Morgunblaðið - 31.05.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021
Framboðslistar flokkanna fyrirkosningarnar í haust eru hver
af öðrum að taka á
sig mynd og er hún
misjöfn eins og
gengur. Aðferðirnar
við valið eru líka
ólíkar. Sumir halda
prófkjör og heppn-
ast þau ýmist vel eða
illa. Píratar héldu til
dæmis fádæma léleg
prófkjör, þar sem
þátttaka var sára-
lítil, jafnvel á þeirra
mælikvarða. Þurfti
tvær atrennur í einu
kjördæminu til að
koma henni nægi-
lega vel yfir fjölda frambjóðenda til
að ásættanlegt teldist.
- - -
Sjálfstæðisflokkurinn hélt tvöprófkjör um helgina og þar var
þátttakan líkari því að stjórnmála-
flokkur væri á ferðinni, ekki klúbb-
ur sérvitringa. Þúsundir kusu, ekki
tugir eða fáein hundruð.
- - -
Svo eru aðrir flokkar sem eruekki að ónáða flokksmenn með
röðun á lista. Viðreisn er einn slíkur,
en þar var tillögu um prófkjör sér-
staklega hafnað, sem var líklega
skynsamlegt þar sem ella hefði
flokkurinn sennilega lent í svipuðum
hremmingum og Píratar.
- - -
En þá tókst honum að koma sér íaðra klípu, sem átti ekki að
vera hægt. Forystu flokksins tókst að
móðga stofnandann og koma málum
þannig fyrir að hann hafnaði sæti á
lista. Ósættið snerist einkum um
hvort honum hefði verið boðið annað
sætið eða eitthvert annað sæti.
- - -
Þetta sýnir að pyttirnir leynastvíða þegar kemur að því að
raða á lista, en það er ekki þar með
sagt að flokksforysta þurfi að detta í
þá alla.
Eitthvert
annað sæti
STAKSTEINAR
Benedikt
Jóhannesson
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Akrýlsteinn
• Yfirborðsefni sem endist og upplitast ekki
• Viðhaldsfrítt, slitsterkt og hitaþolið
- endalausir möguleikar
• Auðvelt að þrífa og gera við
Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hljómsveitin Ólafur Kram er sig-
urvegari Músíktilrauna árið 2021.
Sveitin Eilíf sjálfsfróun varð önnur
og Grafnár lenti í þriðja sæti. Tólf
sveitir kepptu til úrslita sem fram
fóru í Hörpu í fyrrakvöld.
Sigurvegararnir fengu að laun-
um hljóðverstíma, þátttökurétt á
ýmsum tónlistarhátíðum hérlendis
og úttektir í hljóðfæra- og tónlistar-
verslunum. Sveitin Piparkorn var
valin hljómsveit fólksins og Ólafur
Kram fékk verðlaun fyrir texta-
gerð á íslensku.
Einnig voru veitt einstaklings-
verðlaun: Halldór Ívar Stefánsson
úr Eilífri sjálfsfróun var valinn
söngvari ársins, Ívar Andri Bjarna-
son úr sveitinni Sleem var valinn
gítarleikari ársins, Guðmundur
Hermann Lárusson úr Krownest
var valinn bassaleikari ársins, Alex-
andra Rós Norðkvist úr sveitunum
Salamandra, The Parasols og Æsu
var valin trommuleikari ársins,
Magnús Þór Sveinsson úr sveitinni
Piparkorn var valinn hljómborðs-
leikari ársins og Júlíus Óli Jacobsen
úr sveitinni Dopamine Machine var
valinn rafheili ársins.
Ljósmynd/Aðsend
Músiktilraunir Hljómsveitin Ólafur Kram sigraði í úrslitum í fyrrakvöld.
Ólafur Kram varð
hlutskörpust í ár
- Tólf sveitir í úrslitum Músiktilrauna
Skin var milli skúra þegar í gær var
farið í fyrstu skipulögðu gönguna
undir merkjum Ferðafélags Borg-
arfjarðarhéraðs. Þá kom fólk saman
og gekk um Jafnaskarðsskóg við
Hreðavatn í Norðurárdal. Þátttak-
endur voru um 100 talsins og í
þeirra hópi var meðal annars forseti
Íslands, Guðni Th. Jóhannesson.
Ferðafélagið var stofnað í mars
sl. og margt spennandi er framund-
an í starfi þessa, segir forseti félags-
ins, Gísli Einarsson sjónvarpsmað-
ur. Til stendur að stika gönguleiðina
upp á Hafnarfjall, en hún nýtur vin-
sælda og er fjölfarin meðal Borg-
nesinga.
„Möguleikar til útivistar hér í
Borgarfirði eru ótæmandi. Frábær-
ar gönguleiðir eru í Skorradal og
Húsafelli og svo á að bæta og
merkja Vatnaleið, frá Hlíðarvatni í
Hnappadal að Hreðavatni,“ segir
Gísli Einarsson. sbs@mbl.is
Forseti Íslands var
með í fyrstu ferðinni
Ljósmynd/Jón Heiðarsson
Forsetar Gísli Einarsson og Guðni Th. Jóhannesson í Jafnaskarðsskógi.