Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 „Á ystu nöf“ var yfirskrift málþings sem Samtök fyrir- tækja í velferð- arþjónustu efndu nýverið til um Gylfaskýrsluna svokölluðu um greiningu á rekstrarkostnaði hjúkrunarheim- ilanna. Vandað var til málþingsins eins og er með allt sem þessi samtök (SFV) gera. Málflutningur samtakanna er ávallt í senn málefnalegur, vel rökstuddur og hófstilltur. Á það jafnt við um greinaskrif, í viðtölum við fjölmiðla og umsögnum um þingmál sem varða umbjóð- endur samtakanna. Að vísu voru samtökin ekki með fram- söguerindi á þessu málþingi enda enginn skortur á frum- mælendum með góð erindi. Á Alþingi er borið traust til þess sem SFV hefur fram að færa en samt er eins og stjórnsýsl- an – framkvæmdavaldið – virði það að vettugi. Því er líkast að af þess hálfu ráði tortryggni ríkjum. Einnig hefur ríkt vilja- leysi stjórnvalda til að láta leggja mat á það hvað það myndi kosta að reka hjúkr- unarheimili með hliðsjón af ítarlegri kröfulýsingu hins opinbera um hvaða þjónustu beri að veita annars vegar og hins vegar út frá mönnunar- viðmiði landlæknis. Gylfa- skýrslan tekur ekki á því enda ekki til þess ætlast. Fyrir nokkrum árum fengu tveir stærstu rekstraraðilar hjúkrunarheimila í landinu óháðan aðila til að gera slíka úttekt þegar óskir þess efnis höfðu ítrekað verið hunsaðar af stjórnvöldum. Niðurstaðan var sú að allt að þriðjung vant- aði upp á að daggjöld Sjúkra- trygginga Íslands gætu staðið undir rekstrinum með vísun til þeirra krafna og viðmiða sem kveðið er á um af hálfu stjórn- valda. Gylfaskýrslan er í sam- hljómi við þá niðurstöðu, sem og það sem SFV hefur einnig ítrekað bent á. Samt stendur nú til að fara í nánari kostn- aðargreiningu skv. ákvörðun fjármálaráðherra en athygli vekur að fulltrúi frá SFV er ekki kallaður að því verki. Í orðum fjármálaráðherra og framsögn í sjónvarpsviðtali hljómaði það eins og verulega mikið hlyti að vera að í þessum rekstri og slíkt yrði að upp- lýsa. En þá er rétt að halda því til haga að hjúkrunarheimilin hafa mátt búa við aðhalds- og hagræðingarkröfu fjármála- ráðuneytisins um árabil ofan í þá sveltistefnu sem viðgengist hefur. Einhvern veginn ríma þessi viðbrögð ekki við mál- flutninginn fyrir síðustu kosn- ingar og enn síður við skjalfest fyrirheit í samstarfssáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið er á um að styrkja skuli rekstrargrundvöll hjúkr- unarheimilanna. Hnykkt var einnig á því í máli ráðherra að væntanlegur viðbótarmillj- arður skv. frumvarpi til fjár- aukalaga væri einungis til að bregðast við rekstrarvanda liðins árs. Milljarður er þó milljarður hvað sem öðrum milljörðum líður og ekki virð- ist skortur á. En verulega vantar upp á til að jafna þann rekstrarhalla sem við er að glíma. Vonandi má þó síðar vænta leiðréttinga til fram- búðar þótt ráð- herra gæfi ekki færi á að láta herma slíkt upp á sig. Heilbrigðis- ráðherra hefur lýst vonbrigðum yfir því að Gylfa- nefndin skuli ekki hafa unnið grein- ingu á þeim verk- þáttum á hjúkr- unarheimilum sem telja má sam- bærilega við þá fé- lagsþjónustu sem sveitar- félögin veita öldruðum sem eru heimabúandi. Æ, til hvers í ósköpunum að standa í slíku? Gylfanefndin taldi ekki einfalt að fara í slíka greiningu og það skil ég vel. Hjúkrun og umönnun eru oftar en ekki eitt og sama verkið. Kostnaðar- skilin í þessum efnum á milli ríkis og sveitarfélaga eru aftur á móti skýr eins og þau eru og hafa verið og fer best á því þannig. Skv. lögum er það verkefni ríkisins að standa undir þeim kostnaði sem felst í rekstri öldrunarheimila og sjúkrastofnana; basta. Hitt kostar bara meiri skriffinnsku og viðbótarkostnað og fyrir- höfn, sem hvorki getur flokk- ast undir umönnun eða hjúkr- un. Það er svo annað mál að vilji ríkið velta af sér kostnaði við rekstur hjúkrunarheim- ilanna þá verða stjórnvöld að eiga samtal um það við sveit- arfélögin. Þau geta ekki tekið á sig aukin fjárútlát án þess að fullnægjandi tekjustofnar fylgi og gera yrði ráð fyrir öllum rekstraraðilum í þeim pakka, óháð rekstrarformi. Nei ann- ars, þetta yrði bara tóm vit- leysa. Farsælast er hafa þessi mál með þeim hætti sem lögin kveða á um og ákveðið var af framsýnu fólki. Til viðbótar koma nú til framkvæmda ákvæði kjarasamninga um styttingu vinnuvikunnar. Hjúkrunarheimilin sem slík bera ekki beina ábyrgð á þeim samningum sem um þessar mundir falla í gjalddaga. Það er búið að liggja fyrir frá því á síðasta ári að svo fari en samt ríkir enn óvissa um fjár- mögnun þessa viðbótarkostn- aðar þegar þetta er ritað. Rekstur hjúkrunarheim- ilanna verður ekki umflúinn né kostnaðurinn sem þar af leiðir. Þörfin er fyrir hendi; fram hjá því verður ekki horft. Ríkis- valdið verður að axla sínar skyldur með metnaði og reisn og í farsælli samvinnu við rekstraraðila. Starfsemin er þjónustudrifið samfélagsverk- efni sem eðlilegast er að ríkið kosti af almannafé. Hún er ekki einkabissness en er best komin í höndum sjálfstæðra rekstraraðila í samvinnu við stjórnvöld ríkisins og í héraði. Aldraðir eiga það hins vegar ekki skilið að sífellt sé verið að fjalla um rekstur hjúkr- unarheimila sem vandamál. Íbúar hjúkrunarheimilanna munu ekki heldur mæta á Austurvöll. Eftir Jón G. Guðbjörnsson Jón G. Guðbjörnsson »Ríkisvaldið verður að axla sínar skyldur með metnaði og reisn og í farsælli samvinnu við rekstraraðila. Höfundur er stjórnar- formaður Brákarhlíðar og öldungur. Íbúar hjúkrunarheim- ilanna munu ekki mæta á Austurvöll ✝ Þorbergur fæddist í Reykjavík 9. maí 1943. Hann lést á líknardeild Land- spítala þann 27. maí 2021. Foreldrar hans voru Kristinn Þor- bergsson, f. 1920, d. 1962, og Pálína Einarína Val- gerður Gunn- arsdóttir, f. 1922, d. 1993. Systkini Þorbergs eru: 1) Páll Sævar, f. 1948, d. 1996, 2) Hólmfríður Sigurrós, f. 1950, 3) Sigurður, f. 1952, d. 1952, 4) Jón Kristinn, f.1953, og 5) Ein- ar Valur, f. 1959. Eftirlifandi eiginkona Þor- bergs er Sigrún Gróa Jóns- dóttir, f. 1941, þau giftu sig ár- ið 1963. Börn þeirra eru 1) Kristinn, f. 1963, eiginkona hans er Kristín Anna Ólafs- dóttir, f. 1965. Börn þeirra eru: voru Jón Sæmundsson, f. 1908, d. 1955, og Guðlaug Sigfúsdótt- ir, f. 1906, d. 1987. Þorbergur gekk í Laug- arnesskóla og Iðnskólann í Reykjavík og útskrifaðist það- an sem setjari með sveinspróf árið 1966. Hann vann hjá Prentsmiðju Morgunblaðsins 1967, þá setjari hjá Prent- smiðju Jóns Helgasonar 1967- 1968, Prentsmiðju Alþýðublaðs- ins 1968-1969, við auglýsingar á Vísi 1968-69 og hóf nám í Lithoprenti í skeytingu, ljós- myndun og plötugerð 1970- 1971. Hann hlaut meistarabréf í prentverki 1979. Starfaði frá 1972 til 1973 sem teiknari hjá Auglýsingaþjónustunni hf. Hann hóf störf sem útlitsteikn- ari á Vikunni í júní 1973 og síð- ar hjá DV til 1985. Hann var stundakennari við Iðnskólann í Reykjavík í útlitsteiknun 1983- 1985. Hann var tæknistjóri á Tímanum frá 1985. Hann hóf aftur störf hjá DV 1996 og vann til 2003. Þorbergur verður jarðsung- inn frá kirkju Óháða safnaðar- ins í dag, 7. júní 2021, kl. 14. Jarðsett verður í Kópavogs- kirkjugarði. Stefanía María, f. 1992, Kári Þor- bergur, f. 1997, og Ólafur Áki, f. 2002. 2) Jón Sævar, f. 1966, eiginkona hans er Rannveig Einarsdóttir, f. 1967. Börn Þeirra eru Jón Þór, f. 1987, eiginkona hans er Helga Magnúsdóttir, f. 1987, og Sigrún Gróa, f. 1992, maki hennar er Friðrik Rafn Friðriksson, f. 1988. Barn þeirra er Sara Rannveig, f. 2020, og barn Sigrúnar af fyrra sambandi er Ásta Björg, f. 2014. 3) Snorri Goði, f. 1973, eiginkona er Nanna Gísladóttir Wium, f. 1978. Börn þeirra eru Gísli Wium, f. 2007, og Atli, f. 2011. Börn Snorra frá fyrri samböndum eru Birgir Alex- ander, f. 1992, og Elísa Sif, f. 1998. Foreldrar Sigrúnar Gróu Í dag kveð ég föður minn. Pabbi gekk í Iðnskólann í Reykjavík og gerðist einn af læri- sveinum Gutenbergs. Hann varð setjari og snemma drátthagur og starfaði lengst af starfsævinnar sem útlitsteiknari á öllum helstu dagblöðum lýðveldisins og Vik- unni. Hann var mikill handverks- maður, í reynd þúsundþjalasmið- ur í bestu merkingu þess orðs. Hann var alla tíð með einhver verkefni á prjónunum. Gjarnan myndverk af ýmsu tagi með til- vísanir í trúarleg þemu, norræna eða gríska goðafræði, málaði, skar út, gerði glerverk eða vann með málm. Hann var síðustu ára- tugina með tvær listasmiðjur. Aðra í bílskúrnum heima þar sem aldrei fór inn bíll og hina í sum- arbústaðnum. Hann gerði fjöl- mörg frambærileg verk sem aldr- ei hafa verið sýnd opinberlega. Hann hafði engan áhuga á því, taldi sig sjálfur ekki vera lista- mann en fyrst og fremst stoltur handverksmaður. Hann var hins vegar í reynd listamaður. Pabbi var fjölfróður maður og hafði áhuga á samfélagsmálum með pólitískar skoðanir á miðju stjórnmálanna. Bókum var gert hátt undir höfði og alla tíð var ríkulegt bókasafn á heimilinu. Mikið af því var tengt þjóðlegum fróðleik, sögu og listum. Hann smitaði þessum áhuga yfir á okk- ur synina. Það fór vel á því að síð- asta ferð okkar pabba saman var á listsýningu þar sem ég fékk ná- kvæmar útlistanir á aðferðafræði listamannanna. Síðustu 20 árin bjó hann ásamt mömmu hálft árið í sumarbústaðnum þeirra í Þrastaskógi. Byggði þar bústað upp úr 1980 og var stöðugt að breyta, stækka, bæta og rækta upp landareignina, reisti gróður- hús og sinnti listsköpun sinni. Þetta var sælureitur þeirra mömmu og þarna leið honum best og hafði alltaf næg verkefni alla daga. Í seinni tíð var hann kom- inn með græna fingur og minnast barnabörnin gómsætu tómatanna frá afa. Pabbi talaði alltaf tæpi- tungulaust, stundum þannig að mér fannst hann næstum því jafnvel óheflaður. Hann hafði ekki miklar skoðanir á útförinni, sagði að við bræður réðum hvort við kveiktum í honum eða græf- um. Hann hélt sinni andlegu reisn til enda. Hann taldi sig alla tíð trúlausan mann þótt mörg mynd- verkin segi kannski annað. Við pabbi áttum síðasta samtal okkar tveimur dögum áður en hann dó. Ég spurði hvort hann færi upp eða niður ef það væri í boði. Hann hugsaði sig um lengi og svaraði að hann væri ekki viss um á hvorum staðnum hann myndi lenda. Ég veit hins vegar að helst myndi hann vilja til Valhallar. Hann málaði Bifrastar-brúna einu sinni svo hann er kunnugur staðhátt- um og ratar. Hann bað um að sótt yrðu glös, lét blanda saman grape og sódavatni og svo var skálað. Við röbbuðum um söngvakeppni sjónvarpstöðvana og hann söng nokkrar línur úr Volare, sem á ís- lensku þýðir: ég mun fljúga. – Aldrei hef ég á ævinni minni áður heyrt hann syngja! Hann endaði samtal okkar á því að segja: „Þetta var góður dagur.“ Hvíl í friði. Þinn Kristinn (Kiddi). Í dag verður borinn til grafar tengdafaðir minn Þorbergur eða Beggi eins og hann var alltaf kall- aður. Fyrsta orðið sem kemur í hug- ann þegar ég minnist Begga er orðið „þúsundþjalasmiður“ en það orð er notað um þann sem allt leikur í höndunum á og er mikill hagleiksmaður. Það lék svo sann- arlega allt í höndunum á honum hvort sem það var fínlegur út- skurður eða grófur, pensillinn við málverkið eða styttugerð. Hann kunni alls konar tækni við gerð listaverka og aflaði sér kunnáttu við lestur bóka eða á netinu. Eftir hann liggja mörg listaverk og flest með einhverja tilvísun í at- burð eða sögu en hann hafði mik- inn áhuga á sagnfræði. Og hann var svo sannarlega smiður líka en hann byggði fallega skjólið þeirra Sirru í Þrastaskógi alveg frá grunni, smíðaði allt inn í það og var með einstakar útfærslur á smíðavinnunni og hélt því vel við. Hann var mjög fróður maður, las mikið og var vel upplýstur um gang mála í heiminum, það var nánast sama hvað umræðuefnið var í gegnum árin að alltaf átti hann innkomu í samtalið með ein- hverjum nýjum upplýsingum. Beggi var með græna fingur og þar áttum við sameiginlegt áhugamál um ræktun blóma og trjáa en hann var svo sannarlega langt á undan mér í ræktun mat- jurta en hann setti upp gróðurhús í sumarbústaðnum og þar rækt- aði hann ýmislegt og það var dásamlegt þegar hann færði fjöl- skyldunni afrakstur í poka en í pokanum voru oftast tómatar sem voru í miklu uppáhaldi hjá okkur og svo voru stundum líka gúrkur, grænkál og kúrbítur. Mér þótti vænt um þegar hann færði mér plöntur sem hann hafði forræktað í gróðurhúsinu sínu og ég hélt áfram að láta vaxa í eld- húsglugganum mínum. Það voru t.d. gúrkur og tómatar og sólblóm sem hann hafði ræktað upp frá fræi. Gróðurhúsið stendur nú tómt enda þrek hans ekki til stað- ar í vor að setja það af stað en í byrjun maí þegar hann átti af- mæli færði ég honum tómat- og kúrbítsplöntu til að hafa á svöl- unum á heimilinu þeirra í Garða- bænum og hann var ánægður með það. Takk fyrir samfylgdina kæri Beggi, sofðu rótt. Þín Kristín Anna. Elsku afi minn. Þú varst handlaginn listamað- ur og sést það vel í verkum þínum sem hanga inni á heimilum fjöl- skyldunnar þótt þú myndir ekki flokka sjálfan þig sem slíkan. Okkur systkinunum fannst alltaf gaman að koma í skúrinn til þín og fá að prófa verkfærin. Þar bjuggum við saman til alls kyns fígúrur eins og kisur handa ömmu úr viðarbútum og máln- ingu. Fallegast finnst mér mál- verkið af litlu ljóshærðu stelpunni í leik, enda hef ég alltaf haldið því fram að þú hafir málað mig því þú saknaðir mín á meðan við bjugg- um í Noregi. Þú hafðir nýlega komið í heimsókn til okkar á þeim tíma sem þú málaðir það og fékk ég að eiga það þegar þið amma fluttuð ykkur í minna húsnæði. Síðustu árin lagist þú í mat- jurtarækt í fallegu sveitinni þinni sem þú byggðir upp meiri hluta ævi þinnar. Ég kallaði gróðurhús- ið þitt Afaheima þar sem þú rækt- aðir bestu tómata sem ég hef smakkað og var ég leyst út með nammipoka sem innihélt nýtínda tómata þar sem þið amma réðuð ekki við að borða þá alla. Þrátt fyrir 28 ára samveru þá áttum við okkar bestu samtöl síð- astliðið ár. Það var eins og hvor- ugt okkar væri að flýta sér og töl- uðum við um allt og ekkert. Þú fékkst loksins að sjá mig útskrif- ast og halda utan í frekara nám og gantaðist á ensku með tilþrifa- miklum hreim þegar ég hringdi í þig frá Bretlandi. Ofsalega var gott að geta spjallað við þig í gegnum myndsímtöl síðustu dag- ana þrátt fyrir að höfin skildu okkur að. Það var greinilegt að húmorinn var til staðar alveg fram á síðustu stundu, enda hringdir þú í mig til að segjast ætla að skila kveðju hvort sem þú færir upp eða niður. Elsku bangsa-afi minn hvíldu í friði. Stefanía María. Það er skarð fyrir skildi þegar Þorbergur Kristinsson eða Beggi, eins og hann var alltaf kallaður, hverfur af stóra sviðinu. Það hefur verið lán mitt í lífinu að kynnast góðu fólki, ekki síst á síð- ari hluta ævinnar og þá oft á vett- vangi starfs míns, sem starfsmað- ur Blaðamannafélags Íslands um árabil og þar áður í trúnaðar- störfum fyrir félagið alllengi. Þótt starfsferill okkar Begga hafi snú- ist um blöð og blaðamennsku alla tíð kynntumst við þó ekki fyrr en seint og um síðir. Ég kom til starfa á Morgunblaðinu þegar talsvert var um liðið frá því hann lét þar af störfum og leiðir okkar lágu ekki saman á vettvangi starfsins, enda hann starfandi á öðrum blöðum en Morgun- blaðinu. Það var ekki fyrr en í upphafi þessarar aldar að við kynntumst í framhaldi af því að DV varð gjaldþrota síðla árs 2003. Ég sem starfsmaður BÍ kom eðlilega fram fyrir hönd starfsmanna til að tryggja rétt þeirra, eins og kostur væri, og mál þróuðust með þeim hætti að hópur blaðamanna af DV fór að hittast vikulega í húsnæði félags- ins við Síðumúla á föstudögum. Þar með varð svonefndur föstu- dagsklúbbur til, en eldri blaða- menn og aðrir þeir sem tengjast blöðum og blaðamennsku hafa upp frá því hist vikulega, nema yfir hásumarið, í húsnæði félags- ins til að ræða landsins gagn og nauðsynjar, svo sem blaðamanna er háttur. Nú er svo komið að þetta er einn mikilvægasti þáttur í starfsemi félagsins. Þorbergur átti ásamt fáum öðrum frum- kvæði að þessum vikulegu fund- um og er sá fyrsti úr þeim hópi sem kveður okkur. Hann var líka einn traustasti liðsmaður hóps- ins, mætti ávallt ef hann hafði tök á og lét vita ef hann kæmist ekki, enda trúmennska einn ríkasti þáttur í fari hans. Það fann ég oft og iðulega að þar átti Blaða- mannafélagið traustan liðsmann. Með okkur þróaðist mikil og góð vinátta og hann reyndist mér haukur í horni. Við vorum hvergi nærri sammála í pólitík og rædd- um hana oft og iðulega í bróðerni án þess að komast að sameigin- legri niðurstöðu. Fundir okkar hafa verið færri í vetur en ella vegna faraldursins og er það mjög miður. Að leiðarlokum er honum þökkuð samfylgdin og fjölskyldu hans beðin blessun. Guð blessi minningu Þorbergs Kristinsson- ar. Hjálmar Jónsson. Þorbergur Kristinsson Elsku amma Fríða. Takk fyrir allar skemmtilegu stundirnar í gegn- um árin. Í Sjávar- borg var alltaf gott að koma. Allir ávallt velkomnir og andrúmsloft- ið mjög afslappað og þægilegt. Minnið þitt óbrigðult allt fram á Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir ✝ Hilma Hólm- fríður Sigurð- ardóttir fæddist 20. mars 1920. Hún lést 22. maí 2021. Útför Fríðu fór fram 5. júní 2021. síðasta dag. Þú varst stolt af afkom- endum þínum, fylgdist vel með þeim og lést hag þeirra þig varða. Við vorum afskaplega stolt af því að eiga ömmu og langömmu á Húsavík sem varð 101 árs, ern og hress fram á síðasta dag. Hafþór Hafliðason, Hjörvar Hafliðason, Hrönn Hafliðadóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.