Morgunblaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 Á ferðalagi Gosstöðvarnar í Geldingadölum laða enn að sér fjölda fólks og eru erlendir ferðamenn fjölmennir. Það er enda ekki hvar sem er, sem hægt er að ganga í rólegheitum að virkri eldstöð. Eggert Samtökin ÁS hafa leitt í ljós offjárfest- ingu í borgarlínuverk- efninu sem er að minnsta kosti 40 millj- arðar króna umfram faglega þörf. Umfram- fjárfesting sem skilar engu til farþega, hvorki í þægindum né hraða, en eykur áhættuna við að kom- ast um borð í vagnana. Þetta er hundrað sinnum meira en bragginn frægi og líkast til tíu sinnum meira en Sorpuævintýrið. Í versta falli gæti þetta orðið 80 milljarðar. Og þar við bætist aukin slysahætta. Eigi að síður heldur undirbún- ingur áfram á fullum krafti. Búið er að benda á hvernig á að gera jafn góða létta borgarlínu á kostnaðar- lega viðunandi hátt, en ekkert ger- ist nema öllum ráðgjöfum er haldið að þungu borgarlínunni með því er virðist ótakmörkuðu fjármagni. Reykjavík fer á svig við samgöngusáttmálann Á meðan situr allt annað á hak- anum, samgönguráðherra taldi sig búinn að tryggja mislægu gatna- mótin Bústaðavegur/Reykjanes- braut 2021, en nei. Því er frestað til 2025, það þarf að gera borgar- línu fyrst. Þessi mótþrói borgar- stjórnar gegn mis- lægum gatnamótum situr jafn djúpt og barnatrúin. Einu rök- in gegn þeim eru að þau séu ljót í um- hverfinu, en í reynd geta þau verið mjög lík göngubrúnum sem borgarstjórnin er bú- in að byggja út um allt. Auk þess eru mis- læg gatnamót eins og fegurð himinsins miðað við fyr- irhugaða borgarlínubrú yfir Ell- iðaárósa, bara fyrir borgarlínu og enga aðra. Það hafa verið háðar hönn- unarsamkeppnir af minna tilefni. Af hverju er þetta verkefni, að hanna umhverfislega viðunandi mislæg gatnamót, ekki sett í slíka samkeppni? Við þessu er ekkert svar nema eitt: Mótþróaröskun hins pólitíska meirihluta í Reykja- vík, hún kallast mislæg gatna- mótaþrjóska, hvað ætli sá sjúk- dómur heiti á latínu? Ætli séu til pillur við honum? En nú fer að sverfa til stáls í þessu. Samkvæmt erlendum mæl- ingum vaxa umferðartafir í Reykja- vík hröðum skrefum. Þær eru út af öllum umferðarljósunum sem kom- in eru í stað mislægu gatnamót- anna. Umferðartafir vaxa um leið og Covid-hömlum er aflétt og ferða- menn koma aftur. Meðaltafir, sem voru 13-16%, eru nú komnar upp í 22%. Hámarkstafir á annatíma eru komnar í 60%, það þýðir að 10 mín- útna ferð tekur 16 mínútur. Ef fram fer sem horfir fjúka tafirnar upp í 100% þegar í haust. Þá mun það taka klukkutíma að komast frá Breiðholti eða Garðabæ inn á stóra vinnustaðasvæði höfuðborgarsvæð- isins, sem er miðborgin, Landspít- alinn og Háskóli Íslands. Samfélagskostnaður vegna umferðartafa er að fara úr böndunum Þessum auknu umferðartöfum fylgir mikill samfélagslegur kostn- aður, 40-50 milljarðar króna á ári. Þetta er það sem mislæga gatna- mótaþrjóskan kostar Ísland. Ekki bara íbúa höfuðborgarsvæðisins; sá sem vill fara ofan úr Borgarfirði og til Keflavíkur lendir í þessu líka. Borgaryfirvöld virðast ekki kunna á samfélagslegan kostnað af umferðartöfum. Skýrsla sem þeir birtu um samfélagslegan ávinning af borgarlínu reyndist röng. Sjá grein Ragnars Árnasonar prófess- ors í Mbl. 16. nóvember 2020. Höfuðviðfangsefni samgöngu- mála ætti að vera að lækka þennan tafakostnað. Engin sjáanleg merki eru um að slíkt verkefni sé í gangi. Enginn hefur bent á þetta nema ÁS. Sjá (https://samgongurfyr- iralla.files.wordpress.com/2021/03/ greining-umferda- tafa_ebe-032021.pdf). Alvarlegur galli í stjórnun samgöngumála Þetta er alvarleg misfella í vinnu opinberra aðila við samgöngumál. Upphæðin sem þarna er um að ræða er 1% af þjóðarframleiðslu. Þetta mun hækka í 2% á örfáum árum nema eitthvað sé að gert. Slík lækkun á þjóðarframleiðslu er alvarlegt efnahagslegt áfall. Borg- arstjórn Reykjavíkur er farin að verða of dýr. Ekki bara fyrir Reykjavík heldur allt landið. Þeir sem þurfa að koma vörum til og frá Keflavíkurflugvelli, eða Sunda- höfn, lenda í þessu, hvað ætla þeir að gera? Mislæg gatnamót eru nauðsynlegir innviðir Ef Reykjavík rankar ekki við sér, rífur sig upp úr borgar- línudraumnum og byrjar að byggja þessi mislægu gatnamót sem reiknað hefur verið með síðan 1965 og allir vissu að þyrftu að koma þarf ríkisstjórnin að grípa inn í og bjarga sínum þjóðvegum frá hruni. Annars geta menn deilt út síldar- og þorskkvóta eins og þeir vilja, og vaxandi umferðar- tafir í Reykjavík éta það upp jafn- óðum. Borgarstjórn Reykjavíkur getur glott út í annað og hugsað mér sér, að því meiri umferðar- tafir því meiri tekjur af borgar- línu, og ríkið borgar kostnaðinn. Fyrst með beinum framlögum í samgönguáætlun, síðar með tafa- gjöldum, sjá (https://samgong- urfyriralla.com/2021/05/23/ minnisblad-vegna-fundar-med- pawel-bartoszek/). En sannleik- urinn er sá, að Reykjavík verður fyrsta fórnardýrið í þessari efna- hagslegu umferðarkreppu, versn- andi hagur þjónustufyrirtækja bitnar fyrst og fremst á Reykjavík. Það eru þau sem halda efnahag hennar uppi, og það er nákvæm- lega það sem hún fékk smjörþefinn af í Covid-kreppunni. En þetta sér borgarstjórnin ekki. Hún heldur að með því að ríkissjóður borgi borgarlínu og hún hirði tekjurnar sé hún að skapa fjármagnsflæði sér í hag. Þá er bara ein spurning eftir: Ætla menn að gera eitthvað í þessu eða ekki? Eftir Jónas Elíasson » Offjárfesting í borgarlínu kostar versnandi hag þjónustu- fyrirtækja og bitnar mest á Reykjavík. Jónas Elíasson Höfundur er prófessor. jonaseliassonhi@gmail.com Of dýr borgarstjórn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.