Morgunblaðið - 07.06.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 07.06.2021, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 Stíll Hin árlega Tweed Ride fór fram í miðborginni á laugardag. Þessar voru með allt sitt á tæru og til í slaginn. Sigurður Unnar Hver er grundvöll- urinn undir velferðar- samfélaginu, sam- félagi þar sem velferð allra þegna landsins er tryggð? Þetta er gáta. Eins og í öðrum gátum, þá er rétta svarið aðeins eitt og það merkilega er að öll vitlausu svörin koma frá vinstri hliðinni í stjórn- málunum. Rétta svarið er: Öflugt atvinnulíf og verðmætasköpun er grunnur velferðarsamfélagsins. Það er einkarekið atvinnulíf sem greiðir fólki á almennum vinnu- markaði laun og það eru skatt- greiðslur almennings og fyrirtækj- anna til ríkis og sveitarfélaga sem gera mögulegt að starfrækja stofn- anir hins opinbera. Laun opinberra starfsmana eru greidd af skatt- tekjum ríkisins sem innheimtar eru af launafólki á almennum vinnumarkaði og fyrirtækjunum sem það starfar hjá. Eðlilega er sífellt verið að gera kröfur til ríkisins um að það verji meira fjármagni í ýmis mikilvæg verkefni. Nánast daglega heyrum við ákall frá forsvars- mönnum ýmissa mála- flokka; í heilbrigð- ismálum, mennta- málum, málefnum öryrkja, aldraðra og mörgum öðrum sem við erum sammála um að brýnt sé að sinna vel og við ættum að sinna betur. En hvernig getum við aflað ríkissjóði meiri tekna til þess að úr meiru verði að spila þegar kemur að fjármögnun brýnna málaflokka sem eru órjúf- anlegur hluti velferðarsamfélags- ins? Verður það best gert með því að hækka skatta – sem þegar eru háir á Íslandi – og draga þannig úr vinnusemi fólks og framkvæmda- gleði? Svarið er nei. Skattahækkun yrði feigðarflan og sannarlega ekki til þess fallin að hvetja fólk til að leggja meira á sig þegar t.d. önnur hver króna er tekin í skatt. Það er margsannað að sú leið sem Sjálfstæðisflokkurinn mælir fyrir er besta, árangursríkasta og skynsamlegasta leiðin: Að stilla sköttum í hóf en örva atvinnulífið og stuðla þannig að stækkun þjóð- arkökunnar. Lægra hlutfall af stórri köku skilar meiru en hærra hlutfall af lítilli köku. Fyrir fram mætti halda að þetta væri auð- skilið, en reynslan sýnir að svo er ekki. Það eru mörg sóknarfærin í at- vinnulífinu sem við okkur blasa og ekki seinna vænna að hefjast handa af krafti, nú þegar kófinu er að létta og hjólin farin að snúast á ný – og með vaxandi hraða sem betur fer. Tækifærin liggja við fætur okkar víða. Ég nefni nokkur dæmi um tækifæri í umhverfis- vænni starfsemi. Græn orka og veðurfar gerir Ís- land ákjósanlegt fyrir gagnaver. Nýr sæstrengur til gagnflutnings sem leggja á til Evrópu á næsta ári mun gera Ísland að vænlegum kosti með öruggum tengingum. Nýr sæstrengur sem leggja þarf hingað frá Norður-Ameríku myndi valda byltingu. Það þarf að vinna því máli brautargengi. Gagnavers- iðnaðurinn er starfsemi sem getur víða verið, ekki síst í hinum dreifð- ari byggðum, og kaupendur raf- orkunnar myndu greiða fyrir tíma- bæra styrkingu dreifikerfisins. Græna orkan okkar er ekki síð- ur eftirsótt til eldsneytisfram- leiðslu. Tækifærin fyrir okkur í orkuskiptum eru gríðarleg og mestur áhugi virðist vera á vetn- isframleiðslu. Útflutningur grænn- ar raforku okkar í formi vetnis getur orðið myndarleg stoð undir þjóðarbúið. Framleiðsla á raf- hlöðum í farartæki er annað tæki- færi sem byggist á grænni orku. Frá orkufyrirtækjunum berast fregnir um að slíkri framleiðslu geti fylgt mikill fjöldi hátækni- starfa og gríðarleg útflutnings- verðmæti. En til þess að geta nýtt tæki- færin í græna orkuiðnaðinum verð- um við að hefjast handa við frekari orkuöflun. Virkjanakostir sem far- ið hafa í gegn um öll ferlin bíða. Við getum treyst stoðir hefð- bundinnar matvælaframleiðslu í landbúnaði og aukið mjög fram- leiðslu okkar í ylrækt. Íslensk landbúnaðarframleiðsla á sér ekki hliðstæðu hvað viðkemur hrein- leika og lítilli sem engri lyfjanotk- un og lífrænum vörnum. Fiskeldi er að treysta byggðir á landsbyggðinni og fer útflutnings- verðmæti fiskeldisafurða vaxandi ár frá ári. Við þurfum að ná sátt- um um þessa atvinnugrein, en deil- ur hafa um of skyggt á mikilvægi hennar. Við eigum að gera meiri kröfur til umhverfismála á þessu sviði en aðrar þjóðir og auka rann- sóknir til að áhættumeta rekst- urinn gagnvart umhverfinu. Líf- tækniiðnaður, hugverkaiðnaður og ferðaþjónusta eru dæmi um at- vinnugreinar sem við getum eflt. Þeir möguleikar sem ég hef hér farið yfir eru dæmi um nýsköpun í umhverfisvænni atvinnustarfsemi sem munu gjörbylta tækifærum fyrir framtíðarkynslóðir Íslend- inga. Við þurfum ekki að finna upp hjólið upp á nýtt. Framangreind tækifæri eru öll byggð á grunni reynslu og þekkingar sem við höf- um þegar aflað okkur. Ég vil beita mér fyrir framgangi framangreindra verkefna á Alþingi eins og annarra þjóðþrifamála sem varða hag okkar allra. Við sjálf- stæðismenn veljum fólk á fram- boðslista flokksins í Suðvestur- kjördæmi dagana 10. til 12. júní nk. Ég sækist þar eftir 2. sæti listans og óska eftir stuðningi í það. Eftir Jón Gunnarsson » Leið Sjálfstæðis- flokksins er árang- ursríkasta og skyn- samlegasta leiðin: Stilla sköttum í hóf, örva at- vinnulífið og stuðla að stækkun þjóðarkök- unnar. Jón Gunnarsson Höfundur er þingmaður fyrir Suðvesturkjördæmi og ritari Sjálfstæðisflokksins. Gáta um grundvöllinn Hinn 26. maí 1929 birtist sú frétt í Morg- unblaðinu að Sjálf- stæðisflokkur hefði verið stofnaður daginn áður, með samruna Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins. Eftirfarandi tvö að- alstefnumál voru nefnd til sögunnar: 1. Að vinna að því að undirbúa það, að Íslandi taki að fullu öll sín mál í sínar eigin hend- ur og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina jafnskjótt og 25 ára samningstímabil sam- bandslaganna er á enda. 2. Að vinna að innanlands- málum, að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli ein- staklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Frá upphafi naut Sjálfstæðis- flokkurinn yfir 40% kjörfylgis og hélst það mikla fylgi fram eftir öldinni. Á áttunda áratug síðustu aldar tók fylgið að dala en hélst þó á bilinu 30-40%. Eftir fjármála- kreppuna árið 2008 hefur kjör- fylgið hins vegar lækkað meira, og hefur verið um 25% í síðustu þrennum kosningum. Við leit að skýringum á þessari hlutfallslegu fækkun kjósenda er sú spurning áleitin hvort tengslin við þennan uppruna hafi trosnað með þeim af- leiðingum að flokkurinn hafi í framkvæmd ekki lagt nægilega rækt við þann grundvöll sem hon- um er þó ætlað að standa á. Eitt mikilvægasta verkefni stjórnmálamanna er að tryggja bæði aukna verðmætasköpun og sem réttlátasta skiptingu fram- leiðsluverðmætanna. Viðfangsefnið er að skapa grundvöll samstarfs og sáttar milli þeirra sem eiga fjármagnið, skipuleggja og hafa eftirlit með framleiðslunni annars vegar og þeirra sem bjóða fram starfskrafta sína, vinnuaflið, hins vegar. Ef vel tekst til og fram- leiðslan eykst með hagnaðaraukn- ingu og samsvarandi hækkun launa geta hvorir tveggja unað vel við sitt. Það er grundvöllur vel- ferðar, hamingju og friðar í sam- félaginu. Í framangreindu samhengi er brýnt að tryggja fyrirtækjum góð starfsskilyrði en einnig að samkeppni sé næg. Um leið þarf að búa vinnandi fólki örugg starfsskilyrði. Réttir hvatar til þátt- töku á vinnumarkaði þurfa sömuleiðis að vera fyrir hendi. Það er verðugt hlutverk bæði stéttarfélaga og löggjafans. Sjálfstæð- isflokkurinn er flokkur ein- staklingsfrelsis og atvinnufrelsis, þannig að landsmenn allir geti nýtt krafta sína og hæfileika, en um leið notið gæða landsins. Í ríkisstjórn þarf Sjálfstæðisflokkurinn að gæta þess að jafnvægi haldist í ofan- greindu heildarsamhengi, þar sem grunnstoðir eru varðar samhliða því sem leitað er farsælustu leiða til betrumbóta. Á þennan hátt endurnýjast stöð- ugt hin klassíska, frjálslynda íhaldsstefna Sjálfstæðisflokksins. Þetta gerist í takt við ytri aðstæður og þau þjóðmál sem þarf að takast á við til að varða veginn að áfram- haldandi framförum í landinu. Af framangreindu leiðir að hin upphaflega stefnuskrá Sjálfstæð- isflokksins, sem kom fram fyrir 92 árum, er enn gulls ígildi. Ein- staklingsfrelsi og atvinnufrelsi eru enn þann dag í dag hornsteinar virks og réttláts lýðræðis og mark- aðskerfis. Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að gerast málsvari stór- fyrirtækja, heldur hverfa aftur til sinna upprunalegu gilda og gera þau sýnilegri í áherslum flokksins. Það er trú mín að með því að end- urvekja gildi þessara hugtaka fyrir Sjálfstæðisflokkinn, með áherslu á jafnvægi á milli fyrirtækja, vinn- andi fólks og ríkisvalds, megi auka traust á stefnu flokksins og breikka stuðning við hann á ný. Eftir Arnar Þór Jónsson » Sjálfstæðisflokk- urinn á að vera upp- runa sínum trúr. Arnar Þór Jónsson Höfundur sækist eftir 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í SV- kjördæmi 10.-12. júní nk. jonssonarnarthor@gmail.com Stétt með stétt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.