Morgunblaðið - 31.05.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Þegar Bjarni Bene-
diktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins,
tilkynnti að Áslaug
Arna Sigurbjörns-
dóttir yrði dóms-
málaráðherra fannst
mér valið áhugavert
og rökin sterk. Ég
var hins vegar ekki
viss um að svo ung-
um einstaklingi væri
greiði gerður að fara
í svo vandasamt ráðherraembætti.
Eftir að hafa fylgst með störfum
dómsmálaráðherra verð ég hins
vegar að segja að frammistaða
hennar hefur farið langt fram úr
þeim væntingum sem hægt var að
hafa. Áslaug Arna hefur á þessum
tíma sýnt það og sannað að hún
hefur allt til brunns að bera til að
gegna mikilvægu leiðtoga-
hlutverki.
Hún er kjörkuð en ekki fljótfær.
Hún er vandvirk en ekki hrædd
við að taka ákvarðanir.
Hún hefur sterka pólitíska sýn
en er ekki einstrengingsleg.
Hún getur sætt ólík sjónarmið
án þess missa sjónar á mik-
ilvægum markmiðum.
Hún horfir bjartsýn til fram-
tíðar en hefur sterka jarðtengingu.
Hún er gömul sál en ung í anda.
Ég hef fylgst með af hliðarlín-
unni og séð hve vel hún höfðar til
nýrra kjósenda sem ganga til liðs
við flokkinn til að veita henni
stuðning. Þeir trúa því að hún sé
vönduð og góð manneskja sem
skynji og skilji kall tímans. Það er
mikið lán þegar gott fólk gefur
kost á sér í stjórnmálin og ekki
sjálfsagt að ungar konur og karlar
vilji feta þann veg.
Kjörtímabilið sem
senn er á enda hefur
verið snúið og fram-
undan eru þingkosn-
ingar sem skipta
miklu máli. Brýnasta
verkefnið er að upp-
ræta það mikla at-
vinnuleysi sem skap-
aðist vegna
heimsfaraldurs og
engin stefna er betur
til þess fallin en hug-
myndafræði Sjálfstæð-
isflokksins. En til að stefna flokks-
ins komist í framkvæmd þarf hann
að höfða til enn breiðari hóps
kjósenda en hann gerir nú. Hann
þarf að sýna metnað, djörfung og
dug. Hafa kjark til að velja for-
ystu til framtíðar. Stórt skref í þá
átt er að fólk um land allt taki
þátt í prófkjörunum og styðji for-
ystufólk sem getur sameinað ólíka
krafta og skoðanir. Það er ekki
síst mikilvægt í Reykjavík sem
lengi vel var höfuðvígi flokksins á
landsvísu.
Áslaug Arna hefur ákveðið að
sækjast eftir fyrsta sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í höf-
uðborginni. Ég fagna því og hvet
sem flesta til að veita henni öfl-
ugan stuðning.
Forysta til framtíðar
Eftir Ásdísi Höllu
Bragadóttur
Ásdís Halla
Bragadóttir
» Áslaug Arna hefur
sýnt það og sannað
að hún hefur allt til
brunns að bera til að
gegna mikilvægu leið-
togahlutverki
asdis@eva.is
Í dag, 31. maí, er al-
þjóðlegi tóbakslausi
dagurinn. Fólk um víða
veröld notfærir sér
þennan dag til að láta
verða af því að hætta
að nota tóbak. Flestir
sem nota tóbak dag-
lega vilja gjarna hætta
því og margir hafa oft
reynt, en byrjað svo
aftur. Oft vegna þess
að markið er sett of
hátt.
Háleit markmið
Spurðu sjálfa/-n þig: á
kvarðanum 1-10, hversu
líklegt er að ég verði al-
gerlega tóbakslaus í eitt
ár? Ef þú ert full-
komlega viss um að það
takist seturðu 9 eða 10 á
skalann, nú þá er bara
að óska þér til hamingju
um leið og þú lætur slag
standa.
Raunsærri markmið
Merkir þú við lægri
tölu á kvarðanum, t.a.m. 6-8, settu
þér þá raunsærri markmið. Til dæm-
is: ef þú ert 90% viss um að þér takist
að vera algerlega tóbakslaus í einn
mánuð, þá skaltu halda þig við það.
Þú getur síðan tekið nýja ákvörðun
um að framlengja tóbakslausa tíma-
bilið um einn mánuð í senn.
Lægri markmið
Finndu það markmið sem þú ert
90% viss um að standast þótt það sé
ekki lengra en einn dagur í senn, eða
ein vika. Taktu síðan ákvörðun um
framhaldið í lok hvers tímabils.
Stuðningur
Sama hvaða markmið þú hefur sett
þér; ef þú færð illviðráðanlega löngun
í tóbak, mundu þá að það er hægt að
kaupa nikótínlyf í öllum apótekum.
Notaðu það eins lengi og þú þarft á
því að halda. Einnig er sjálfsagt að
skrá sig hjá Reyksímanum. Þar er í
boði fyrsta flokks þjónusta þér að
kostnaðarlausu. Símanúmer Reyk-
símans er 800 60 30.
Eftir Ásgeir R.
Helgason
Ásgeir R.
Helgason
» Flestir sem nota tób-
ak daglega vilja
gjarnan hætta því og
margir hafa oft reynt,
en byrjað svo aftur.
Höfundur er dósent í sálfræði við HR
og sérfræðingur hjá Krabbameins-
félaginu.
asgeir@krabb.is
Slaufaðu tóbakinu
áður en það slaufar þér
Á vefsvæði Sam-
taka atvinnulífsins,
SA, birtist áhuga-
verður pistill Hann-
esar G. Sigurðssonar
sem hann ritaði í hið
ágæta rit Þjóðmál.
Hannes er fyrrver-
andi aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins og
forvera þeirra með
áratuga reynslu af
gerð kjarasamninga á íslenskum
vinnumarkaði. Pistill Hannesar er
góð greinargerð, unninn upp úr
skýrslu norsks sérfræðings í
vinnuréttarmálum og kemur fátt á
óvart í þeirri samantekt. Raunar
er það svo að við lesturinn rennur
manni kalt vatn á milli skinns og
hörunds og um leið áttar maður
sig á því að við búum við ósjálf-
bært, úrelt og hreinlega gallað
fyrirkomulag þegar kemur að
gerð kjarasamninga. Það er um-
hugsunarefni að vinnulöggjöfin
sem starfað er eftir sé orðin rúm-
lega 80 ára gömul og endurskoðun
hafi síðast farið fram fyrir ald-
arfjórðungi eða svo. Afleiðing-
arnar þarf ekki að tíunda, aftur
og aftur verða kollsteypur, óstöð-
ugleiki og samdráttur. Allt afleið-
ingar af kerfi sem gefur forystu
launafólks endalausa möguleika á
að beita kúgunum og ofbeldi til að
knýja fram kjör sem fyrirfram er
vitað að eru ósjálf-
bær.
Ábyrgðarleysi
Það má vel halda
því fram að þeir að-
ilar sem áratugum
saman gera slíka
samninga, aftur og
aftur, hvort sem um
er að ræða sá kúgaði
eða kúgarinn sjálfur,
sýni mikið ábyrgð-
arleysi þegar kemur
að þjóðarhag. Þó
Hannes G. Sigurðsson
hafi helgað sig kjarasamningsgerð
í störfum sínum, varað við og ver-
ið óþreytandi við að rýna í fortíð-
ina og meta áhrif gerðra samn-
inga, þá ber hann sem virkur
gerandi ábyrgð á óteljandi fjölda
samninga sem hafa akkúrat inni-
haldið það sem hann hefur varað
við. Ábyrgðin er ekki síður forystu
verkalýðshreyfingarinnar á hverj-
um tíma. Fólks sem hefur misnot-
að vinnulöggjöfina til að knýja
fram á allskonar umbætur sem
ættu fremur heima á hinu póli-
tíska sviði. Svo rammt er að kveð-
ið að dansinum lýkur sjaldnast
fyrr en tekist hefur að beygja
kjörna fulltrúa og ráðherra eftir
vilja samningsaðila. Eitthvað sem
ekki tíðkast í þeim löndum sem
við helst berum okkur saman við
og viljum tilheyra.
Merkið
Svo óbilgjarnir eru samningsað-
ilar að þeir koma sér ekki einu
sinni saman um hvert þanþol at-
vinnulífsins er á hverjum tíma.
Forysta verkalýðshreyfingarinnar
ræður til sín alræmdan talnakokk
til að tína fram tölfræði sem hent-
ar málstaðnum sem síðan er notuð
til kröfugerðar. Ljóður er á því
hversu hagtölur eru óáreiðanlegar
á Íslandi og um mann hríslast
aulahrollur árlega þegar Hag-
stofan kemur með sínar leiðrétt-
ingar aftur í tímann, vikurnar á
eftir birtingu þeirra. Samkvæmt
greiningu Hannesar G. Sigurðs-
sonar er vinnulagið í Skandinavíu
að iðnaðurinn og verkalýðshreyf-
ingin semja fyrst og ákvarða hvað
til skiptanna er. Á Íslandi eru
Samtök iðnaðarins, SI, í ofbeldis-
sambandi við Samtök atvinnulífs-
ins, SA, sem valta yfir hagsmuni
iðnaðarins aftur og aftur. Og inn-
an SI eru aðilar sem láta sér það
vel líka og telja örlögum sínum vel
ráðið, undarlegt nokk.
Eftir Steinþór
Jónsson » Það er umhugsunar-
efni að vinnulög-
gjöfin sem starfað er
eftir sé orðin rúmlega
80 ára gömul og endur-
skoðun hafi síðast farið
fram fyrir aldarfjórð-
ungi.
Steinþór
Jónsson
Höfundur er meðlimur í SI/SA.
Hugleiðingar áhrifamanns
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Matur