Morgunblaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 28
AF KVIKMYNDUM Gunnar Ragnarsson Dagana 23. til 27. júní stóð yfirheimildarmyndahátíðin Ice-land Documentary Film Festival á Akranesi og var boðið upp á veglegt úrval nýrra heimild- armynda hvaðanæva úr heiminum. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin en heimili hennar er Bíóhöll- in, byggð árið 1942 við Vesturgötu 23 og hiklaust með elstu starfandi kvikmyndahúsum landsins. Eins og algengt er orðið var samtímis boðið upp á dagskrána á netinu, með ein- hverjum takmörkum þó. Undirrit- aður sótti hátíðina heim á föstudag- inn var og sá tvær athyglisverðar kvikmyndir í þessu glæsilega bíói Skagamanna. Kvöldið hófst á grjót- hörðum tékkneskum raunveruleika frá aldamótum. Tékkar skarta ríkri kvikmyndasögu og ber nýbylgjuna á sjöunda áratugnum þar hæst (þá Tékkóslóvakía) – en hún var með eindæmum frjó og gat af sér ótal merka höfunda, þ. á m. Hollywood- útlagann Miloš Forman (Gauks- hreiðrið, Amadeus) og snilldarverk á borð við Fagurfíflar (Sedmikrásky, Vera Chytilová, 1966), Lík- brennslumaðurinn (Spalovac mrtvol, Juraj Herz, 1969) og Lestir undir smásjá (Ostøe sledované vlaky, Jiøí Menzel, 1966). Eftir fall járntjalds- ins hafa Tékkar ekki síst markað sér sérstöðu fyrir mikla hefð innan heimildarmyndagerðar og er heim- ildarmyndarhátíðin Ji.hlava með þeim helstu innan geirans í Evrópu. Anny (2020) eftir Helenu Treští- ková er nokkuð blátt áfram portrett- mynd sem ber tékkneska skólanum gott vitni. Með kynningarefni mynd- arinnar má finna málsgrein sem lýs- ir inntaki myndarinnar mætavel: „jafnvel venjulegasta líf hefur sína reisn og gildi“. Titilpersónunni er fylgt yfir sextán ára tímabil, frá 1996 til 2012. Í upphafi frásagnar er hún 46 ára og starfar sem baðherberg- isvörður og vændiskona. Þetta gerir Anny til að framfleyta sjálfri sér og til að styðja við dóttur og barnabörn. Að hennar mati hefur lítið breyst við fall kommúnismans, þeir spilltu maka krókinn á meðan almúginn skrimtir. Söguhetjan stendur á götuhornum Prag að næturlagi í leit að kúnnum en samkeppnin er hörð – yngri, erlendar konur bjóða þjón- ustuna á lægra verði. Viðhorf henn- ar til starfsins er á praktískum nót- um – vinna er vinna – og þetta er það sem henni stendur til boða. Anny tekur líka þátt í starfi samtaka um réttindi og öryggi vændiskvenna, en þau dreifa m.a. smokkum frítt og stunda fræðslu í fjölmiðlum. Á skemmtikvöldum samtakanna klæð- ir hún sig upp og syngur kaupakonu- blús við undirleik félaga sinna. Hoppað er yfir langt tímaskeið en Anny eldist sýnilega hratt og lýtur að lokum í lægra haldi fyrir lungna- krabba. Tilvera Anny eru vissulega napurleg en í henni býr magnaður lífsþróttur og seigla – og efnistök Treštíkova sýna henni tilheyrilega virðingu og forða myndinni frá því leiðast út í armæðuklám. Allt verkið er skotið á stafrænt DV-snið þrátt fyrir að vera tekið upp yfir langt tímabil, þar sem stafræn myndtækni tók algjörlega stakkaskiptum. Þetta færir Anny gegnumgangandi grá- myglulega áferð. Gunda (2020) eftir Rússann Vikt- or Kossakovsky var ein af umtalaðri myndum á boðstólum hátíðarinnar. Kossakovsky er þekkt stærð í heimi listrænna heimildarmynda en fyrir utan það setti spéfuglinn Joaquin Phoenix nafn sitt við verkefnið sem framleiðandi og hefur aðkoma hans tryggt myndinni frekara brautar- gengi. Phoenix er nefnilega ötull talsmaður grænkera (e. vegan) en Gunda einblínir á dýr sem mannfólk leggur sér til munns í hvað mestum mæli: svín, nautgripi og hænsn. Mannfólk, tónlist, talað mál og hefð- bundin frásögn eru að mestu leyti víðsfjarri í þessari níutíu mínútna svarthvítu hægbíós (e. slow cinema) stemmu. Dýrunum er tryggður jafningjagrundvöllur með kvik- myndatöku myndarinnar – en þau eru einatt mynduð úr augnhæð. Sterkasti kafli hennar er strax í upp- hafi er getur að líta stóra gyltu, sem virðist þjáð og uppgefin, liggjandi í fjósdyrum sem ramma hana fallega inn. Hæglega þysjar myndavélin að henni, óræð hljóð berast sem ýta undir ókennilega tilfinningu. Úr myrkrinu skríður pinkulítill grís – got hefur átt sér stað. Eftir stund- arkorn er klippt á sjónarhorn innan úr hlöðunni þar sem gríslingarnar sjúga spena móðurinnar. Sól- argeislar falla á kynlegar smáver- urnar sem gefa frá sér hátíðnihljóð og eru sýndar í nærmynd. Hægur taktur setur formræn einkenni í for- grunn og lætur áhorfendann gaum- gæfa samhengi myndarinnar. Mögn- uð og marglaga hljóðmynd er augljóslega mikið „unnin“ og ljós og skuggar staðsettir á meðvitaðan máta – um er að ræða meðvitaða fagurfræði „skapandi“ heimild- armyndagerðar. Fagurfræðin er þó engan veginn jafn grípandi og vel út- færð er myndinni vindur fram og kaflar með kúm og hænum eru end- urtekningarsamir og verða á end- anum eilítið hvimleiðir. Við fyrstu sýn mætti halda að sögusviðið haldi köflunum saman – þ.e.a.s. að kafl- arnir eigi sér stað á eina og sama sveitabænum. Endatitlar leiða þó í ljós að myndin var tekin upp í Nor- egi, Spáni og víðar – og dýrin því mynduð á dreif um álfuna, sem varp- ar frekari ljósi á höfundarætlan og skilaboð myndarinnar. Sveitabærinn er hvar sem er – og skilaboðin eru pólitísk. Þrátt fyrir stórfenglega hljóðmynd hefði myndin mátt við því að þrengja sjónarhorn sitt og vera heldur styttri, og einblína eilítið meira á heimildarþáttinn og svína- þáttinn. Gunda er dæmi um mynd sem er tilvalin að upplifa í bíósal og mynda sér skoðun á. Að streyma slíku stykki á fartölvu og flatskjá er ein- faldlega ekki sama reynsla. Hátíðir sem sinna þessum anga kvikmynda- lífsins eru dýrmætar og eru listunn- endur hvattir til að fjölmenna í Bíó- höllina að ári liðnu. Og þá var hægt í höllinni Gunda Tveir grísir í svarthvítri heimildarmynd Kossakovsky, Gunda, sem sýnd var á IceDocs á Akranesi. Anny Heimildarmynd Helenu Treštíková er nokkuð blátt áfram portrett- mynd sem ber tékkneska skólanum gott vitni, eins og segir í pistli. » Sveitabærinn er hvar sem er – og skilaboðin eru pólitísk. 28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 B reska rithöfundinum Lee Child hefur tekist ótrú- lega vel að skapa um- gjörð um Jack Reacher og það er hægarwa sagt en gert, því ekki fer beint lítið fyrir sögu- hetjunni, töffara töffaranna, í helstu sakamálasögum nútímans. Dauðahliðið er skemmtileg spennu- saga í anda fyrri bóka Childs um herlögreglumanninn fyrrverandi, þar sem enn og aftur er sýnt fram á að ekki borgar sig að stíga á tær risans, hvað þá meir. Jack Reacher er enginn venju- legur maður. Vinkona hans líkir honum við New York, segist elska að koma þangað en gæti aldrei bú- ið þar. Öðrum í sögunni dettur fyrst í hug Stórfótur, loðinn mannapi nýkominn út úr skóg- inum, Hulk hinn ógurlegi eða maður með sekt- arkennd, en hvað sem hver segir er hann meyr harðjaxl með ríka réttlætis- kennd og honum er fyrirgefið, þótt hann fari ekki alltaf að settum reglum. Söguhetjan á í raun ekkert nema tannburstann og einnota föt- in sem hann er í hverju sinni, býr alls staðar og hvergi, er stöðugt á ferðinni, lætur auðnu ráða hvert skal halda og að loknu hverju verkefni heldur hann stefnulaust á vit nýrra ævintýra. Að þessu sinni veltir lítill út- skriftarhringur frá West-Point herskólanum í veðlánarabúð í Wisconsin í Bandaríkjunum stóru hlassi. Sem gömlum nemanda í skólanum finnst Reacher sér málið skylt og hann einsetur sér að koma hringnum aftur til eigand- ans. Hver sem hann er og hvar sem hann er. Það gengur ekki þrautalaust. Húmorinn er aldrei langt undan og ákveðinn orðaleik má finna í sumum nöfnum. Jack Reacher þarf að eiga við menn sem heita til dæmis Jimmy Rotta og Arthur Scorpio, rottu og sporðdreka! Rannsóknarlögreglan í Rapid City í Suður-Dakóta hefur ekkert kom- ist áleiðis með þann síðarnefnda og er því þakklát fyrir aðkomu Reac- hers, þótt hann beiti misjöfnum meðulum. Samanburður á Reacher og Gloriu Nakamura, smávöxnum rannsóknarlögreglumanni í Rapid City, og Terrence Bramall einka- spæjara er oft spaugilegur og ekki fer á milli mála hvort alvarleikinn eða fjörið hefur vinninginn. Samkennd Reachers er sterk. Eitt sinn herlögga, alltaf herlögga. „Hún er ein af okkur,“ leggur Reacher áherslu á um eiganda hringsins. „Enginn kemur heill til baka,“ segir yfirmaður herskólans og vísar til konunnar, sem hefur farið í fimm erfiða leiðangra á ófriðarsvæði. Önnur lykilsetning, sem segir svo margt, sem skýrist æ betur eftir því sem á líður sög- una. Enn einu sinni kemur Jack Reacher út sem sigurvegari. Án hans og sérstaks stíls Lees Childs væri spennusagnaheimurinn snöggtum fátækari. Jack Reacher í góðum og kunnugum gír Fær Enski rithöfundurinn Lee Child, skapari Jack Reacher. Glæpasaga Dauðahliðið bbbbm Eftir Lee Child. Jón Hallur Stefánsson þýddi. Kilja. 412 bls. JPV útgáfa, 2021. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.