Morgunblaðið - 23.06.2021, Side 4

Morgunblaðið - 23.06.2021, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2021 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég hef aldrei heyrt um hund á upp- boði, þetta er nýtt,“ segir Guðný Rut Isaksen, framkvæmdastjóri Hunda- ræktarfélags Íslands. Sýslumaðurinn á höfuðborgar- svæðinu auglýsti í Morgunblaðinu í gær uppboð til slita á sameign. Á þriðjudaginn næsta verður boðinn upp enskur setter-hundur sem kall- ast Rjúpnabrekku-Blakkur. Tekið er fram í auglýsingunni að greiða þurfi fyrir hundinn við hamarshögg. Samkvæmt upplýsingum frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæð- inu er ekki vitað til þess að hundur hafi áður verið boðinn upp á vegum embættisins. Komið hefur fyrir að hestar séu boðnir upp en ekki önnur dýr. Guðný segir við Morgunblaðið að hundar falli undir lög um lausafjár- kaup. „Og það er auðvitað tíma- skekkja að sömu lög gildi um hunda og að kaupa sér bíl. Þetta er eitthvað sem þarf að athuga.“ Hún segir að þó nokkuð sé um enska settera á Íslandi og sérstök deild er fyrir þá innan Hundarækt- arfélagsins. „Þetta eru afskaplega góðir veiðihundar og þeir sem fá sér svona hund eiga það til að fá sér aldrei aðra tegund. Þeir eru mjög öflugir.“ Hún kveðst ekki treysta sér til að segja til um hvað enskur setter- hundur kosti. „Það þarf augljóslega að borga meira fyrir þjálfaðan veiði- hund en fyrir hvolp. Fólk leggur mikla vinnu í þjálfunina fyrir utan auðvitað tilfinningatengslin sem það myndar við hundinn.“ Veiðihundur seldur á uppboði - Ekki vitað til þess að hundar hafi áður ratað á uppboð Ljósmynd/Wikimedia Commons Öflugur Ensku setterarnir eru sagðir vera frábærir veiðihundar. Héraðsdómur í Svendborg í Dan- mörku dæmdi í gær íslenskan karl- mann í fjögurra ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dóttur sinni. Einnig var manninum vísað úr landi í Danmörku að lokinni afplán- un dómsins. Brotin framdi maðurinn gegn stúlkunni á árunum 2006 til 2010 eða frá því hún var fimm ára gömul þar til hún varð níu ára. Stúlk- an er nú danskur ríkisborgari. Í tilkynningu frá lögreglunni á Fjóni, sem Ritzau-fréttastofan vitn- ar til, segir að maðurinn, sem nú er 51 árs, hafi ávallt lýst yfir sakleysi sínu við réttarhöldin og hafi þegar áfrýjað dómnum til Eystri landsrétt- ar. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa nauðgað dóttur sinni þegar þau voru á Íslandi og einnig í sumar- húsi á Fjóni. Stúlkan hefur ekki átt nein samskipti við föður sinn frá árinu 2010. Embættismenn í Nyborg á Fjóni kærðu málið til lögreglu árið 2018 eftir að stúlkan greindi frá því hvað hún hefði upplifað í æsku. Við rann- sókn lögreglu kom í ljós að maðurinn dvaldi á Spáni og hann var úrskurð- aður í gæsluvarðhald að sér fjarver- andi í júní á síðasta ári. Í kjölfarið var gefin út evrópsk handtökuskipun á hendur manninum og hann var handtekinn í Alicante í október. Í tilkynningu lögreglunnar segir að málið sé að mörgu leyti óvenju- legt. Um sé að ræða fjölda brota, sem hinn ákærði hafi framið gegn eigin dóttur. Þá hafi liðið langur tími frá því brotin voru framin og þar til þau voru kærð. Því hafi ákæruvaldið orðið að reiða sig á framburði vitna því engin bein sönnunargögn hafi verið fyrir hendi. Það hafi ráðið úr- slitum að stúlkan hafði trúað tveim- ur vinkonum sínum fyrir því sem gerðist tiltölulega skömmu eftir at- burðina. Dæmdur í fjög- urra ára fangelsi - Fundinn sekur um brot á dóttur sinni ir. Í bakgrunni glittir í Reynisdranga. Hestamannafélagið Sindri og Vík Horse Adventure halda þessa vikuna reiðnámskeið, ætlað Efnilegir knapar á ferð um ströndina við Víkurfjöru, sumir hverj- ir teymdir áfram af reynsluboltum en aðrir færir um að ríða sjálf- börnum sem fædd eru 2015 og fyrr. Knaparnir virðast hafa notið sín vel í reiðtúr gærdagsins enda viðraði ágætlega til útivistar. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Ungir og upprennandi knapar á ferð um Víkurfjöru Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Múlaþing hefur gengið frá kaupum á fimm af þeim sex íbúðum sem eru á hættusvæði vegna ofanflóða við Stöðvarlæk, utan við stóru skriðuna sem féll á Seyðisfjörð í desember. Fasteignamat helmings íbúðanna er hærra en staðgreitt markaðsverð og hefur sveitarfélagið keypt tvær eign- anna á því verði þótt ofanflóðanefnd hafi hafnað því að endurgreiða kaup- verð umfram markaðsverð. Ekki hefur verið heimilað að búa í umræddum íbúðum við Stöðvarlæk frá því skriðurnar miklu féllu á Seyð- isfirði í desember. Stöðvarlækur er utan við stóru skriðuna. Við mat á vörnum er ekki talið tryggt að hægt sé að verja þessi hús fyrir stórum skriðum. Því verður að kaupa þau. Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings, segir að sveitarstjórn hafi þótt eðlilegt að greiða fasteigna- matsverð fyrir húsin, í þeim tilvikum sem það er hærra en markaðsverð. Nefnir hann að sveitarfélagið hafi innheimt fasteignaskatt og önnur fasteignagjöld af eigendum húsanna miðað við fasteignamat. Ofanflóða- sjóður á að standa undir kaupverð- inu en ofanflóðanefnd var ekki sam- mála afstöðu sveitarfélagsins og hafnaði ósk þess um aukna aðkomu Ofanflóðasjóðs og vísaði til reglna sinna. Ekki hefur verið lokið samn- ingum um kaup á öllum húsunum en Björn áætlar að munur á verði þeirra húsa þar sem fasteignamat er hærra en markaðsverð geti orðið um fjórar milljónir króna í heildina. Sá kostnaður lendir á sveitarfélaginu, að óbreyttu. Verði áfram bæjarprýði Ráðgjafarnefnd hefur skilað um- hverfis- og skipulagsnefnd Múla- þings tillögum um færslu húsa utan Búðarár. Var málið rætt á fundi byggðaráðs í gær. Björn segir að hópurinn hafi lagt til nýja staðsetningu húsa af hættu- svæðum, ef ákveðið verður að flytja þau. Húsunum hefur verið fundinn staður í gömlu byggðinni, meðal ann- ars í nágrenni kirkjunnar, þar sem þau falla vel að þeim húsum sem fyr- ir eru og verði áfram bæjarprýði. Þetta á meðal annars við þau hús við Stöðvarlæk sem sveitarfélagið er að kaupa. Umhverfis- og framkvæmdaráð lagði til að málefni húss sem nefnt er Gamla ríkið verði sett í forgang. Björn segir að sum húsin teljist menningarminjar sem full ástæða sé að horfa til flutnings á en engar ákvarðanir hafi verið teknar um það. Úrvinnsla á þessum tillögum sé að hefjast. Spurður um kostnað við flutning húsanna og fjármögnun hans segir Björn að það liggi ekki fyrir. Á hann von á því að fulltrúar sveitarfélagsins setjist niður með fulltrúum stjórnvalda til að ræða málið enda sé flutningur húsanna hluti af framtíðaruppbyggingu Seyð- isfjarðar eftir hamfarirnar í vetur. Tækniminjasafnið minnisvarði Hús Tækniminjasafnsins eyði- lagðist að hluta. Ljóst er að það verð- ur ekki endurbyggt, að sögn Björns, en ekki er lagt til að það verði rifið. Segir Björn hugmyndir uppi um að húsið verði látið standa á sínum stað sem eins konar minnisvarði um ham- farirnar. Yrði þá eitthvað sett upp í því sem tengist því hlutverki. Greiða hærra verð fyrir húsin - Múlaþing tekur á sig aukakostnað með því að kaupa hluta húsa á hættusvæðum á hærra verði en Ofanflóðasjóður vill greiða - Ákveðnir staðir í gamla bænum fyrir hús sem ákveðið verður að flytja Morgunblaðið/Eggert Frá Seyðisfirði Húsin við Stöðvarlæk standa utan við aurskriðusvæðið og eru ystu íbúðarhúsin sem sjást á myndinni. Þau standa á hættusvæði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.