Morgunblaðið - 29.06.2021, Page 21

Morgunblaðið - 29.06.2021, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 ✝ Guðrún Jóns- dóttir fæddist í Reykjavík 14. apríl 1928. Hún lést 7. júní 2021. For- eldrar henna voru Ása Sigurðardóttir Briem, f. 14.6. 1902, d. 2.11. 1947, og Jón Kjart- ansson, f. 20.6. 1893, d. 6.10. 1962. Systkini Guð- rúnar: Sigurður Briem, f. 26.4. 1925, d. 11.2. 2014, og Halla Oddný, f. 1935. Samfeðra Guð- rúnu er Sólrún, f. 1955. Fyrri eiginmaður Guðrúnar var Jón Norðmann Pálsson, f. 13.2. 1923, d. 4.5. 1993, þau skildu. Seinni eiginmaður Guð- rúnar var Ólafur Agnar Jón- asson, f. 20.6. 1926, d. 6.3. 2011. Börn Guðrúnar og Jóns og fósturbörn Agnars eru: 1) Ása Jónsdóttir móttöku- ritari, f. 9.10. 1948, gift Guð- mundi Hannessyni rekstr- arhagfræðingi, f. 28.3. 1948. Þeirra börn eru a) Hannes Páll slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamaður, f. 1975. Fyrri kona Hannesar Páls er Ragna Pét- ursdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1972, þau skildu. Synir þeirra eru Pétur, f. 2006, og Guð- Sóley Lára, f. 2007. B) Dr. Páll Ísólfur verkfræðingur, f. 1977, maki Ólöf Sara Árnadóttir læknir, f. 1977. Börn þeirra eru: a) Helena Eva, f. 2002, b) Arnaldur Árni, f. 2008, c) Úlfur Ari, f. 2013. C) Guðrún Lilja læknir, f. 1979, maki Þorvaldur Arnar Þorvaldsson stærðfræð- ingur, f. 1978. Börn þeirra eru: a) Benedikt Flóki, f. 2014, b) Kristín Fjóla, f. 2019. D) Krist- ján Ingvi verkfræðingur, f. 1981, maki Gyða Mjöll Ingólfs- dóttir verkfræðingur, f. 1981. Börn þeirra eru a) Dagur Ingi, f. 2014, b) Kristín Erla, f. 2016. E) Óli Hilmar læknir, f. 1983, maki Jenný Halla Lárusdóttir kennari, f. 1983. Börn þeirra eru: a) Lárus Óli, f. 2007, b) Hallfríður, f. 2011, c) Ari Páll, f. 2019. Fyrir átti Óli Hilmar dótturina Guðnýju Elísabetu viðskiptafræðing, f. 1968. Börn hennar eru Sunna María, Sveinn og Embla Marie. Guðrún lauk prófi frá Versl- unarskóla Íslands. Hún fór ung að starfa í Útvegsbankanum og varð fyrsti kvendeildarstjóri í sögu bankans. Guðrún var ötul stuðnings- kona Hringsins um langt ára- bil. Hún æfði handbolta með Ármanni og var í hópi fyrstu Íslandsmeistaranna í greininni. Útförin fer fram frá Sel- tjarnarneskirkju í dag, 29. júní 2021, klukkan 13. mundur, f. 2012. Sambýliskona Hannesar Páls er Hrönn Stef- ánsdóttir hjúkr- unarfræðingur, f. 1975. Hennar börn eru Rannveig Eyja, f. 2000, Ríkharður Eyberg, f. 2004, og Rebekka Eydís, f. 2008. b) Magnús Örn, f. 1978, við- skiptafræðingur. Kona hans er Elín Jónsdóttir flugfreyja, f. 1979. Þeirra börn eru Elín Eir Andersen, f. 2004, Jón Agnar, f. 2014, og Jökull Örn, f. 2017. c) Agnar Þór Guðmundsson hæstaréttarlögmaður, f. 1982. Kona hans er Sólveig Arnar- dóttir talmeinafræðingur, f. 1983. Þeirra börn eru Arnar, f. 2005, Ása, f. 2010, og Steinar, f. 2015. 2) Óli Hilmar Briem Jónsson arkitekt, f. 14.2. 1950, maki Kristín Salóme Jónsdóttir, arkitekt og umhverfisfræð- ingur, f. 8.7. 1951. Börn þeirra eru A) Jón Agnar viðskipta- fræðingur, f. 1973, maki Inga Hugborg Ómarsdóttir flug- freyja, f. 1971. Börn þeirra eru a) Sindri Snær háskólanemi, f. 1999, b) Sævar Leó, f. 2002, c) Góð kona og mikill skörungur er gengin. Móðir mín Guðrún Jónsdóttir var dugnaðarforkur og mikil myndarkona. Hún var bráð- skörp, enda fyrsti kvendeildar- stjóri Útvegsbanka Íslands. Hún var kona framkvæmda og ferða- laga og margar ferðirnar fór hún um ævina. Nú hefur hún lagt í þá hinstu og lengstu. Það er ekki nokkur vafi á að henni verður vel tekið í Sumarlandinu af ættingjum og vinum. Móðir mín, eða „amma Nunna“, eins og hún var jafnan kölluð í fjölskyldunni, var kjarna- kona eins og hún átti ættir til og sagði skoðanir sínar umbúðalaust. Hún var mikil handverkskona og það eina sem hélt á mér hita í 30 gráðu frosti í Norður-Finnlandi var lopapeysa sem hún prjónaði handa mér. Og í eldhúsinu var hún listamaður, veislurnar hennar voru víðfrægar. Mamma var fagurkeri og vildi hafa fallegt í kringum sig, líka við sumarbústaðinn þeirra Agnars í Skorradal. Þar var útbúin tjörn með lýsingu og vatnaliljum og svo fallegt var þar hjá þeim hjónum að tímarit sá ástæðu til að birta myndir af bústaðnum og lóðinni. Við Kristín eiginkona mín færðum mömmu stundum blóm og tré í bústaðinn og þá var hátíð í bæ. Mamma var líka alltaf vel til höfð og fallega klædd. Ég held að hún hafi undantekningalaust farið vikulega í lagningu í 70 ár, nú síð- ast stuttu fyrir andlátið. Mér fannst hún fallegasta kona í heimi þegar ég sat strákur í rútunni til Víkur á Steindórsplani og vinkaði henni bless út í gegnum gluggann. Og þegar ég var að ganga yfir Reynisfjall með egg til að selja í Vík stansaði ég alltaf á vestur- brúninni, sneri mér við og horfði til vesturs og hugsaði: „Þarna ein- hvers staðar er hún mamma mín.“ Og stundum komu pakkar með mjólkurbílnum frá henni með glaðning til mín. Þá var mikil hátíð og gleði í sálinni. Seinni eiginmaður mömmu og fóstri minn var Ólafur Agnar Jón- asson flugvélstjóri. Með honum fór mamma oft til útlanda, enda elskaði hún sól og hlýju. Og hún elskaði líka hlýjuna í skúringaföt- unni einn kaldan febrúardag fyrir 60 árum, þegar öll fjölskyldan var að hreinsa bílinn niðri í bílskúr á Rauðalæk 50. Hún var að pússa bílinn að innan og steig svo óvart ofan í skúringafötuna með volgu vatni þegar hún sté út. Og þar stóð hún dágóða stund með fótinn í volgu vatninu og við hlógum öll - en hún mest. Sólin er sest í vestri, en gullin ský góðra minninga glitra áfram á himni sálarinnar. Takk fyrir allt elsku mamma mín. Óli Hilmar. Fallin er frá Guðrún Jóns- dóttir, tengdamóðir mín og einn minn besti vinur. Kynni okkar Guðrúnar og vinátta eiga sér langa sögu. Örlögin höguðu því þannig að Óli Hilmar, bróðir Ásu, konu minnar, og ég vorum sem stráklingar saman í sveit í Efri-Presthúsum í Reynishverfi í Mýrdal. Þegar Guðrún kom í heimsókn í sveitina hitti ég þessa dásamlegu konu, ljúfa, viðmótsþýða og gjafmilda við okkur krakkana, sem vorum oft býsna mörg í senn hjá Ingu og Guðjóni í Presthúsum. Á sama tíma lágu saman leiðir okkar Ásu, verðandi eiginkonu minnar, – en það vissi ég ekki þá. Fyrst man ég eftir Ásu hjá Jóni Kjartanssyni, sýslumanni í Vík, þegar Óli Hilmar og ég skutumst í heimsókn yfir fjallið. Aftur lágu leiðir okkar Guð- rúnar saman þegar ég var send- ill hjá karli föður mínum og var að erindast í Útvegsbankanum. Og hver tekur á móti mér önnur en Guðrún, brosandi og hlý að venju, og sagði að það væri gam- an að sjá mig aftur, sem mér fannst eiginlega ekki sjálfgefið. Á unglingsárunum fórum við Ása að stinga saman nefjum og þá fór leið mín að liggja inn á Rauðalæk 50 þar sem Guðrún og Agnar, „fóstri“ eins og ég kall- aði hann, höfðu búið sér einkar glæsilegt heimili. Þar var allt með heimsmannslegu yfirbragði enda ferðuðust þau hjónin mikið og víða. Guðrún var hreint einstakur gestgjafi, tók vel á móti öllum, ungum sem gömlum enda var vinahópurinn stór og trúfastur. Matargerð og framreiðsla Guð- rúnar var á heimsmælikvarða hvort sem það var fjölrétta jóla- hlaðborð eða kalkúnn, sem ég smakkaði raunar í fyrsta skiptið á Rauðalæknum. Lyndiseinkunn og útgeislun Guðrúnar var slík að þeir sem kynntust henni höfðu gjarna á orði „hvað hún Guðrún væri nú ljúf og hugguleg kona“. Við Guð- rún áttum samleið í ríflega sex- tíu ár og aldrei varð okkur sund- urorða. En það var Guðrúnu að þakka ekki mér. Guðrún hafði þetta einstaka lag á að draga það besta fram í hverri mann- eskju, beina athyglinni frá sjálfri sér og að viðmælanda sín- um. Það leið öllum vel í návist Guðrúnar. Guðrún var mér leiðarljós í lífinu. Ég dáðist að hlýju henn- ar, manngæsku og virðingu fyr- ir sérhverri manneskju. En Guðrún var líka ákveðin og fylgin sér þótt því fylgdu ekki endilega stór orð. Mér er einkar minnisstætt er hún heyrði mig skattyrðast út í einhvern sem ég hafði átt í samskiptum við. Þá sagði Guðrún: „Guðmundur minn, þú átt aldrei að láta annað fólk stjórna skapi þínu“. Þessa gullnu reglu hef ég æ síðan munað, reynt af fremsta megni að fara eftir, en gengið misjafn- lega vel. Með Guðrúnu Jónsdóttur, vini mínum og tengdamóður, er fallinn frá drengur góður. Guð- rún gerði mig að betri manni, fyrir það verð ég henni ævar- andi þakklátur. Blessuð sér minning Guðrún- ar Jónsdóttur, hennar verður lengi minnst fyrir manngæsku og mannkosti. Guðmundur Hannesson. Elsku amma Nunna. Við bræður munum fyrst eftir þér sem afskaplega góðri ömmu sem var svo skemmtilegt að koma í heimsókn til á Rauðalækinn. Þar var alltaf eitthvað nýtt og spenn- andi – frá Ameríku. Þú varst allt- af mjög hvetjandi, sýndir okkur athygli og studdir okkur. Það er sérlega eftirminnilegt þegar þú og afi Agnar eltuð okkur á nær hvern einasta fótboltaleik sem við spiluðum í Gróttu. Þá komu færri foreldrar en nú til dags að horfa – hvað þá ömmur og afar. Þú varst sjálf mikil handbolta- kona í Ármanni og sagðir okkur oft sögur af þínum ferli. Ekki þótti eins sjálfsagt að vera í kvennahandbolta á þínum upp- gangsárum og það þykir í dag. Þú eignaðist ótal vini í gegnum árin enda voruð þið afi sérlega viðkunnanleg, lífsglöð og skemmtileg. Þið ferðuðust saman út um allan heim, enda var afi marga áratugi í fluginu. Saga Loftleiða er einstök í íslenskri viðskiptasögu og lífið í kringum það sveipað ævintýraljóma. Það var alltaf spennandi að heyra þig segja sögur frá þessum tíma, af ykkur og „séffunum niðurfrá“ eins og afi orðaði það. Ein eft- irminnileg saga er þegar einn besti vinur ykkar, Gunnar Björg- vinsson heitinn, kaupsýslumaður í Liechtenstein, lét sækja ykkur afa hingað heim í einkaþotu og fljúga ykkur út í stórafmæli sitt. Það var líka gaman að heyra þig segja sögur úr gamla Útvegs- bankanum þar sem þú starfaðir lengi og kynntist mörgu fólki. Reyndar kynntist þú svo mörg- um í gegnum 93 árin að það var oft erfitt að ná áttum í frásögn- unum. En sögurnar voru jafnan fróðlegar og fyndnar, hvert sem viðfangsefnið var. Þú hafðir sterkar skoðanir á málum, enda dóttir sýslumanns, þingmanns og ritstjóra Morgunblaðsins. Þrátt fyrir að þú og afi hafið verið mikið á ferðalagi í gegnum lífið gafstu þér alltaf tíma fyrir fjölskylduna. Í seinni tíð var ynd- islegt að koma í Skorradalinn, en þar áttum við svo sannarlega góðar stundir með þér og afa. Þar áður í Nesvíkinni og Or- lando. Þú varst alltaf glæsileg kona og varst það til æviloka. Fyrir ekki svo löngu síðan kom mynd af þér í einu dagblaðinu, þar sem þú komst í þínu fínasta pússi á kjörstað. Blaðamaðurinn átti erfitt með að trúa hversu gömul þú varst. Ekki spurði blaðamaðurinn hvað þú kaust en þeir sem til þekkja efast ekki um það. Ævilangt sjálfboðastarf þitt fyrir bæði Rauða krossinn og kvenfélagið Hringinn segir meira en þúsund orð um þig og þína manngæsku. Í áraraðir sást þú um að sjúklingar á Landspítalan- um fengju bækur í rúmið frá bókasafni spítalans og gestir sæl- gæti. Ómetanlegt starf ykkar Hringskvenna þekkja svo allir en stofnframlag Hringsins gerði Barnaspítalann að veruleika og er Hringurinn enn öflugasti bak- hjarl spítalans. Elsku amma. Ekki er hægt að ímynda sér jafn hjartgóða mann- eskju og þig – ósérhlífin, skiptir varla skapi og varst alltaf glöð og brosandi. Við erum öll stolt af þér og okkur þykir óskaplega vænt um þig og hugulsemi þína við fjölskylduna. Við bræður og fjöl- skyldan erum þakklát fyrir að hafa átt þig að og munum vera það alla tíð. Sitji Guðs englar saman í hring - sænginni yfir minni. Magnús Örn. Elsku amma Nunna, einn af klettunum í tilverunni, er lögð af stað áleiðis til sumarlandsins eft- ir langa og viðburðaríka ævi. Vitaskuld á það ekki að koma manni í opna skjöldu þegar fólk komið á tíræðisaldur safnast til feðranna en hvað get ég að því gert þótt ég þurfi aðeins að átta mig? Ég hef aldrei þekkt annað en að eiga ömmu Nunnu að og hún var alltaf til staðar meðan hún hafði krafta og heilsu til. Amma Nunna var amma og langamma eins og allir óska sér að eiga. Ég var svo dæmalaust lánsamur að hún var mín amma. Frá því í frumbernsku þekkti ég ekki annað en að eiga ömmu og afa á Rauðalæk. Smekkleg og forfrömuð heimsborgarahjón sem áttu gullfallegt heimili í óvið- jafnalegu Sigvaldahúsi, fallega innréttuðu með tímalausum inn- anstokksmunum og margs konar skrautgripum frá hinum ýmsu heimshornum sem hún og Agnar afi höfðu safnað á ferðalögum sínum um veröld víða. Þegar guttanum sem ég var forðum bauðst að gista hjá ömmu og afa á Rauðalæknum var lífið með ljúfasta móti. Eitt sinn sem oftar hafði amma lofað mér að ég mætti gista en gáði ekki að því að hún og afi höfðu boðið vinum til veislu sama laugardagskvöldið. Nú var úr vöndu að ráða, en ekki kom til þess að ganga á bak orðanna heldur fékk ég sannarlega að gista – við sömdum bara um að ég myndi halda mig mestan- partinn til hlés í svefnherbergi hennar og afa, með bækur og tölvuspil. Við það stóð ég en stóðst ekki að kíkja fram á nátt- fötunum og uppskera góðlátleg- an hlátur viðstaddra. Síðan eru allmörg ár liðin en minningin er ljóslifandi. Ótalmargar slíkar á ég af Rauðalæknum enda vorum við ömmubörnin ávallt velkomin í heimsókn. Amma og afi áttu skúffu fulla af leikföngum fyrir barnabörnin sem komu í heim- sókn, þar sem okkar beið Lego, púsluspil af öllu tagi og fleira. Í sjónvarpsstofunni – Gulu stofu eins og hún var kölluð eftir gólf- teppinu – gátum við gleymt stað og stund í leik, þangað til amma hafði útbúið hressingu. Mér þyk- ir ekki lítið vænt um gullfallegt tekkborðið sem var þar velflest uppvaxtarár mín. Nú prýðir það Bláu stofuna hjá okkur hjónum og er hið mesta stáss. Amma Nunna var mér fyrir- mynd í ýmsu, til að mynda hvern- ig halda skal snyrtilegt og smekklegt heimili, leggja fallega á borð. Setja sjálfum mér viðmið og hvika aldrei frá. Vera ærlegur og hafa „standard“. Þetta á við allt frá stóru málunum og að klæðaburði því amma Nunna gaf ekki nokkurn afslátt af því hvern- ig hún hafði sig til meðan henni entist heilsan. Hún rataði meira að segja í Morgunblaðið þegar hún mætti á kjörstað fyrir fáein- um árum, klædd eins og hún átti vanda til. Blaðamanni á vettvangi þótti hún svo fallega til fara að úr varð viðtalsgrein með mynd. Það verða víst ekki til fleiri nýjar minningar um ömmu Nunnu, en þeirra sem ég á gæti ég sem gulls um ókomna tíð. Eins og við að púsla saman í ró á Rauðalæknum meðan hún raular Út við himinbláu sundin. Stund- um þarf bara smá samveru til að búa til ljós sem varir um alla tíð. Skilaðu okkar allra bestu kveðju til elsku afa Agnars – ég get rétt ímyndað mér fagnaðar- fundina sem þið áttuð. Jón Agnar Ólason. Elskuleg vinkona mín og skólasystir í Verslunarskóla Ís- lands, Guðrún Jónsdóttir (Nunna) lést 7. júní á hjúkrunar- heimilinu Seltjörn á Seltjarnar- nesi. Eftir útskrift að námi loknu stofnuðum við saumaklúbb sjö skólasystur saman. Við hittumst alltaf einu sinni í viku á mánu- dagskvöldum í mörg ár. Nú eru þær allar látnar nema ég. Þegar við vorum fjórar eftir héldum við áfram að hittast reglulega. Við urðum fastagestir í hádegisverð á veitingastaðnum Vox og feng- um alltaf frábæra þjónustu. En síðast vorum við bara tvær eftir. Það er erfitt að sjá á eftir góðum vinkonum. Nunna og ég vorum báðar á Seltjörn, hún á legudeild en ég í dagvist þrisvar í viku og við held- um áfram að hittast reglulega og áttum góðan tíma saman. Nunna var alltaf mjög vel til- höfð, fallega klædd og fín um hárið. Alltaf glöð og ánægð, kvartaði aldrei. Ása dóttir Nunnu og fjölskylda hugsuðu mjög vel um hana og heimsóttu hana nær daglega sem er mjög mikilvægt þegar maður er orð- inn gamall. Við vorum jafn gaml- ar, 93 ára. Ég kveð Nunnu mína með söknuði og vona að hún sé í sum- arlandinu með sínum elskaða eiginmanni Agnari. Valdís Blöndal (Addý). Guðrún Jónsdóttir Elsku mamma, tengdamamma, amma og langamma, SIGRÍÐUR ARINBJARNARDÓTTIR, lést á Hrafnistu Hafnarfirði 23. júní. Útför hennar fer fram í Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 1. júlí klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 4. hæð, Báruhrauni, fyrir einstaklega góða umönnun og hlýju. Salome Einarsdóttir Kristján Óskarsson Emelía Einarsdóttir Jón B. Jónsson Hulda Einarsdóttir Ómar Ingvarsson barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA MARGRÉT EINARSDÓTTIR, Ársölum 1, Kópavogi, lést mánudaginn 21. júní. Útförin fer fram frá Lindakirkju fimmtudaginn 1. júlí klukkan 13. Ása Ólafsdóttir Lárus K. Viggósson Atli Þór Ólafsson Ester Halldórsdóttir Kristín Ólafsdóttir Snorri Eiríksson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.