Morgunblaðið - 07.06.2021, Page 6

Morgunblaðið - 07.06.2021, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 Hátíðahöld í tilefni af sjómanna- deginum voru í sjávarbyggðum víða um land í gær, þó lágstemmdari en oft áður vegna sóttvarna og sam- komutakmarkana. Í Ólafsvík var efnt til fjölbreyttra skemmtana. Þar voru tveir sjómenn heiðraðir, Jó- hann Steinn Hansson og Róbert Óskarsson, sem báðir hafa verið til sjós í meira en hálfa öld. Í Vestmannaeyjum var afhjúp- aður minnisvarði um strand belgíska togarans Pelagus 21. janúar 1982 þegar tveir björgunarmenn fórust ásamt tveimur skipverjum af Pela- gusi, en björgunarsveitir úr Eyjum björguðu sex skipverjum á land. Í Reykjavík var að morgni dags minningarathöfn um drukknaða og týnda sjómenn við Fossvogskirkju. Sjómannadagsmessa var í Dóm- kirkjunni þar sem biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, predikaði og séra Sveinn Valgeirsson þjónaði fyrir altari. Starfsfólk Landhelgis- gæslunnar las úr ritningunni við at- höfnina. Að lokinni guðsþjónustu voru sjó- menn heiðraðir skv. venju, en nú við lokaða athöfn. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Alfons Finnsson Ólafsvík Sjómenn heiðraðir. Róbert Óskarsson t.v. með Björgu Elíasdóttur konu sinni og t.h. Jóhann Steinn Hansson og Björg Snorradóttir kona hans. Sjómannadagurinn með hátíðum víða Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson Veisla Eliza Reid forsetafrú var gestur hátíðahalda í Vestmannaeyjum og gerði þar bragðsterkri skötunni góð skil á veitingastaðnum Canton. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Vestmannaeyjar Minnisvarði um Pelagusslysið árið 1982 var afhjúpaður í Eyjum. Guðmundur Örn Jónsson sóknarprestur flutti ávarp af því tilefni. Morgunblaðið/Sigurður Unnar Hafnarfjörður Hafrannsóknastofnun efndi til kynningar á ýmsum teg- undum furðufiska, sem vöktu mikinn áhuga ungu kynslóðarinnar. Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is „Sjálf lærði ég sagnfræði í háskóla og því veit ég að með tímanum týn- ast því miður sögurnar. Mitt mark- mið er að ná að safna saman upplýs- ingum um hann svo ég viti betur hver hann var, bæði fyrir fjölskyld- una mína en vonandi get ég líka deilt sögu hans með öðrum,“ segir Inga Gudmundsson, sem er búsett í Charleston í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum en á ættir að rekja til Íslands. Inga hafði samband við Morgun- blaðið í þeirri von að hún myndi öðl- ast frekari upplýsingar um afa sinn sem hún kynntist aldrei en er ólm í að vita meira um. Afi Ingu hét Ívar Guðmundsson og lést árið 1996, áður en Inga fæddist. Sjálf hefur Inga heyrt sögur af afa sínum hjá fjöl- skyldumeðlimum en hana langar til að heyra um hann frá vinum hans og samstarfsfélögum á Íslandi. „Sem Ameríkani sem hefur verið svo heppinn að fá að heimsækja Ís- land mörgum sinnum þá langar mig að heyra meira um það Ísland sem Ívar fékk að upplifa á sínu ævi- skeiði,“ segir Inga. Inga er banda- rískur ríkisborgari og hefur alla tíð búið vestanhafs. Hún segir það vekja furðu landamæravarða í hvert sinn sem hún kemur til landsins að í bandaríska vegabréfinu hennar stendur Inga Gudmundsson en ætt- arnafnið hefur hún frá afa sínum. Ef einhver hefur frekari upplýs- ingar eða sögur af Ívari og er tilbú- inn að deila þeim með Ingu þá biður hún um að haft verði samband við sig í gegnum instagramsíðuna My Icelandic grandfather, en þar deilir Inga myndum og sögum af afa sín- um. Sjálf hefur Inga safnað saman upplýsingum um afa sinn og meðal annars leitað að greinum eftir Ívar í bandarískum dagblöðum. Ívar var þekktur blaðamaður á Íslandi á ár- um áður og gegndi stöðu fréttastjóra á Morgunblaðinu árin 1934-1951 áður en hann hóf störf hjá Samein- uðu þjóðunum í New York. Árið 1986 kom Ívar síðan aftur að Morgun- blaðinu sem fréttaritari blaðsins í Washington og sendi heim fréttir frá Bandaríkjunum til ársins 1992. Forvitin um íslenska fortíð - Leitar að sögum og upplýsingum um íslenskan afa sinn sem hún kynntist aldrei Forfaðir Ívar Guðmundsson, blaðamaður og fréttastjóri, afi Ingu Gudmundsson. Hún leitar nú upplýsinga um fortíð hans hér á landi. Landsþing Miðflokksins fór fram á laugardaginn. Kosið var í stjórn flokksins og hlutu þau Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, Hallfríður G. Hólmgríms- dóttir, Karl Gauti Hjaltason og Bergþór Ólason kjör. Anna Kol- brún Árnadóttir þingmaður flokks- ins og Einar G. Harðarson gáfu einnig kost á sér. Sigmundur Davíð hlaut áfram- haldandi kjör í formannsembættið. Í ræðu sinni á þinginu ræddi hann meðal annars EES-samninginn og Schengen-samstarfið og sagði tíma- bært að endurmeta hvernig við nálguðumst þetta tvennt. „Umfang EES-samningsins hefur aukist gríð- arlega og hann tekur nú til sviða sem við gerðum ekki ráð fyrir þeg- ar aðild Íslands var samþykkt,“ sagði Sigmundur í ræðunni. Nálgun á EES þarfn- ist endurskoðunar Stjórn Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir, Karl Gauti Hjaltason og Bergþór Ólason. „Lykillinn að framtíðinni“ var yfirskrift flokks- stjórnarfundar Samfylkingar- innar sem fram fór á laugardag. Þar var ný stjórnarskrá með skýru auð- lindaákvæði meðal áherslumála ásamt aðild að ESB. Logi Einarsson formaður flokksins sagðist vilja hafa for- göngu um að mynda ríkisstjórn í kjölfar alþingiskosninga í haust eftir svokölluðu Reykjavíkurmód- eli. Þá fordæmdi flokksstjórn- arfundurinn framgöngu Samherja og skoraði á ríkisstjórnina að grípa til „raunverulegra aðgerða“ vegna málsins. ESB og ný stjórnar- skrá áhersluatriði Logi Einarsson Í frétt Morgunblaðsins á laugardag um upphaf laxveiði í Norðurá var rangt farið með föðurnafn formanns veiðifélags árinnar, Guðrúnar Sig- urjónsdóttur á Glitstöðum. Er beðist velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Rangt föðurnafn Ferðafélag Íslands leggst í umsögn gegn hugmyndum um einka- framkvæmd við uppbyggingu nýs vegar yfir Kjöl, sem fær yrði stærstan hluta ársins, eins og Njáll Trausti Friðbertsson og fleiri þing- menn Sjálfstæðisflokksins brydda upp á í nýrri þingsályktunartillögu. Hugmyndirnar miðast við að hægt verði að hefja framkvæmdir eftir um tvö ár. Mat forsvarsmanna FÍ er að að- dráttarafl hálendisins felist í ein- stæðri náttúru og fámenni. Fari fleiri um svæðið þurfi fleiri mann- virki þar. Allt haldist í hendur og upplifun ferðamanna af svæðinu geti orðið önnur og neikvæð. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hálendið Þangað liggur leiðin. Leggjast gegn nýj- um vegi yfir Kjöl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.