Morgunblaðið - 23.06.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.06.2021, Qupperneq 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2021 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Mér þykir vænt um Háskóla Íslands. Ég er útskrifaður frá Háskóla Íslands, ég hef kennt við háskóla Íslands, ég var í mörg á formaður í ráðgjafanefnd Verk- fræðdeildar Háskóla Íslands. Í nærfellt fjög- ur ár hef ég orðið vitni að afgreiðslu háskólans á máli doktorsnema, af- greiðslu sem er með slíkum endemun að ég fæ ekki orða bundist. Byggingarverkfræðingur sem vann í 10 ár hjá virtri ráðgjafaverk- fræðistofu í Bandaríkjunum fluttist heim til Íslands með mjög góð með- mæli frá vinnuveitanda sínum og fékk vinnu hjá Rannsóknamiðstöð Háskóla Íslands í jarðskjálftaverk- fræði á Selfossi eftir að hafa unnið sem sjálfstætt starfandi verkfræð- ingur. Eftir um árs starf hjá rann- sóknamiðstöðinni kom forstöðumað- ur stofnunarinnar að máli við verkfræðinginn og stakk upp á að hún ritaði doktorsritgerð um jarð- skjálftaálag á lagnir í jörðu. Eftir Suðurlandsskjálftann 2008 var slíkt álag á frárennslislagnir í Hveragerði mjög til umræðu. Hún hófst handa en nokkru síðar veiktist forstöðu- maðurinn og lést. Hann hafði þá sent frá sér stöðurit þar sem hann sagði að um 30% doktorsritgerðarinnar væri lokið. Nokkru síðar var lausráð- inn Nepalbúi við háskólann ráðinn leiðbeinandi við ritgerðina. Dokt- orsneminn hafði þá fengið vilyrði um styrk frá Rannís, ca. 7-8 m.kr. sem sent var Verkfræðideild háskólans til umsýslu. Doktorsnemandanum tókst þó aldrei að fá neitt greitt. Hún óskaði eftir að fá styrkinn greiddan mán- aðarlega sem verktakagreiðslu. Ástæða þess var að hún hafði eytt verulegum tíma og upphæðum í að fara yfir ljósmyndir af lögnum í Hveragerði frá síðasta skjálfta og þurfti að kosta smíði stálmóta til prófunar á steinsteyptum frárennsl- isrörum. Henni var tjáð að hún fengi ekki þennan kostnað dreginn frá skatti ef styrkurinn væri greiddur út sem laun. Deildarforseti verk- fræðideildar neitaði því þrátt fyrir fordæmi um þannig meðferð styrks og vildi að hún hætti við tilraunir sem hún og leiðbeinandi höfðu talið nauð- synlegar og gert um skriflegt sam- komulag. Varð af þessu verulegur núningur milli nemans og deild- arforsetans. Nepalbúinn reyndist hafa lítinn tíma eða áhuga á að að- stoða doktorsnemann. Hann tjáði doktorsnemanum að ef hún leysti ekki ágreininginn við deildarforset- ann kæmi hann ekki nálægt verkefni hennar meira. Var greinilega undir þrýstingi frá deildarforsetanum sem átti erfitt með að fyr- irgefa doktorsnem- anum ákveðna afstöðu hennar. Nemanum var þá gert að taka miðbiks- próf sem hún gerði og skilaði um 35 blaðsíðna ritgerð. Próf þetta tók hún í júní 2017. Síðan hélt hún áfram áhyggjulaus vinnu að ritgerðinni án þess að fá vitneskju um nið- urstöðu prófsins. Um viku eftir prófið sendi nemandi inn útdrátt af grein á Evr- ópska jarðskjálftaráðstefnu, sem halda átti í Grikklandi sumarið 2018. Útdrátturinn var samþykktur og í framhaldinu skilaði neminn inn greininni og kynnti á ráðstefnunni. Fékk ekki prófsýningu þrátt fyrir ákvæði þar um í reglugerðum há- skólans Í ágúst 2017, rúmum tveim mán- uðum eftir próftökuna, tilkynnti skrifstofa háskólans henni bréflega að hún hefði fallið á prófinu og í sama bréfi rekin úr háskólanum. Viku eftir prófið var styrk hennar skilað til Rannís, og þá án hennar vit- undar og áður en niðurstaða prófs lá fyrir. Allt án þess að neminn gerði sér grein fyrir hvað væri að gerast. Hún fékk engar skýringar og hófst nú þriggja ára viðleitni hennar til að rétta hlut sinn. Hún kærði þessa málsmeðferð til sérstakrar kæru- nefndar, sem tók málið fyrir. For- maður nefndarinnar var Björg Thor- arensen, núverandi hæstaréttardómari. Úrskurður kærunefndarinnar var óvenjulegur. Þar segir að brotið hafi verið al- varlega á doktorsnemanum, allar ákvarðanir verkfræðideildarinnar væru felldar úr gildi og deildar- forseta falið að taka málið fyrir að nýju og fara að lögum. Verkfræðideildin sá ekki ástæðu til að biðja nemann afsökunar eða taka neina af ákvörðunum sínum upp. Ólíklegt verður að telja að Nep- albúinn,lausráðinn innflytjandi, hafi tekið upp hjá sjálfum sér að leysa upp doktorsnefndina, skila styrknum og reka nemann úr námi. Yfirmenn verkfræðideildar sem stöðugt lýsa því að þeir séu ekki vanhæfir við ákvarðanatöku í málinu hljóta að hafa stýrt Nepalbúanum. Að þessum þætti loknum fastréð verkfræðideildin Nepalbúann og valdi hann sem varaforseta verk- fræðideildarinnar. Væntanlega fyrir vel unnin störf!!! Þekking mín á jarðskjálftaverk- fræði er takmörkuð, ég sá þó þegar neminn fékk loks í desember 2017, eða hálfu ári eftir að hún tók prófið, að sjá prófdóm Nepalbúans að próf- dómurinn er ritaður af mikilli óvild. Hann virðist hafa fengið öðrum dokt- orsnefndarmönnum dóm sinn til undirritunar og meðvirkni skilar ár- angri Doktorsneminn fór fram á að fá óháðan prófdómara skipaðan. Há- skólinn vísaði málinu frá nefnd til nefndar, sem allar tóku óheyrilegan tíma til úrskurðar og það var ekki fyrr en umboðsmaður Alþingis til- kynnti háskólaráði að ráðið gæti ekki vísað slíkum ákvörðunum til lægra settra nefnda, að úrskurður kom sem skyldaði háskólann til að skipa óháð- an prófdómara. Hafði málið þá gengið milli aðila í háskólanum í rúm þrjú ár, þrátt fyrir stöðuga eftirfylgni doktorsnemans Ljóst er að verkfræðideildin hlýt- ur að hafa haft verulegar áhyggjur af þessu máli og orðstír sínum og ekki síður Nepalbúinn. Skyldi maður nú ætla að æðsta menntastofnun lands- ins mundi ganga þannig frá málinu eftir það sem á undan var gengið, að ekki orkaði tvímælis eða ylli ágrein- ingi um réttláta niðurstöðu. Doktorsneminn fékk virtan pró- fessor í jarðskjálftafræðum við há- skóla í Suður-Kaliforníu til að fara yf- ir prófúrlausn sína. Niðurstaða hans var að einkunn ætti að vera 7, ekki brilljans en vel staðið próf. Þannig var í vændum að dómi Nepalbúans yrði hnekkt og öll aðkoma verk- fræðideildar að málinu yrði þeim stórlega til vansa.Verkfræðideildin þráaðist þó við og skipaði sem óháð- an prófdómara aðjunkt við háskólann í Nepal sem hefur starfað sem pró- fessor við háskólann í Nepal meðan Nepalbúinn var þar, og er kunningi, vinur, Nepalbúans. Prófessor þessi hafði unnið með Nepalbúanum og starfsmanni rannsóknamiðstöðv- arinnar á Selfossi að ritun sex fræði- greina. Auðvelt er því að draga þá ályktun að þessi Nepalaðjunkt væri vel kunnugur máli doktorsnemans, eftir vinnu með rannsóknastöðinni, máli sem verið hafði í brennidepli í miðstöðinni í þrjú ár. Augljóslega er þessi nýi prófdómari vanhæfur. Úrskurður prófdómarans er að- eins ein málsgrein um að hann fallist á niðurstöðu Nepalbúans, kunningja síns. Enginn rökstuðningur fylgir og doktorsneminn fær ekki að sjá slík gögn þrátt fyrir ákvæði háskólans um prófsýningu. Reglur háskólans kveða á um að slíkur prófdómari skuli fella sjálf- stæðan dóm um próf og þá óháð fyrra prófmati. Auðvelt er að draga þá ályktun að hann hafi ekki viljað hnekkja dómi kunningja síns og sam- starfsmanns, en slíkt gæti veikt stöðu Neplbúans, innflytjanda, í hinu nýja landi hans. Hann fær því dóm Nepalbúans í hendur þannig að til slíks komi ekki. Lög 6. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga kveða á um vanhæfni og eru skýr um að einstaklingur sé vanhæfur til með- ferðar máls ef fyrir hendi séu ástæð- ur sem fallnar eru til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu. Hvernig stendur á að æðsta menntastofnun landsins skuli fara til Nepal til þess að finna óháðan próf- dómara í þessu máli við þessar að- stæður. Fjölmargir hæfir jarð- skjálftafræðingar eru í Bandaríkjunum, Japan og Evrópu. Ástæðan virðist augljós. Hvernig stendur á því að æðsta menntastofn- un landsins leitar ekki leiða til að leiða þetta langvinna deilumál til lykta á hátt sem ekki orkar tvímælis, ekki verður deilt um? Margt fleira mætti tína til til þess að sýna ótrúlega framkomu verk- fræðideildarinnar og Nepalbúans í þessu máli Það kemur mér á óvart ef ekki eru fleiri en ég sem ofbýður. Mál þetta er hreint og beint hneyksli, ég nota orðið fantabrögð. Oft er við brugðið framkomu Asíubúa við kon- ur. Dæmi: Um þrem árum eftir að Nepalbúinn hafði sagt sig bréflega frá öllum málum varðandi þessa doktorsritgerð og samskiptum við nemann sendi neminn fræðigrein í hið virta jarðskjálftatímarit Bulletin of Earthquake Engineering. Greinin hlaut mikla athygli og áhorf. Nep- albúinn ritaði þá ritnefndinni og krafðist þess að hans nafn væri birt varðandi ritun greinarinnar. Rit- nefndin hafnaði kröfu Nepalbúans eftir athugun á málinu og vinnur nú að birtingu annarrar fræðigreinar doktorsnemans. Nepalbúinn hefur komið því á framfæri að hann hafi á sínum tíma sótt um styrkinn frá Rannís fyrir nemann. Það er rangt. Neminn ritaði styrkumsóknina á tölvu Rannís og sendi Nepalbúanum til upplýsingar. Til er netsvar Nepalbúans þar sem hann bætir einni tilvitnun inn í styrk- umsóknina, það er allt. Sýnir þetta framkomuna gagnvart nemanum. Ég var í mörg ár formaður siða- nefndar VFÍ og efast ekki andartak um að deildarforsetar verk- fræðideildar og Nepalbúinn mundu hljóta veruleg ámæli ef mál þetta færi fyrir siðanefndir háskólans og VFÍ. Þegar ég var í stjórnmálum var talsverð umræða um að stjórn- málamenn ættu ekki að koma að stjórn háskólans né deildum hans. Nú er mér ljóst að veruleg hætta er á misbeitingu embættismanna í þessu fámenna, vina- og skyldleika þjóð- félagi okkar. Menn virðast geta haft opinn leikvöll fyrir skapbresti sína. Opin umræða í okkar þjóðfélagi um mál sem þetta ætti að leiða til afsagn- ar forystumanna verkfræðideildar. Háskólinn verður að skipa óháðan prófdómara, e.t.v. tvo, og leiða málið til lykta þannig að ekki verði efast um réttlæti og sanngirni. Eftir Guðmund G. Þórarinsson »Verkfræðideildin sá ekki ástæðu til að biðja nemann afsökunar eða taka neina af ákvörðunum sínum upp. Guðmundur G. Þórarinsson Höfundur er verkfræðingur. Háskóla Íslands stórlega til vansa Ár hvert er haldið upp á marga merk- isdaga um heim allan. Einn þessara daga er ólympíudagurinn sem haldið er upp á 23. júní í þeim 206 löndum sem eru með ólympíu- nefndir. Hátíðahöld eru með ýmsum hætti eins og að hvetja ól- ympíufara og alla aðra til að hreyfa sig sér- staklega þennan dag og hugleiða ólympíuhugsjónirnar varðandi frið á jörðu, heiðarleika, samkennd svo og íþróttamannslega framkomu innan vallar sem utan. Alþjóðaólympíunefndin ákvað á fundi sínum 1948 í Sorbonne í París að halda skyldi árlegan ólympíudag um allan heim til að minnast sam- þykktar 23. júní 1894 um endur- vakningu nútíma Ólympíuleika í Grikklandi 1896. Markmiðið var að hvetja til þátttöku í íþróttum um all- an heim óháð aldri, kyni eða íþrótta- legri getu. Undanfarna áratugi hafa ólympíudagarnir hjálpað til við að kynna ólympíuhugsjónina með ólík- um viðburðum á sviði íþrótta, menn- ingar, lista og menntunar. Ólympíu- hlaup er sérstaklega vinsælt þennan dag. Seinustu árin hafa ólympíu- dagarnir þróast sífellt meira í átt að almennri hreyfingu, lærdómi og ný- sköpun. Þannig hafa ólympíunefndir í mörgum löndum skipulagt ólymp- íudagana í nánu samstarfi við bæjar- félög, íþróttafélög og skóla víða um landið þar sem ungt fólk hittir af- reksíþróttafólk landa sinna. Á Ís- landi er það hlutverk Íþrótta- og ól- ympíusamband Íslands (ÍSÍ) að skipuleggja þennan dag í samstarfi við Samtök íslenskra ólympíufara (SÍÓ) en einnig er hægt að halda upp á daginn á öðrum dögum sem verður gert á Íslandi í ár eins og með golfkeppni í ágúst fyrir ólympíufara og fjölskyldur þeirra. ÍSÍ og SÍÓ eru áhugasöm um að fjölga ólympíu- dögum hérlendis ár hvert í samstarfi við bæjarfélög, íþrótta- félög og skóla um land allt og hvetja áhuga- sama aðila til að hafa samband. ÍSÍ og SÍÓ eru þegar í samstarfi við frjálsíþróttaráð Reykjavíkur um grunnskólamótið í frjálsum í sept- ember sem ólympíudag sem vonandi verður fastur viðburður. Samtök íslenskra ólympíufara hafa undanfarin ár lagt til að inn- leiða beri beinan fjárhagslegan stuðning við afreksíþróttafólk með stofnun á sérstökum launasjóði af- reksíþróttamanna til að tryggja fjár- hagslegt öryggi afreksíþróttafólks okkar svo það geti áhyggjulaust stundað æfingar hérlendis og er- lendis og keppt á alþjóðlegum mót- um og Ólympíuleikum. Sjóður þessi verði fjármagnaður með framlögum á fjárlögum Alþingis svo og með stuðningi félagssamtaka, fyrirtækja og einstaklinga. Samtökin fagna því samþykkt Alþingis á ályktun þess efnis að fela háttvirtum mennta- málaráðherra að beita sér fyrir stofnun slíks sjóðs í samstarfi við ÍSÍ og UMFÍ. Á heimsþingi ólympíufara sem haldið var í Lausanne í Sviss 2019 voru rædd mörg samfélagsleg verk- efni sem ólympíufarar voru hvattir til að styðja. Samtök íslenskra ól- ympíufara kynntu á þinginu þá hug- mynd að ólympíufarar um allan heim hvettu þróunarsamvinnustofn- anir viðkomandi landa til að bæta eflingu skipulagðrar íþrótta- starfsemi við almennan stuðning þeirra í þróunarlöndum en flest þeirra styðja einkum byggingu skóla, heilsugæsla, vatnsleit, land- búnað o.fl. Fulltrúum Afríkuríkja leist vel á þessa hugmynd okkar Ís- lendinga. SÍÓ hefur þegar verið með í að stofna íþróttafélög við tvo skóla í Afríku sem byggðir hafa verið af ís- lenskum félagasamtökum. Stefnt er að því að stórauka þessa samfélags- legu starfsemi í samstarfi við íslensk sérsambönd, íþróttafélög og ýmis fé- lagasamtök. Samtök íslenskra ólympíufara (SÍÓ) voru stofnuð 1995 og eru allir þeir Íslendingar sem keppt hafa á Ólympíuleikum félagar. Samtals hafa 317 Íslendingar keppt á Ólymp- íuleikum síðan í London 1908 í 11 greinum, en 68 þeirra eru látnir. SÍÓ er aðili að Alþjóðasamtökum ólympíufara (WOA; World Olympi- ans Association) en samtals hafa um 100.000 einstaklingar frá 206 lönd- um keppt á sumar- og vetrarólymp- íuleikum frá upphafi. Eftir Jón Hjaltalín Magnússon »Undanfarna áratugi hafa ólympíudag- arnir hjálpað til við að kynna ólympíuhugsjón- ina með ólíkum við- burðum á sviði íþrótta, menningar, lista og menntunar. Jón Hjaltalín Magnússon Höfundur er formaður Samtaka íslenskra ólympíufara. jhm@simnet.is Ólympíudagurinn 23. júní

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.