Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is S jónvarpsáhorf hefur breyst hratt á síðustu árum. Sí- fellt færri reiða sig á línu- lega dagskrá sjónvarps- stöðva en sækja þess í stað sjónvarpsefni til efnisveitna þegar og þar sem þeim hentar. Það hefur þó reynst mörgum flókið að fóta sig á þessu nýja svelli; ótal áskriftir hefur þurft til að komast yfir allt uppáhaldsefnið og helst hefur þurft að halda í gömlu góðu af- ruglarana til að vera fullkomlega með á nótunum. Nú er síðasta vígið fallið eftir að Síminn til- kynnti að mynd- lykillinn væri orðinn val- kvæður, Sjónvarp Símans-appið væri nothæft í flestum snjall- tækjum. Talsverður sparnaður felst í því að losa sig við myndlykilinn auk þess sem snúrufarganið og um- stangið í kringum sjónvarpið minnkar. Þá þarf bara að nota eina fjarstýringu. Bestu fréttirnar eru þó sennilega að nýjasta kynslóð snjallsjónvarpa einfaldar til muna sjónvarpsáhorfið og lagar að þörf- um hvers og eins. Þriðja tækið verður óþarft „Stóra breytingin er að nú þarf ekki lengur að kaupa þriðja tækið; Apple TV eða Chromecast,“ segir Eyjólfur Jóhannsson, vörustjóri hjá Origo. Hann segir að hægt sé að ná sér í öll helstu öppin beint í sjón- varpið, RÚV, Sjónvarp Símans, Nova TV og Stöð 2 af þeim íslensku en auk þess Netflix, Amazon Prime, Hulu, Youtube og fjölmörg fleiri er- lend. Eyjólfur tekur dæmi af snjall- sjónvarpinu Google TV frá Sony en þar er mjög auðvelt að klæðskera- sníða upplifun hvers og eins. „Þú getur blandað saman streymis- veitum og sjónvarpsstöðvum á þínu notendaviðmóti. Þarna er allt á sama stað. Ef þú ert til dæmis að fylgjast með einni þáttaröð á Ama- zon Prime og annarri á Netflix þá geturðu haft þær báðar á sama stað. Þú getur semsagt raðað þessu upp eins og þú vilt en svo kortleggur hugbúnaðurinn líka óskir þínar og hegðun og kemur með uppástungur, eins og Google gerir mikið af.“ Leitar í öllum sjónvarpsveitum Margir kannast við það að eyða löngum stundum í að fletta í gegn- um Netflix eða aðrar veitur í leit að álitlegu sjónvarpsefni. Þessi mið- stýring í gegnum Google TV getur mögulega auðveldað leitina í ein- hverjum tilvikum enda nær leitin yfir fleiri en eina sjónvarpsveitu. Þá er mögulegt að tala við sjónvarpið. „Jájá, þú getur bara sagt „Bat- man“ og þá kemur tækið með allar tillögur að Batman á þínum veitum. Því miður er íslenska ekki orðin að alvöruvalmöguleika í raddstýrðri leit en það kemur vonandi síðar,“ segir Eyjólfur en hundruð þúsunda sjónvarpsþátta og kvikmynda eru aðgengileg í gegnum Google TV. Það mun svo eflaust gagnast mörg- um að hægt er að bæta á óskalist- ann sinn í sjónvarpinu í gegnum snjallsímann þegar góð hugmynd fæðist. Eins er hægt að varpa myndum, myndböndum eða tónlist í sjónvarpið í gegnum snjalltæki. Breytt neysla og myndlyklar á útleið Morgunblaðið/Eggert Breytingar Ekki er lengur nauðsynlegt að nota gömlu góðu afruglarana. Guðmundur Jóhannsson 14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Logi Ein-arsson, for-maður Sam- fylkingarinnar, átti sérkennilegt inn- legg í stjórnmála- umræðuna á flokksstjórnarfundi Samfylk- ingarinnar um helgina. Hann vildi bersýnilega ekki að Sam- fylkingin væri eftirbátur Pírata og lýsti því yfir að hann útilok- aði samstarf við Sjálfstæðis- flokk og Miðflokk eftir næstu kosningar. Þetta er mjög í anda þeirrar útilokunaráráttu sem nú gengur yfir vinstri vænginn á Vesturlöndum og er hvorki lýð- ræðislegt né geðfellt á annan hátt. En það er ekki aðeins að Logi vilji útiloka, hann vill líka setja lýðveldinu nýja stjórnarskrá og gerir það að úrslitaatriði við stjórnarmyndun, ef marka má orð hans um helgina, sem er svo sem ekki endilega víst. Þessi söngur um að hér verði að um- bylta stjórnarskránni og helst semja nýja frá grunni hefur óm- að í rúman áratug, eða allt frá bankahruni, en er ekki minna falskur þó að hann hafi verið sunginn lengi. Kristrún Heimisdóttir lög- fræðingur ritaði athyglisverða grein um þennan rúma áratug tilrauna til stjórnarskrárbreyt- inga í nýjasta Tímarit lögfræð- inga og ber greinin þeim sem ákafast hafa barist fyrir nýrri stjórnarskrá ekki fagurt vitni. Kristrún rifjar upp aðdraganda þess að kosið var til stjórnlaga- þings, sú kosning svo dæmd ólögleg, og hvernig meirihluti þings, aðallega Samfylking og VG, lét sig þá hafa það að skipa stjórnlagaráð í staðinn og velja í það fulltrúana sem „kosnir“ höfðu verið í ólöglegu kosning- unni. Kristrún rekur þann dapur- lega og löglausa farsa sem í hönd fór, allt í boði vinstri- stjórnarinnar, og að auki hvern- ig þetta stjórnlagaráð „fór út fyrir umboð sitt eins og það var ákveðið í þingsályktun“. Þá tók við kosning um „tillögur stjórn- lagaráðs“, sem Kristrún bendir á að hafi ekki einu sinni verið til- lögur stjórnlagaráðs, enda hafi þær ekki verið fullbúnar „til þinglegrar meðferðar, hvað þá þjóðaratkvæðis“. Mjög var svo óljóst um hvað var kosið í þjóðaratkvæðagreiðslunni árið 2012, sem Kristrún segir að hafi orðið til á „hrossakaupamark- aði“ stjórnmálanna, og kjós- endur hafi verið látnir halda að þeir væru að kjósa um tillögur stjórnlagaráðs, sem hafi ekki verið raunin. Og hún talar um að „orðræða um „frumvarp stjórn- lagaráðs“ og „tillögur stjórnlag- aráðs“ hafi í meðförum Alþingis orðið „völundarhús hálfsann- leiks“. Allt var þetta með miklum ólík- indum og ekki vek- ur minni furðu að enn sé haldið áfram að ræða um nauð- syn á nýrri stjórn- arskrá á sama grunni og fyrir rúmum áratug. Í grein sinni lýsir Kristrún því hve fjar- stæðukennt það sé að telja að stjórnarskráin hafi haft eitt- hvað með bankahrunið að gera. Þvert á móti fer hún yfir það að stjórnarskráin hafi auðveldað Íslandi að komast út úr þeirri orrahríð sem það lenti í. Um þetta segir í greininni: „Ísland gat með engu móti bjargað of stóru fjármálakerfi frá þroti haustið 2008. Því varð lagasetn- ing innan ramma stjórnarskrár sem sætti endurskoðunarvaldi dómstóla með tilliti til sömu stjórnarskrár eina bjargræði þjóðfélagsins. Aðgerðir Íslands skáru sig úr í alþjóðlegu fjár- málakreppunni og hvergi ann- ars staðar var fullveldisrétti beitt á sambærilegan hátt í kreppunni. Stjórnarskrá Ís- lands var í eldlínu alþjóðlegra átaka við erlendar ríkis- stjórnir, alþjóðastofnanir og erlenda kröfuhafa því í krafti hennar og í íslenskri lögsögu breytti Ísland reglum með neyðarlögum, forseti Íslands beitti málskotsrétti til þjóðar- atkvæðis tvisvar og allir ytri aðilar höfðu virt þessar aðgerð- ir þegar upp var staðið. Vegna þess að útilokað var að stöðva hrunið með íslensku fjármagni eða lánstrausti að utan voru stjórnarskráin og fullveldis- réttur byggður á henni einu úr- ræðin til að stöðva hrunið. Og það gekk. Stjórnarskráin stöðvaði hrunið og íslenska réttarríkið var nógu sterkt andspænis umheiminum.“ Í lok greinarinnar segir Kristrún: „Hugmyndir um að stjórnarskráin sé úrelt, ekki ís- lensk, til bráðabirgða o.s.frv. hafa einkennt umræðu um stjórnarskrármálefni síðasta rúma áratuginn.“ Þessu er hún mjög ósammála og rekur stutt- lega söguna á bak við stjórnar- skrána sem tók gildi 1874 „vegna krafna Íslendinga og er einn af mikilvægustu sigrum sjálfstæðisbaráttunnar, sam- hliða heimastjórn, fullveldi og lýðveldi“. Íslenska stjórnarskráin á sér langa og farsæla sögu og var samþykkt hér um bil mót- atkvæðalaust í þjóðaratkvæði þar sem nánast allir landsmenn nýttu atkvæðisrétt sinn. Það er ömurlegt að flokkar sem eiga ekkert pólitískt erindi skuli ná að sameinast um að reyna ítrekað, jafnvel með löglausum gjörningum, að vega að undir- stöðum lýðræðisins og réttar- ríkisins hér á landi. Stjórnarskráin stuðlaði að því að Ísland komst hratt út úr bankahruninu} Vegið að undirstöðu Í gær, á sjálfan sjómannadaginn, átt- um við í Flokki fólksins yndislegan dag í glæsilegum höfuðstöðvum okk- ar á neðri hæðum Grafarvogskirkju. Hinn eini sanni Tómas Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni og nú sem verðandi þingmaður Flokks fólksins, grillaði gómsæta hamborgara handa gestum okkar. Það er ekki hægt að lýsa því hvað það er gaman að hitta og sjá gamla vini og félaga ásamt öllum þeim nýju og frábæru sem stöð- ugt bætast í hópinn. Hamborgararnir klár- uðust að sjálfsögðu og þurfti í skyndingu að senda eftir fleirum. Ég segi frá þessu hér því ég finn að nú er loks að birta til í Covid-faraldrinum. Við erum farin að geta hist á mannamótum á ný. Ég vona heitt og innilega að nú fari þessu ömurlega ástandi með ferða- og sam- komutakmörkunum að linna. Að við getum farið um frjálst höfuð að strjúka. Ég nefndi hér sjómannadaginn. Ég er dóttir sjó- manns, fædd og uppalin í sjávarplássinu Ólafsfirði norð- ur við ysta haf. Þessi dagur vekur alltaf hjá mér hlýjar og góðar minningar. Ég man eftir iðandi mannlífi í fal- lega bænum okkar. Höfnin full af bátum og blómstrandi sjávarútvegi. Pabbi gerði út trillu með félögum sínum eða var í skiprúmi á stærri bátum. Í litlu verkamanna- íbúðinni okkar var eitt herbergið notað til að geyma veið- arfæri og dytta að þeim, fella net, stokka línu og þess háttar. Nú er faðir minn orðinn ríflega níræður, löngu sestur í helgan stein og býr heima hjá mér í Reykjavík. Mesta sína starfsævi strit- aði hann á sjónum eins og þúsundir annarra Íslendinga. Þegar um fór að hægjast vann hann á netaverkstæði þar til hann hætti störfum vegna aldurs. Pabbi upplifði svo sannarlega hættur hafsins þótt hann hafi sjaldnast talað um það. Nú ræður hann krossgátur eða fer með kvæði uppáhalds- skáldsins síns Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi sem hann kann mörg utan að, heilu ljóðabálkana, enn í dag. Þessi fallegi gamli maður tók þátt í því að byggja upp samfélag okkar. Hann og starfsbræður hans gerðu það með blóði, svita og tárum. Þeir horfðu á eftir félögum sínum og ástvinum í hafið en báru harm sinn í hljóði og héldu áfram að sækja sjóinn. Þannig tók hafið elsku Helga bróður minn. Pabbi fékk aldrei neinn kvóta. Afkomendum hans, sem í dag eru margir, er meinað að nýta sjávarauðlindina þótt þeir fegnir vildu nema þá með því að greiða fúlgur fjár í vasa þeirra sem þykjast eiga óveiddann fiskinn í sjónum. Ég fyrirlít þetta óréttlæti í hvert sinn sem ég hugsa til þess. Lái mér hver sem vill. Inga Sæland Pistill Hugleiðing í tilefni sjómannadags Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Síminn kynnti á dögunum breytingar á sjónvarpsþjónustu fyrirtækisins. Viðskiptavinir fyrirtækisins geta nú valið hvort þeir nota sjónvarpsþjón- ustu þess með eða án myndlykils. „Það eru þúsundir að nota bæði Apple TV- og Android TV-sjónvarpsöpp Símans en við finnum ekki mikið fyrir því að viðskiptavinir Símans séu að skila myndlyklum og skipta alfarið yfir í önnur tæki þótt það sé auðvitað eitthvað um það,“ segir Guðmundur Jóhannsson, samskiptafulltrúi Sím- ans. „Notkun á Apple TV og Android TV eykst jafnt og þétt milli vikna en okkar tilfinning er að mörg heimili kjósi helst að nota Apple TV eða Android TV sem aukamyndlykil í t.d. öðrum herbergjum á heimilum sín- um eða í sumarbústaðnum. Mögulega er of snemmt að greina hvernig þessi þróun verður í náinni framtíð þar sem svo stutt er síðan þessi breyting fór í loftið hjá okkur. Við finnum þó ekkert nema jákvæða strauma eftir þessa breytingu, að viðskiptavinir hafi val og sjónvarps- þjónusta Símans sé aðgengilegri fleirum,“ segir Guðmundur. Sífellt fleiri nota sjónvarpsöpp BREYTT NEYSLA HJÁ SJÓNVARPI SÍMANS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.