Morgunblaðið - 21.06.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 21.06.2021, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9-12.30, nóg pláss - Gönguferð um hverfið kl.10.30 - Bíó kl.13.10 - *Leikfimi kl.14.15. Þol og styrkur, ókeypis - Kaffi kl.14.450-15.20 - *Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir – Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Jóga kl. 10. Handavinna kl. 12-16. Félagsvist kl. 12:45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:30-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkom- nir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411- 2600. FEBH Flatarhrauni Hfj Spilum félagsvist alla mánudaga kl 13. Garðabæ Poolhópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Bridge í Jónshúsi kl.13. Ganga fyrir fólk m/göngugrind fer frá Jónshúsi kl. 14. Smiðjan Kirkjuhvol opin kl. 13– 16. Gerðuberg Opin vinnustofa frá kl. 8.30 –16. heitt á könnunni. Kunda- lini jóga frá kl. 11.15, opinn tími. Samverustund með Leifi Reynissyni frá kl. 13. gömlum ljósmyndum er varpað upp ásamt með umræðu og upprifjun um liðna tíma. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-10.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Börn frá frístundaheimilinu Krakkakoti koma í heimsókn kl. 10.30. Stólaleikfimi 13.30. Gönguhópur – lengri ganga kl. 13.30. Korpúlfar Útvarspleikfimi í Borgum kl. 9.45. Gönguhópar kl. 10. gengið frá Borgum og Grafarvogskirkju, þrír styrkleikahópar kaffispjall á eftir. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 11:00 í Borgum og verður í allt sumar, aðgangur ókeypis. Allir hjartanlega velkomnir. Samfélagshúsið Vitatorgi Góðan daginn. Í dag kl. 10 erTai Chi - róleg og góð leikfimi sem hentar öllum, kl. 12:50 er svo leikfimi með Hönnu, kl. 13.30 er Boccia og kl. 14.30 Spurningaspil. Allir þessir dagskrárliðir eru ókeypis og opnir öllum. Það er heitt á könnunni hjá okkur á morgnanna, hádegisverður frá 11.30-12.30 og síðdegiskaffi frá 14.30-15.30. Verið velkomin til okkar á Lindargötu 59, síminn 411-9450. Seltjarnarnes Kaffi í króknum Skólabraut frá kl. 9, Leikfimi í salnum Skólabraut kl. 11, Handavinna og samvera á Skólabraut kl. 13:30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Audi A3 Sportback e-Tron Hi- bryd. 8/2017 Modelár 2018. Ekinn aðeins 40 þús.km. Sportsæti. Panorama glerþak. 17” álfelgur. Sjálfskiptur. LED ljós. Ofl. Lækkað verð aðeins 3.990.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Færir þér fréttirnar mbl.is ✝ Ásdís Björk Stefánsdóttir fæddist í Reykjavík 13. júní 1954. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtu- daginn 10. júní 2021. Foreldrar henn- ar voru Stefán E. Jónsson, f. 1.9. 1906 á Gróustöðum, Geirdalshreppi, Austur-Barða- strandarsýslu, d. 22.1. 1998, og Svanborg Ólöf Matthíasdóttir, f. 6.10. 1913 á Kaldrananesi 1, Kaldrananeshreppi, Stranda- sýslu, d. 1.3. 1993. Systkini Ásdísar eru: Halldór Stefánsson, f. 15.12. 1934, og María Kristín Björnsdóttir, f. 25.12. 1957. Ásdís Björk giftist Sigurði Pétri Péturssyni frá Grundar- firði hinn 6.10. 1979. Foreldrar hans voru Guðrún Jóna Hans- dóttir, f. 11.2. 1926 á Uppsölum á Hellissandi, d. 26.10. 2016, og Pétur Breiðfjörð Sigurjónsson, f. 30.11. 1918 í Lárkoti í Eyr- Ásdís Björk ólst upp við ein- staklega gott atlæti á heimili sínu á Langholtsvegi 14 hjá foreldrum sínum ásamt móðurömmu sinni og móðurafa. Þar var gestkvæmt og stórfjölskyldan samheldin. Á unglingsárum flutti hún með for- eldrum sínum í Hraunbæ 27. Þar bjó hún þar til hún flutti til Grundarfjarðar 1979 og giftist manni þaðan, Sigurði Pétri Pét- urssyni. Þar stækkaði stór- fjölskyldan heldur betur og alltaf var mikill samgangur þarna á milli Grundarfjarðar og Reykja- víkur. Þar starfaði hún ann- aðhvort við verslunarstörf eða á leikskólanum Sólvöllum. Hún vann í dágóðan tíma í Ragga- sjoppu eins og það hét, síðan á leikskólanum Sólvöllum og svo síðast í versluninni Tanga. Á leik- skólanum Sólvöllum starfaði hún lengst af á sinni starfsævi og undi sér vel. Hún bjó á Grundarfirði lengst af sinni ævi eða allt fram í apríl síðastliðinn er hún flutti á Dvalarheimilið Jaðar í Ólafs- vík. Grundarfjörður var henni alltaf hugleikinn og þar undi hún sér best. Þar tók hún lengi vel þátt í félagsstarfi á borð við skátastarf og kvenfélagsstarf. Útförin fer fram í Grundar- fjarðarkirkju í dag, 21. júní 2021, klukkan 14. arsveit, d. 28.4. 2011. Ásdís Björk átti tvær dætur af fyrra sambandi með Guðmundi Jós- ep Sverri Hlöðvers- syni, f. 3.11. 1954. Þær eru: 1) Mar- grét Huld, f. 3.6. 1973, sambýlis- maður hennar er Andri Már Helga- son, f. 29.12. 1967. Börn hennar af fyrra sambandi eru Stefán Freyr Margrétarson, f. 9.11. 1990, Svanberg Már Pálsson, f. 23.3. 1993, Sóley Lind Páls- dóttir, f. 26.6. 1999, og Ísey Rún Björnsdóttir, 13.8. 2009. 2) Svanhildur Rós, f. 24.2. 1975, sambýlismaður hennar er Bene- dikt Davíð Hreggviðsson, f. 16.12. 1970, börn hennar af fyrra sambandi eru Íris Björk Sigurðardóttir, f. 24.8. 1996, Hugrún Elfa Sigurðardóttir, f. 13.4. 1998, Isabella Rut Sigurð- ardóttir, f. 2.4. 2006, og Jón Arnar Sigurðarson, f. 2.4. 2006. Elsku mamma mín og amma barnanna minna verður í dag jarð- sungin frá Grundarfjarðarkirkju. Ásdís Björk eða Dísa amma, eins og hún var kölluð af börnunum, lést 10. júní síðastliðinn eða aðeins 3 dögum fyrir 67 ára afmælið sitt sem var 13. júní. Mamma ólst upp á Langholtsveginum og síðar í Hraunbænum en þar bjó hún með foreldrum sínum þegar ég fæddist 1973 og Svana systir 1975. Mamma gifti sig svo til Grundarfjarðar hon- um Sigga P. eins og hann er kall- aður en hún ætlaði aldrei að flytja út á land og hvað þá giftast sjó- manni. Þau giftu sig 6. október 1979 eða á afmælisdegi hennar Svanborgar ömmu. Mamma vann fyrst um sinn í Ragga sjoppunni, svo mörg ár á leikskólanum enda mikil barnagæla en síðustu árin hennar á vinnumarkaðnum vann hún í versluninni Tanga eða 1998- 2003. Mamma var vinmörg og oft var kátt á hjalla við eldhúsborðið og ekki fannst okkur systrum leiðin- legt að hlera vinkonurnar við eld- húsborðið. Mamma elskaði að setja plötu á fóninn eins og Abba, Grease, Brunaliðið og aðra góða smelli. Hún átti fast pláss í þætt- inum Atli það ekki á Rás 2 og mörg lögin sem hafa verið spiluð fyrir hana þar. Útilegurnar voru ófáar og þá alltaf á Volvo á bílnúmerinu P544 og appelsínuguli tjaldvagninn aftur í og ófáir með. Hún föndraði mikið, sérstaklega bútasaum og tréföndur. Í mörg ár var hún í skátastarfinu sem hún hafði mjög gaman af. Hún hafði ekki alltaf meðbyr í sinu lífi en hafði gaman af lífinu þó það var henni ekki alltaf auðvelt, en hún var mikill grínisti og húmoristi. Hún fylgdist vel með okkur systrum og barnabörnunum alla tíð og alltaf var hún stolt af okkur öllum, það leyndi sér ekki. Hún var dugleg að hafa samband en síðasta ár var ekki mikið um hitting vegna Covid-19 þar sem hún hræddist það og maður var á nálum að bera það með sér. 3. júní síðastliðinn hringdi mamma til að óska mér til hamingju með afmæl- isdaginn minn en símtalið var frek- ar stutt og hún var þreytt, það heyrði ég, en alltaf kvaddi hún eins: „Eigum við ekki bara heyrast í næsta stríði, Magga mín, og ég elska þig,“ og þannig kvöddumst við í síðasta símtalinu okkar. Mamma var nýflutt á dvalarheim- ilið Jaðar í Ólafsvík eftir að hún lærbrotnaði í enda mars. Sama dag og mamma hringdi í mig með af- mæliskveðjuna fékk ég símtal frá starfsfólkinu að láta mig vita að mamma væri slöpp og væri komin í súrefni. Laugardagskvöldið var hún svo flutt á sjúkrahús á Akra- nesi og sátum við systur yfir henni síðustu dagana. Hún fékk nokkrar góðar heimsóknir frá barnabörn- unum ásamt símtölum frá þeim sem búa erlendis. Þessar síðustu stundir voru mjög erfiðar, það var erfitt að sjá hvert stefndi í þinni baráttu við veikindin, en mikið er ég þakklát fyrir að við systur áttum þessa daga með þér, við föðmuð- umst, þú knúsaðir og kysstir okkur og ég söng fyrir þig afmælisönginn þar sem var alveg að koma að af- mæli þínu og við vögguðum okkur saman og héldumst í hendur. Á svona stundu er margs að minnast, elsku mamma mín, góða ferð í sum- arlandið og hafðu þökk fyrir allt og allt og ljúf minning um þig lifir í hjörtum okkar allra. Margrét Huld Guðmundsdóttir. Elskulega mútta mín, nú sit ég hér með mikla sorg í hjarta og mik- inn söknuð. Kallið þitt kom alltof snögglega og of fljótt. Elskulega mamma mín eða amma Dísa, þú hafðir ekki alltaf meðbyr í þínu lífi og þá sérstaklega í seinni tíð varð- andi heilsu þína. Þú hélst þó alltaf í kátínuna sem einkenndi þig og glensið við mig og börnin mín. Veit ekki hvað þú sagðir oft „ég er bara að vitleystast“ og hlóst svo meira. Þú ólst upp á einstaklega elskulegu heimili með marga í kringum þig úr stórfjölskyldunni, það fólk þótti þér einstaklega vænt um og talaðir mikið um. Ég fékk einnig að njóta góðs af þessu góða fólki enda bjuggum við mæðgur fyrstu árin mín í Hraunbænum hjá ömmu og afa og þar áttum við alltaf húsa- skjól eftir það. Næsti kafli í okkar lífi var að flytja til Grundarfjarðar og þar hófst stórkostlegt tímabil í mínu lífi og þínu líka. Ég græddi þarna aukaömmu og -afa, þau Gunnu og Pétur. Að fá að alast upp þarna er sennilega eitt það dýr- mætasta sem þú gafst mér í lífinu. Þarna liggja mínar rætur og mínar æskuminningar að stórum hluta ef ekki öllum hluta. Minningabankinn þaðan er svo stór og dýrmætur. Ég var svo frjáls sem barn, fór ekki í leikskólann heldur var með þér mamma og Gunnu mjög mikið. Þar gekk ég mína grunnskólagöngu og kynntist mörgum frábærum ein- staklingum sem eru enn góðir vinir mínir í dag. Ein mín helsta minning um mig og þig er að ég gat ekki slit- ið mig frá þér með nokkru móti, vildi fara allt með þér, í allar heim- sóknir til vinkvenna þinna og ef þú varst í símanum þá hékk ég á öxl- inni þinni og vildi vita allt jafnóðum, hvað væri að gerast. Eitt skiptið sem ég fékk ekki að fara með vor- um við í Hraunbænum, þá hljóp ég út og að næstu stóru gatnamótum, ég skyldi sko ekki skilin eftir. Í minningunni varstu svo vinmörg og mér fannst allar þessar vinkonur svo skemmtilegar. Ef mig vantaði huggun þá áttirðu alltaf nóg af henni. Þitt helsta einkenni í gegn- um tíðina var mikil hjartahlýja til allra. Þú vildir líka allt fyrir okkur systur gera sem þú mögulega gast og vildir hafa okkur vel tilhafðar. Þú varst líka alltaf svo fín og hafðir þig stundum extra vel til, þú vildir líka hafa alltaf fínt hjá þér og bjóst alltaf til svo fallegt heimili. Ein- hvern veginn vorum við svo líkar að mörgu leyti, miklu meira en maður hafði gert sér grein fyrir og þá með svipaðan smekk á mörgu. Mitt fyrst hús keypti ég af þér, við vor- um báðar að reyna að vera jeppa- kellingar og útilegufólk. Þú varst alltaf til í að hjálpa mér með allt sem þú mögulega gast og það gerð- ir þú svo sannarlega oft. Þú varst dugleg að fylgjast með mér og mín- um í gegnum tíðina. Símtölin eru óteljandi mörg þegar við bjuggum ekki lengur á sama stað og þú spurðir alltaf um ömmubörnin. Undir það síðasta fylgdist þú mikið með Jóni og Isabellu enda mikið um að vera hjá þeim. Við hittumst síðast á sjúkrahúsinu á Akranesi og áttum þar saman þína síðustu daga og stundir. Okkur gafst því ekki sumarið saman og við heyrumst því bara í næsta stríði. Þín elskulega dóttir, Svanhildur Rós. Ásdís Björk Stefánsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma hvíl í friði. Hlýja, lúfa, Dísa Björk, móðir, amma, systir. Þín eru komin endamörk, eitt knús enn í okkur lystir, Alltaf varstu glettin, góð, og annt um vini þína. Af sumarlandsins engla sjóð, nú björtust munt þú skína. (Hugrún Elfa) Þín ömmubörn Íris Björk Sigurðardóttir. Hugrún Elfa Sigurðardóttir. Isabella Rut Sigurðardóttir. Jón Arnar Sigurðsson. Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. " 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2 þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber (1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5 ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát ✝ Diðrik Jó- hannsson fæddist í Þýska- landi 4. ágúst 1934. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 11. júní 2021. Foreldrar hans voru Elsa Kuhn, fædd Jensen, f. 1903, d. 1974 og próf. dr. Hans Kuhn, f. 1899, d. 1988. Bræður hans eru dr. Gustav Kuhn, f. 1932, Johann Kuhn, f. 1933, d. 1987, Wilhelm Kuhn, f. 1941 og dr. Hermann Kuhn, f. 1945. 16.8. 1990), Diðrik, f. 5.2. 1998 og Snjólaug, f. 21.10. 2003. Diðrik ólst upp í Þýskalandi en flúði með móður sinni og bræðrum í stríðslok til Íslands. Þau bjuggu í nokkur ár á Kífsá hjá Akureyri. Diðrik settist að á Íslandi og starfaði sem fram- kvæmdastjóri Nautastöðvar Búnaðarfélags Íslands á Hvanneyri. Eftir starfslok sett- ust hann og Helga að á Akur- eyri. Diðrik verður jarðsunginn í dag, 21. júní 2021, klukkan 13 frá Glerárkirkju. Streymt verður frá athöfn- inni á Facebook-síðunni Jarð- arfarir í Glerárkirkju. Virkan hlekk á streymið má finna á: https://www.mbl.is/andlat/. Diðrik kvæntist Helgu Jónsdóttur frá Akranesi, f. 25.3. 1942, d. 26.2. 2012. Dætur þeirra eru: 1) Elsa Björg, f. 2.3. 1962, maki Ralfi Heese. Þau eru búsett í Þýska- landi og eiga tvö börn: Soffiu, f. 17.1. 1992 og Jó- hannes, f. 21.4. 1993. 2) Líney Snjólaug Dið- riksdóttir, f. 21.7. 1966, maki Kristján Jónsson, bændur á Tréstöðum í Hörgársveit. Börn þeirra eru Sigrún Kristín, f. Elskulegur tengdafaðir minn, Diðrik Jóhannsson, er látinn, sáttur við sitt lífshlaup og tilbúinn til að ganga inn í sumarlandið. Við Diðrik höfum átt margar stundir saman við vinnu og in- dæla fjölskyldusamveru. Ég hefði ekki getað óskað mér betri tengdaföður og hjálp hans og ráð hafa verið mér ómetanleg. Ég naut líka þeirrar gæfu að deila með honum afmælisdegi og þar með áttum við margar ljúfar og góðar stundir saman. Elsku Diðrik, takk fyrir alla hjálpina í gegnum árin. Þú gerð- ir okkur meðal annars kleift að stunda búskap og sem betur fer fékkst þú þar með líka útrás fyr- ir þína búskaparþrá. Þú kenndir mér margt. Við áttum mörg samtöl og gæðastundir í fjósinu og gekk auk þess alltaf sérlega vel að vinna saman. Við fjölskyldan þín sem horf- um á eftir þér núna erum þakk- lát fyrir hvað þú varst okkur mikil fyrirmynd og sýndir okkur mikið ástríki og ræktarsemi. Við búum að því að hafa kynnst rétt- sýni þinni og staðfestu og ekki síst vandvirkni þinni og alúð í öllum þeim verkefnum sem þú tókst þér fyrir hendur. Við mun- um um alla tíð njóta góðs af því sem þú kenndir okkur um garð- rækt, matjurtir og heilsusamlegt líferni. Elsku Diðrik, við stöndum eft- ir og skynjum hve mikið er horf- ið úr okkar lífi þegar þú ert far- inn en við erum líka þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samvista við þig öll þessi ár. Elsku Diðrik, takk fyrir allt. Ég veit að þú ert nú kominn á betri stað, innan um ástvini þína sem bíða þín þar. Hvíl í friði. Minning þín mun alltaf lifa með okkur Kristján Jónsson. Diðrik Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.