Morgunblaðið - 21.06.2021, Síða 17

Morgunblaðið - 21.06.2021, Síða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021 Framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis: Tækifæri og áskoranir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til ráðstefnu þriðjudaginn 22. júní kl. 13 um framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Ráðstefnan fer fram í Kaldalóni í Hörpu og er öllum opin. Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir nýlegri skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi og rætt um þau tækifæri og áskoranir sem blasa við. Dagskrá: • Opnun: Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra • Íslenskur sjávarútvegur og fiskeldi 2030 • Erindi: Sveinn Agnarsson, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ • Nýsköpun: Forsenda verðmætasköpunar til framtíðar • Erindi: Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá Brim • Framtíðin: Tækifæri og áskoranir • Erindi: Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og ráðgjafi • Pallborðsumræður: • Agnes Guðmundsdóttir, markaðs- og sölustjóri Icelandic Asia og formaður félags kvenna í sjávarútvegi • Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka • Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood • Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi • Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar Fundarstjórn: • Bergur Ebbi Benediktsson Stjórnarráð Íslands Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið Á 69. allsherj- arþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2014 lagði forsætisráðherra Indlands, Narendra Modi, til að 21. júní yrði gerður að alþjóð- legum degi jóga (International day of yoga). Þessi þings- ályktun fékk góðan hljómgrunn og var samþykkt á met- tíma af 175 aðildarríkjum SÞ, meðal annars með atkvæði Íslands. Árið 2015 var fyrst haldið upp á alþjóð- legan dag jóga þannig að í ár verður í sjöunda skipti haldið upp á þennan dag. Við bjóðum ykkur velkomin þann 21. júní að halda daginn hátíð- legan með okkur í Ráðhúsi Reykja- víkur kl. 17. En hvað er jóga? Hugtakið yoga á uppruna sinn í sanskrít sem er fornt indverskt tungumál, stundum nefnt móðir allra tungumála. Jóga er oft þýtt sem sameining (e. union). Hægt að túlka jóga sem sameiningu hins innra við hið ytra, sameining hugar og líkama eða sameining ein- stakrar sálar, jiva við alheims- meðvitundina brahman. Ótal af- Jóga í dagsins önn Eftir T. Armstrong Changsan og Guðrúnu Svövu Kristinsdóttur T. Armstrong Changsan »Hægt er að túlka jóga sem samein- ingu hins innra við hið ytra, sameiningu hugar og líkama eða samein- ingu einstaklings við umhverfi sitt. Höfundar eru sendiherra Indlands á Íslandi og verkfræðingur og jóga- kennari. Guðrún Svava Kristinsdóttir brigði eru til af jóga sem getur verið líkamleg og/eða andleg iðkun. Þau afbrigði jóga sem iðkuð eru í dag eru t.d Karma jóga, jóga óeig- ingjarna aðgerða, Jnana jóga, jóga þekkingar, Bhakti jóga, jóga kær- leiksríkar trúfestu, Raja jóga, jóga leiðin með átta limi sem oft er kennd við vitringinn Patanjali sem er þekktur fyrir að safna saman og rita niður yogafræðin sem þá voru í munnlegri geymd í Jóga Sútrur. Jóga sem líkamlega ástundun má rekja allt að 5.000 ár aftur í tímann til Indus-dalsins. Í dag þekkjum við flest jóga sem ákveðnar æfingar sem hægt er að iðka í hóptímum til að styrkja líkama og sál. En jóga er svo mikið meira en það: jóga í upp- runalegum skilningi er leið til and- legrar heilsu með hjálp hugleiðslu, heimspeki og stjórn á líkamanum í gegnum öndun og hreyfingu með ásetningi. Jóga getur verið mik- ilvægt tæki til að auka líkamlega virkni og til að draga úr algengum sjúkdómum sem oft tengjast lífsstíl. Reglubundin hreyfing eins og jóga getur dregið úr háþrýstingi, hjarta- áföllum og sykursýki svo eitthvað sé nefnt. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (World Health Organisation) hefur einnig lagt áherslu á ástundun jóga í aðgerðaáætlun 2018 til 2030 fyrir auknu heilbrigði fólks á heimsvísu. Jóga getur hjálpað til við þyngdar- stjórnun, styrkingu ónæmiskerfis og stuðlar að heilbrigðari lífsstíl al- mennt. Jóga er hægt að stunda hvar sem er, af hverjum sem er óháð aldri. Jóga er heldur ekki trúar- brögð en getur styrkt iðkandann í þeirri trú sem hann kýs sér. Und- anfarin ár hefur mikið verið rætt um kulnun í starfi og streitu en af- leiðingar langvarandi streitu eru vel þekktar og oft má rekja ýmsa lík- amlega kvilla til lélegs svefns og álags. Einnig er aukin tíðni þung- lyndis og kvíðaraskana hjá ungu fólki í dag áhyggjuefni. Jóga eykur líkamsvitund, dregur úr streitu, álagi og bólgum í líkamanum, skerpir athygli og einbeitingu og ró- ar miðtaugakerfið og því tilvalið fyr- ir þá sem glíma við ýmsa andlega kvilla. Í Covid-faraldrinum hafa margir upplifað einangrun og að- skilnað frá fjölskyldu, vinum og vinnufélögum og upplausn á dag- legri rútínu. Áhrif þessa faraldurs hafa minnt okkur á mikilvægi þess að búa að góðri líkamlegri og and- legri heilsu og mikilvægi heilsuefl- andi lífsstíls eins og jóga sem hægt er að iðka óháð stað og stund. Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Ráðhúsi Reykjavíkur 21. júní kl. 17 þar sem við munum bjóða upp á al- menna jógaiðkun (Common Yoga Protocol). Við hvetjum allt jóga- áhugafólk, hvort sem það er vanir iðkendur eða er að stíga sín fyrstu skref, til að mæta og gaman væri að sjá börn og unglinga mæta með for- eldrum sínum. Til hamingju með daginn! Á Íslandi öllu eru 144 talmeinafræðingar með starfsleyfi, um það bil einn á hverja 2.500 íbúa. Málþroskaröskun er með algengustu þroskaröskunum og ætla má að 7-8% barna á öllum skólastigum séu haldin henni, eða 1-2 börn í hverjum 20 manna bekk. Þá er ótalið allt annað sem getur krafist inngrips talmeinafræð- ings, svo sem framburðarfrávik, mál- stol, raddtruflanir, stam og kyng- ingarerfiðleikar. En hvernig gengur þessi stærðfræði upp? Hvernig geta 144 tal- meinafræðingar sinnt þessu öllu saman? Stutta svarið er að þeir geta það ekki og á bið- listum eftir þjónustu sjálfstætt starfandi tal- meinafræðinga á lands- vísu eru hundruð barna, unglinga og full- orðinna sem geta átt von á því að dúsa á þessum listum mán- uðum og jafnvel árum saman. Við er- um ekki eina fámenna stéttin hér- lendis og þið veltið því kannski fyrir ykkur hvaða harmavæl þetta sé. Jú, haldið ykkur nú fast. Sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar eru með gildandi rammasamning við Sjúkra- tryggingar Íslands (SÍ) sem hafa ákveðið að þeir einir geti orðið aðilar að þessum samningi sem hafi tveggja ára starfsreynslu sem talmeinafræð- ingar. Það þýðir að þeir sem útskrif- ast með meistaragráðu í talmeina- fræði geta ekki lagt sín lóð á biðlistavogarskálarnar fyrr en tveim- ur og hálfu ári eftir útskrift þar sem hálfs árs handleiðslu er krafist áður en starfsleyfi fæst frá Landlækn- isembættinu. Mikið hefur gengið á vegna þessa ákvæðis og SÍ hefur boðið stéttinni svokallaða fyr- irtækjasamninga í stað núgildandi rammasamnings. Þá er samið við hverja starfsstöð fyrir sig og er myndin máluð þannig að ef nægilega margir innan starfsstöðvarinnar séu reynslumiklir megi ráða 1-2 nýtal- meinafræðinga. Frábært? Nei. Það eru sárafáar stofur talmeinafræð- inga sem uppfylla skilyrði mögulegra fyrirtækjasamninga og einyrkjarnir sem starfa úti á landi fá ekki slíkan samning. Það vill svo merkilega til að málþroskaraskanir og aðrir tal- og málgallar hafa ekki hugmynd um þau eigi að halda sig innan höf- uðborgarsvæðisins og því er þörfin síst minni á landsbyggðinni. Fyrir- tækjasamningar leysa því engan vanda og eru líklegir til að valda óæskilegri samkeppni og sundrung innan stéttarinnar. María Heim- isdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, ber fyrir sig að fjárveitingar frá Alþingi til málaflokksins dugi ekki til. Fjármagnið sem málaflokk- urinn þarfnast er smáaurar borið saman við þann samfélagslega ávinn- ing sem hér gæti verið um að ræða. Ef peningar eru í raun öll ástæðan fyrir ákvæðinu biðlum við talmeina- fræðingar, fyrir hönd allra sem bíða eftir þjónustu okkar, til ríkisstjórn- arinnar og Alþingis alls að seilast ör- lítið dýpra í vasana og velta öllum ríkispullunum við. Látið okkur svo vita hvað þið finnið. Hver veit nema stéttin, kosningabærir skjólstæð- ingar hennar og allir aðstandend- urnir finni þá flokksbókstafinn ykkar í komandi kosningum. Að bjóða ómöguleika Eftir Lindu Björk Markúsdóttur » Fjármagnið sem málaflokkurinn þarfnast er smáaurar borið saman við þann samfélagslega ávinning sem hér gæti verið um að ræða. Linda Björk Markúsdóttir Höfundur er talmeinafræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.