Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021
HEFILBEKKIR
úr Beyki fyrir verkstæði, skóla og handverksfólk
augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
= 1840x500x850mm
LxBxH (með skrúfstykki)
= 2000x650x850mm
Verð 141.900
L
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau f
rá 1
0-16
Vefverslun brynja.is
Ramia 2000 LxBxH
Ramia 1500 LxBxH
= 1340x500x850mm LxBxH
(með skrúfstykki)
= 1500x650x850 mm
Verð 121.900
Ramia 1700 LxBxH
= 1540x500x850mm
LxBxH (með skrúfstykki)
= 1700x650x850mm
Verð 126.250
50 ára Ragnar er Kefl-
víkingur en býr í
Reykjanesbæ. Hann er
íþróttafræðingur að
mennt frá HR og er
með meistaragráðu í
íþróttum og heilsu-
fræði frá HR. Ragnar er
deildarstjóri í Háaleitisskóla á Ásbrú.
Hann er knattspyrnuþjálfari 3. flokks
karla hjá Keflavík.
Maki: Vala May Mason, f. 1976, sjúkra-
þjálfari hjá Ásjá.
Börn: Bjarni Ívar, f. 2008, og Elva Björg,
f. 2010.
Foreldrar: Steinar Þór Ragnarsson, f.
1944, bifvélavirki, og Guðlaug Hulda
Kragh, f. 1944, húsmóðir. Þau eru búsett
í Sandgerði.
Ragnar
Steinarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú blómstrar af gleði og ást á líf-
inu og tilverunni og þarft að fá útrás fyrir
sköpunarhæfileika þína.
20. apríl - 20. maí +
Naut Óvænt tækifæri mun bjóðast þér og
það ríður á miklu að þú kunnir að bregð-
ast rétt við. Gakktu öruggur til starfa
þinna.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú ert gæddur góðum hæfi-
leikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust
til að nýta þér þá. Þú þarft að hafa það á
hreinu hvað til þíns friðar heyrir.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Skarpskyggni þín hjálpar þér að
greiða úr flækjunum í einkalífinu. Hægðu á
þér og teldu upp að tíu áður en þú hefst
handa.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú þarft á þolinmæði og skilningi að
halda í samskiptum við einhvern þér ná-
kominn. Bjartsýnisviðhorf laðar aðra að
manni.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Næsti mánuður verður annasamur
því fram undan eru margar veislur og
mannfagnaðir. Einhverjir sem þú telur vini
þína eru ekki allir þar sem þeir eru séðir.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Forðastu þá sem eru stöðugt að etja
mönnum saman til að skapa samkeppni á
vinnustað. Þú þarft að tala þínu máli, það
getur enginn gert það fyrir þig.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þótt hlutirnir gangi ekki al-
veg eins hratt fyrir sig og þú vilt er engin
ástæða til að skeyta skapi sínu á öðrum.
Farðu þér hægt.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Hlustaðu á eðlisávísun þína í
máli sem snertir þig. Hæfileiki þinn til að
breyta viðhorfum getur skapað þér ný
tækifæri.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Ef þú sleppir takinu á alls kon-
ar pirringi eignastu reikning í banka al-
heimsnáðarinnar. Stjórnsemi er góð en
hún þarf að vera í hófi eins og annað.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er í góðu lagi að gefa öðr-
um ráð svo framarlega sem þú lest þeim
ekki pistilinn. Stundum kemur í ljós að
hlutirnir eru allt aðrir en á yfirborðinu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Ef þú veist ekki hvernig þú átt að
taka á vandamáli er alltaf möguleiki að
bíða og sjá hvort það hverfur.
unum okkar þegar þau voru yngri
og stóðu í nokkrar vikur í senn.
Stundum var siglt með flutninga-
skipum, „Fossunum“, fram og til
baka og bíllinn tekinn með eða
nokkuð víða, bæði erlendis og hér
heima. Hefur það ýmist verið á
eigin vegum og ekið þá einkum
um Evrópu. Minnisstæðar eru
ferðir sem við fórum með krökk-
G
estur Steinþórsson
fæddist 7. júní 1941 á
Hæli í Gnúpverja-
hreppi en foreldrar
hans, Steinunn og
Steinþór, voru bændur þar og ólst
hann þar upp við öll venjuleg
sveitastörf.
Gestur fór í barnaskólann Ása-
skóla sem var heimavistarskóli.
„Eftir barnaskólann varð tveggja
ára hlé á skólagöngunni til að taka
þátt í búskapnum eins og oft var
hjá krökkum í sveit á þessum ár-
um. Þá fór ég í mína fyrstu fjall-
ferð til að smala fé af afréttinum,
sem liggur inn með Þjórsá að
vestanverðu, allt inn að Hofsjökli.
Var þetta vikuferð og voru fjall-
menn algjörlega sambandslausir
meðan á fjallferð stóð. Var þetta
mikið ævintýri fyrir fimmtán ára
ungling.“ Síðan lá leið Gests í
Héraðsskólann á Laugarvatni og
síðan tók Menntaskólinn á Laug-
arvatni við og lauk með stúdents-
prófi vorið 1964. Hann lauk emb-
ættisprófi í lögfræði frá Háskóla
Íslands 1974.
Gestur var lögfræðingur Sjóvá-
tryggingarfélags Íslands 1974-
1976, varaskattstjóri í Reykjavík
1976-1978 og skattstjóri í Reykja-
vík 1978-2009. Hann sat í mörgum
nefndum í skattamálum, m.a.
vegna upptöku virðisaukaskatts í
stað söluskatts og staðgreiðslu
opinberra gjalda.
Með háskólanámi kenndi Gestur
í nokkra vetur við Hagaskóla, tók
þátt í kórstörfum og söng í Stúd-
entakórnum, Söngsveitinni Fíl-
harmoníu og Karlakórnum Fóst-
bræðrum og syngur nú með
Gömlum Fóstbræðrum.
Gestur er félagi í Rótarýklúbbi
Reykjavíkur og hefur setið í
stjórn hans, einnig í stjórn Stúd-
entafélags Reykjavíkur og formað-
ur þar 1983-1985 og í stjórn Skatt-
stjórafélags Íslands og formaður
þar um skeið.
Áhugamálin
„Auk tónlistaráhuga og bóklest-
urs höfum við Drífa lengi haft
gaman af ferðalögum og farið
bílaleigubílar teknir. Fórum við
allt austur til Ungverjalands og
annarra fáfarinna slóða austur
þar.
Við höfum gert það alloft að
fara með börnum okkar, mökum
þeirra og börnum saman og leigt
hús oftast í Evrópu en líka í
Bandaríkjunum. Þá fer vinahópur
sem á rætur að rekja til mennta-
skólaáranna í ferðir saman, ýmist
er dvalist á vel völdum stöðum eða
farið í siglingu. Einnig höfum við
farið í skipulegar hópferðir, m.a.
kórferðir með Gömlum Fóst-
bræðrum og farið á kóramót í
Japan og Barcelona og víðar.
Einnig í svonefndar söguferðir
sem tengjast oft námskeiðum hjá
Endurmenntun Háskóla Íslands
um Íslendingasögur og aðrar forn-
sögur, en þau höfum við sótt í
milli fimmtán og tuttugu ár. Þess-
ar ferðir voru farnar á söguslóðir í
Noregi, Englandi, Skotlandi, Ír-
landi, Orkneyjum og víðar. Nú er
stefnan sett á Grænland í sumar.
Við höfum átt sumarbústað í
landi Hæls í áratugi og erum þar
Gestur Steinþórsson, fyrrverandi skattstjóri í Reykjavík – 80 ára
Stórfjölskyldan Fjölskylda Gests er dugleg að ferðast saman og hér er hún stödd á Norður-Tenerife árið 2018.
Ræturnar standa djúpt á Hæli
Afmælisbarnið Gestur var skatt-
stjóri í Reykjavík 1978-2009.
Hæll Gestur á fermingaraldri á
hlaðinu heima með Koli og Kópi.
30 ára Jenný ólst upp
í Reykjavík og Mos-
fellsbæ en býr á Sel-
tjarnarnesi. Hún er
nemi í næringarfræði
við Háskóla Íslands.
Jenný vinnur á Vita-
torgi í sumar við
heilsueflingu og í félagsstarfi.
Maki: Guðmundur Árni Ólafsson, f.
1990, einn af eigendum fyrirtækisins
Green Key, sem sinnir rekstrar- og
tækniþjónustu fyrir gististaði. Hann spil-
ar handbolta með Aftureldingu.
Bróðir: Símon, f. 1994.
Foreldrar: Tómas Boonchang og Dúna
D. Boonchang, bæði frá Taílandi. Þau eru
eigendur veitingastaða, meðal annars
Banthai. Þau eru búsett í Mosfellsbæ.
Jenný June
Tómasdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is