Morgunblaðið - 23.06.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.06.2021, Blaðsíða 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2021 Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Litasprengjur, klippimyndir, peysuföt og falin andlit mæta þeim gestum er heimsækja Safnasafnið við Svalbarðsströnd rétt fyrir utan Akureyri í sumar. Þemað á sum- arsýningunum í ár fjallar um hina svipbrigðaríku tjáningu í nánd inn- an félagslegra takmarkana en fjöl- breyttur hópur listamanna birtir verk sín þar og eru þeir yngstu á leikskólaaldri. Alls verða 12 sum- arsýningar en safnið mun standa opið daglega milli klukkan 10 og 17 fram til 12. september. Níels Hafstein, annar af stofn- endum safnsins og núverandi safn- stjóri, lýsir því að hér sé um hrif- næmar sýningar að ræða og segir hann gestina jafnframt duglega að tjá ánægju sína á samfélagsmiðl- um. „Sumir fá tár í augun, halda um hjartað og geta varla talað af hrifningu. Það eru litasprengjur í öllum þessum rýmum og það vek- ur upp tilfinningar hjá fólki.“ Andlit áberandi í verkunum Í anda þemans eru andlit afar áberandi þáttur í sýningunum í ár en listafólkið notar fjölbreyttar leiðir og efnivið til að útfæra verk sín en meðal annars verða til sýnis grímur úr fuglabringum og öðru náttúrulegu efni eftir Vilmund Þorgrímsson, glettin útsaumsverk eftir Loja Höskuldsson og sígildar klippimyndir eftir Örn Karlsson. Spurður hvernig þemað hafi komið til segir Níels að ákvörð- unin hafi verið frekar tilviljunar- kennd. „Þetta kom nú eiginlega bara óvart upp. Við vorum að vinna að undirbúningi sýningar og vorum að rannsaka málverk eftir Sigurð Einarsson þegar við sáum að það voru alls staðar falin andlit í verkinu. Sum voru áberandi en svo þegar maður fór að skoða myndina komu fleiri og fleiri í ljós.“ Safnasafnið leitar eftir því að fá verk eftir ófaglært listafólk, nýút- skrifaða nemendur eða ein- staklinga sem fá síður tækifæri að sýna á öðrum söfnum. „Það er svo skemmtilegt yfir- bragð yfir listaverkum ólærðra listamanna á Íslandi. Við erum að reyna að lyfta þessu fólki upp, setja það á sama stall og lærða listamenn,“ segir Níels og bætir við að nú sé safnið að leita að kvenkyns listamönnum sem litið hefur verið fram hjá og hafa ekki fengið verðskuldaða athygli. Meðal þeirra listamanna sem sýna á sumarsýningunni er hópur úr grunn- og leikskóla á Sval- barðseyri. Krakkarnir eru alvanir og hafa alist upp með safninu og sýna á hverju ári. Níels segir það koma sér sífellt á óvart hve hæfi- leikaríkir og hugmyndaglaðir þess- ir hópar séu. Spennandi tímar fram undan Nú þegar hafa margir heimsótt sýningarnar en í maí komu rúm- lega 500 gestir á safnið. Að sögn Níels eru þetta mestmegnis Ís- lendingar þótt eitthvað sé farið að bóla á erlendum ferðamönnum, þá aðallega fullbólusettum Banda- ríkjamönnum. Hann segir að safn- ið hafi alls fengið 101 erlendan ferðamann í fyrra en hann sér fram á að sumarið í ár verði gott. Í september verður svo sérsýn- ing sem kallast Tímahylkið og fjallar hún um yfirstandandi heimsfaraldur en nemendur og fjölskyldur þeirra í hreppnum unnu saman að verkefninu og er Anna Heiður Oddsdóttir sýning- arstjóri verkefnisins. Voru krakk- arnir meðal annars beðnir um að velta fyrir sér áhrifum kórónuveir- unnar á líf þeirra í dag og mögu- lega í framtíðinni. Eftir sýninguna í september verða listaverkin sett í tímahylki sem fara í geymslu í 100 ár. Fellur það svo í hendur komandi kynslóða að lesa í og greina svörin sem finnast í þessum hylkjum. Litasprengjur og verk í tímahylkjum - Spennandi sumarsýningar standa nú yfir á Safnasafninu við Svalbarðsströnd - Safnstjóri segir gesti hafa tárast af hrifningu - Þemað svipbrigðarík tjáning í nánd innan félagslegra takmarkana Forvitnilegt Nemendur úr Valsárskóla fylgjast með skemmtitækjasýningu Níelsar Hafstein safnstjóra Safnasafns- ins og í bakgrunni má sjá verk nemendanna. Tólf sumarsýningar hafa verið opnaðar í safninu á Svalbarðsströnd. Útsaumur Verk eftir Loja Höskuldsson. Andlit Verk eftir Sigurð Einarsson á sýningu í safninu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.