Morgunblaðið - 31.05.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 31.05.2021, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021 Slakað á Ljósmyndari Morgunblaðsins gekk nýverið um Klambratún og sá þar mann gera hlé á heilsubótargöngu sinni með því að setjast á bekk. Þessi sami maður man eflaust eftir því þegar Klambratún hét Miklatún. Það varði ekki ýkja lengi. Kristinn Magnússon Mannkynið stendur á afdrifaríkum tíma- mótum. Þegar veiru- kófinu loks léttir blasa önnur og langtum víð- tækari vandamál við. Þar er um að ræða glímuna við hlýnun andrúmsloftsins og af- leiðingar hennar. Þess- ara áhrifa er þegar far- ið að gæta, en allt eru það smámunir miðað við það sem er í vændum. Síversn- andi horfur í loftslagsmálum leiddu til Parísarsamkomulagsins 2015, sem var óskuldbindandi en þó afar þýðingarmikið skref. Nú standa ríki heims hvert og eitt hins vegar frammi fyrir því að láta efndir fylgja orðum. Gert er ráð fyrir að lögleiða bindandi markmið, fyrst í tveimur áföngum til ársins 2030 en gefa jafn- framt út langtímamarkmið um sam- drátt í losun til lengri tíma eða fram til ársins 2050. Á þetta mun brátt reyna á ársfundi aðildarríkja lofts- lagssamningsins (COP-26) í Glasgow fyrrihluta nóvember næstkomandi. Ísland, sem einkum vegna stór- iðjuvera losar nú einna mest allra Evrópuríkja af CO2 á hvert manns- barn, segist miða sínar áætlanir við 1,5° hlýnun en ekki 2°C og færist þannig mikið í fang. Kostnaðurinn fyrstu 5 árin til að ná settu marki hefur verið metinn nálægt 50 millj- örðum króna. Alvaran á bak við talnagildin Hlýnunin sem nú er metin á 1,1°C hækkun í meðalhita á jörðinni frá því fyrir iðnbyltingu hefur fram til þessa haft harla misjöfn áhrif eftir svæðum á jarð- arkringlunni. Lönd eins og Ástralía og Kalifornía hafa þegar orðið fyrir miklum bú- sifjum af völdum skóg- arelda, annars staðar hefur aukning í úrkomu valdið tíðari flóðum og skriðuföllum og styrkur fellibylja víða margfaldast frá því sem áður var. Á norðurslóðum birt- ast okkur áhrifin hingað til ekki síst í bráðnun jökla sem nú er gert ráð fyrir að hverfi að mestu hérlendis fyrir árið 2200. Vitað er að áhrif manngerðrar losunar verða langtum meiri á meðalhita í norðri en sunnar í álfum. Á nýafstöðnum ársfundi Arktíska ráðsins í Reykjavík kom fram í sameiginlegri ályktun að á síðustu 50 árum hafi hlýnað þrefalt hraðar á norðurheimskautssvæðinu en að meðaltali á heimsvísu, með til- heyrandi röskun á umhverfi. Hafa verður jafnframt í huga að gróður- húsalofttegundir eins og CO2 eyðast mjög hægt í lofthjúpi jarðar. Við blasir að þótt vonandi takist að hægja á losun næstu 30 árin muni hlýnunin óhjákvæmilega hafa stór- felldar neikvæðar breytingar á líf- ríki í för með sér og á aðstæður til ræktunar og búsetu á stórum svæð- um jarðar. Eyðimerkur færast norð- ur á bóginn með tilheyrandi röskun. Hrörnun náttúrulegra skóglenda, ekki síst greniskóga, blasir þegar við í Mið-Evrópu, og ræktun kornteg- unda eins og hveitis er talið að muni leggjast af á stórum svæðum. Allt lífríki á undir högg að sækja við svo hraðfara breytingar, lágplöntur, skordýr og örverur ekki undanskilin. Borgarsamfélög í neyðarstöðu Svo alvarlega sem horfir um land- búnað á stórum svæðum vegna lofts- lagsbreytinga er ástandið sem blasir við umhverfi í þéttbýli og stór- borgum síst vænlegra. Hækkun sjávarborðs, sem þegar gætir víða, á hvarvetna eftir að herja í sívaxandi mæli á hafnarborgir og aðrar strandbyggðir. Hækkun meðalhita mun hafa lamandi áhrif á mannlíf, ekki síst að sumarlagi í borgum í grennd hvarfbauganna, líkt og birt- ist í smækkaðri mynd í Mið-Evrópu sumrin 2018 og 2019. Slíkar breyt- ingar leggjast fyrst af öllu þungt á gamalt fólk og farlama. Því er jafn- framt spáð að steypiregn magnist með veðurfarsbreytingum komandi ára og með tilheyrandi álagi á frá- rennsliskerfi í þéttbýli. Þess sjást lít- il merki að skipulagsyfirvöld í okkar heimshluta séu sér meðvituð um lík- legar yfirvofandi umhverfisbreyt- ingar og þarf raunar ekki að horfa lengra en til Reykjavíkur í því sam- hengi. Maðurinn sjálfum sér verstur Þær aðstæður sem nú blasa við mannkyni eru að meginhluta afleið- ing iðnvæðingar í krafti kola og olíu í 2-3 aldir ásamt með hömlulausri gróðafíkn, nýlendu- og arðráns- stefnu, sem náði hæðum í skjóli ný- frjálshyggju í tíð núlifandi kynslóða. Aukin þekking á sviði náttúruvísinda skilaði sér m.a. í auknum lífslíkum manna sem leitt hefur til þre- földunar á fjölda einstaklinga á jörð- inni á skeiði einnar mannsævi (1930- 2020). Þekking og stýring í átt að líf- vænlegum samfélagsháttum hefur hins vegar á sama tíma ekki skilað sér og fyrir það líður nú ekki aðeins mannkynið heldur og allt umhverfi jarðar. Það er rétt sem rithöfund- urinn Elizabeth Kolbert leggur út af í nýlegu ritverki, að það er maðurinn – Homo sapiens – sem hefur reynst hættulegasta lífveran á okkar ann- ars yndislegu plánetu. Aldrei of seint að vitkast Mannkynið sem nú er á dögum á verk fyrir höndum vilji það lifa af og ætla niðjunum einhverja framtíð. Sitthvað í alþjóðlegri umræðu þessa veirudaga getur vakið vonir þótt veikar séu um aukinn skilning á þeim ófarnaði sem mannkynið hefur komið sér í. Úrskurður Þýska stjórnlagadómstólsins (Bundesver- fassungsgericht) 29. apríl sl. um þýsku loftslagsverndarlögin (Kli- maschutzgesetz) fól í sér ákveðin tímamót sem fleiri en Þjóðverjar mættu nokkuð af læra. Efnislega sögðu dómararnir við löggjafann: Það gengur ekki að ætla sér að vísa byrðunum af boðuðum niðurskurði CO2 samkvæmt Parísarsam- komulaginu á framtíðarkynslóðir til að hlífa þeim sem nú eru á dögum við pólitískt óþægilegum ákvörðunum. Þessi dómur féll skömmu eftir að Annalena Baerbock, fulltrúi þýskra Græningja, var stigin á svið sem kanslaraefni. Merkel kanslari skynj- aði strax pólitíska hættu fyrir CDU og brást við dómnum með því að láta skerpa strax á loftslagslöggjöfinni í anda úrskurðar dómstólsins. Stjórnmál, einstaklingar og al- mannasamtök Nútíðin er full mótsagna sem gera almenningi erfiðara fyrir en áður að ná áttum. Framboð fjölmiðlunar í formi léttmetis, slúðurs og falsfrétta trufla vökula og gagnrýna hugsun, sem aldrei var meiri þörf fyrir en nú. Aðstæður kalla á endurmat og ný gildi til styrkingar lýðræðislegum stjórnarháttum. Samþættar grænar lausnir eru nærtækar til bjargar á þessum óvissutímum, og ónefndar hetjur ásamt vökulum almanna- samtökum leggja sitt af mörkum. Framtíðin er þarna, ef við viljum sinna kalli. Eftir Hjörleif Guttormsson »Nú standa ríki heims, hvert og eitt, frammi fyrir því að láta efndir fylgja orðum í loftslagsmálum. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Framtíðarhorfur vegna loftslagsbreytinga krefjast víðtækra grænna lausna Hann má aldrei láta huglægt mat sitt á kringumstæðum ráða dómum sínum. Hann má aldrei beita öðru en réttarheimildum til að komast að niðurstöðu. Hann má aldrei ganga erinda vina sinna og kunningja í bága við heim- ildir réttarins. Hann þarf að láta að- ila máls vita fyrirfram ef hann teng- ist málsaðilum þannig að til vanhæfis geti leitt. Ef persónulegur vinur hans á hagsmuni undir dómi, þar sem til dæmis reynir á, hvort sá hinn sami fái greidda svimandi háa þóknun fyr- ir skiptastjórn í þrotabúi, á dóm- arinn ekki að hafa nein afskipti af málinu. Hafi persónulegir vinir hans gerst sekir um alvarleg siðferðisbrot ætti hann að forðast samskipti við þá. Ef samkennari hans í háskólanum rekur mál fyrir dómi til að ná fram uppgjöri við banka sem er bersýni- lega utan laga og réttar, ætti hann ekki að sitja í dómi sem dæmir í mál- inu. Ef bankar hrynja og saksóknari vill fá heimild til símhlerunar hjá sökuðum manni, sem verið er að sleppa úr gæsluvarðhaldi, ætti hann að skilja að ekki eru laga- skilyrði til að verða við beiðni saksóknarans. Ef þekktur ríkisstarfsmaður er sakaður um innherjasvik í tengslum við bankahrun ætti hann að gæta sín á að falla ekki í þá gryfju að dæma manninn sekan einungis til að geðjast almenn- ingi. Þó að dómaranum sé ekki vel við gagnrýni á starfshætti sína ætti hann að gæta sín á að hlaupa ekki af stað með meiðyrðamál gegn gagnrýnandanum sem fyrirsjáanlega mun tapast á öllum dómsstigum. Þeir sem þurfa að bera mál sín undir réttinn ættu ekki að verða betur settir fyrir þá sök að vera persónulegir vinir dóm- arans. Það væri óskandi að ekkert tilefni væri til þessara ábendinga. En ætli það sé raunin? Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er áhugamaður um starfsemi Hæstaréttar. Hvernig á dóm- ari við Hæsta- rétt að starfa? Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Þeir sem þurfa að bera mál sín undir réttinn ættu ekki að verða betur settir fyr- ir þá sök að vera persónulegir vinir dómarans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.