Morgunblaðið - 07.06.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.06.2021, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 7. J Ú N Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 132. tölublað . 109. árgangur . FLEIRI HRYLLI- LEGA STUTTAR HROLLVEKJUR RJÚFA HLJÓÐMÚRINN KÖRFUBOLTINN VAR MÉR GÓÐUR SKÓLI KNÚNAR ENDURNÝJANLEGRI ORKU 13 SIGURÐUR ÖRN 11ÆVAR ÞÓR 29 Bókaðu borgarferð í haust og byrjaðu að telja niður dagana. Akureyringar eiga Íslandsmeistara kvenna í handknattleik í fyrsta skipti í sögunni eftir sigur KA/Þórs á Val, 25:23, í öðrum úrslitaleik liðanna sem fram fór á Hlíðarenda í gær. KA/Þór vann einvígið 2:0 og er aðeins annað félagið utan höfuðborgarsvæðisins sem verður Íslandsmeistari kvenna. »27 Morgunblaðið/Sigurður Unnar Fyrsti Íslandsmeistaratitillinn til Akureyrar Frá því snemma árs 2017 og allt þar til áhrifa af kórónuveirufaraldrinum fór að gæta sumarið 2020 jókst neysla á kókaíni í Reykjavík um meira en helming. Þetta kemur fram í doktorsverkefni sem Arndís Sue- Ching Löve varði við læknadeild Há- skóla Íslands í síðustu viku. Viða- miklar rannsóknir liggja að baki þessari niðurstöðu; reglulegar sýna- tökur í frárennslisvatni í skolp- hreinsistöðvum borgarinnar þar sem leitað var leifa af amfetamíni, met- amfetamíni, MDMA, kannabis og kókaíni, sem skilst út með þvagi. Mest jókst neysla kókaíns en einnig jókst notkun amfetamíns og met- amfetamíns. „Aukning í neyslu kókaíns sást fram til ársins 2019 en dróst saman í júní 2020 um 60% í fyrstu bylgju far- aldursins skv. niðurstöðum mæling- anna. Kókaínmagn í skolpinu var um það bil 1.100 milligrömm á dag á hverja þúsund íbúa í upphafi mæl- inga en hafði aukist í um það bil 2.700 milligrömm í apríl 2019,“ segir Arn- dís. Minni neysla kókaíns í kórónu- veirufaraldrinum telur Arndís að tengist því að flutningsleiðir til lands- ins lokuðust að mestu og afgreiðslu- tími skemmtistaða var takmarkaður. Til hliðsjónar við rannsóknirnar voru hafðar tölur lögreglu frá um- ræddu tímabili, 2017-2020, um magn haldlagðra fíkniefna og gögn um vímuefnaakstur. Þær tölur og niður- stöður sýna úr holræsunum stóðu á pari, að sögn Arndísar. »4 Kókaínneysla hefur aukist mikið - Niðurstöður sýna úr holræsum og tölur lögreglu ríma - Meira af amfetamíni Guðlaugur Þór Þórðarson sigraði í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík um helgina. Guðlaug- ur og Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir dómsmálaráð- herra tókust á um fyrsta sætið. 182 atkvæði skildu þau að en alls voru 7.208 gild atkvæði greidd. Prófkjörið var sameiginlegt fyrir Reykjavíkur- kjördæmi norður og suður. Sá sem lendir í fyrsta sæti velur hvort kjör- dæmið hann leiðir fyrir alþingis- kosningar. Guðlaugur segist áfram ætla að vera oddviti í Reykjavík norður. Diljá Mist Einarsdóttir hlaut af- gerandi kosningu í þriðja sætið og Hildur Sverrisdóttir varð í fjórða sæti. Þær munu því skipa hvor sitt annað sætið á listum flokksins fyrir kosningar. Brynjar Níelsson sóttist eftir öðru sæti en lenti í því fimmta. Hann ætlar ekki að taka sæti á lista. Sigríður Andersen hlaut ekki kjör í eitt af átta efstu sætunum. »4 Leiðir í Reykjavík norður Guðlaugur Þór Þórðarson _ „Stóra breytingin er að nú þarf ekki lengur að kaupa þriðja tækið; Apple TV eða Chromecast,“ segir Eyjólfur Jóhannsson, vörustjóri hjá Origo, um nýjustu kynslóð snjall- sjónvarpa. Nú getur fólk klæð- skerasniðið eigin upplifun á sínu notendaviðmóti snjallsjónvarpa og þarf ekki að sækja sjónvarpsefni í sérstök öpp mismunandi veitna. Þá eru gömlu myndlyklarnir orðnir óþarfir. Það þýðir að auk þess að fólk spari sér peninga á því að hætta að leigja myndlykil losnar það við snúrufargan og umstang í kringum sjónvarpið sem og að aðeins þarf að nota eina fjarstýr- ingu í stað margra áður. »14 Gömlu myndlykl- arnir loks á útleið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.