Morgunblaðið - 07.06.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 07.06.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 Biden Bandaríkjaforseti fékkfjármálaráðherra G7- ríkjanna til að samþykkja að vinna að því að leggja að lágmarki 15% tekjuskatt á fyrirtæki og er þessu ætlað að draga úr ósanngjörnu forskoti risa- fyrirtækja sem starfa víða um heim en láta hagn- aðinn myndast þar sem skattar eru mjög lágir. Nú er óljóst hvað önnur ríki segja. G20-hópurinn hittist í júlí og þá skýrist málið nokkuð, en utan hans er einnig fjöldi ríkja sem skiptir máli í þessu sambandi. - - - Þá er óljóst hvaða stuðning Bid-en hefur á Bandaríkjaþingi til þessara og tengdra aðgerða, en þar tortryggja hann ýmsir, meðal annars vegna þess að þessi 15%- tillaga nú er liður í fyrirhuguðum skattahækkunum heima fyrir. Þannig er óhætt að segja að veru- legur vafi leiki á um hvort og þá hvenær slíkur alþjóðlegur lág- marksskattur verður að veruleika. - - - Ríki heims þurfa þó ekki aðbíða þess til að bæta sam- keppnisstöðu sína. Þau geta náð töluverðum árangri með því til dæmis að lækka eigin tekjuskatta á fyrirtæki. Hægt væri að líta á 15% sem hámarksskatt í stað lág- marksskatts og við það styrktist samkeppnisstaðan nokkuð. - - - Þá gætu ríki, til dæmis Ísland,gætt þess að alþjóðleg risa- fyrirtæki geti ekki starfað utan skattkerfisins hér á landi. Fjöl- margir innlendir kaupa auglýs- ingar af erlendum vefjum til birt- ingar hér á landi og greiða enga skatta. Þetta á meira að segja við um ríki og sveitarfélög! Setja mætti fyrir slíkan leka. Lágmark má skoða sem hámark STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Fjögur kórónuveirusmit greindust samtals innanlands á föstudag og laugardag og voru allir í sóttkví við greiningu. Þá sagði Hjördís Guð- mundsdóttr, samskiptastjóri al- mannavarnadeildar ríkislögreglu- stjóra, í samtali við mbl.is að smitin þrjú sem greindust á föstudag tengdust öll eldri smitum. Þá greindust samtals 10 smit á föstu- dag og laugardag á landamærunum. Frá því á mánudaginn, 31. maí, hafa greinst 20 smit innanlands og af þeim hafa níu verið utan sóttkví- ar. Sjö smit greindust utan sóttkví- ar á fimmtudaginn og komu þau upp hjá fjölskyldufólki sem er á meðal umsækjenda um alþjóðlega vernd. Búið er að rekja smitin en á annað hundrað manns urðu að sæta sóttkví vegna þeirra. Í vikunni verður bólusett með AstraZeneca, Janssen og Pfizer. Þó mun einungis verða bólusett með AstraZeneca fyrir þá sem koma í seinni bólusetn- ingu. Haldið verður áfram með bólusetningu starfsmanna í skólum og þá er einnig hafin handahófs- bólusetning árganga. Í vikunni verða bólusett: Konur fæddar 1984, 1978, 1998, 1986, 2000, 1981, 1980, 2004, 1988 og karlar fæddir 1979, 1993, 1992, 1983, 1984, 2003, 1977, 1997, 1985. Allir fjórir í sóttkví við greiningu - Bólusetningar einstakra árganga af handahófi halda áfram nú í vikunni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bólusetning Fjölmargir verða boðaðir í Laugardalshöll í vikunni. Halldór Ingi Andrés- son, sem rak um árabil Plötubúðina á Lauga- vegi, lést 4. júní eftir baráttu við krabba- mein. Halldór fæddist á Selfossi 22. apríl 1954. Foreldrar hans voru Aðalheiður Guðrún Elíasdóttir húsfreyja og handavinnukennari og Andrés Hallmund- arson smiður. Halldór bjó fyrstu æviárin á Lambastöðum í Árnes- sýslu og á Selfossi. Ár- ið 1960 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur þar sem hann bjó til ársins 1987 en þá flutti hann á Sel- tjarnarnes þar sem hann bjó til æviloka. Halldór stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík og lauk síðar námi við löggildingu fast- eignasala hjá Háskóla Íslands. Halldór var alla tíð mikill tónlist- argrúskari. Árið 1975 fór hann að skrifa um tónlist, fyrst í Þjóðvilj- ann, síðan Vísi, Vikuna og í Morg- unblaðið þar til hann gerðist útgáfustjóri hjá Fálkanum 1981. Árið 1983 opnaði Halldór Plötubúð- ina á Laugaveginum en búðina rak hann um árabil. Síðar vann hann sem verslunarstjóri hjá Japis og Virgin Meg- astore í Kringlunni. Þá var Halldór umsjónarmaður þátt- arins Plötuskápsins á RÚV og hélt úti vef- síðunni Plötudómum þar sem hann skrifaði um bæði plötur og tónlist. Þá var Halldór formaður unglinga- ráðs handboltadeildar Gróttu um árabil. Síðustu árin starf- aði Halldór sem löggiltur fast- eignasali og opnaði að lokum sína eigin fasteignasölu, Fasteignaland. Eftirlifandi eiginkona Halldórs er Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir, fjár- málastjóri hjá Endurmenntun Há- skóla Íslands. Börn þeirra eru Guðný Þorsteinsdóttir, grunnskóla- kennari og námsefnishöfundur, f. 1973, og Anna María Halldórs- dóttir, f. 1985, teymisstjóri hjá QC Bioassay hjá Alvotech. Börn Guð- nýjar eru Friðbert Þór Ólafsson, Kolbeinn Ingi Friðriksson og Eydís Magnea Friðriksdóttir. Börn Önnu eru Ólafur Hrafn Johnson og Hall- dóra Guðrún Johnson. Andlát Halldór Ingi Andrésson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.