Morgunblaðið - 21.06.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.
„GARMUR, TVEGGJA ÁRA LABRADOR,
GEFUR ÞESSU FIMM BEIN OG SKRIFAR:
„ÞETTA ER EKKERT SÉRSTAKT, EN ÉG
HUGSA SAMT EKKI UM NEITT ANNAÐ.““
„SAMKVÆMT ÞESSU ER ÞAÐ OKKUR AÐ
KENNA AÐ 45 ÁRA KONA STEYPTIST ÖLL
ÚT Í ÚTBROTUM.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hafa enn sömu
áhrifin á hann mörgum
árum seinna.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVERNIG VEISTU ALLTAF
HVENÆR ÉG ER MEÐ MAT?
ÉG ER MEÐ
APP FYRIR
ÞAÐ
HLAUT
AÐ VERA
ÞÚ HEFUR VARIÐ MARGAN SKÚRKINN
Í GEGNUM ÁRIN! ÞÚ TAPAR NÚ VARLA
Á ÞESSU!?
JÚ!
Í GÆR TAPAÐI ÉG KASSA AF BESTA
RAUÐVÍNINU MÍNU Í HENDURNAR Á EINUM
AF ÞESSUM SKÚRKUM!
og skellir upp úr. „En án gríns, þá er
samband okkar það besta sem hefur
komið fyrir mig í lífinu.“ Berent seg-
ir að hann hafi alltaf verið mikið fyrir
íþróttir og útiveru og það hafi ekkert
breyst. „Við erum fjórir sem heitum
Berent á landinu og rekjum allir
ættir okkar til sama Berents, sem
var þýskur hansakaupmaður sem
strandaði fyrir utan Hafnarfjörð og
varð innlyksa um vetur og fór ekkert
aftur.“ Þar kemur skýringin á þraut-
seigjunni í Berent. Það hlýtur að
vera þýska stálið í bland við íslenska
víkingablóðið.
Fjölskylda
Eiginkona Berents er María Lilja
Moritz Viðarsdóttir, þjónustustjóri
Árvakurs, f. 12.5. 1980 og þau búa í
Grafarvogi. Foreldrar hennar eru
hjónin Viðar Axel Þorbjörnsson
smiður, f. 6.6. 1950 og Svanhvít Mor-
itz Sigurðardóttir skrifstofukona, f.
21.1. 1955. Þau búa í Kópavogi.
Stjúpsonur Berents er Viðar Örn
Sævarsson, smiður á Akureyri, f.
25.5. 2001 og Berent og María eiga
saman Daneyju Láru Berents-
dóttur, f. 28.9. 2012. Systkini Be-
rents eru Jóhanna Guðrún Þor-
björnsdóttir tanntæknir, f. 21.9.
1954; Sigurbjörn Hafsteinsson pípu-
lagningameistari, f. 8.10. 1956; Ing-
ólfur Hafsteinsson pípulagninga-
meistari, f. 6.10. 1959 og Hafdís
Dögg Hafsteinsdóttir bókasafns-
fræðingur, f. 15.11. 1964. Þau búa öll
á Akranesi.
Foreldrar Berents eru hjónin
Hafsteinn Sigurbjörnsson pípulagn-
ingameistari á Akranesi, f. 5.10. 1931
og Sigurrós Lára Ágústsdóttir hús-
móðir, f. 9.6. 1937, d. 31.3. 2012.
Berent Karl
Hafsteinsson
Ingunn Jóhannesdóttir
húsmóðir á Ási í
Húnavatnssveit
Ingólfur Jóhannesson
bóndi á Ási í Húnavatnssveit
Ingibjörg Jóhanna Ingólfsdóttir
húsmóðir á Akranesi
Gunnar Ágúst Halldórsson
trésmiður á Akranesi
Sigurrós Lára
Ágústsdóttir
húsmóðir á Akranesi
Sigríður Jóhannsdóttir
Brandsson
húsmóðir í Húnavatnssveit
Halldór Jónsson
bóndi á Vatnshorni í
Húnavatnssveit
Sigríður Ólafsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Berent Sveinsson
sjómaður í Reykjavík
Margrét Berentsdóttir
húsmóðir á Akranesi
Sigurbjörn Jónsson
skipstjóri á Akranesi
Halldóra Guðlaugsdóttir
húsmóðir á Akranesi
Jón Jónsson
sjómaður frá Akranesi
Úr frændgarði Berents Karls Hafsteinssonar
Hafsteinn
Sigurbjörnsson
vélvirkja- og
pípulagningameistari
og áður skipstjóri á
Akranesi
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir áBoðnarmiði:
Meydís hét móðir hans Steina,
í Mývatnssveit kölluð „hin hreina“
en fátt er um svar
hver faðirinn var
því 500 komu til greina.
Hallmundur Kristinsson orti og
mér er ekki ljóst hvort þetta sé svar
við limru Eyjólfs:
Ég hef ekkert vit svo heitið geti
á heimsmálum (mætti segja um fleiri),
en trúi bara eins og nýju neti
næstum því öllu sem ég heyri!
Hér er „Kvöldljóð“ eftir Ármann
Þorgrímsson:
Komið er að kveldi dags
kyrrist gangur veðra
Sáttur bíð ég sólarlags
sagt er hlýrra neðra.
Halldór Halldórsson hefur þá
sögu að segja, að fyrir ári var hrísl-
an hans eins og fjölbýlismöguleiki
fugla í hreiðurgerðarleit! Sagan er
önnur í ár!
Hríslan mín er beinaber,
bjarta geisla pantar.
Vandinn er og sérhver sér,
að sólardaga vantar!
Gylfi Þorkelsson er á sömu nót-
um:
Í hreiður smáfugl snýr á ný,
svífur létt um runna,
og flytur meiri fæðu í
frosna ungamunna.
Anton Helgi Jónsson leikur sér
að orðum í „Fjallaskáld á hjalla“:
Upp til fjalla fjallaskáld
fjalla oft um halla.
Margan hjalla hjallaskáld
hjalla lífsins kalla.
Friðrik Steingrímsson kvað fyrir
helgi norður í Mývatnssveit:
Trú mín verður beggja blands,
beðið hef ég ár og síð.
Getur ekki Guð vors lands
gefið okkur betri tíð?
Kristján Björn Snorrason svarar:
Er í kulda í skjólið skríð
skelf ég eins og hrísla.
En „Bráðum kemur betri tíð“
var boð frá Röggu Gísla!
Magnús Halldórsson yrkir út af
því að Eimskip gerir sátt og greiðir
1,5 milljarða í sekt:
Ofan tökum allir vér,
eigum framtíð bætta,
því óskabarnið ætlar sér,
óknyttum að hætta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af kuldatíð og fjölbýlis-
möguleika fugla