Morgunblaðið - 21.06.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 21.06.2021, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ THE WASHINGTON POST ROGEREBERT.COM TOTAL FILM USA TODAY THE SEATTLE TIMES THE GUARDIAN GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA HROLLVEKJANDI SPENNUMYND THE WRAP FILM SÝNDMEÐ ÍSLENSKUTALI97% SAN FRANCISCO CHRONICLE INDIE WIRE Grín- Spennumynd eins og þær gerast bestar! ROGEREBERT.COM Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þegar ég sendi frá mér Sigga sítrónu var ég sannfærður um að það yrði síðasta bókin mín um Stellu og fjölskyldu hennar. Þau áform breytt- ust hins vegar fyrir jólin,“ segir Gunnar Helgason um nýjustu bók sína sem nefnist Palli Playstation. Bókin er fimmta bókin í seríunni um Stellu sem hófst með Mömmu klikk! (2015), en í framhaldinu fylgdu bæk- urnar Pabbi prófessor (2016), Amma best (2017) og svo Siggi sítróna (2018). „Við Björk, konan mín, sendum bæði frá okkur nýjar bækur fyrir síð- ustu jól. Ég var með Barnaræningj- ann og Björk með Hetju. Við hittum fullt af grunnskólanemendum í gegn- um Zoom og Teams þar sem við vor- um að lesa upp úr bókunum og spjalla. Í hverjum einasta skóla sem við heimsóttum var ég spurður hve- nær von væri á næstu bók um Stellu. Í fyrstu tíu skiptin svaraði ég spurn- ingunni þannig að bókaflokkurinn væri búinn og því ekki von á fleiri bókum um Stellu. En svo kom að því að Björk svaraði fyrir mig og sagði: „Auðvitað skrifar hann aðra bók!“ við mikinn fögnuð nemenda,“ segir Gunnar skellihlæjandi og rifjar upp að eiginkona hans, Björk Jakobs- dóttir, hafi í framhaldinu sagt honum í grófum dráttum um hvað bókin ætti að vera. Mikilvægi góðra fyrirmynda „Í fyrri bókunum fjórum hefur Palli verið tilfinningalegt akkeri fjöl- skyldunnar, þar sem ekkert haggar honum. Ég ákvað hins vegar að hagga honum aðeins í nýjustu bók- inni. Hann lendir í því versta sem hann gæti hugsað sér að kæmi fyrir og líka því næstversta. Stella ákveður að hjálpa honum þó það sé enginn að biðja hana um það – þvert á móti. Því Palli margbiður hana að skipta sér ekki af hans málum,“ segir Gunnar og bendir á að fólk verði að fá að gera sín mistök í friði og jafnframt leið- rétta þau sjálf í friði. Aðspurður segist Gunnar hugsi yfir því hversu miklum tíma mörg börn og ungmenni eyða í tölvu- leikjum. „Að stórum hluta er það okkur sjálfum, fullorðna fólkinu, að kenna því við kaupum handa þeim leikjatölvurnar og leikina til þess að afla sjálfum okkur vinsælda,“ segir Gunnar og bendir á mikilvægi þess foreldrar séu góðar fyrirmyndir. Leggjumst upp í sófa að lesa „Ef krakkarnir sjá okkur lesa þá er það hvatning fyrir þau að lesa. En ef þau sjá okkur alltaf vera að rýna í skjá, hvort heldur er tölvuskjá eða snjallsímana okkar, þá læra þau auð- vitað það sem fyrir þeim er haft. Við ættum því oftar að leggjast upp í sófa og lesa og jafnvel lesa saman, því það er svo huggulegt,“ segir Gunnar og tekur fram að hann eigi engar töfra- lausnir. Eitt af því sem Gunnar beinir sjón- um sínum að í bókinni er hvað felist í því að vera áhrifavaldur. „Því Stellu stendur það til boða að verða áhrifa- valdur,“ segir Gunnar. „Hún bregst við … Ja, nú ætla ég ekki að segja of mikið. Fólk verður bara að lesa bók- ina. Heilt yfir getum við sagt að Stella taki margar rangar ákvarðanir í bókinni og aðeins eina og eina rétta,“ segir Gunnar kíminn. Stórkostlegt ævintýri Talið berst í framhaldinu að því hversu myndrænar bækur Gunnars eru og liggur beint við að spyrja hvort þar skrifi leikstjórinn og leik- arinn Gunnar. „Það er ekkert leynd- armál að ég skrifaði þessar bækur með það í huga að vonandi gætu þær farið á svið og jafnvel á hvíta tjaldið eða flatskjáina. Mig langar alltaf að bækurnar fái áframhaldandi líf,“ seg- ir Gunnar, en Mamma klikk! var sett upp í Gaflaraleikhúsinu 2019 og kvik- myndin Víti í Vestmannaeyjum var frumsýnd 2018. „Bæði myndin og leiksýningin voru stórkostlegt ævin- týri og draumur fyrir mig sem höf- und að sjá efnið lifna við í nýjum miðli.“ Spurður hvort búast megi við því að Pabbi prófessor rati á svið hjá Gaflaraleikhúsinu fljótlega svarar Gunnar því neitandi. „Okkur langaði til þess, en það er ekki hægt án fjár- magns,“ segir Gunnar og tekur fram að hann vonist engu að síður til þess að allar Stellu-bækurnar eignist framhaldslíf í sjónvarpsformi. „Það er ólýsanleg tilfinning að sjá eigin bók verða að hvort heldur er leiksýn- ingu eða kvikmynd. Það er mitt uppá- hald og þess vegna er ég alltaf að stefna á framhaldslífið. Það er svo bara hreinn bónus að fá að skrifa handritið, leika eða leikstýra í aðlög- uninni. Þá er ég í himnaríki,“ segir Gunnar og tekur fram að hann sé nýbúinn að ljúka við bók sem nefnist Alexander Daníel Hermann Dawids- son. „Hún er rakin kvikmynd,“ segir Gunnar og hlær dátt. Gaman að heyra krakka hlæja „Í ágúst er síðan væntanleg bókin Drottningin sem kunni allt nema … sem ég kláraði í vor með Rán Flygen- ring. Sú bók verður sviðsett hjá Gafl- araleikhúsinu á næsta leikári, en við fengum styrk frá sviðlistaráði fyrir henni,“ segir Gunnar sem ætlar sjálf- ur að leikstýra uppfærslunni. „Þetta verður lítil og falleg sýning,“ segir Gunnar sem leikstýrði síðast barna- sýningunni Hvítt hjá Gaflara- leikhúsinu 2016. „Það er svo gaman að heyra krakka hlæja, hvort heldur það er þegar ég er sjálfur að leika, lesa upp eða leikstýra. Það er ekkert betra í heiminum en þegar þau springa úr hlátri,“ segir Gunnar. Ekki er hægt að sleppa Gunnari án þess að spyrja hvort von sé á fleirum bókum í Stellu-seríunni. „Ég er að minnsta kosti þegar kominn með hugmyndina að næstu bók í seríunni. Mér var bent á að það ætti eftir að skrifa bókina um Hanna granna og þegar ég fattaði að það er einn laus endi eftir með Hanna þá sá ég fyrir mér að gaman væri að elta þann þráð. Meira get ég ekki sagt á núver- andi stundu,“ segir Gunnar, en svo skemmtilega vill til að Felix Bergs- son, góður vinur og samstarfsfélagi Gunnars til margra ára, fór með hlut- verk Hanna granna í uppfærslu Gafl- araleikhússins. „Að lokum langar mig að svara þeim mörgu krökkum sem spurt hafa mig hvenær Palli Playstation rati inn á Storytel,“ segir Gunnar sem sjálfur les allar bækur sínar inn. „Það gerist ekki fyrr en eftir ár, en í sárabætur ákvað ég að útbúa hlaðvarpsþætti um Stellu, fjölskyldu hennar og Hanna granna sem komnir eru inn á Story- tel og heita Meira um Stellubæk- urnar. Sigþrúður Gunnarsdóttir, rit- stjóri minn, tekur þar viðtöl við allar persónur bókarinnar,“ segir Gunnar, en með hlutverkin fara leikararnir sem léku í uppfærslu Gaflaraleik- hússins á sínum tíma. Ljósmynd/Magnea Birgisdóttir Stuð „Það er ekkert betra í heiminum en þegar þau springa úr hlátri,“ seg- ir Gunnar Helgason, rithöfundur og leikari, og vísar þar til hlæjandi barna. „Þá er ég í himnaríki“ - Gunnar Helgason sendir frá sér fimmtu bókina í Stellu-seríunni - Segist þegar kominn með hug- mynd að næstu Stellu-bók - Vinnur að því að tryggja bókunum framhaldslíf á skjánum eða sviðinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.