Morgunblaðið - 23.06.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.06.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2021 JARÐGERÐARÍLÁT BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN MOLTU ! www.gamafelagid.is 577 5757 igf@igf.is Jarðgerðarílátið er 310 lítra og er hugsað fyrir þá sem vilja prófa sig áfram við moltugerð. Um það bil 30-35% af heildarmagni heimilissorps er lífrænn úrgangur sem má jarðgera. Afurð jarðgerðarinnar, moltan, nýtist sem næringarríkur áburður fyrir garðinn. Jarðgerðarílátið er hægt að panta í vefverslun okkar eða í síma 577 5757. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, sagði í gær að hann vonaðist til þess að náðun níu katalónskra að- skilnaðarsinna myndi verða til þess að hefja „nýjan kafla“ í samskiptum Spánar og Katalóníuhéraðs. Aðskilnaðarsinnarnir níu voru fangelsaðir fyrir þátt sinn í umdeildri þjóðaratkvæðagreiðslu og síðar sjálf- stæðisyfirlýsingu Katalóníuhéraðs haustið 2017. „Með þessu viljum við opna á nýtt svið samræðu og sátta og loka í eitt skipti fyrir öll á misklíð og átök,“ sagði Sanchez þegar hann tilkynnti um ákvörðun sína. Ekki var ljóst hve- nær nímenningunum yrði sleppt úr haldi, en víst þótti að það yrði á allra næstu dögum. Meinað stjórnmálastarf Nímenningarnir voru dæmdir árið 2019 til fangelsisvistar á bilinu níu til tólf ára fyrir þátt sinn í sjálfstæðis- viðleitni aðskilnaðarsinna 2017. Sanc- hez sagði að náðun þeirra væri skil- yrðum háð. Til dæmis verður öllum níu meinað að sitja í opinberum emb- ættum. Þá þurfa þeir að halda skilorð um ákveðinn tíma, og mega þá ekki fremja „alvarlega glæpi“ meðan á skilorði stendur. „Spænska ríkisstjórnin hefur ákveðið þetta, því þetta er best fyrir Katalóníu og fyrir Spán,“ sagði Sanc- hez. Stjórnarandstöðuflokkar lands- ins hafa hins vegar gagnrýnt ákvörð- unina, þar sem þeim þykir of vægt tekið á aðskilnaðarsinnunum. Saka þeir Sanchez um að hafa látið póli- tíska hentivinda ráða för, en minni- hlutastjórn hans treystir meðal ann- ars á stuðning katalónskra aðskiln- aðarflokka. Þá hafa óánægjuraddir einnig heyrst meðal sjálfstæðissinna í Kata- lóníu, þar sem þeir vildu að fólkið yrði náðað án nokkurra skilyrða, sem og að þeim sem flúðu land yrði veitt frið- helgi vegna atburðanna 2017. Sanchez hefur hins vegar útilokað það, sem og möguleikann á því að Katalónar muni aftur fá að kjósa um sjálfstæði sitt. „Spánn án Katalóníu væri einfaldlega ekki Spánn, líkt og Katalónía án hinna héraða Spánar yrði ekki Katalónía,“ sagði hann. Nímenningarnir náðaðir - Sanchez vonast eftir „nýjum kafla“ í samskiptum Spánar og Katalóníuhéraðs Taílendingurinn Kittichai Boodchan birti á dög- unum myndband af fíl einum, sem hefur gert sig heimakominn í eldhúsi fjölskyldu hans, en þau tichai einu regluna þá að gefa fílnum ekki mat, enda færi hann þá oftast nær af sjálfsdáðum, þegar ekkert væri til að bíta og brenna. búa nálægt þjóðgarði í vesturhluta landsins. Skaut fíllinn inn kollinum um gat á vegg eldhúss- ins, sem hann gerði sjálfur í maí sl. Sagði Kit- AFP Minnist óspart á fílinn í eldhúsinu Áströlsk stjórnvöld sögðu í gær að þau hygðust mótmæla áformum UNESCO um að Kóralrifið mikla verði skrásett á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna sem minjar í „hættu“. Rifið var sett á heims- minjaskrána árið 1981, en UNESCO hefur varað við að ástandi þess hafi farið hrakandi á undanförnum árum. Tillaga UNESCO var lögð fram á mánudaginn, og var þar meðal ann- ars einnig lagt til að Feneyjar yrðu settar á rauða listann. Sussan Ley, umhverfismálaráð- herra Ástralíu, sakaði hins vegar UNESCO um að hafa gengið á bak orða sinna, og að stjórnmálalegar ástæður hefðu spillt réttu ferli málsins. Þá hefði stofnunin ekki tekið til greina þá miklu fjármuni sem Ástralar hefðu varið til þess að varðveita rifið. Sagði Ley að tillög- unni yrði mótmælt harðlega, en endanleg ákvörðun mun liggja fyr- ir í næsta mánuði. Mótmæla tillögu um Kóralrifið mikla Í hættu Kóralrifið mikla er sagt í hættu. ÁSTRALÍA Hvítrússnesk stjórnvöld for- dæmdu í gær samræmdar refsi- aðgerðir Bandaríkjanna, Evrópu- sambandsins, Kanada og Bretlands, sem settar voru á mánudaginn í refsiskyni fyrir handtökuna á stjórnarandstæð- ingnum Roman Protasevich. Sagði í yfirlýsingu utanríkisráðu- neytis landsins að aðgerðirnar myndu hafa neikvæð áhrif á al- menning í landinu, og að stjórn- völd myndu gera allt til að verja hagsmuni almennings og fyrir- tækja í landinu. Fordæma aðgerðir vesturveldanna HVÍTA-RÚSSLAND Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Talibanar hertóku í gær helstu landamærastöðvar Afganistan við nágrannaríkið Tadsjíkistan. Sögðu talsmenn stjórnvalda að landamæra- verðir hefðu yfirgefið varðstöðvar sínar, og jafnvel leitað sér skjóls hin- um megin við landamærin. Talibanar náðu meðal annars hafnarbænum Shir Khan Bandar á sitt vald, en hann liggur að Panj- fljótinu, sem er á landamærum Afg- anistans og Tadsjíkistans. Er bær- inn um 50 kílómetra frá Kunduz- borg, og er fall hennar talið einn stærsti sigur talibana frá því Banda- ríkin tilkynntu í maí að þau hygðust draga herlið sitt til baka á næstu mánuðum. Bærinn er einkar mikil- vægur fyrir stjórnvöld í Afganistan, þar sem mikið af viðskiptum lands- ins fer í gegnum höfnina í Shir Khan Bandar. Hafa friðarviðræður milli talibana og stjórnvalda í Kabúl siglt í strand. Mikil átök hafa ríkt milli talibana og afganska stjórnarhersins frá því í upphafi maímánaðar, ekki hvað síst í Kunduz-héraði, og segjast talibanar nú hafa náð öllum völdum í að minnsta kosti 87 af 421 héraði í land- inu. Stjórnvöld í Kabúl hafa hins vegar þvertekið fyrir það, en erfitt getur verið að fá slíkar upplýsingar staðfestar, sér í lagi í hrjóstrugri héruðum landsins. Deborah Lyons, helsti fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Afganistan, varaði í gær öryggisráðið við því að talibanar hefðu hertekið mikið af landsvæði sem umkringdi nokkrar af helstu borgum landsins. Sagði hún líklegt að talibanar myndu reyna að hertaka borgirnar þegar allar er- lendar hersveitir hefðu yfirgefið landið í haust. Afganski stjórnarher- inn segir hins vegar stóra aðgerð í bígerð, þar sem landvinningar talib- ana í vor og sumar verði teknir til baka. Náðu valdi á landamærunum - Bardagar háðir vítt og breitt um Afganistan AFP Afganistan Talibanar hafa sótt mjög í sig veðrið á síðustu vikum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.