Morgunblaðið - 31.05.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021
L auga rna r í Rey k javí k
Fyrir
líkama
og sál
w w w. i t r. i s
S ý num hve r t öð ru t illit s s e mi og
virðum 2 m e t ra f ja rlægða rmörk in
„ERTU EITTHVAÐ NIÐURDREGINN,
SEPPI?“
„Á HANN EKKI AÐ VERA FARINN AÐ
SOFA?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera í samskonar
samfestingum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ELSKA HLJÓÐIÐ Í
RIGNINGUNNI
ÞAÐ MINNIR MIG
Á SNARKANDI
BEIKON
ÉG FÓR Á
BEKKJARMÓT Í GÆR!
ERTU
FEGINN
AÐ ÞÚ
FÓRST?
JÁ, MJÖG FEGINN! ÞAÐ MUNDU
ALLIR HVAÐ ÉG VAR KLAUFALEGUR
OG MIKILL AULI!
ÞEGAR VIÐ ÚTSKRIFUÐUMST
VAR ÉG KOSINN „MINNST
EFTIRMINNILEGUR“!
HVERS
VEGNA
GLADDI
ÞAÐ
ÞIG?
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar er Valgeir
Sigfús Þorvaldsson, f. 2.7. 1960, fram-
kvæmdastjóri og frumkvöðull. For-
eldrar hans: Hjónin Þorvaldur Þór-
hallsson, f. 1.9. 1926, d. 3.5. 2011,
bóndi á Þrastarstöðum, og Valgerður
Kristjánsdóttir, f. 25.10. 1929, hús-
móðir á Þrastarstöðum.
Börn Guðrúnar og Valgeirs eru:
1) Þröstur Skúli, f. 25.2. 1981, graf-
ískur hönnuður. Eiginkona hans er
Rósa Tryggvadóttir, f. 31.3. 1983,
viðskiptastjóri hjá 66°Norður. Þau
eru búsett í Hafnarfirði. Börn: Vikt-
or Smári, f. 8.6. 2007, Valgeir Orri, f.
18.10. 2011 og Lilja, f. 11.7. 2018; 2)
Linda Fanney, f. 10.11. 1984, lög-
fræðingur. Eiginmaður hennar er
Jóhannes Björn Arelakis, f. 9.6.
1982, rafeindavirki og samskipta-
kerfasérfræðingur. Þau eru búsett í
Hafnarfirði. Börn: Karólína Bríet, f.
11.9. 2011 og Steinunn Diljá, f.
11.10. 2014; 3) Sólveig Erla, f. 7.12.
1990, sjúkraliði og einkaþjálfari.
Sambýlismaður hennar er Máni
Frímann Jökulsson, f. 12.3. 1985,
byggingatæknifræðingur. Þau eru
búsett á Akureyri. Börn: Selma
Lárey Hermannsdóttir, f. 23.3.
2009, Guðrún María Ævarsdóttir, f.
21.3. 2011 og Matthildur Hrefna, f.
22.10. 2018.
Systkini Guðrúnar eru Sólveig, f.
12.3. 1960, starfsmaður Heilbrigðis-
stofnunar Norðurlands, búsett á
Sauðárkróki; Kristín, f. 4.4. 1964,
skólaliði, búsett á Egilsstöðum, og
Halldór, f. 25.8. 1971, járninga- og
tamningamaður o.fl., búsettur á
Blönduósi.
Foreldrar Guðrúnar: Hjónin Þor-
valdur Árnason, f. 29.3. 1931, d. 14.1.
1996, bifreiðarstjóri og fiskverka-
maður, og Ingibjörg Elín Halldórs-
dóttir, f. 10.7. 1939, húsmóðir og fisk-
verkakona. Hún er búsett á
Sauðárkróki.
Guðrún Halldóra
Þorvaldsdóttir
Elín Skúlína Pétursdóttir
húsmóðir í Hvammi
Sigurður Guðmundsson
bóndi í Hvammi í
Svartárdal, A-Hún.
Guðrún Sigurðardóttir
húsmóðir á Halldórsstöðum
Halldór Ingimar Gíslason
bóndi á Halldórsstöðum á
Langholti í Skagafirði
Ingibjörg Elín Halldórsdóttir
húsmóðir og fiskverkakona
á Sauðárkróki
Ingibjörg Björnsdóttir
húsmóðir á Halldórsstöðum
Gísli Benediktsson
bóndi á Halldórsstöðum
Rósa María Gísladóttir
húsmóðir í Krossanesi
Einar Jónsson
bóndi í Krossanesi í Vallhólmi
í Skagafirði
Sólveig Einarsdóttir
húsmóðir á Stóra-Vatnsskarði
Árni Árnason
bóndi á Stóra-Vatnsskarði á Skörðum í Skagafirði
Guðrún Þorvaldsdóttir
húsmóðir á Stóra-Vatnsskarði
Árni Jónsson
bóndi á Stóra-Vatnsskarði
Úr frændgarði Guðrúnar Halldóru Þorvaldsdóttur
Þorvaldur Árnason
bifreiðarstjóri og fiskverkamaður
á Sauðárkróki
Á Boðnarmiði segir SigurlínHermannsdóttir: „Það er þetta
með nöfnin“:
Í neðra verður dansað dátt
dárar ei því neita.
Lúsiferum fjölgar brátt
það fleiri mega heita.
Þessi staka gaf Guðmundi Arn-
finnssyni tilefni til að yrkja um
„Nafnlausa dalinn“:
Löðursveittur logann glæðir
Lúsifer í klettasal.
Rauðglóandi flaumur flæðir
fram úr Syðri-Meradal.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson bregður
fyrir sig afhendingu og yrkir um
„Samskiptaraunir“:
Íslenskt mál er orðið dáldið enskt og
skrýtið
svo margir skilja minna’ en lítið.
Elta vilja eldri karlar ungar stúlkur,
fylgja verður táknmálstúlkur.
Hér vaknar sjómaðurinn í Haf-
steini Reykjalín Jóhannessyni:
Finna vil ég frið og ró,
frelsið huga lyftir.
Öldubrot um allan sjó,
ekki hót mig skiptir.
Magnús Halldórsson yrkir:
Við stöðul fann Sigurður Selju,
en sú var að tutla þar belju.
Því ber að þakka,
er þau áttu krakka,
að konan mun kunn fyrir elju.
Vísað er í frétt í Vísi, þar sem
segir, að Mannlíf hafi keypt 28 þús-
und fylgjendur Kvennablaðsins:
Helgi Ingólfsson yrkir:
Oft eru hóparnir hálir;
til handargagns stundum þó þjálir
þeim sem eftir þeim hlaupa,
enda má kaupa
þrjátíu þúsund sálir.
Guðmundur Arnfinnsson segir
þetta „einu lækninguna“:
Hann Freymóður fann það á sér
að fyrr hann myndi ekki ná sér
af depurð og hrolli
sem dragsúgur olli
en dável hann fyndi á sér.
Jón Atli Játvarðarson svaraði
þessu svo:
Freymóður farinn í bælið
forðast nöldur og vælið.
Leiðir fram rök
með léttvægust tök,
sem ganga mun upp ef þið ælið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af nafngiftum og
samskiptaraunum