Morgunblaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 12
að þurfa ekki að reiða sig bara á einn
markað.“
Fjórir markaðir
Hann segir að fyrirtækið selji
vörur sínar á fjóra markaði en
stærsta kippinn á síðasta ári hafi
markaðurinn fyrir tilraunastofur tek-
ið, þar sem kórónuveiran er til rann-
sóknar. Sigmar vill ekki nefna nein
nöfn en ljóst er að nokkrir af helstu
bóluefnaframleiðendum heimsins,
sem eru orðnir þekktir í daglegu tali
hér á landi, séu á meðal viðskiptavina
Stjörnu-Odda. „Maður er býsna
stoltur af því að vera á þessu stóra
sviði. Þótt við séum ekki í aðalhlut-
verki þá leikum við mikilvægt auka-
hlutverk. Starfsmenn okkar á til-
raunastofumarkaðnum hafa unnið
gott starf við að efla tengslin við við-
skiptavinina sem hefur skilað sér í
góðri söluaukningu.“
Fyrirtækið framleiddi á síðasta ári
tæplega fimm þúsund mæla og hefur
framleiðslan aldrei verið jafn mikil.
Stærsti hluti framleiðslunnar fór til
veirurannsókna.
Varfærin skref í fjölgun fólks
Spurður hvort fjölga hafi þurft
starfsfólki til að anna eftirspurn segir
Sigmar að það hafi vissulega gerst en
tekin séu varfærin skref í þeim efn-
um. Farið sé að þrengja að starfsem-
inni í húsnæði þess í Garðabæ. 25
manns vinna hjá fyrirtækinu í fullu
starfi. „Við viljum fjölga hægt og ró-
lega. Nú vitum við betur hvernig eft-
irspurnin þróast og getum byggt á
árangri ársins í fyrra. Við erum fjár-
mögnuð með innri vexti og því sníð-
um við okkur stakk eftir vexti.“
Styrkja innviðina
Sigmar segir að lokum að árangur
síðasta árs fari að miklu leyti í að
styrkja innviði félagsins, endurnýja
tækjabúnað sem geri fyrirtækið bæði
sterkara í þróun á nýjum vörum og
styrki framleiðslu og afhendingarör-
yggi á mælitækjunum. Áhersla sé á
að auka sjálfvirkni eins og kostur er
og auka nákvæmni búnaðarins.
Hagnaður margfaldaðist
Morgunblaðið/Hari
Rannsóknir Sigmar segir að innviðir félagsins verði styrktir.
- Tekjur jukust um 50% - Bóluefnafyrirtæki nota búnað fyrirtækisins - Hús-
næðið farið að þrengja að starfseminni - Stoltur af því að vera á stóra sviðinu
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Hagnaður hátæknifyrirtækisins
Stjörnu-Odda í Garðabæ margfald-
aðist á árinu 2020 samkvæmt nýbirt-
um ársreikningi. Hann var rúmar 110
milljónir króna en árið á undan var
hann 7,7 milljónir.
Stjörnu-Oddi hefur um árabil
framleitt margvísleg mælitæki en
þau hafa meðal annars verið notuð
við veirufræðirannsóknir og bóluef-
naþróun víðs vegar um heiminn. Mik-
il aukning varð á sölunni þegar kór-
ónuveirufaraldurinn hófst á síðasta
ári.
Afla upplýsinga um áhrif
Eins og Sigmar Guðbjörnsson,
framkvæmdastjóri félagsins og
stærsti eigandi með 47,71% hlut, út-
skýrir í samtali við Morgunblaðið
hjálpar búnaður félagsins rannsókn-
arstofnunum og lyfjafyrirtækjum að
afla upplýsinga um áhrif veirunnar
og áhrif bóluefna á hana.
Eignir Stjörnu-Odda jukust um
45% milli ára. Þær voru 225 milljónir
króna í lok árs 2019 en 328 milljónir
króna í lok síðasta árs.
Eigið fé Stjörnu-Odda er nú 246
milljónir en var 142 milljónir árið
2019, sem er 74% aukning milli ára.
Eiginfjárhlutfall félagsins er 75%.
Hrein sala fyrirtækisins jókst um
tæp fimmtíu prósent milli ára. Hún
var 246 milljónir króna árið 2019 en
368 milljónir árið 2020.
Sigmar segir að salan á þessu ári
stefni í að verða meiri en á síðasta ári.
„Það lítur út fyrir að þetta sé meira
en eitthvert skot. Við erum á góðri
siglingu og erum mjög bjartsýn á árið
í ár,“ segir Sigmar.
Hann bætir við að á þessu ári skili
aukning í sölu á hafrannsóknamark-
aði, við rannsóknir á lífríkinu og veið-
arfærarannsóknum, fyrirtækinu enn
meiri veltu. „Þannig að tekjustoðirn-
ar og aukningin liggja ekki bara á
einum markaði. Það er gott veganesti
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021
« Verðmæti þjónustuútflutnings í apríl
var áætlað 26,2 milljarðar króna og
jókst um 39% frá því í apríl 2020 á
gengi hvors árs. Útflutningstekjur af
ferðalögum voru áætlaðar um 3,7 millj-
arðar í apríl og aukast nú verulega og
hratt samanborið við sama tíma 2020
þegar áhrifa kórónuveirufaraldurins
gætti sem mest. Þetta kemur fram í
frétt á vef Hagstofunnar.
Tekjur af samgöngum og flutningum
voru áætlaðar 6,7 milljarðar króna í
apríl og jukust um 39% miðað við apríl
2020. Verðmæti annarra þjónustuliða í
útflutningi var áætlað 15,7 milljarðar í
apríl og jókst það um 20% frá því í apríl
2020, samkvæmt fréttinni.
Verðmæti þjónustuút-
flutnings í apríl 26,2 ma.
29. júní 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.09
Sterlingspund 171.16
Kanadadalur 100.1
Dönsk króna 19.781
Norsk króna 14.514
Sænsk króna 14.55
Svissn. franki 134.26
Japanskt jen 1.1122
SDR 175.93
Evra 147.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.1221
Hrávöruverð
Gull 1783.25 ($/únsa)
Ál 2451.0 ($/tonn) LME
Hráolía 75.54 ($/fatið) Brent
« Engin niðurstaða
fékkst í útboði á
sýningarrétti á
enska boltanum
sem hófst á
fimmtudaginn í síð-
ustu viku, að því er
heimildir Morgun-
blaðsins herma.
Eins og sagt var
frá í blaðinu um
helgina snýst uppboðið um tímabilið
2022 til 2025 eða til 2028.
Sömu heimildir herma að ekki sé vit-
að af hverju útboðið mistókst, en heim-
ildir blaðsins herma að farið verði í stað-
inn í aðra umferð útboðsins í
júlímánuði.
Eins og fram kom í samtali við Magn-
ús Ragnarsson, framkvæmdastjóra
sölusviðs Símans, í ViðskiptaMogganum
í síðustu viku ætlar Síminn, sem er með
sýningarréttinn til ársins 2022, að bjóða
í sýningarréttinn. Ætla má að bæði Sýn
og Viaplay verði líka meðal tilboðsgjafa.
Engin niðurstaða í út-
boði á enska boltanum
Bolti Enska deilda-
keppnin er vinsæl.
STUTT
Hagnaður Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. eftir
skatta fyrir fjárhagsárið 1.3. 2020 – 28.2. 2021 var 728
milljónir króna og jókst velta fyrirtækisins um 0,8% milli
ára.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.
Þar segir einnig að framlegð vörusölu hafi dregist sam-
an um 3,4%. EBITDA samstæðunnar var 2,3 milljarðar
króna og jókst hagnaður eftir skatta um 26%. Hagnaður
sem hlutfall af veltu á fjárhagsárinu er 2,8%, en var 2,2%
árið áður.
„Mjög krefjandi rekstrarár er að baki þar sem Covid-
faraldurinn setti vissulega mark sitt á reksturinn, en sam-
drætti í framlegð þurfti að mæta með miklu kostnaðar-
aðhaldi,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerð-
arinnar, í tilkynningunni.
Hann segir að starfsfólk Ölgerðarinnar hafi þurfti að
beita mikilli útsjónarsemi undir erfiðum kringumstæðum
og stjórnendur hafi lagst á eitt við að finna leiðir til að allt
gengi upp. „Aðgerðir stjórnvalda, á borð við hlutabótaleið-
ina, brúuðu ákveðið bil en Ölgerðin óskaði síðan eftir því
við Vinnumálastofnun að endurgreiða þær þegar aðgerðir
fyrirtækisins hófu að skila árangri,“ segir Andri Þór.
Hann segir að mikil áhersla hafi verið lögð á vöruþróun
og uppbyggingu á innlendri framleiðslu á tímabilinu. „Ís-
lenskir neytendur velja í vaxandi mæli innlendar fram-
leiðsluvörur, enda slíkur valkostur bæði umhverfisvænni
og styrkir stoðir íslensks atvinnulífs. Sterk staða Ölgerð-
arinnar hvað varðar sykurlausa drykki gerði líka sitt, enda
velja neytendur sykurlausa valkosti í auknum mæli.“
Ölgerðin hagnaðist
um 728 milljónir króna
- Mjög krefjandi rekstrarár
að baki, segir forstjórinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Drykkir Neytendur velja í vaxandi mæli innlenda
framleiðsluvöru, að sögn forstjóra Ölgerðarinnar.
Flugleiðahótel hf. (Icelandair Hotels)
og Icelandair Group hafa verið dæmd
til að greiða Suðurhúsum ehf., sem
eru í eigu Skúla Gunnars Sigfússonar,
eiganda Subway á Íslandi, sameigin-
lega 146 milljónir króna ásamt drátt-
arvöxtum. Suðurhús er eigandi hús-
næðisins að Hafnarstræti 17 – 19 þar
sem Icelandair Hotels hefur rekið
Reykjavík Konsúlat Hotel. Rekstur
hótelsins hefur legið niðri vegna
veirufaraldursins.
Í dómi héraðsdóms kemur fram að
Flugleiðahótel ehf. hafi tekið fast-
eignirnar á leigu 10. október 2014 og
átti samningurinn að gilda til 30. apríl
2036. Í dóminum kemur fram að leiga
fyrir húsnæðið sé 16,4 m.kr. á mánuði.
Eftir að kórónuveirufaraldurinn
hófst ákváðu Flugleiðahótel ehf. ein-
hliða að greiða einungis 20% húsa-
leigu frá og með apríl 2020.
Eftir viðvaranir og greiðsluáskor-
anir var Flugleiðahótelum stefnt til
að greiða sínar skuldir en Flugleiða-
hótel ber fyrir sig varnir kenndar við
ákvæði um óviðráðanleg ytri atvik (e.
Force Majure).
Flugleiðahótel hf.
greiði 146 milljónir
Tölvuleikjaiðnaðurinn í heiminum
hefur á síðustu árum verið sá iðn-
aður innan tæknivæddrar afþreying-
ar sem vaxið hefur hvað hraðast í
heiminum. Árið 2020 óx tölvuleikja-
iðnaðurinn þannig upp í 175 millj-
arða Bandaríkjadala í tekjum og er
því spáð að árið 2023 verði iðnaður-
inn kominn upp í 218 milljarða dala í
tekjur. Árlegur vöxtur hefur verið
11,2% að meðaltali frá árinu 2015.
Þetta kemur fram í skráningarskjali
íslenska tölvuleikjafyrirtækisins
Solid Clouds en hlutafjárútboð fé-
lagsins hófst í gær og stendur þang-
að til á morgun.
Grunnstærð 40 milljónir hluta
Grunnstærð útboðsins er að lág-
marki 40 milljónir hluta í formi nýrra
hlutabréfa í fyrirtækinu en heimilt
er að stækka grunnstærð útboðsins í
allt að 58 milljónir hluta. Verð á hlut í
útboðinu er 12,5 krónur hver hlutur
og er heildarfjárhæð sem safnast
getur því á bilinu 500 milljónir króna
upp í 725 milljónir króna.
Í skráningarskjalinu segir að Sol-
id Clouds einblíni á spilun á PC-tölv-
um og í snjalltækjum, þar sem sam-
tals 71% allrar spilunar fer fram.
Einnig kemur fram að helstu mark-
aðir fyrirtækisins séu Evrópa og
Norður-Ameríka, sem eru um 45%
af heildarmarkaði fyrir tölvuleiki í
heiminum. Talið er að árlegar tekjur
á markaðssvæði Solid Clouds séu á
bilinu 10-15 milljarðar Bandaríkja-
dala, eða jafnvirði 1.240-1.860 milj-
arða íslenskra króna. Tekjur fær fé-
lagið í gegnum kaup inni í leiknum,
en frítt verður að spila.
93
107
122
139 146
175
218
Vöxtur tölvuleikjaiðnaðarins í heiminum
2015 til 2020 og spá fyrir 2023
Tíu stærstu hluthafar tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds
2014 2015 2016 2017 2018 2020 2023
1. Stefán Gunnarsson 15.12%
2. Kjölur fjárfestingarfélag ehf. 9.69%
3. Sigurður Arnljótsson 6.02%
4. Stefán Þór Björnsson 4.95%
5. Tómas Sigurðsson 3.03%
6. Vilano Capital 2.53%
7. Daníel Sigurðsson 2.46%
8. S9 ehf. 2.20%
9. Silfurberg ehf. 1.89%
10. Brimgarðar ehf. 1.65%
Milljarðar Bandaríkjadala
11,2% vöxtur milli ára
Markaðssvæðið
2.000 ma. virði
- Solid Clouds vill allt að 580 m.kr.