Morgunblaðið - 21.06.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.06.2021, Blaðsíða 8
Stjórnmálaflokkar veljaá lista sína með ólík- um hætti. Sumir raða á lista með aðkomu kjör- nefnda sem stundum er lít- ið annað en ákvörðun for- ystumannsins. Þetta getur verið heppileg leið og far- sæl við ákveðnar aðstæður og líkleg til að halda frið- inn innan flokksins, þó að það hafi mistekist með ótrúlegum hætti hjá Við- reisn að þessu sinni. Stundum eru einhvers konar kjördæmisþing lát- in velja, sem getur verið ágætur kostur enda má ætla að þar komi saman breiður hópur forystu- manna úr kjördæminu sem þekkir vel til ólíkra sjónarmiða. - - - Þá eru iðulega haldinprófkjör og má það almennt teljast heppileg- asta og lýðræðislegasta leiðin við slíkt val, þó að hún sé fjarri því gallalaus. Prófkjör hafa, fyrir utan að velja á framboðslista, þann kost að kjósendur sjá hvað er á bak við flokk- ana. Eru þeir stórar fjöldahreyfingar eða jafnvel litlar klíkur? - - - Píratar, sem láta jafnan eins ogþeir tali fyrir munn alls almenn- ings, héldu prófkjör og þátttakan þar var vægast sagt hörmuleg. Þrátt fyr- ir framlengingu vegna ónógrar þátt- töku náði hún í heildina aðeins upp í nokkur hundruð. Á hinum endanum í þessu lýðræð- islega litrófi er Sjálfstæðisflokkurinn, sem lauk síðasta prófkjöri sínu um helgina. Kjósendur í prófkjörum flokksins voru yfir tuttugu þúsund. - - - Píratar munu sjálfsagt eftir semáður halda áfram að vilja úti- loka flokkinn, en það er holur hljóm- ur í því frá þeirri litlu klíku. Fjöldahreyfingar og litlar klíkur STAKSTEINAR 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Aðstæður hafa verið þannig í maí og júní að sandur hefur safnast inn í Landeyjahöfn, sérstaklega í hafn- armynnið. Vegagerðin fékk Björgun til að taka aukadýpkun og hefur sanddæluskipið Dísa verið þar að störfum síðustu daga. Staðan í Landeyjahöfn var óvenjugóð í vetur og Herjólfur gat notað höfnina þegar fært var vegna öldugangs og vindhæðar. Vegagerð- in samdi við Björgun um vetr- ardýpkun og er aðallega unnið að þeim verkefnum vor og haust. Í vor hafa veðuraðstæður verið þannig að sandur hefur safnast að höfninni. Þess vegna fékk Vegagerð- in Björgun til að dæla sandi úr hafn- armynninu og flytja út á sjó. Verkið hófst fyrir helgi með því að dælu- skipið Dísa, sem verið hefur við störf á Rifi á Snæfellsnesi, hóf dælingu í Landeyjahöfn. Eysteinn Dofrason, framkvæmdastjóri Björgunar, segir að verkið hafi gengið vel. Í gær var hins vegar ekki nógu hagstætt veður og var tækifærið notað til að lagfæra búnað skipsins. Áhöfn Dísu heldur áfram vinnu í Landeyjahöfn og er reiknað með að verkið taki viku til tíu daga. helgi@mbl.is Aukadýpkun í Landeyjahöfn - Sanddæluskipið Dísa notað til að hreinsa sand úr hafnarmynninu Morgunblaðið/Guðni Einarsson Dísa Dæluskipið var að störfum við Landeyjahöfn síðastliðinn föstudag. Von er á rúmlega 46 þúsund skömmtum af bóluefnum frá Pfizer, Moderna og AztraZeneca til lands- ins og því stór vika í bólusetningum fram undan. Til stóð að klára end- urbólusetningar með bóluefninu AstraZeneca á fimmtudaginn, en ekki er víst að það náist. Líklega verða tafir á afhendingu síðustu sendingarinnar af bóluefni Astra- Zeneca. Bólusett verður með Janssen á þriðjudag og Pfizer á miðvikudag, að sögn Sigríðar Dóru Magnúsdótt- ur, framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilsugæslunni á höfuðborgar- svæðinu. „Svo á fimmtudagurinn bara eftir að skýrast. Það skýrist ekki fyrr en miðvikudaginn 23. júní þannig að við fáum þetta alla vega ekki fyrr,“ segir Sigríður í samtali við mbl.is. Að sögn Sigríðar stendur svo til að bæta við þremur bólusetningar- dögum til viðbótar í lok mánaðar- ins. Þá segir hún erfitt að skipu- leggja bólusetningar lengra fram í tímann. „Trúlega verður þá bólusett með Astra, Moderna, Pfizer og kannski með Janssen. Við erum bara ekki komin lengra því við höfum ekki meira. Svarið er svona óljóst því við fáum að vita þetta með svo litlum fyrirvara. Þetta er bara óvissa.“ Flestir landshlutar áætla að klára seinni bólusetningu í júlí en rúmlega 80% íbúa landsins 16 ára og eldri hafa annaðhvort smitast eða fengið bóluefni gegn Covid-19. Alls hafa 355.178 skammtar verið gefnir. Þar af hafa 238.814 einstak- lingar fengið fyrri skammt en 153.725 eru fullbólusettir. unnurfreyja@mbl.is Stór vika í bólusetn- ingum framundan - Óvissa með hve- nær AstraZeneca berst til landsins Morgunblaðið/Eggert Bólusetning Nú fer að sjá fyrir endann á bólusetningum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.