Morgunblaðið - 29.06.2021, Page 29
Hólmfríður María Ragnhildur
hmr@mbl.is
„Þegar barn fær lit eða blýant í lóf-
ann í fyrsta sinn veit það strax hve
verðmæt gjöfin er. Hún er töfrasproti
og breytir lífinu, milliliður milli þess
og sálardjúpanna, milli þess og hug-
ardjúpanna, milli þess og heimsins,
hins ósagða og ósegjanlega, kyrrðar
og þagnar.“ Svo hljóðar brot út texta
Kristínar Ómarsdóttur skálds sem
hún orti í tilefni sýningarinnar Stell-
ingar: Línulaga frásagnir, sem nú
stendur yfir í galleríinu BERG
Contemporary á Klapparstíg.
Þema sýningarinnar að þessu sinni
er línur og línuteikningar en sýn-
endur eru þau Áslaug Íris Katrín
Friðjónsdóttir, Hanna Dís White-
head, Haraldur Jónsson, Finnbogi
Pétursson, Páll Haukur og Sirra Sig-
rún Sigurðardóttir.
Góður hópur listamanna
Að sögn Kristínu Aðalsteinsdóttur,
sem sýningastýrir Berg Contempor-
ary auk Steinars Arnars Erlusonar,
er um að ræða gott samansafn af ólík-
um listamönnum, en galleríið hefur
áður starfað með hluta þeirra.
„Okkur fannst tilvalið að fá hina
einnig til liðs við okkur því verkin tala
svo vel saman og segja frá mismun-
andi nálgunum gagnvart línuteikn-
ingunni og hvernig hún birtist í mis-
munandi verkum sem við erum búin
að setja hér upp,“ segir Kristína
Aðalsteinsdóttir.
Þemað spratt upp frá eldri verkum
Haraldar Jónssonar og Finnboga
Péturssonar sem hafa báðir verið í
nánu samstarfi með galleríinu en að
sögn Kristínu hefur það lengi verið til
skoðunar að sýna þessi verk þeirra
sem koma nú fram. „Okkur hefur allt-
af langað til að varpa meiri ljósi á þau
og svo sáum við fyrir okkur þetta
samtal og létum úr verða.“
Fjölbreyttar nálganir
Bætir Kristína við að skemmtilegt
sé að sjá hvað línuteikningar eru í
raun ekki einhliða heldur er hægt að
útfæra þær á marga ólíka vegu og
leynast þær víða þótt maður komi
ekki auga á þær undir eins.
„Þetta er rauði þráðurinn, bók-
staflega, sem liggur í gegnum sýn-
inguna. Eftir því sem maður fer að
glöggva sig á verkunum þá sér maður
að allir listamennirnir eru á einn eða
annan hátt að vinna með línuna en
þeir setja sig í mismunandi stellingar
gagnvart viðfangsefninu, hvort sem
um ræðir efnislega eða hugmynda-
fræðilega og þaðan kemur nafngift
sýningarinnar, Stellingar,“ segir
Kristína.
Listamennirnir sækja innblástur
úr ólíkum áttum og vinna í fjölbreytta
miðla við sköpun verka sinna. Eru
verkin ýmist í tvívíðu og þrívíðu formi
en snæri, vélræn verkfæri og tilfinn-
ingateikningar koma við sögu á sýn-
ingunni, svo eitthvað sé nefnt.
Kristína telur sterka tengingu
ríkja milli listaverkanna þótt út-
færslur þeirra séu vissulega fjöl-
breyttar. „Ég held að það sé ákveðin
leikgleði sem einkennir þau öll. Þarna
leynast einnig verk sem maður myndi
ekki endilega búast við að sjá frá
þessum listamönnum og því gaman
að sjá lokaútkomuna.“
Sýningin stendur opin til 7. ágúst
og geta gestir komið milli 11 og 17
þriðjudaga til föstudaga og á laug-
ardögum milli 13 og 17.
Sýningastjóri Kristína Aðalsteins-
dóttir er annar tveggja sýningar-
stjóra BERG Contemporary.
- Stellingar: Línulaga frásagnir nefn-
ist sumarsýning BERG Contemporary
Ljósmynd/Vigfús Birgisson
Línan er rauði þráðurinn
Tengingar Kristína telur sterka
tengingu ríkja milli verkanna þótt
útfærslur þeirra séu fjölbreyttar.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021