Morgunblaðið - 21.06.2021, Síða 1
Fallegt veður var á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Þessar ungu stúlkur nýttu sér veðurblíðuna og
skemmtu sér vel á hoppudýnu í Gufunesi.
Bjartir dagar einkenna þennan tíma árs en
klukkan hálffjögur í nótt voru sumarsólstöður.
Þá var sólin í sinni nyrstu og hæstu stöðu á
himninum. Nú styttist dagurinn og sólin er
skemur á himni nánast út árið eða fram að
vetrarsólstöðum.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Hoppað og hlegið rétt
fyrir sumarsólstöður
M Á N U D A G U R 2 1. J Ú N Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 143. tölublað . 109. árgangur .
Bókaðu borgarferð í haust og byrjaðu að telja niður dagana.
PEDERSEN
HETJA VALS Í
TOPPSLAGNUM ADRENALÍN TIL SÝNIS
ÚTSKRIFAÐIST
ÓVENJU UNG MEÐ
B.SC. Í LÆKNISFRÆÐI
BÍLASAFN Á BREIÐDALSVÍK 11 RAGNA KRISTÍN 6PEPSI MAX-DEILDIN 26
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi lauk í gær,
sem og prófkjöri Framsóknar-
flokksins í Suðurkjördæmi. Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, bar sigur úr
býtum í oddvitaslag í Norðvest-
urkjördæmi og Sigurður Ingi hlaut
dyggan stuðning í efsta sæti
Framsóknar í Suðurkjördæmi.
Kosningabaráttan tekur við
Þórdís Kolbrún segir við Morg-
unblaðið að hún sé ekki farin að
hugsa hvaða ráðherrastóll sér
hugnist að loknum kosningum,
fyrst tekur við kosningabarátta og
kosningar í kjölfarið á því.
„Fyrst náttúrlega eigum við eft-
ir heljarinnar kosningabráttu og
svo eiga kjósendur eftir að segja
hug sinn og svo tekur eitthvað við.
Ef við komumst í ríkisstjórnar-
samstarf vona ég að ég njóti enn
trausts til þess að sitja sem ráð-
herra og varaformaður flokksins,“
segir Þórdís.
„Ég er auðvitað í alveg ótrúlega
skemmtilegu ráðuneyti, sem snýst
í grundvallaratriðum um framtíð-
ina og tækifærin sem við sem sam-
félag stöndum frammi fyrir. Og
það verður nóg að gera þar næstu
árin. Ég held að það sé ótímabært
að öðru leyti að máta sig við ein-
hver ráðherraembætti, það eru svo
margir leikir fram undan.“
Silju Dögg skákað
Sigurður Ingi hefur hins vegar
velt fyrir sér mögulegri og áfram-
haldandi ráðherrasetu, eins og
hann útskýrir fyrir Morgun-
blaðinu. Hann segist fullur bjart-
sýni um að Framsóknarflokkurinn
verði aftur leiðandi afl í íslenskum
stjórnmálum.
Hann segist einnig spenntur að
vinna með Jóhanni Friðriki Frið-
rikssyni, sem varð annar í próf-
kjöri Framsóknarflokksins í gær,
og skákaði þar með Silju Dögg
Gunnarsdóttur, þingmanni til átta
ára. Silja segist hætt á þingi.
„Margir leikir fram undan“
- Þórdís segist ekki vera farin að máta sig við ráðherrastóla - Sigurður Ingi vongóður um að Fram-
sókn verði í ríkisstjórn - Silju Dögg skákað og hún hættir á þingi - Haraldur eða Teitur í öðru sæti
MSviptingar í prófkjörum... »6
„Mótefnasvarið gegn þessu brodd-
prótíni virðist jafnvel vera kröftugra
hjá þeim sem eru bólusettir heldur
en hjá þeim sem hafa fengið nátt-
úrulega sýkingu,“ segir Magnús
Gottfreðsson, sérfræðingur í smit-
sjúkdómum á Landspítalanum og
prófessor við Háskóla Íslands.
Það er vegna þessa sem mælt er
með bólusetningu fyrir þá sem hafa
fengið Covid-19 en það er einmitt
komið að bólusetningu þeirra ein-
staklinga.
Mótefnasvarið eftir bólusetningu
fer þó að sögn Magnúsar að ein-
hverju leyti eftir því hvaða bóluefni
eru notuð. Þá bendir Magnús á að
ýmsa fyrirvara verði að setja varð-
andi þýðingu mótefnamæling-
arinnar sjálfrar.
„Það eru aðrir þættir sem hafa
mikið að segja varðandi vörn gegn
sjúkdómnum. Ekki eingöngu styrk-
ur mótefnanna í blóðprufu,“ segir
Magnús. »4
Mótefna-
svarið
kröftugra
- Setja fyrirvara
við mótefnamælingu