Morgunblaðið - 31.05.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.05.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021 Rýma þurfti útsýnishól við eldgosið í Geldingadölum svo fólk yrði ekki innlyksa þar. Búist er við að hraun- rennslið muni umkringja hólinn fyrr en síðar. Spár vísindamanna hafa gert ráð fyrir þessum möguleika á undan- förnum tíu dögum. Að sögn Gunnars Schram, yfirlögregluþjóns hjá lög- reglunni á Suðurnesjum, voru fáir á svæðinu í gær, aðeins um 50 manns, og því hafi rýmingin ekki tekið lang- an tíma. Útsýnishóllinn hefur verið einn af aðalútsýnisstöðunum frá því gosið hófst og þarna hefur fólk komist hvað næst gosinu. „Eftir því sem líð- ur á gosið verður náttúrlega erfiðara að komast nálægt þessum gosgíg. Það segir sig sjálft eftir því sem hraunið breiðir meira úr sér. Það eru ágætis útsýnisstaðir þarna en þetta breytist aðeins,“ sagði Gunnar við mbl.is í gær. Hóllinn sem um ræðir er á milli Geldingadala og dalsins sem er syðstur Meradala og er hóllinn á nyrsta enda hryggjarins. Útsýnishóll við gos- stöðvarnar rýmdur Morgunblaðið/Einar Falur Vinsæll Útsýnishóllinn var rýmdur til að varna að fólk yrði innlyksa. - Búast við að hraun muni brátt umkringja útsýnishólinn Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Erfitt hefur reynst að manna störf á skurðstofum Landspítalans að undanförnu og má rekja vandann meðal annars til styttingar vinnu- vikunnar. Þetta segir Karl And- ersen, forstöðu- maður hjarta- og æðaþjónustu Landspítalans. „Aðgengi að skurðstofum á Landspítalanum er minna en þarf að vera og það er vegna mann- eklu, fyrst og fremst meðal hjúkrunarfræðinga. Þetta er líka vandamál og hefur verið lengi á gjörgæslunni,“ segir hann. Und- irmönnun á gjörgæslu gerir það að verkum að sjúklingur á ekki möguleika á að leggjast inn á gjör- gæslu eftir aðgerð og því frestast aðgerðir. Færri hjartaskurðlæknar eru starfandi á spítalanum en áður. Tveir eru nú í fullu starfi en fyrir ári voru þeir fjórir. Tveir hafa hætt störfum á síðastliðnu ári. Þó er von á einum hjartaskurðlækni í hlutastarf í september. Til þess að sporna við skortinum hafa erlendir skurðlæknar komið til landsins og tekið að sér afleysingavinnu á spít- alanum. „Við höfum verið að fá lækna sérstaklega frá Svíþjóð, fólk sem við þekkjum vel,“ segir hann. Slíku fylgir nokkur kostnaður en lækn- arnir koma oftast í eina og eina viku í senn. „Það er samdráttur milli ára núna í fjölda aðgerða, þannig að við þurfum ekki eins marga skurðlækna. Full mönnun myndi ég segja að væru fjórir skurðlæknar en við erum að ná upp í það með afleysingafólki, á meðan svona mannekla er.“ Sex skurðskofur en áður sjö Hann segir ástandið ekki nýtt af nálinni en það gangi í bylgjum. „Það er náttúrlega þessi breyting sem kemur með styttingu vinnu- vikunnar sem er takmarkandi og hefur valdið því að núna í sumar verður einhverjum skurðstofum lokað.“ Skurðstofunum hefur þegar fækkað úr sjö í sex. Þarf þá ekki að fjölga starfsfólki í kjölfar styttingar vinnuvikunnar? „Þetta eru sérhæfð störf og það er kannski hægara sagt en gert. Flestar deildir þurfa að bæta sér upp fækkun starfsfólks út af breyttum vinnutíma. Þetta er óbein ástæða, það hefur náttúrlega gerst áður að það þurfi að fresta aðgerðum og það hefur helst verið vegna manneklu á gjörgæslunni.“ Mannekla vegna styttingarinnar - Þurft hefur að fresta skurðaðgerðum á Landspítalanum meðal annars vegna mönnunarvanda í kjölfar styttingar vinnuvikunnar - Einni skurðstofu þegar verið lokað - Hjartaskurðlækna skortir á spítalanum Karl Andersen Morgunblaðið/Ásdís Skurðaðgerð Nokkuð hefur verið um frestanir sökum mönnunarvanda. Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Nýtt útibú Bókarinnar fornbóka- búðar var opnað í kjallara gamla húsnæðis Máls og menningar á Laugavegi um helgina. Ari Gísli Bragason, sonur Braga Kristjóns- sonar, stofnanda Bókarinnar, er sá sem fer fyrir opnun nýs útibús og hann segir við Morgunblaðið að stríður straumur fólks hafi komið í nýja útibúið um helgina. Vildi halda í upprunann Garðar Kjartansson veitinga- maður er sá sem hefur leigt allt gamla húsnæði Máls og menningar til tíu ára. „Garðar hafði samband við mig og var að taka þetta hús á leigu í tíu ár og hann langaði að halda í upp- runann og vera með bækur í hús- inu,“ segir Ari. Spurður hvort Bókin muni færa eitthvað frekar út kvíarnar, segir Ari að þetta sé nóg í bili. „Þetta er ansi stór biti í bili og húsið er einhverjir 800 fermetrar þannig að það er hálfhlægilegt að kalla þetta útibú. Svo verður að- allega hægt núna, með fullri virð- ingu fyrir upprunalega húsnæðinu okkar á Klapparstíg, að gera mörg þúsund bóka sýnilegri, kápur þeirra og annað.“ Hann segir jafnframt að sérstaða upprunalegu Bókarinnar á horni Hverfisgötu og Klapparstígs muni halda sér. „Já, já, hún verður áfram flagg- skip okkar og vonandi helst hún sem lengst.“ Bókin opnaði verslun á Laugavegi um helgina - Fornbókabúð Braga færir út kvíarnar - Fólk flykkist að Morgunblaðið/Sigurður Unnar Bókglaður Ari Gísli Bragason í nýopnuðu útibúi Bókarinnar á Laugavegi. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Alls munu 22 Íslendingar á aldrinum 15-18 ára fara í skiptinám erlendis í haust á vegum AFS á Íslandi. Skiptinemar fóru seinast út haustið 2020 og voru þá einungis tíu talsins en þá var ekki möguleiki á að stunda nám í Bandaríkjunum og flestum löndum utan Evrópu vegna farald- ursins. Sólveig Ása Tryggvadóttir, fram- kvæmdastjóri AFS á Íslandi, segir faraldurinn hafa sett strik í reikn- inginn fyrir marga sem vildu halda í skiptinám árið 2020 en nokkrir þeirra haldi út í haust. „Við fórum í björgunaraðgerðir þegar faraldurinn skall á og þá var tekin ákvörðun um að allir yrðu kall- aðir heim,“ segir hún. Nokkur rösk- un varð á starfinu vegna faraldurs- ins en fjöldinn virðist vera að taka við sér með þeim 22 sem halda út í ágúst. „Þetta eru fimmtíu prósent af venjulegum hóp núna. Það eru margir að fara til Evrópulanda en einnig til Suður-Ameríku,“ segir hún og bætir við að aðsókn til Evrópu- landa sé meiri nú en áður. „Að öllu jöfnu hefur unga fólkið okkar verið ævintýraþyrst og viljað fara langt. Við erum að senda ung- lingana okkar lengra en aðrir,“ segir hún. Þá verður í haust tekið við 25 skiptinemum á Íslandi sem er nokk- uð góð aðsókn. „Við getum aldrei tekið á móti jafnmörgum nemum og óska eftir að koma hingað. Það eru nemar alls staðar frá og það gengur ótrúlega vel núna.“ Helmingi fleiri halda í skiptinám - Fleiri vilja fara til Evrópulanda nú Morgunblaðið/Hari Skiptinám Fleira ungt fólk leitar á vit ævintýranna nú en á síðasta ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.