Morgunblaðið - 21.06.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.06.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021 Blóm Dagur hinna villtu blóma var haldinn hátíðlegur í gær. Af því tilefni leiddi garðyrkjufræðingur hjá grasagarðinum göngu um Laugarnesið þar sem fjallað var um gróður svæðisins. Unnur Karen Í samskiptum Ís- lands og Kína um þess- ar mundir hefur mann- réttindi oft borið á góma – og ljóst að ekki sjá allir „mannréttindi“ sömu augum. Þess verður vart í þessum samskiptum að mikið skortir víða á þekkingu á kínversku samfélagi og á þróun og fram- kvæmd mannréttinda í Kína, sem leiðir óhjákvæmilega til fordóma. Ég vonast til að þessi stutta grein mín leiði til aukins skilnings á stöðu þess- ara mála í Kína. Þróun mannréttinda í Kína hefur um margt einkennst af ríkjandi að- stæðum á hverjum tíma hjá þessari fornu menningarþjóð og stærsta þróunarlandi veraldar og því haft sín eigin sérkenni. Kína hefur lagað meginreglur um mannréttindi að raunverulegri stöðu og þörfum fólks- ins í landinu. Hugmyndafræðin sem byggt er á er í aðalatriðum eftirfar- andi: Fyrst ber að nefna að virða ber fjölbreyttar aðstæður þjóða. Hin ýmsu lönd búa við mismunandi að- stæður og þess vegna eru mannrétt- indi hjóm eitt ef forsendur þeirra eru ekki fyrir hendi við þær aðstæður sem þegnarnir búa við í hverju landi. Það er engin ein aðferð eða hug- myndafræði sem er algild og hægt að beita alls staðar. Þróun mannrétt- inda fleygir ekki fram nema í sam- hengi við samfélagslegar aðstæður og þarfir þegnanna. Í öðru lagi eru grundvallar- mannréttindi hvers manns rétturinn til framfærslu, að geta fætt, klætt og átt þak yfir höfuð sitt og sinna. Á tímabilinu 1840-1949 mátti kínverska þjóðin þola síendurtekinn og margvíslegan yfirgang erlendra ríkja, sem leiddi til mikillar fá- tæktar og hnignunar í landinu. Þjóðin bjó lengi vel við örbirgð og eymd og naut engra réttinda af nokkru tagi. Vegna þessa vita Kínverjar fullvel hvers það krefst að komast af – að útrýma fá- tækt og hungri. Í ljósi þessa hafa kínversk stjórnvöld skuldbundið sig til að tryggja þegnum sínum fram- færslu og auka lífsgæði þeirra og því lagt áherslu á athafnafrelsi og hvers konar eflingu framleiðslu. Allt þetta hefur lagt grunn að því að fólkið fái notið annarra réttinda. Í þriðja lagi hljótum við að vinna að framgangi allra réttinda. Mann- réttindi eru í sjálfu sér öll sam- tvinnuð og ófrávíkjanleg. Kína legg- ur áherslu á samþættingu allra réttinda og leitast við að ná jafnvægi í þróun efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda annars vegar og borgaralegra og pólitískra réttinda hins vegar. Í fjórða lagi er upplifun fólks af heill og hamingju og öryggi mik- ilvæg vísbending við mat á stöðu mannréttinda. Kínverska ríkis- stjórnin fylgir stefnu í þágu fólksins og setur því margþætta hagsmuni þess í fyrirrúm. Hún heitir þegn- unum góðu og farsælu lífi og tryggir að á sanngjarnan hátt njóti allir upp- skeru efnahagslegs vaxtar sem geri þeim kleift að bæta lífshagi sína og kjör. Í fimmta lagi þarf vinna á alþjóða- vettvangi að framgangi mannrétt- inda og eftirlit með þróun þeirra að grundvallast á sanngirni, umburðar- lyndi og víðsýni. Kína styður ávallt og iðkar alþjóðleg mannréttindi og beitir sér fyrir þeim, en við andmæl- um því að mannréttindi og meint brot á þeim séu gerð að pólitísku bit- beini og höfnum tvískinnungi í mál- efnum sem tengjast mannréttindum. Við hvetjum alþjóðasamfélagið til að fjalla um mannréttindamál á upp- lýstan, sanngjarnan og óvilhallan hátt. Kína er á alþjóðavísu virkur þátttakandi í umfangsmiklum og faglegum samskiptum og samstarfi á sviði mannréttinda og vinnur með öllum öðrum í alþjóðasamfélaginu að því að byggja upp sameiginlega framtíð og betri heim. Þökk sé viðvarandi og þrotlausri vinnu þá hefur stjórnvöldum tekist að tryggja Kínverjum þau mannrétt- indi sem þeir setja öðrum ofar og ár- angur þessarar fjölmennustu þjóðar heimsins hefur hlotið viðurkenningu alþjóðasamfélagsins sem einstakt af- rek. Í fyrsta lagi er að nefna að kín- versk stjórnvöld leggja mikla áherslu á að halda áfram að bæta lífskjör alls almennings. Á þeim 72 árum sem liðin eru frá stofnun Al- þýðulýðveldisins Kína (PRC) hefur landsframleiðsla á mann (GDP) auk- ist frá því að vera innan við 30 Bandaríkjadalir í meira en 10.000 Bandaríkjadali. Yfir 800 milljónir manna hafa verið leystar úr ánauð fátæktar. Við höfum náð að útrýma örbirgð og erum þar með fyrsta þró- unarríki veraldar til að uppfylla þús- aldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um útrýmingu fátæktar. Þannig er árangur Kína hvað þetta varðar 70% af árangri á heimsvísu. Þörfum alls almennings með tilliti til daglegra nauðsynja, s.s. matvæla, klæða, húsaskjóls og samgangna, er betur mætt og aðgengi að heilbrigðisþjón- ustu og félagsþjónustu hefur batnað og aukist til mikilla muna. Í öðru lagi er vert að nefna að í Kína er lögð mikil áhersla á að fólk fái notið réttinda sinna. Í Kína eru persónubundin réttindi og mannleg reisn virt og vernduð og réttindi verkafólks varin. Til þessa hefur Kína komið á fót almannatrygg- ingakerfi sem þjónar þessari fjöl- mennustu þjóð heims. Kínverska þjóðin nýtur raunverulegra lýðræð- islegra réttinda og Kínverjar eru nú orðnir sínir eigin herrar! Kínversk stjórnvöld taka ávallt mið af þörfum þegnanna, treysta á visku almenn- ings og standa vörð um rétt fólks til upplýsinga, þátttöku, tjáningar og til aðhalds með stjórnvöldum. Að auki njóta Kínverjar trúfrelsis sem mælt er fyrir um í lögum. Fjölmennustu trúarbrögðin eru búddismi, taóismi, íslam og kristni, bæði kaþólska og mótmælendatrú. Meðlimir þessara trúfélaga eru tæplega 200 milljónir og skráðir samkomustaðir trúar- legra athafna eru um 144.000 talsins. Í þriðja lagi stendur Kína vörð um sérstök réttindi ákveðinna hópa. Kína tryggir í raun pólitísk, efna- hagsleg og menningarleg réttindi þjóðernisbrota svo og rétt þeirra til menntunar. Á 13. þjóðþingi kín- versku alþýðunnar (NPC) voru 438 fulltrúar þjóðernisminnihlutahópa sem námu 14,7% af heildarfjölda full- trúa. Þjóðernisbrotin og samfélög þeirra hafa notið félagslegra og efna- hagslegra umbóta umfram aðra. Menningararfleifð og menningar- minjar þeirra njóta sérstakrar verndar og frelsi þeirra til eigin tungumáls í ræðu og riti að ógleymdu trúfrelsi nýtur einnig fullrar verndar. Á síðustu 60 árum hefur hagkerfi Xinjiang-héraðs vaxið 200-falt og landsframleiðsla á mann (GDP) hef- ur aukist 40-falt. Lífslíkur íbúa hafa aukist úr 30 árum í 72 ár. Úígúrum í Xinjiang hefur fjölgað um 25,04% en á sama tíma hefur Han-Kínverjum aðeins fjölgað um 2%. Kína stendur áfram vörð um rétt kvenna, barna, aldraðra og fatlaðra og félagsleg þjónusta við þessa hópa batnar sí- fellt. Alþjóðleg mannréttindi munu stöðugt halda áfram að þróast. Öll ríki geta bætt um betur hvað varðar mannréttindi í eigin ranni. Kína mun ekki láta staðar numið heldur stuðla að áframhaldandi þróun mannrétt- inda heima fyrir, viðhalda samræð- um og skiptast á skoðunum við önn- ur ríki, þar með talið Ísland, á grunni jafnréttis og gagnkvæmrar virðingar og standa á alþjóðlegum vettvangi vörð um málstað mannréttinda. Eftir Jin Zhijian »Kína hefur lagað meginreglur um mannréttindi að raun- verulegri stöðu og þörf- um fólksins í landinu. Jin Zhijian Höfundur er sendiherra Kína á Íslandi. Mannréttindi í Kína – hugmyndir, þróun og framkvæmd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.