þau Gestur byrjuðu saman. Þau urðu strax ástfangin og skemmtilegt hvernig þau vógu hvort annað upp. Þau voru bæði sannfærð um að hafa fundið sinn lífsföru- naut og keyptu íbúðina sína sama ár. Þau komu vikulega í mat til okkar og var þá oft glatt á hjalla og mikið talað. Hún var alltaf svo hress og húmorinn hennar einstakur. Við heyrum ennþá hláturinn í henni. Daginn áður en hún lést voru þau í mat hjá okkur og þá var mikið rætt um litla barnið, fyrirhugað kynja- kaffi og bjarta framtíð sem blasti við. Við minnumst margra ann- arra ánægjulegra stunda saman eins og sumarbústaðaferða og fjölskylduboða. Fyrir einu og hálfu ári héldu Inga og Gestur búningaveislu. Þangað mættu bræður Gests. Annar þeirra, Bergþór, ákvað að mæta sem Gestur bróðir hans með gler- augu og gerviskegg og var eig- inlega alveg eins og bróðir hans. Inga hló svo mikið að hún lagð- ist í gólfið. Þetta er ein skemmtilegasta minning sem þeir bræður eiga um hana. Brynjar minnist einnig skemmtilegra umræðna um þætti og kvikmyndir, enda hafði Inga mikinn áhuga á þeim. Við tengdamæðgurnar náðum vel saman og áttum t.d. ánægjulega stund þegar við horfðum saman á hina klassísku mynd Sound of Music. Loksins var einhver í fjölskyldunni sem nennti að horfa með mér á myndina. Við höldum fast utan um hann Gest okkar og sendum innilegar samúðarkveðjur til foreldra, systkina og annarra aðstand- enda Ingu. Minning um góða stúlku lifir. Hlíf og Reynir. Ingibjörg Jóna Magnúsdóttir Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ERNA HJALTALÍN, yfirflugfreyja og flugkona, lést á elliheimilinu Grund föstudaginn 14. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Hjartnæmar þakkir fær starfsfólk á deild V2 á Grund og í Hlíðarbæ fyrir alúð og umhyggju. Jónas Knútsson Halldóra Kristín Þórarinsdóttir Erna Kristín Jónasdóttir Hrefna Kristrún Jónasdóttir Ástkær eiginmaður og minn besti vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN FINNUR ÓLAFSSON rafvirkjameistari, Árbakka 8, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands föstudaginn 21. maí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 3. júní klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Árnessýslu reikn. 325-26-430797, kt. 430797-2209. Athöfninni verður streymt á www.selfosskirkja.is Þóranna Ingólfsdóttir Arndís Hildur Jónsdóttir Davíð Örn Ingvason Ingólfur Örn Jónsson Ása Valdís Árnadóttir Ólafur Þór Jónsson Bjarnfríður L. Guðsteinsdóttir Anna Þóra Jónsdóttir Aðalsteinn Tryggvason afabörn og langafabarn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.