Morgunblaðið - 07.06.2021, Page 29

Morgunblaðið - 07.06.2021, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI THE WASHINGTON POST ROGEREBERT.COM TOTAL FILM USA TODAY THE SEATTLE TIMES THE GUARDIAN GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA HROLLVEKJANDI SPENNUMYND THE WRAP FILM SÝNDMEÐ ÍSLENSKU TALI Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta eru allt sögur sem komu til mín eftir að síðasta hrollvekjubókin mín kom út í fyrra,“ segir Ævar Þór Benediktsson um nýjustu bók sína sem nefnist Fleiri hryllilega stuttar hrollvekjur. „Ég sé fyrir mér að þetta sé önnur bókin af þremur í þessari seríu, en hvenær síðasta bókin er væntanleg get ég ekki svar- að á núverandi stundu enda er ég með nokkra bolta á lofti,“ segir Ævar Þór sem síðustu ár hefur að jafnaði sent frá sér fjórar bækur og heldur þeim rytma einnig í ár. Í ágúst eru væntanlegar tvær bækur í seríunni Þín eigin saga. „Önnur þeirra er unnin upp úr Þín eigin undurdjúp og fjallar um sæ- skrímsli,“ segir Ævar Þór og lofar að í hópi skrímsla verði risahákarl. „Ég var mikið spurður eftir að Þín eigin undirdjúp kom út í fyrra af hverju ekki hefði verið risahákarl í þeirri bók. Ég lofaði að bæta úr því í þess- um afleggjara. Hin er unnin upp úr Þitt eigið ævintýri og beinir sjónum að ævintýrinu um Rauðhettu. Þar geta lesendur rakið sig í gegnum söguna frá sjónarhóli Rauðhettu, úlfsins, ömmunnar eða skógarins,“ segir Ævar Þór leyndardómsfullur. Þegar blaðamaður hváir og endur- tekur orðið „skógarins“ jánkar Ævar Þór og bætir við: „Bíddu bara, þetta verður spennandi“. Fyrir jólin kemur síðan Þín eigin ráðgáta, sem verður að sögn Ævars Þórs doðrant- ur eins og fyrri bækur seríunnar. Lofar því ekki að vel fari En aftur að hrollvekjunum. Líkt og í fyrri bókinni er sögunum raðað upp eftir hryllileika þar sem þær verða svæsnari eftir því sem aftar er komið. Þar naut Ævar Þór aðstoðar 2009-árgangsins í Fossvogsskóla. Sem fyrr myndlýsir Ágúst Kristins- son sögurnar ásamt því að teikna kápumyndina. „Í fyrri hrollvekju- bókinni okkar skrifaði ég sögurnar fyrst og síðan kom Ágúst með þessar frábærlega hræðilegu myndir. Í ár langaði mig til að hann teiknaði nokkrar myndir án þess að segja mér neitt um þær sem ég myndi síð- an skrifa sögur við sem pössuðu myndunum,“ segir Ævar Þór og bendir á að sögurnar „Óskar“, „Voff“ og „Skuggar“ hafi verið unn- ar með þessum hætti. „Þegar ég sá myndina af þjónsver- unni með hrútshorn og smokkfisk- fálmara í anda Cthulhu úr bók H. P. Lovecraft, datt mér strax í hug nafn- ið Óskar og sá fyrir mér að hann gæti uppfyllt allar óskir manns, en með hræðilegum afleiðingum þar sem hann snýr alltaf á fólk. Sá sem þráir peninga getur til dæmis fengið þá samstundis, en aðeins í formi líf- tryggingar sem greidd er út við and- lát foreldra viðkomandi,“ segir Ævar Þór og rifjar upp að þegar hann sá myndina sem kveikti söguna „Voff“ hafi hann strax hugsað mér sér að „í þessum hræðilega hunda- kofa býr enginn hundur. Stelpa í næsta húsi fylgist með kofanum og er sannfærð um að íbúi hans beri ábyrgð á hvarfi ýmissa gæludýra hverfisins og þegar fjögurra ára gamalt barn hverfur ákveður hún að reyna að stoppa hryllinginn,“ segir Ævar Þór og lofar því ekki að sú til- raun fari vel. Hversdagslegur hryllingur „Söguna „Norn“ skrifaði ég síðan að beiðni dóttur Ágústs, en hún ótt- ast ekkert meira í heiminum en nornir,“ segir Ævar Þór, sem lætur nornina í sögu sinni gera hræðilega hluti og af þeim sökum er sagan aftarlega í bókinni. „Önnur saga er innblásin af orðinu „krakkalakkar“ sem Ágúst notaði um börnin sín. Ég skrifaði því sögu um kennslukonu sem þolir ekki börn og kallar þau pöddur. Það verða áhrínsorð,“ segir Ævar Þór og tekur fram að sögurnar séu mjög blandaðar. „Sumar þeirra búa yfir hversdags- legum hryllingi, eins og að eyrna- pinni stingist of langt inn í höfuðið, meðan aðrar fjalla um yfirnáttúru- lega hluti á borð við skrímli. Persónulega hræðist ég mannvonsk- una mest,“ segir Ævar Þór og bendir á að sumir geta ekki horft á Walking Dead út af mannvonskunni sem þar birtist en ekki vegna ótta þeirra við uppvakninga. „Mig langaði að ná öll- um með að minnsta kosti einni sögu,“ segir Ævar Þór og bendir á að það sé mjög mismunandi milli fólks hvað því finnst vera hryllilegt. Gaman að fá tækifæri til að þjálfa leikaravöðvann aftur Í samtali við Ævar Þór er ljóst að hann leggur mikla áherslu á mynd- ræna hlið bóka sinna. „Mér finnst skipta miklu máli að kápurnar séu flottar,“ segir Ævar Þór og rifjar upp að alltaf þegar hann fái nýja kápu frá myndhöfundum bóka hans virki það eins og vítamín beint í æð. „Þegar ég fæ nýja kápu, sem eru alltaf svo hrikalega flottar, fyllist ég eldmóði og hugsa með mér að ég þurfi nú að halda í við þessar geggj- uðu kápur. Myndlýsingarnar undir- strika að um ólíkar seríur er að ræða. Mér finnst skipta miklu máli að myndirnar séu margar og tali vel við textann,“ segir Ævar Þór og tek- ur fram að sér finnist gaman að fá tækifæri til að vinna með ólíkum listamönnum í seríum sínum. Þannig hafi Rán Flygenring myndlýst bæk- urnar fjórar sem tilheyra Bernsku- breks-seríu Ævars vísindamanns, Evana myndlýsi Þín eigin-bækur og Þín eigin-sögurnar og Bergrún Íris Stórhættulega stafrófið meðan Ágúst myndlýsi hryllingsbækurnar. „Við Ágúst erum með hugmynd að frekara samstarfi sem tengist líka hrollvekjum, en ég get ekki sagt meira um verkefnið sem stendur. Mér finnst myndirnar hans svo flott- ar að mig langar í fleiri. Þetta er samt ekki myndasaga,“ segir Ævar Þór og stoppar í miðri setningu áður en hann bætir við: „Þótt það sé reyndar líka góð hugmynd. Hver veit hvert hugmyndin þróast?“ Þegar hér er komið sögu í viðtal- inu þarf Ævar Þór að gera hlé á sam- talinu til að panta sér leigubíl þar sem hann er á leið í upptökur. Blaða- maður getur ekki annað en forvitn- ast um í hverju hann sé að leika. „Ég leik lögreglumanninn Gústa í glæpa- seríunni Svörtu sandar í leikstjórn Baldvins Z, sem verður frumsýnd á Stöð 2 í vetur,“ segir Ævar Þór og segist því miður ekkert meir mega gefa upp um persónu sína. „Það er búið að vera mjög gaman að fá tæki- færi til að þjálfa leikaravöðvann aft- ur. Í fyrra var ég í Jarðarförin mín með Ladda. Þegar tökum á Svörtu söndum lýkur fer ég beint í tökur á Brúðkaupið mitt sem er sjálfstætt framhald á Jarðarförin mín,“ segir Ævar Þór og tekur fram að hann viti lítið um innihaldið. „Ég veit ekki einu sinni hvort persónan sem Laddi lék er enn á lífi,“ segir Ævar Þór og bætir við: „Það er svo dásamlegt að taka þátt í verkefni án þess að þurfa að bera ábyrgð á öllum heiminum, líkt og reyndin er þegar ég skrifa. Það er svo geggjað að fá bara að vera lítið tannhjól í stóru gangverki og mega hugsa einvörðungu um sinn karakter. Það er líka gott mótvægi fyrir höfund, sem starfar alltaf einn, að fá að tilheyra stærri hópi í sköpunarferlinu.“ Morgunblaðið/Eggert Ótti Ævar Þór Benediktsson er mikill áhugamaður um hrollvekjur. Óskar Þjónsvera með hrútshorn og smokkfiskfálmara í anda Cthulhu úr bók H.P. Lovecraft kveikti sögu. „Með nokkra bolta á lofti“ - Ævar Þór sendir frá sér Fleiri hryllilega stuttar hrollvekjur - Fyrsta bók hans af fjórum á árinu - Leikur nú í Svörtu söndum og síðan í Brúðkaupinu mínu sem er framhald af Jarðarförinni minni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.