Morgunblaðið - 21.06.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 21.06.2021, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021 ✝ Brynhild Stef- ánsdóttir fædd- ist 16. júní 1929 í Færeyjum, hún lést á Dvalarheimilinu Lundi, 7. júní 2021. Foreldrar Bryn- hild voru Marianna Joensen og Stefán Jóhann Jóhanns- son. Systkini henn- ar voru Maria Elína Gerður, Elín Krist- ín, Páll, Sigurður Jóhann og Jakobína. Þau eru öll látin. Brynhild átti góð uppvaxtarár í samheldnum systkinahópi í smá- bænum Froðba á Suðurey. Brynhild kom ásamt föður sínum til Íslands og hóf störf í Tryggvaskála þar sem hún kynntist tilvonandi eiginmanni sínum, Einari Guðna Guðjóns- syni mjólkurbílstjóra, f. á Forn- usöndum 1916, d. 1982. fór hún á Lund á Hellu, þar leið henni vel og fékk góða umönn- un. Brynhild var einstaklega létt í lund, hláturmild og orkumikil og sinnti verkum sínum af alúð. Afkomendur: 1) Margrét, f. 1951, sambýlis- maður hennar er Trausti G. Traustason. Börn Margrétar og Magnúsar G. Guðmundssonar eru; Harpa, f. 1978, gift Birgi Frey Andréssyni, börn þeirra eru Kristófer Darri, f. 2002, Perla Dís, f./d. 2004, Alexander Týr, f. 2007 og Styrkár Freyr, f. 2010. Brynhildur, f. 1979, d. 1997. Elín, f. 1981, sambýlis- maður hennar er Ágúst Ingi Ketilsson, synir þeirra eru Magnús Búi, f. 2014, Gísli Brynj- ar, f. 2016 og Einar Bragi, f. 2019. Ágúst á þrjú börn af fyrri sambúð. Einar, f. 1986. Trausti á þrjú börn, fimm barnabörn og eitt langafabarn. 2) Maríanna Guðríður, f. 1956, gift Jóni H. Snædal Sig- urðssyni. Sonur Maríönnu og Einars Rafns Ingvaldssonar er Ingvald- ur Thor, f. 1974, kvæntur Brynju Blöndu Brynleifsdóttur, börn þeirra eru Maríanna Björg, f. 2001, unnusti hennar er Alex Árnason, og Einar Helgi, f. 2005. Jón á þrjú börn og sex barnabörn. 3) Guðjón, f. 1961, kvæntur Emmu Kristínu Guðnadóttur, börn þeirra eru: Þórey Jóna, f. 1992, sambýlismaður hennar er Ívar Freyr Sturluson. Sonur þeirra óskírður, f. 2021. Brynja Dögg, f. 1992, sambýlismaður hennar er Karl Óli Lúðvíksson. Dóttir þeirra er Emma Dís, f. 2018. Einar Guðni, f. 1992, sam- býliskona hans er Jóna Guðrún Baldursdóttir. 4) Stefanía, gift Ólafi H. Gunnarssyni, börn þeirra eru: Guðný Sjöfn, f. 1986, Gunnar Már, f. 1989, sambýliskona hans er Mia Warberg. Ólafur á einn son af fyrri sambúð og fjögur barnabörn. Útför Brynhild fer fram frá Selfosskirkju í dag, 21. júní 2021, kl. 13. Athöfninni verður streymt af vef Selfosskirkju. Virkan hlekk á streymið má finna á: https://www.mbl.is/andlat/. Einar og Bryn- hild hófu búskap á Selfossvegi 5 (Ár- sel) 1949. Samfélag íbúanna á Selfoss- vegi var einstakt, kærleikur og um- hyggja réð ríkjum og hélst vináttan, þar til yfir lauk. Þegar fjölgaði í fjölskyldunni hófu Brynhild og Einar byggingu íbúðarhúss á Víðivöll- um 16 sem þau fluttu í árið 1963. Heimilið var gestkvæmt, mikið bakað, prjónað og saumað. Brynhild var heimavinnandi húsmóðir, en fór á vinnumarkað þegar Einar lést langt fyrir ald- ur fram. Brynhild seldi fjölskylduhúsið árið 2000 og flutti í fjölbýli, síð- ustu árin bjó hún í Grænumörk 2. Þegar heilsan fór að gefa sig árið 1946, ásamt föður sínum, settist að á Selfossi og fór að vinna í Tryggvaskála, þar sem hún kynntist honum föður mínum. Þau byrjuðu á því að búa á Selfossveginum og byggðu sér svo dásamlega heimilið okkar á Víðivöllunum og þar var oft gestkvæmt. Heimili okkar var opið öllum, enn fjölskylda föður míns frá Berjanesi var stór, og var mik- ið saman, sem hafði stóra þýð- ingu fyrir hana móðir mína, þar sem stærsti hlutinn af hennar fjölskyldu bjó í Fær- eyjum. Einnig átti hún marga góða vini og samband hennar við nágranna okkar, var mikið og gott. Hún móðir mín var alveg einstaklega sterk kona, enn hún varð ekkja 53 ára gömul, þegar hann faðir okkar kvaddi okkur, allt of snemma. Þá ákvað hún að taka bílpróf og kaupa sér lítinn bíl, sem gaf henni mikið frelsi, og þó að hún hafi nú ekki keyrt hratt, komst hún það sem hún vildi. Hún fór bara snemma af stað, en hún var mikill morgunhani og þegar við hin komum okkur loksins á fætur, var hún oft búin að þvo, skúra og baka svo eitthvað sé nefnt. Hún var mikil fyrirmynd okkar allra í fjölskyldunni, þó svo að hún hafi nú verið svolítið stjórn- söm og ákveðinn. Hún elskað mikið öll barnabörnin sín, já og öll börnin í fjölskyldunni okkar stóru, já og líka alla vin- ina, sem oft voru í heimsókn. Hún var handlagin, saumaði og prjónaði mikið og það var mikill dugnaður í henni, í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Mér er minnisstætt þegar við vorum búin að kaupa okkur hús í Danmörku og vorum að setja það í stand, þá kom hún í heimsókn og hjálpaði okkur. Henni munaði ekkert um að skrúfa saman eldhúsinnrétt- inguna, klifra upp í stiga og pússa loftið, áður enn það svo var málað, þá 72 ára gömul. Einnig er ferðin okkar til Færeyja, þegar hún var 84 ára, okkur mjög minnisstæð. Mikið var nú gaman að hafa hana sem guide, enn hún þekkti hvern krók og kima og gat sagt okkur skemmtilegar sögur. Dásamleg minning. Hún móðir mín var mjög hraust kona, og tel ég að allir göngutúrarnir haf verið góðir. Ég kem ég til með að sakna þess að labba með henni niður við á, þar sem rætt var um allt milli himins og jarðar. Síðustu árin hafa þó verið henni nokk- uð erfið, en hún var svo heppin að fá að dvelja sín síðustu ár við dásamlega ummönnun á Dvalarheimilinu Lundi á Hellu. Hún elsku móðir mín hefur kvatt okkur, næstum því 92 ára. Söknuðurinn er mikill, enn eftir stendur minningin um alveg dásamlega móðir. Mikið sem ég var heppin, að eiga hana fyrir móður. Hún kom ung frá Færeyjum Við kveðjum þig í dag elsku mamma og vitum að hann pabbi tekur vel á móti þér. Enn minningin um alveg dásamlega móðir lifir. Stefanía Einarsdóttir. Í dag kveðjum við elskulega tengdamóður mína, Brynhild Stefánsdóttur sem lést þann 7. júní sl. Brynhild var lágvaxin og hláturmild kona, kvik í hreyfingum og mikill dugnað- arforkur. Þegar ég kom fyrst í fjölskylduna hafði hún verið ekkja í nokkur ár og bjó með tveimur yngstu börnum sínum í einbýlishúsinu sem þau hjón- in byggðu við Víðivellina á Sel- fossi. Brynhild tók kærustu einkasonarins vel og var sam- band okkar alla tíð gott. Þegar við Guðjón eignuð- umst þríburana okkar fékk hún sig færða úr að vinna við heimilishjálp hjá eldri borgur- um yfir í að vera heimilishjálp hjá okkur. Óhætt er að segja að án hennar hefðu hlutirnir ekki gengið svo vel sem raun var. Hún var afkastamikil í þessu sem öðru, var oft búin að skúra gólfin, baka köku og sat og prjónaði vettlinga þegar ég kom úr búðarferð og börnin sváfu eftirmiðdagslúrinn. Þeg- ar formlegri heimilishjálp lauk eftir 6 mánuði kom hún oft í viku og hjálpaði til með krakk- ana og hélt því áfram þar til þau komust á skólaaldur. Hennar þáttur í uppeldi barnanna okkar er því ómet- anlegur. Eftir að krakkarnir urðu eldri og þurftu minni pössun komu aðrir hlutir til; vettling- ar, ullarsokkar og lopapeysur voru framleidd eftir þörfum og við gerðumst áskrifendur að heimbökuðum kökum. Við fengum hringingu þegar hjónabandssælan, uppáhaldið okkar allra, var komin í ofninn og þá mátti sækja eftir ca. klukkutíma. Brynhild átti stóra fjöl- skyldu í Færeyjum og fór yf- irleitt annað hvert sumar í heimsókn þangað og dvaldi þá í nokkrar vikur. Stundum komu ættingjar úr Færeyjum í heimsókn og þá fengum við hin aðeins að kynnast fær- eysku fjölskyldunni. Síðasta Færeyjaferðin hennar var far- in árið 2013 þegar við, íslenska stórfjölskyldan, létum loks margumtalaðan draum rætast og hópuðumst saman til Fær- eyja. Í þessari ferð heimsótt- um við m.a. æskuslóðir hennar í Froðba, kynntumst yngri fjölskyldumeðlimum sem við höfðum ekki hitt áður og end- urnýjuðum kynni við aðra, fór- um á færeyskt ættarmót og dönsuðum færeyska dansa langt fram á nótt. Myndir og minningar úr þessari ógleym- anlegu ferð hafa hjálpað okkur og henni á síðustu árum því þrátt fyrir Alzheimers-sjúk- dóminn þekkti hún alltaf fólkið sitt í Færeyjum á myndunum. Það var erfitt fyrir okkur að fylgjast með hinni hláturmildu og hressu Brynhild verða þög- ulli og hverfa smátt og smátt inn í svarthol Alzheimers-sjúk- dómsins en við hugguðum okk- ur við að það var afskaplega vel hugsað um hana á Hjúkr- unar- og dvalarheimilinu Lundi og færum við starfsfólki þar okkar innilegustu þakkir. Eftir lifa minningar um lífs- glaða, ákveðna og hörkudug- lega konu, tengdamóður mína, Brynhild Stefánsdóttur. Emma K. Guðnadóttir. Þá er amma okkar dáinn og margar góðar minningar eig- um við um hana. Amma var alltaf árrisul á morgnanna og er okkur minnisstætt þegar hún kom í heimsókn í sveitina með frænda okkar að reka kýrnar, og var mætt áður en nokkur var vaknaður á bæn- um. Amma gat allt og var henni allt mögulegt. Góður arfur að fá sjálfsbjargarvið- leitnina frá henni. Bílskúrinn var gersema geymsla, þar kenndi ýmissa grasa, þar var meðal annars skíðasleði, hlaupahjól, hjól, snjóþotur og önnur útileikföng. Í heimsókn- um hjá ömmu var oft skond- rast á hænuróló, farið í laug- ina, skroppið í búðina að kaupa pott af mjólk og svo var alltaf heimabakað, hjóna- bandssæla, jólakaka og sér- grein ömmu, „ömmugóðakaka“ sem amma bakaði fyrir öll barnaafmæli í fjölskyldunni og örugglega fleiri. Klukkan hennar ömmu er einstaklega eftirminnileg, enda virtist hún hafa einstakt lag á að slá þeg- ar maður var alveg að sofna. Amma tók okkur með í sunnu- dagaskólann, sem við héldum lengi vel að væri seinni part- inn, enda vorum við alltaf búin að vera vakandi í marga klukkutíma áður en við fórum í kirkjuna, urðum við steinhissa þegar við komumst að því að hann væri á morgnanna. Amma átti góðan stafla af Andrésar andar blöðum sem okkur þótti gaman að skoða, en þar sem þau voru á dönsku skildum við ekki allt. Amma fór með okkur í ferðalög, allir á Daihatsu og hraðinn var ekki mikill, en þá lagði maður bara fyrr af stað. Alltaf var tekið með nesti og amma var með innbyggðan radar til að finna nestisborð við þjóðveginn. Oft fórum við í bústað í nokkra daga, í Munaðarnes eða á Kirkjubæjarklaustur og farið var í heimsóknir til ættingj- anna í Berjanesi. Árið 2013 fórum við í eft- irminnilega ferð til Færeyja með ömmu þar sem við skoð- uðum uppeldisstöðvar ömmu og hittum færeyska ættingja. Þar bjuggum við stórfjölskyld- an saman undir einu þaki og engum kom á óvart þegar amma var vöknuð mörgum klukkutímum á undan öðrum og ef til vill búin að baka jóla- köku áður en næsti vaknaði. Amma var einstaklega lagin í höndunum. Hún var nánast prjónavél, og eiga allir fjöl- skyldumeðlimir nokkur vett- lingapör frá henni. Hún átti alltaf lager, nokkur pör af vettlingum í ýmsum stærðum og litum í poka, og aldrei virt- ist minnka í pokanum. Amma prjónaði líka peysur og þó hún prjónaði mest úr lopa þá var nú lítið mál að kaupa garn fyr- ir þá sem klæjaði undan ull- inni. Þegar Stefanía flutti til Danmerkur með börn og mann, fór amma í heimsóknir þangað og eitt skiptið tók hún Einar með sér. Ömmu var fátt ómögulegt, hún lagaði hjól og hlaupahjól ef þau biluðu, mögulega var það líka því að var æðislega dýrt að senda í viðgerð. En viðgerðirnar dugðu vel og voru endurteknar ef þurfti. Amma spásseraði um sönglandi og hummandi, með bros á vör og spásseríið var ekki í rólegri kantinum, endasendist hún bæjarhluta á milli, nánast hraðar en bíll. Minningarnar eru margar og óendanlega gott að ylja sér við þær. Takk fyrir allt elsku amma, við biðjum að heilsa í kaffiboð- ið hinu megin, þar er örugg- lega hjónabandssæla og jóla- kaka, kannski ömmugóðakaka líka! Harpa, Elín, Einar og fjölskyldur. Amma Brynhild var Færey- ingur og alltaf hress og kát og vel liðin af öllum. Hún var hlý og glöð og sterk, síhlæjandi og sönglandi og vildi hún helst ekki láta hafa mikið fyrir sér. Hún amma kallaði sko ekki allt ömmu sína, enda var hún bæði amma og afi okkar barna- barnanna eftir að hann Einar afi dó allt of snemma og áður enn mörg okkar fæddust. Amma var í rauninni líka mamma númer tvö fyrir okkur, og eins og allt annað var það bara minnsta mál hjá henni. Hún var svakalega dugleg, allt- af að hjálpa öðrum, og prjónaði ekkert smá magn af lopavett- lingum á fólkið sitt og bara hvaða fólk sem kom í heimsókn, og svo kunni hún að nýta hlut- ina enda alin upp á stríðsárum. Amma var líka mjög sparsöm og ekki mikið fyrir að henda neinu, og var alltaf fullt til af gömlu dóti á Víðivöllunum, sem við barnabörnin gátum dundað okkur við tímunum saman. Það beið okkar alltaf hlaðborð af kökum og mat, troðfullur nammiskápur af ýmsu góðgæti og gos með, eða öl eins og hún kallaði það. Hún bakaði bestu hjónabandssælur í heimi, og svo fékk maður alltaf fisk og kartöflur eða kjöt og kartöflur í hádeginu hjá henni. Það var ekkert notalegra en að vera hjá ömmu og heyra hana söngla góða lagstúfinn sinn þegar hún var að bakstra eitthvað í eld- húsinu, enn það var svo sann- arlega enginn svangur heima hjá ömmu. Henni Brynhild ömmu þótti mjög vænt um okkur krakkana, og leið henni greinilega allra best þegar öll fjölskyldan var hjá henni, til dæmis um jólin eða þegar var verið að búa til færeyskt slátur í eldhúsinu. Hún var ekkert smá hörkutól og gat reddað öllu. Stundum fannst okkur krökkunum hún vera að flýta sér aðeins of mik- ið, og þurfti maður að vakna eldsnemma til að fylgja henni eftir allan daginn. Hún var ekki þolinmæðin sjálf, enn hún átti í manni hvert bein, og það var alltaf hlýja og gleði heima hjá henni Brynhild ömmu, og mað- ur var alltaf velkomin til að ganga í bæinn. Hún táraðist svo alltaf þegar við vorum að fara heim aftur eftir að hafa komið í heimsókn, og var hún mjög mjúk og blíð sál. Hún Brynhild amma var yndisleg amma og vorum við barnabörn hennar ekkert smá heppin að hafa hana svona lengi. Við eigum eftir að sakna hennar sárt. Bless bless elsku amma. Við biðjum að heilsa honum afa. Ingvaldur Thor Einarsson, Guðný Sjöfn Ólafsdóttir, Gunnar Már Ólafsson, Brynja Dögg Guðjóns- dóttir, Einar Guðni Guð- jónsson og Þórey Jóna Guðjónsdóttir. Brynhild Stefánsdóttir Stundum kemur fólk inn í líf okkar sem við verðum ekki mikið vör við. Hæg- látt og hlýtt en einhvern veginn alltumlykjandi samt. Hún Andrea mágkona var ein- mitt þannig, betri lífsförunaut hefði bróðir okkar varla getað fengið. Lífsgleði hennar var smitandi þrátt fyrir að hún ætti í erfiðum veikind- um allan þann tíma sem við fengum með henni. Elsku Tóti, hugur okkar er hjá ykkur. Við minnumst Andreu með hlý- hug og þakklæti. Minning um góða konu lifir. Mild maínóttin læðist yfir, leikur sér og hlær Í húminu síðustu andartökin Þegar lífið klárast, staldrar hún við Strýkur hlýjan vanga Sólin sigrar sorgina, dagur sigrar nótt Inn í eilífðina hverfur hún hljótt (Birna G. Magnadóttir) Már, Óðinn, Arna, Birna og Magna Magnabörn. Nú kveð ég með trega en minn- ist með hlýhug og þakklæti hennar Öddu minnar. Minnist hennar sem fallegrar, lífsglaðrar og hressrar ungrar stúlku sem heillaði mig upp úr skónum á sínum tíma í Vest- mannaeyjum. Við áttum góðan tíma saman og er ég þakklátur fyr- ir öll þau ár. Við ferðuðumst mikið í gegnum árin, ýmist erlendis eða vestur á Ísafjörð. Alltaf var gaman að ferðast með henni vestur og dvelja á Ísafirði hjá foreldrum hennar. Þau tóku alltaf svo vel á móti okkur. Mikið var gert í þess- um ferðum, Adda elskaði að fara í bíltúra og var því mikið rúntað um Vestfirðina. Utanlandsferðirnar okkar voru allar góðar og fullar af minningum. Adda átti mjög auðvelt með að kynnast fólki og það gerði ferðirnar alltaf fjörugri að kynnast nýju fólki og eignast nýja vini. Hún Bjarnfríður Andrea Guðnadóttir ✝ Bjarnfríður Andrea Guðna- dóttir fæddist 10. nóvember 1958. Hún lést 31. maí 2021. Útförin fór fram 10. júní 2021. var blíð og góð við alla, var mjög hrifin af tónlist og átti það til að setja Elvis á fóninn, hækka vel í og taka dansspor í stof- unni. Ég hefði ekki getað fundið betri förunaut í gegnum líf- ið eða betri konu til að eignast fjölskyldu með. Hún var góð móðir og skilaði upp- eldinu vel. Líkt og ég var hún mjög stolt af börnunum og ríkidæmið í barnabörnunum er mikið. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Í dag kveðjum við Öddu, uppáhaldsfrænku okkar. Við gerð- um margt saman, fórum á ættar- mót, spjölluðum mikið saman í síma og á Facebook og það var þér mikið áfall þegar Jón Sævar dó. Það var mjög gaman að sjá þig í 60 ára afmæli okkar Báru og Öldu, en þá varstu orðin veik af krabba- meininu. Síðast þegar við hittumst var við jarðarför móður okkar. Okkur langar að kveðja þig með þessu erindi úr Hávamálum: Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. Elsku Þór, Gunna, Gísli, Andrea og María, Guð styrki ykkur öll. Ykkar uppáhaldsfrænkur, Adda, Bára, Alda og fjölskylda. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Guðmundur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.