Morgunblaðið - 07.06.2021, Síða 27

Morgunblaðið - 07.06.2021, Síða 27
_ Þjóðverjar urðu Evrópumeistarar 21-árs landsliða karla í fótbolta í gær- kvöld þegar þeir sigruðu Portúgala 1:0 í úrslitaleik í Ljubljana í Slóveníu. Luk- as Nmecha, leikmaður Anderlecht í Belgíu, skoraði sigurmarkið á 49. mín- útu. Þetta er í þriðja sinn sem Þýska- land vinnur Evrópukeppnina í þessum aldursflokki, sem haldin er annað hvert ár, en áður var það árin 2009 og 2017. _ Martin Hermannsson og samherjar hans í Valencia töpuðu fyrir Real Mad- rid, 81:70, í fyrsta leik liðanna í undan- úrslitunum um spænska meistaratit- ilinn í körfuknattleik í Madríd í gærkvöld. Martin var annar tveggja stigahæstu manna Valencia með 11 stig og tók auk þess tvö fráköst og átti eina stoðsend- ingu en hann lék í 16 mínútur. Lið- in mætast aftur í Valencia annað kvöld og þar verða Martin og félagar að vinna til að knýja fram oddaleik í Madr- íd. _ Berglind Björnsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Axel Bóasson úr Golf- klúbbnum Keili sigruðu í kvenna- og karlaflokkum á Leirumótinu í golfi sem lauk á Hólmsvelli í Leiru í gær og er hluti af stigamótaröð Golfsambands Íslands. Berglind lék á þremur höggum yfir pari og var átta höggum á undan næstu konu og Axel lék á ellefu högg- um undir pari og var sex höggum á undan næsta manni. _ Bandaríkjamaðurinn Trayvon Bromell náði sjöunda besta tíma sög- unnar í 100 metra hlaupi karla og besta tíma ársins 2021 þegar hann sigraði í greininni á 9,77 sekúndum á móti á Flórída í fyrrakvöld. _ Sifan Hassan frá Hollandi sló í gær heimsmetið í 10.000 metra hlaupi kvenna á móti á heimavelli sínum í Hengelo. Hassan hljóp vegalengdina á 29:06,82 mínútum og bætti fyrra met- ið um rúmar tíu sekúndur. Það átti Al- maz Ayana frá Eþíópíu sem hljóp á 29:17,45 mínútum þegar hún sigraði í greininni á Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016. Hassan er 28 ára göm- ul og fæddist sjálf í Eþíópíu, en hún er ríkjandi heims- meistari frá HM í Doha árið 2019. _ Spánverjinn Jon Rahm varð að hætta keppni eftir þrjá hringi á Memorial-golfmótinu í Ohio í fyrrakvöld þegar hann greind- ist með kórónuveiruna. Hann var þá með sex högga forystu og missti því líklega af 1,6 milljón dollara sig- urlaunum. Rahm fór beint í ein- angrun og verður í henni til þriðju- dagsins 15. júní. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Origo-völlur: Valur – Víkingur R............. 20 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Meistaravellir: KR – Grindavík .......... 19.15 2. deild kvenna: Framvöllur: Fram – SR....................... 19.15 Extra-völlur: Fjölnir – ÍR.................... 19.15 Vodafonev.: Völsungur – Einherji ...... 19.15 KÖRFUKNATTLEIKUR Undanúrslit karla, þriðji leikur: Blue-höllin: Keflavík – KR (2:0) .......... 20.15 Í KVÖLD! Umspil karla Annar úrslitaleikur: Vestri – Hamar ..................................... 89:77 _ Staðan er 1:1. Umspil kvenna Þriðji úrslitaleikur: Njarðvík – Grindavík ........................... 63:68 _ Staðan er 2:1 fyrir Njarðvík. Úrslitakeppni NBA Vesturdeild, 1. umferð: LA Clippers – Dallas........................ 126:111 _ Clippers vann 4:3 og mætir Utah. Austurdeild, undanúrslit, 1. leikur: Brooklyn – Milwaukee ..................... 115:107 Philadelphia – Atlanta ..................... 124:128 >73G,&:=/D Spánn Deildabikarkeppnin, undanúrslit: Barcelona – Huesca............................. 43:27 Deildabikarkeppnin, úrslitaleikur: Barcelona – Sinfín............................... 33:23 - Aron Pálmarsson lék ekki með Barce- lona um helgina. Þýskaland Flensburg – Hannover-Burgdorf...... 28:24 - Alexander Petersson skoraði ekki fyrir Flensburg. Nordhorn – Lemgo.............................. 25:32 - Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk fyrir Lemgo. Melsungen – Wetzlar .......................... 30:28 - Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark fyrir Melsungen. Guðmundur Þ. Guð- mundsson er þjálfari liðsins. _ Efstu lið: Flensburg 60, Kiel 59, Magde- burg 44, RN Löwen 43, Füchse Berlín 42, Melsungen 38, Göppingen 38, Leipzig 37, Wetzlar 36, Lemgo 33, Bergischer 33. Pólland Kielce – Wisla Plock ...................... (v) 33:32 - Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði ekki fyrir Kielce í lokaumferðinni en Haukur Þrastarson er frá keppni vegna meiðsla. Kielce er pólskur meistari með 77 stig af 78 mögulegum. Frakkland Tremblay – Aix .................................... 22:29 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Aix. _ Efstu lið: París SG 55, Montpellier 50, Nantes 47, Aix 38, Nimes 36. Úrslitaleikur um sæti í 1. deild: Pontault – Nancy................................. 25:26 - Elvar Ásgeirsson skoraði 3 mörk fyrir Nancy sem tryggði sér sæti í efstu deild. Úrslitaleikur B-deildar: Saran – Nancy...................................... 36:31 - Elvar Ásgeirsson skoraði 5 mörk fyrir Nancy. E(;R&:=/D Svíþjóð AIK – Örebro............................................ 2:0 - Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan leikinn með AIK og Berglind Rós Ágústs- dóttir allan með Örebro. Cecilía Rán Rún- arsdóttir var varamarkvörður Örebro. Djurgården – Eskilstuna ........................ 1:0 - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Djurgården. Vittsjö – Växjö ......................................... 1:0 - Andrea Mist Pálsdóttir lék allan leikinn með Växjö. Häcken – Piteå......................................... 0:0 - Diljá Ýr Zomers kom inn á hjá Häcken á 63. mínútu en Hlín Eiríksdóttir lék ekki með Piteå. B-deild: Brage – Eskilstuna .................................. 1:0 - Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn með Brage. Jitex – Kalmar.......................................... 1:0 - Andrea Thorisson lék allan leikinn með Kalmar. Noregur Kolbotn – Vålerenga............................... 1:2 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik- inn með Vålerenga og Amanda Andradóttir kom inn á sem varamaður á 90. mínútu. Arna-Björnar – Rosenborg .................... 0:2 - Guðbjörg Gunnarsdóttir var varamark- vörður Arna-Björnar í leiknum. KNATTSPYRNA HANDBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is KA/Þór er Íslandsmeistari kvenna í handknattleik árið 2021 og Íslands- meistarabikarinn er kominn til Akur- eyrar í fyrsta skipti í 82 ára sögu mótsins. KA/Þór lagði Val á Hlíð- arenda, 25:23, í öðrum leik liðanna í gær og vann þar með einvígið 2:0. KA/Þór er jafnframt aðeins annað félagið utan höfuðborgarsvæðisins sem verður Íslandsmeistari kvenna en áður vann ÍBV titilinn fjórum sinnum á árunum 2000 til 2006. Valur var yfir í síðasta sinn í leikn- um á 15. mínútu, 7:6, en eftir að KA/ Þór komst í 11:9 rétt fyrir hlé var Ak- ureyrarliðið með eins til þriggja marka forystu það sem eftir lifði leiks. Þeir 250 áhorfendur sem tryggðu sér miða KA/Þórs á leikinn studdu sínar konur með ráðum og dáð og stemningin hjá Akureyr- ingum var að vonum gríðarleg í leiks- lok. „Norðankonur fengu síðustu sókn- ina þegar um 20 sekúndur voru eftir og Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði lokamarkið til að gulltryggja sig- urinn en það var hennar sjötta mark. Martha Hermannsdóttir var einnig með sex mörk fyrir KA/Þór, þar af fimm úr vítum en kjarni liðsins sam- anstendur af uppöldum leikmönnum. Þá var Rut Arnfjörð Jónsdóttir með fimm mörk og frábær í leiknum en landsliðskonan sneri heim úr at- vinnumennsku á síðasta ári og gekk til liðs við norðankonur,“ skrifaði Kristófer Kristjánsson m.a. um leik- inn á mbl.is. Rut púslið sem vantaði „Rut var púslið sem vantaði í liðið. Það vantaði einhverja með reynslu, hún hefur svakalega yfirsýn yfir völl- inn og bara langbesti leikmaður liðs- ins. Ég vissi að hún væri góð en ekki að hún væri svona góð,“ sagði hin margreynda Martha Hermanns- dóttir við mbl.is að leik loknum. Sjálf sagði Rut, sem kom til KA/ Þórs frá Danmörku fyrir tímabilið, að hún hefði ekki átt von á þessum árangri liðsins. „Við ætluðum bara að stríða bestu liðunum, koma okkur í úrslitakeppnina og svo auðvitað stefna sem lengst,“ sagði Rut m.a. við mbl.is eftir leikinn. _ Aðrar sem skoruðu fyrir KA/Þór voru Rakel Sara Elvarsdóttir þrjú, Hulda Bryndís Tryggvadóttir þrjú, Anna Þyrí Halldórsdóttir eitt og Kristín A. Jóhannsdóttir eitt. Matea Lonac varði sjö skot. _ Thea Imani Sturludóttir skoraði níu mörk fyrir Val, Auður Ester Gestsdóttir fimm og Lovísa Thomp- son fjögur, Elín Rósa Magnúsdóttir tvö, Lilja Ágústsdóttir tvö og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir eitt. Saga Sif Gísladóttir varði 10/1 skot og Margrét Einarsdóttir eitt. Morgunblaðið/Sigurður Unnar Íslandsmeistarar Leikmenn KA/Þórs höfðu ástæðu til að brosa breitt eftir sigurinn á Val á Hlíðarenda enda er Íslandsbikarinn kominn í þeirra hendur. Meistarar í fyrsta sinn - Íslandsbikar kvenna í handbolta kominn til Akureyrar eftir sigur KA/Þórs á Val á Hlíðarenda - Gríðarleg stemning hjá 250 stuðningsmönnum liðsins KÖRFUBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þórsarar frá Þorlákshöfn eru komnir með undirtökin í einvíginu við Stjörnuna í undanúrslitum Ís- landsmóts karla í körfubolta eftir stórsigur í þriðja leiknum í Þorláks- höfn í gærkvöld, 115:92. Eftir tap á heimavelli í fyrsta leiknum hafa öflugir Þórsarar nú snúið blaðinu við með tveimur sigr- um og geta gert út um einvígið þeg- ar liðin mætast í fjórða sinn í Garðabænum á miðvikudags- kvöldið. Stjarnan var yfir, 14:12, eftir fimm mínútur en það var í síðasta sinn í leiknum. Þór náði níu stiga forskoti fyrir lok fyrsta leikhluta, staðan var 59:51 í hálfleik og síðan breikkaði bilið jafnt og þétt. Mun- urinn var 26 stig um miðjan fjórða leikhluta og eftir það voru lyk- ilmenn liðanna mestmegnis á bekknum. „Callum Lawson fór á kostum í liði Þórs og skoraði 26 stig, þar af sex þriggja stiga körfur úr átta til- raunum. Þórsarar spiluðu frábæran varnarleik og þvinguðu Stjörnu- menn til þess að leita inn á teig, en þeir vilja heldur reyna við þriggja stiga skot,“ skrifaði Gunnar Egill Daníelsson m.a. um leikinn á mbl.is. _ Styrmir Snær Þrastarson var næststigahæstur hjá Þór með 22 stig 22, Larry Thomas skoraði 15 og Davíð Arnar Ágústsson 14. _ Alexander Lundqvist skoraði 20 stig fyrir Stjörnuna, Ægir Þór Steinarsson 19 og Hlynur Bærings- son 12. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Frábær Callum Lawson skoraði 26 stig gegn Stjörnunni í gærkvöld. Stjörnumenn voru skotnir í kaf - Þór skoraði 115 stig gegn Garðbæingum og er með 2:1-forystu í einvíginu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.