Morgunblaðið - 21.06.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.06.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021 • Verð frá: 250.000 m/vsk. • Stærðir 3-600 persónueiningar • Ekkert rafmagn • Meira en 2ja þrepa hreinsun • Verð frá 510.000 m/vsk. • Stærðir 3-1500 persónueiningar • Rafræn vöktun (valkvæmt) • Getur hreinsað eColi allt að 99,9% INNIFALIÐ Í VERÐI ANAEROBIX HREINSIVIRKI með síu yfir 90% hreinsun ONE2CLEAN HREINSISTÖÐ allt að 99% hreinsun • Þægilegar í uppsetningu og lítið viðhald • Fyrir sumarhús, heilsárshús, hótel o.fl. • Engar siturlagnir – fyrirferðarlítil • Mikið pláss fyrir seyru • CE vottað • Uppfylla kröfur til hreinsunar á viðkvæmum svæðum t.d við Þingvallavatn • Afhending á verkstað innan 100km frá Reykjavík • Drengöng með gátlúgu sem tryggja að vökvi komist óhindrað út í jarðveg Logi Sigurðarson logis@mbl.is Ragna Kristín Guðbrandsdóttir varð um helgina yngsti einstaklingurinn sem hefur útskrifast með B.Sc.- gráðu í læknisfræði hér á landi. Hún segir tilfinninguna frábæra og hlakkar til að klára næstu þrjú ár og fá lækningaleyfi. „Það var auðvitað góð tilfinning en þetta var ekki alveg komið til af góðu. Ég fór upp um bekk í grunn- skóla vegna þess að ég lenti í svo miklu einelti. Síðan var ég bara þrjú ár í menntaskóla sem var vegna styttingar menntaskólans. En þetta var mjög góð tilfinning samt sem áð- ur. Ég er tveimur árum yngri en þeir yngstu sem eru að útskrifast með mér,“ segir Ragna. Reynslan ómetanleg á geðsviði Ragna segir að hún hafi haft mik- inn áhuga á mannslíkamanum og henni finnst ótrúlega gefandi að hjálpa fólki. Hún bætir við að hún hafi valið læknisfræðina vegna þess að hún spannar svo breitt svið. „Mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt en auðvitað krefjandi á tímum. En aðallega bara skemmti- legt; ef maður hefur gaman af mannslíkamanum og hvernig hann starfar þá er þetta skemmtilegt nám.“ Ragna hefur verið að vinna und- anfarin ár á geðsviði Landspítalans sem ráðgjafi og stuðningsfulltrúi. „Ég er bara starfsmaður á gólf- inu; þetta er í rauninni bæði líkam- leg aðhlynning og síðan andlegur stuðningur fyrir skjólstæðingana sem eru inniliggjandi.“ Hún segir reynsluna sem hún hef- ur fengið í starfinu ómetanlega og bætir við að þetta sé frábær reynsla fyrir næstu þrjú ár í læknisfræðinni sem eru mestmegnis verkleg. „Það er góð reynsla áður en mað- ur fer í klínískt nám að vera inni á spítalanum og maður fær að taka virkan þátt í meðferðinni. Þetta mun klárlega gagnast mér það sem eftir er. Þótt ég myndi ekki fara í sérnám tengt geðheilsu þá kemur þetta alls staðar við sögu og fólk sem er veikt á geði þarfnast aðstoðar annarra lækna líka.“ Kostir og gallar Ragna hrósar læknadeildinni í HÍ í hástert fyrir frábært skipulag í kórónuveirufaraldrinum og áhuga- vert nám. „Þetta var ekkert smá vel gert og ef eitthvað þá fannst mér gæðin ekki skerðast þrátt fyrir Covid.“ Hún segir að faraldurinn hafi haft mikil áhrif á félagslífið og það hafi verið erfitt að fá ekki að hitta bekkj- arfélagana. „En síðan hafði þetta líka kosti upp á það að gera að ég gat stjórnað tímanum mínum mun betur og gat unnið meira með skólanum en ég hefði getað gert ef kórónuveiran hefði ekki skollið á. Vinnan gaf mér bara ennþá betri reynslu og tilfinn- ingu fyrir framtíðarstarfinu.“ Langar að búa erlendis Ragna stefnir á sérnám í útlönd- um að náminu loknu. „Mig langar að fara út; ég hef búið á Íslandi allt mitt líf og ég tók mér ekki pásu eftir menntaskólann til þess að fara í heimsreisu þannig að mér finnst ég eiga þetta inni. Mér finnst Bretland, Bandaríkin og Sví- þjóð öll koma til greina en það væri þægilegra að fara í nám sem væri kennt á ensku.“ Ragna segist ekki vera búin að ákveða hvaða grein hún ætli að taka fyrir í sérnáminu. „Svo er ég ekkert alveg ákveðin í því hvað ég stefni á næst en ég hef verið að vinna á geðsviði og ég hef mikinn áhuga á því.“ Ragna segir flesta í árganginum stefna á það að klára læknaleyfið en segir þó einn og einn nemanda vera að skoða annað nám. „Þess vegna var þessari gráðu komið á vegna þess að það eru alltaf einhverjir sem hætta þegar þeir eru komnir í klíníkina og átta sig á því að þetta sé ekki fyrir þá en áður var námið sex ár samfleytt. Núna er hægt að nýta gráðuna og fara í meistaranám í einhverju allt öðru í staðinn fyrir að vera búinn með þrjú ár af sex og vera með enga gráðu.“ Yngst til þess að útskrifast með B.Sc. í læknisfræði - Segir námið skemmtilegt og krefjandi - „Góð tilfinning“ Nemi Ragna útskrifaðist sl. helgi en ætlar í áframhaldandi nám. Ingólfur Bjarni Sigfússon segir þáttagerðarmenn Kveiks hafa geng- ið eins langt og þeir gátu til þess að komast til botns í máli Michele Roosevelt Edwards, áður Michele Ballarin, sem tjáði honum í viðtali að hún ætti 30 milljóna dala herra- setrið í Virginíu í Bandaríkjunum, þar sem viðtalið var tekið upp. Hulunni var þó svipt af lygi Ed- wards um eignarhald hennar á setr- inu í ítarlegri fréttaskýringu Wash- ington Post, þar sem rætt var við raunverulegan eiganda setursins, ónefnda ekkju fjárfestisins Davids B. Fords, sem virtist hissa að sjá Edwards inni á eigin heimili þegar henni var sýnt viðtal Kveiks við Edwards. Edwards hefur verið í kastljósi íslenskra fjölmiðla síðustu ár, þar sem hún kveðst ætla að endurreisa hið fallna lággjaldaflugfélag WOW air. „Það er áhugavert að sjá hvernig bandarískir fjölmiðlar, meðal ann- ars Washington Post, finna viðtalið sem við tókum við hana og greini- lega nota það til að undirstrika það hvað hún er skrautlegur karakter,“ segir Ingólfur þegar blaðamaður innir eftir viðbrögðum hans við fréttaskýringu Washington Post. Blaðið greinir einnig frá því að Edwards hafi verið viðriðin sam- særiskenningar um kosningasvindl í bandarísku forsetakosningunum. Gunnar Steinn Pálsson sem unnið hefur að almannatengslum fyrir Edwards hér á landi segir að frétt- irnar komi honum ekki á óvart. Hann hafi lengi vitað um pólitísk tengsl hennar við æðstu ráðamenn í Washington. Morgunblaðið/Árni Sæberg Áform Michele Roosevelt Edwards hefur sagst ætla að endurreisa WOW air. Hún vildi einnig kaupa stóran hlut í Icelandair í útboði en fékk það ekki. Reyndu að komast til botns í málinu - Edwards laug til um eign á herrasetri Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Úrslit í prókjörum Sjálfstæðisflokks- ins í Norðvesturkjördæmi annars veg- ar og Framsóknarflokksins í Suður- kjördæmi hins vegar voru kunngjörð í gær. Þar með er öllum prófkjörum flokkanna tveggja fyrir komandi kosn- ingar lokið. Oddviti Sjálfstæðisflokks- ins í Norðvesturkjördæmi er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og oddviti Framsóknarflokksins í Suður- kjördæmi er Sigurður Ingi Jóhanns- son, samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra. Mesta athygli vekur að Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknar til átta ára, beið ósigur í baráttunni um annað sætið gegn Jó- hanni Friðriki Friðrikssyni, forseta sveitarstjórnar Reykjanesbæjar. Silja Dögg hættir á þingi Vegna þessa tilkynnti Silja Dögg, strax og úrslit lágu fyrir að hún hygð- ist ekki þiggja þriðja sætið á lista flokksins og væri þar með hætt á þingi. Úrslit í prófkjöri Framsóknar voru eftirfarandi: Sigurður Ingi Jóhanns- son, 975 atkvæði í 1. sæti, Jóhann Frið- rik Friðriksson, 552 atkvæði í 1.-2. sæti, Silja Dögg Gunnarsdóttir, 589 at- kvæði í 1.-2. sæti, Halldóra Fríða Þor- valdsdóttir, 616 atkvæði í 1.-4. sæti, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, 773 at- kvæði í 1.-5. sæti. Talin voru 1.165 at- kvæði. Úrslit í prófkjöri Sjálfstæðisflokks voru eftirfarandi: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, 1.347 atkvæði í 1. sæti, Haraldur Benediktsson, 1.061 atkvæði í 1.-2. sæti, Teitur Björn Ein- arsson, 1.190 atkvæði í 1.-3. sæti, Sig- ríður Elín Sigurðardóttir, 879 atkvæði í 1.-4. sæti. Greidd voru 2.289 atkvæði, gild atkvæði voru 2.232. Eins og Þórdís Kolbrún sagði í samtali við mbl.is í gær stendur það nú upp á Harald Benediktsson að ákveða hvort hann þiggi annað sætið á listanum. Hann hafði áður lýst því yfir að hann myndi ekki gera svo, lyti hann í lægra haldi fyrir Þórdísi. Ástæðuna sagði hann vera að hann vildi ekki, sem fyrrverandi oddviti, þvælast fyrir nýjum oddvita. Óvissan erfið Þórdís sagði við mbl.is í gær að samstarf hennar og Haralds hefði verið gott um árabil, hlið við hlið í for- ystu flokksins í Norðvesturkjör- dæmi. Í kjölfar fyrrgreindrar yfirlýsingar Haralds hófst umræða um kvenfyr- irlitninguna sem í henni fælist og jafnvel mætti merkja frekju í orðum hans. Því segist Þórdís ósammála, hún þekki hvaða mann Haraldur hafi að geyma og að sá maður sé ekki haldinn kvenfyrirlitningu. Ekki náð- ist í Harald við vinnslu fréttarinnar. Sviptingar í próf- kjörum úti á landi - Teitur Björn eygir von um þingsæti Þórdís K. Reyk- fjörð Gylfadóttir Silja Dögg Gunnarsdóttir Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.