Morgunblaðið - 23.06.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.06.2021, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrri umferðhéraðs-stjórn- arkosninga í Frakklandi fór fram um helgina, og þótti þar helst til tíðinda, að flokkur Emmanuels Macron Frakklandsforseta, En Marche!, hlaut einungis um 10,9% atkvæða í heildina. Slapp flokkurinn þar með rétt svo yfir þann þröskuld sem þurfti til að mega taka þátt í seinni umferð kosninganna, en kosningakerfið er hannað svo til að tryggja að starfhæfir meirihlutar náist í öllum héruðum ef fyrri umferð- in dugar ekki til. Héruðin sem slík eru ekki valdamikil, en hafa þó yfir ýms- um fjármunum að ráða. Engu að síður er oftast litið á héraðs- kosningar sem nokkurs konar „skoðanakönnun“ eða vísbend- ingu um hvers megi vænta í þing- eða forsetakosningum, sem þykja skipta meira máli. Í ljósi þess að Macron mun sækj- ast eftir endurkjöri sem forseti á næsta ári, er niðurstaðan um helgina því ekki neitt sér- staklega upplífgandi fyrir hann, jafnvel þótt persónufylgi hans á landsvísu sé mun hærra en fylgi flokksins. Helsta huggun Macrons kann að felast í því, að Þjóð- fylkingin, sem Marine Le Pen leiðir, var einnig langt undir væntingum. Hún hlaut einungis um 19,3% greiddra atkvæða, eftir að hafa verið spáð mun meira fylgi. Eygði flokkurinn jafnvel von um að ná í fyrsta sinn meiri- hluta við frönsku Rivíeruna, en þær vonir voru sagðar í hættu eftir helgina, þar sem kjósendur annarra flokka gætu nú tekið höndum saman í seinni umferð- inni til þess að koma í veg fyrir slíkt. Það sem veldur þó líklega öll- um flokkum mestu hugarangri eftir helgina er að kjörsóknin var einungis um 32%, en svo lök kjörsókn sætir tíðindum í Frakklandi, og mundi raunar gera það víðast hvar. Le Pen hafði sjálf á orði eftir kosning- arnar að kjörsóknin hefði „skekkt“ niðurstöðuna, og að brýnt væri að bæta þar úr, en hún stefnir að því að keppa við Macron um forsetaembættið á næsta ári. Léleg kjörsókn er almennt vísbending um að fólk telji við- komandi kosningar ekki skipta máli, eða að litlu skipti hver fari með völdin, fátt muni breytast. Slík þreyta er mikið hættumerki fyrir lýðræðið í viðkomandi ríki. Það mun koma í ljós um næstu helgi, hvort lé- leg kjörsókn fyrri umferðar verður til að vekja franska kjósendur og hvetja til dáða. Hitt, sem virðist líklegra, er að hvorki Macron né Le Pen takist að draga fólk á kjörstað, og með því sendi kjósendur þeim báðum annað viðvörunarskot. Macron og Le Pen tapa bæði í héraðs- kosningunum} Annað viðvörunarskot? Bandaríska varn-armálaráðu- neytið lýsti því yfir á mánudaginn, að það kæmi til greina að „hægja á“ fyrir- hugaðri brottför Bandaríkja- hers frá Afganistan, í ljósi þess hversu mjög talibanar hefðu sótt fram gegn réttkjörnum stjórn- völdum síðustu daga og vikur. Yfirlýsingin frá Pentagon var vart þornuð á pappírnum í gær, þegar þau tíðindi bárust frá Afg- anistan, að talibanar réðu nú yf- ir landamærum landsins að ná- grannaríkinu Tadsjíkistan. Reynt var að réttlæta brott- förina á sínum tíma með því að nú færi í hönd friðarferli í Afg- anistan, þar sem reynt yrði að fá talibana að borðinu með stjórn- völdum í Kabúl. Allt framferði talibana fram að því hafði þó bent til þess, að þeir væru ein- ungis að bíða þess að hinir er- lendu hermenn yfirgæfu landið, og svo yrði hafist handa við að leggja það undir sig. Bandaríkjastjórn hugðist upphaflega ætla að ljúka brott- flutningi herliðs síns fyrir 11. september næstkomandi, en þann dag verða tuttugu ár liðin frá voðaverkunum miklu sem knúðu vesturveldin til þess að steypa tali- bönum af stóli. Þeir höfðu þá þegar fótum troðið lýðréttindi í landi sínu, afnumið réttindi kvenna, eyðilagt ómetanleg menningarverðmæti og skotið skjólshúsi yfir alþjóðleg hryðju- verkasamtök. Ekkert bendir til að þeir muni hegða sér á annan hátt nú, nái þeir völdum. Þó að skiljanlegt sé að stríðs- þreyta ríki í Bandaríkjunum eft- ir allan þann tíma, er nöturlegt að lokaniðurstaða tveggja ára- tuga átaka verði þau, að þeir hinir sömu sem ýttu undir eymd almennings í Afganistan og studdu hryðjuverk erlendis skuli nánast fá greiða leið aftur í valdastólana. Það er því full ástæða fyrir Bandaríkjastjórn til þess að endurskoða ákvörðun sína um brottflutning herliðsins, auk þess sem önnur ríki ættu að leitast við að styðja við aðgerðir til að verja frið og reyna að stuðla að viðunandi stjórnarfari í Afganistan. Talibanar sýna sitt rétta eðli og und- irbúa valdatöku á ný} Ástæða til endurskoðunar T ilraun forsætisráðherra til breyt- inga á stjórnarskránni sigldi í strand, að því er virðist vegna áhugaleysis þeirra sem stóðu að málinu. Rökin fyrir strandinu eru sögð vera að ekki ríki fullkomin sátt um breytingar á stjórnarskrá en hefði áhugi verið fyrir hendi hjá forsætisráðherra hefði verið hægðarleikur að klára málið. Heims- faraldri verður ekki kennt um þessi vinnu- brögð. Frá lýðveldisstofnun hefur staðið fyrir dyrum að semja okkur stjórnarskrá sem þá yrði samfélagssáttmáli lítillar eyþjóðar en ekki nánast óbreytt afrit af stjórnarskrá danska konungsríkisins. Fjöldi nefnda sem hafa verið að störfum er nánast óteljandi og afrakstur ekki mikill ef frá er talin sjálfsögð viðbót við stjórnarskrána þegar mannréttindakafla stjórnarskrárinnar var bætt við á síðasta áratug síðustu aldar. Það sem veldur ósættinu eru miklir hagsmunir valds og fjármagns. Valds sem er samtvinnað ákveðnum stjórnmálaöflum hér á landi sem ríkt hafa nánast óslitið frá lýðveldisstofnun. Afleikur forsætisráðherra í upphafi var að virða að vettugi þá faglegu, lýðræðislegu og málefnalegu vinnu sem farið var í á kjörtímabilinu 2009-2013 að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur, þá forsætisráðherra. Jóhanna hafði áratugum saman talað fyrir nauðsynlegum breyt- ingum á stjórnarskrá, að jafna þyrfti atkvæðisrétt allra landsmanna og að auðlindir skyldu vera í eigu þjóðar og nýtingu úthlutað tímabundið, gegn gjaldi til eigenda þeirra. Hið lýðræðislega ferli sem þá var farið í fólst ekki í að handvelja fólk til setu í stjórnar- skrárnefnd eða til ritunar ákveðinna ákvæða heldur var ferlið allt mun faglegra og í sam- vinnu þjóðar; þjóðfundur og svo stjórnlagaráð 25 einstaklinga sem skipað var af Alþingi, drög að nýrri stjórnarskrá samin sem að megin- þorra til er byggð á núgildandi stjórnarskrá en aðrir kaflar ýmist skapaðir eða þeim breytt. Í hinni nýju stjórnarskrá sem skilað var til þings var til dæmis að finna ákvæði um arð af sam- eiginlegum auðlindum sem renna skyldi til þjóðarinnar, ákvæði um náttúruvernd og gagn- sæja stjórnsýslu, ákvæði um jafnt vægi at- kvæða og persónukjör, vernd fjölmiðla og upp- ljóstrara og framsalsákvæði svo dæmi sé tekið. Hið síðastnefnda hefur verið rætt óteljandi sinnum með- al lögfræðinga á opinberum vettvangi sem og fyrir fasta- nefndum Alþingis enda sambærilegt ákvæði talið nauð- synlegt og sett rakleitt inn í stjórnarskrá Noregs við aðild að evrópska efnahagssvæðinu en ekki okkar. Sú fullkomna sátt sem valdið telur nauðsynlegt að sé á breytingum á stjórnarskrá er ekki möguleg því um það ríkir engin sátt. Það er ekki sátt um þeirra tillögu, að gera engar breytingar. Sérhagsmunir eiga ekki að ráða för þegar kemur að breytingum á stjórnarskrá heldur hagsmunir almennings. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Fullkomin sátt um ekkert Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is V ið erum að sjá mikla fjölgun tilkynninga vegna van- rækslu á börnum, eða um 21,5% milli ára. Þetta eru allt saman mál sem tekur tíma að vinda ofan af. Það kostar mannafla og það þurfa að vera til úrræði við hæfi. Þetta verður verkefni barnaverndar- kerfisins næstu árin,“ segir Heiða Björg Pálmadóttir, forstjóri Barna- verndarstofu. Yfir 3.500 tilkynningar Mikil fjölgun varð á tilkynn- ingum til barnaverndarnefnda á fyrstu þremur mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Barnavernd- arstofu. Nemur aukningin 17,5% en tilkynningar voru alls ríflega 3.500 talsins. Flestar voru þær vegna van- rækslu á börnum líkt og verið hefur síðustu ár. Alls voru 43,9% tilkynning- anna vegna vanrækslu. Næstflestar tilkynningar voru vegna áhættuhegð- unar barna og þar á eftir komu til- kynningar vegna ofbeldis í garð barna. Aukið heimilisofbeldi Í samantekt Barnaverndarstofu kemur fram að tilkynningar er varða heimilisofbeldi voru 43,1% fleiri á fyrstu þremur mánuðum ársins 2021 en á sama tímabili árið áður. Óhugnanlegar tölur koma fram um tilkynningar vegna kynferðisof- beldis. Þær voru alls 224 talsins á fyrstu þremur mánuðum ársins en það eru 86,7% fleiri tilkynningar en á sama tíma árið 2020. „Raunar er stað- an sú að sá fjöldi tilkynninga sem hafa borist barnaverndarnefndum á fyrstu þremur mánuðum ársins 2021 er svip- aður fjölda slíkra tilkynninga sem bárust barnaverndarnefndum á fyrstu 6 mánuðum síðastliðinna ára,“ segir í samantekt Barnaverndarstofu. Vilja fá hentugra húsnæði „Við vorum með metár í skýrslu- tökum í Barnahúsi í fyrra. Árið í ár virðist ætla að verða töluvert stærra í skýrslutökum en 2020 var. Þeim fjölg- ar um 158% fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Það er rosaleg sprenging,“ segir Heiða Björg. Hún segir að öll þessi börn þurfi þjónustu. „Barnahús var sprungið fyrir Covid og þessi aukning er því mikið áhyggjuefni. Fyrir skemmstu vorum við með 15 skýrslutökur á einni viku, þrjár á dag. Við erum bara með eitt skýrslutökuherbergi. Það er undirlagt allan daginn, alla vikuna. Okkur vantar annað húsnæði með tveimur skýrslutökuherbergjum og starfsfólk bæði til að taka skýrslurnar og veita þjónustu við þau börn sem greina frá ofbeldi og þurfa áfalla- meðferð.“ Stúlkur með hegðunarvanda Í samantekt Barnaverndarstofu kemur fram að umsóknum um með- ferðarúrræði á vegum Barnaverndar- stofu fækkaði á fyrstu þremur mán- uðum þessa árs frá sama tíma í fyrra, úr 48 umsóknum í 38. Flestar um- sóknir bárust um MST, en það er meðferðarúrræði fyrir fjölskyldur barna á aldrinum 12-18 ára sem glíma við alvarlegan hegðunarvanda á mörgum sviðum. Fleiri umsóknir um þá meðferð bárust fyrir stúlkur en drengi en því hefur síðustu ár verið öfugt farið. Færri beiðnir um fóstur Færri beiðnir bárust um fósturheimili og tímabundið fóstur á umræddu tímabili. Umsóknum um leyfi til að gerast fósturfor- eldrar fjölgaði hins vegar fyrstu þrjá mánuði ársins. Þær voru 14 á þessu ári samanborið við 11 um- sóknir árið 2020. Vanræksla á börnum er mikið áhyggjuefni Í skýrslu Barnarverndarstofu kemur fram að vistunum á lok- aðri deild á Stuðlum fækkaði úr 52 í 28 á fyrstu þremur mán- uðum ársins 2021 miðað við sama tímabil árið á undan. Vist- unardögum fækkaði úr 232 dög- um á fyrstu þremur mánuðum ársins 2020 í 117 daga fyrir sama tímabil á árinu 2021. „Alls komu 22 börn á lokaða deild á fyrstu þremur mánuðum ársins 2021, en þau voru 30 á sama tímabili á árinu 2020,“ segir í skýrslunni. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra barna sem vistuð voru á lokaðri deild á Stuðlum voru strákar. Alls voru 19 strákar vistaðir þar en þrjár stúlkur. Hef- ur hlutfall stráka aukist á milli ára, er nú ríflega 86% en var 77% á sama tíma í fyrra og 48% árið 2019. Mikill meiri- hluti strákar VISTANIR Á STUÐLUM Heiða Björg Pálmadóttir 1.500 1.200 900 600 mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. 2020 2021 Fjöldi tilkynninga til barnaverndarnefnda Heildarfjöldi tilkynninga frá mars 2020 til febrúar 2021 H ei m ild :B ar n av er n d ar st o fa 13.399 tilkynningaralls bárust á þessu 12 mán. tímabili

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.