Morgunblaðið - 21.06.2021, Page 24

Morgunblaðið - 21.06.2021, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021 Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 8:00-16:30 Úrvals hamborgarar og grillkjöt Krydd, sósur og ýmsar grillvörur 60 ÁRA Bertrand fæddist 21. júní 1961 í Béthune í Norður-Frakklandi en ólst upp í Lièvin. Hann útskrifaðist sem barna- og unglingageðlæknir frá háskólanum í Lille, vann síðan í París árin 1989-1998, en þá flutti hann ásamt eiginkonu og dóttur til Íslands. Bertrand hefur síðan unnið sem sér- fræðingur á barna- og unglingageð- deild (BUGL) og er jafnframt dósent við læknadeild Háskóla Íslands. Þá lauk hann doktorsprófi í læknisfræði við Háskóla Íslands árið 2011. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á öllu sem tengist barna- og unglinga- geðlækningum og ég tel að sérfræð- ingar á þessu sviði muni leika mikil- vægt hlutverk í heilbrigðismálum í framtíðinni. Ég hef mikinn áhuga á klassískri tónlist, er með próf í þverflautuleik og stofnaði á sínum tíma og lék með áhugamannahljómsveit í Lille í Norður-Frakklandi. Núna nýt ég þess að fara á tónleika, sérstaklega ef það eru dæturnar sem eru að spila á nemendatónleikum. Bestar eru samverustundir með fjölskyldunni, ekkert kemur í staðinn fyrir þær. Ég hef mjög gaman af ferðalögum með henni, innanlands og utan, og það verður aldeilis gott að geta bráðum ferðast aftur meira í út- löndum, skoða borgir, kirkjur og fara á alls konar söfn. Ég hef mikinn áhuga á sögu tuttugustu aldar, sér- staklega öllu í tengslum við heims- styrjaldirnar báðar, en við fjölskyldan höfum farið á ófá söfnin sem þeim tengjast. Stundum hefur dætrunum fundist nóg um! Þá hef ég einnig mik- inn áhuga á stjórnmálum almennt, en sérstaklega þó þeim frönsku sem ég reyni að fylgjast vel með.“ FJÖLSKYLDA Bertrand er kvæntur Hönnu Guð- laugu Guðmundsdóttur listfræðingi, f. 28.8. 1969, og eiga þau dæturnar Jó- hönnu Clöru, f. 1.12. 1997, Mathildu Evelyne, f. 20.9. 2005 og Magdalenu, f. 13.3. 2008. Foreldrar Bertrands eru André Lauth, kennari og fyrrverandi skólastjóri, f. 7.11. 1936 og Evelyne Lauth (fædd False), kennari og fyrr- verandi skólastjóri, f. 3.1. 1937. Bertrand Lauth Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Nú er heppilegur tími til að binda ný vinabönd. Sýndu fólki að þú kunnir að meta það. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú átt í innri baráttu og veist varla í hvorn fótinn þú átt að stíga. Ekki hugsa svona mikið, nú er tími til að upplifa og njóta. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú ert á réttri leið en þarft að vera ákveðinn til að hlutirnir gangi hraðar fyrir sig. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú ert að taka mikið framfaraskref í lífinu þessa dagana. Gerðu ráð fyrir óvænt- um uppákomum í tengslum við börn og þína nánustu. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Mundu að umgangast hugmyndir ann- arra af sömu virðingu og þú vilt að þeir sýni þínum verkum. Opnaðu augun með jákvæð- um huga og þá eru þér allir vegir færir. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Leggðu áherslu á að vera í góðu sambandi við samstarfsmenn þína. Ver- aldleg velgengi er ágæt en andlegur auður er öðru dýrmætari. 23. sept. - 22. okt. k Vog Áhrifamáttur þinn dylst engum sem er í návist þinni, þú þarft ekki að básúna neitt. Undirbúðu þig fyrir einlægar samræður við félaga þinn. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Hafðu hemil á ráðríki þínu ef þú vilt ekki lenda í vandræðum sem eiga eftir að draga dilk á eftir sér. Farðu varlega og reyndu að særa engan. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Ef þú segir meiningu þína máttu eiga von á að einhver valdabarátta komi upp á vinnustað. Taktu á þig rögg en ekki stinga höfðinu í sandinn. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Horfurnar virðast yfirþyrm- andi,en þú ert í fullkominni aðstöðu til að takast á við það sem koma mun. Hóaðu saman liði sem klárar málin með hraði. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Mundu að ekki hafa allir sömu skoðanir á hlutunum og það ber líka að virða. Leyfðu einstöku skopskyni þínu að njóta sín og heimurinn hlær með þér. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Einhver reynslumikill getur gefið þér góð ráð við lausn vandamáls. Reyndu að ná tökum á hlutunum og svo skaltu vinna þá í rólegheitum. skyndihjálpinni. Önnur höndin á mér er talsvert bækluð svo ég átti erfitt með að sýna skyndihjálpina á dúkku. Einn félaginn sagði að það meirapróf á öll leyfileg ökutæki en þeir ætluðu ekkert að hleypa mér í gegn með einn fót, en ég varð svo efstur í ökunáminu í öllu nema B erent Karl Hafsteinsson fæddist 21. júní 1971 á Sjúkrahúsinu á Akra- nesi og ólst upp á Brekkubrautinni. Hann gekk í Brekkubæjarskóla og var í sumarvinnu á Kirkjubóli í Innri- Akraneshreppi frá 8-16 ára. „Ég er örverpið í fjölskyldunni og yngsta systir mín hefur aldrei fyrirgefið mér fyrir að hafa fæðst. Ég er fárán- lega kraftmikill og ofvirkur. Ég var sendur í sveit svo mamma fengi sum- arfrí, því það var alveg nóg að hafa þennan villing heima í 9 mánuði á ári.“ Berent hóf vélvirkjanám í Fjöl- brautaskóla Akraness haustið 1987 og fór á samning hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á sama tíma. Hann byrjaði að landa upp úr tog- urum í eigu Hafarnarins á Akranesi 15 ára og var í því með skóla þar til líf hans gjörbreyttist á einu and- artaki. „Á páskadag 1991 lenti ég í mótorhjólaslysi sem hefur markað líf mitt alla tíð. Ég var í 100% órétti og hafði keyrt alltof hratt og lenti í sjávargarðinum uppi á Skaga. Svo setti ég vafasamt Íslandsmet í slys- inu, braut 47 af 206 beinum í lík- amanum og var haldið sofandi í þrjár vikur á gjörgæslu og það vissi eng- inn hvort ég myndi geta gengið. Ég var í rúman hálfan sólarhring í skurðaðgerð og það má segja að ég sé gangandi kraftaverk.“ Þegar faðir Berents sá hann á gjörgæslunni orti hann þessa vísu: Aflið er unglingnum erfiður skóli Áhættan heillar og aldrei neitt hik Örlagavefur var ofinn á hjóli Við andvaraleysi eitt augnablik. Berent fékk engar bætur því hann var á alltof miklum hraða í slysinu. En hann fer það sem hann ætlar sér. Eftir stöðuga endurhæfingu bæði heima og á endurhæfingarstöðum ákvað hann níu mánuðum eftir slysið að fara á fullt, þrátt fyrir að vera alltaf verkjaður, enn þann dag í dag. „Ég held að bæði þrjóskan og gott líkamlegt form hafi hjálpað mér í endurhæfingunni, en ég á m.a. mörg Íslandsmet í sundi og æfði með landsliði fatlaðra. Ég skráði mig í hefði verið hægt að kæra mig fyrir líkamsárás, þvílíkar hefðu aðfarirnar verið.“ Ég á fullt af Íslandsmetum og var að æfa með landsliðinu í sum- ar, en ég fór aldrei á stórmót með fötluðum með landsliðinu.“ Haustið 1995 fór Berent í Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki og útskrifaðist þaðan 1999. Þá tók við erfitt tímabil. Hann hafði smitast af lifrarbólgu C á spít- alanum við blóðgjöf í aðgerðinni og þurfti að fara í 9 mánaða lyfja- meðferð. Hann fékk lyfið Interferon og þurfti að sprauta sig tvisvar á dag og þá fann hann fyrir andlegum erf- iðleikum, í raun í fyrsta skipti eftir slysið. Berent er búinn að fara í tugi að- gerða á líkamanum og fer í sjúkra- þjálfun þrisvar í viku. „Svo nota þeir mig eins og tilraunadýr hjá Össuri, því það er svo erfitt að smíða á mig gervifót að ef ég get notað hann, þá geta 90% annarra sem þurfa fót fyrir neðan hné nýtt hann líka.“ Síðustu tuttugu ár hefur Berent sinnt umferðarfræðslu og fer í skóla og talar við nemendur sem eru að ljúka grunnskóla. „Ég er sá eini í þessu og ég tala bara hreint út við krakkana. Mæti í stuttbuxum og sýni þeim gervifótinn og segi þeim að ef maður leiki sér að eldi þá brenni maður sig fyrr eða síðar. Þá sé ekkert hægt að spóla til baka eins og í tölvuleik. Ég hefði viljað hitta einhvern svona gaur sem segði bara umbúðalaust hvernig hlutirnir eru og ég held að það skili sér til krakk- anna. Síðan er ég bara hress og reyni að hafa þetta lifandi og skemmtilegt. Mér finnst líka mik- ilvægt að tala um að við eigum bara eitt líf og að við þurfum að njóta þess og hugsa eins vel um það og við get- um. Jákvæðni og vilji til að komast yfir næstu brekku er það sem þarf. Svo gleður það mig að heyra að slys- um ungmenna 18-25 ára í umferðinni hefur fækkað um 60% á þessu tíma- bili og vonandi á maður einhvern þátt í því.“ Berent og eiginkona hans, María Lilja, áttu tíu ára brúðkaupsafmæli í gær, 18. júní. „Hún var eitthvað skotin í vitleysingnum,“ segir hann Berent Karl Hafsteinsson umferðarforvarnarfulltrúi – 50 ára Mótorhjólin Berent á RACER mótorhjóli NR 46. Myndin er tekin árið 2005. Ekkert hægt að spóla til baka Tinbrúðkaup Berent og María Lilja giftu sig 18. j́úní árið 2011 og héldu upp á tíu ára brúðkaupsafmæli sitt í gær. Berent segir hjónabandið, án efa, vera sín mesta gæfa í lífinu. Slysið 1992 Þarna liggur Berent í dái eftir slysið og Hafdís systir hans setti á hann sólgleraugu svo litli bróðir gæti haldið áfram að vera svalur, þrátt fyrir að vera í dái. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.