Morgunblaðið - 02.06.2021, Side 7

Morgunblaðið - 02.06.2021, Side 7
Tækifæri til vaxtar í bolfiski – Í fjárfestakynningu ykkar vegna útboðsins er fjallað um innri og ytri vöxt. Þar er áhuga- verður samanburður á heimildum ykkar í upp- sjávarfiski, þar sem þið eruð nærri hámarkinu í helstu tegundum, og svo bolfiskmegin þar sem svigrúm er til að auka heimildir. Má af þessu skilja að þið sjáið fyrir ykkur fleiri samruna til að styrkja ykkur bolfiskmegin? „Það eru tækifæri til vaxtar innan þess ramma sem fiskveiðistjórnunarkerfið setur nú í bolfiski. Við erum komin í efri mörk víðast hvar uppsjávarmegin en félagið getur vaxið bolfisk- megin og ég á von á að menn muni skoða tæki- færin til vaxtar þar, séu þau félaginu og eig- endum þess til framdráttar.“ Sækja meira verðmæti í fiskinn – Ræðum aðeins um fyrirhugaða fjárfestingu í fiskimjölsverksmiðjunni í Neskaupstað sem áætluð er um fimm milljarðar króna á þremur árum. Á vefsíðu félagsins er rætt um að setja upp úðaþurrkara, tilraunaskilvindu og himnu- síunartæki og sú tækni sett í samhengi við vinnslu á prótíndufti. Hvernig hyggist þið auka verðmæti uppsjávaraflans? „Með aukinni áherslu á manneldisvinnslu og betri skipastól fáum við mun ferskara hráefni að landi. Við höfum verið í áhugaverðum verk- efnum með háskólasamfélaginu, Matís og öðrum sjávarútvegsfélögum. Hér hafa verið unnin áhugaverð doktorsverkefni til að rann- saka og þróa leiðir til að ná auknum verðmæt- um úr því hráefni sem við höfum. Við trúum því að við séum með verðmæta prótínsamsetningu og verðmætt hráefni í höndunum og eigum að geta unnið það lengra en aðeins í fiskafóður. Þá erum við að horfa á markaði sem borga meira fyrir lengra unnið hráefni, svo sem fóður- bætiefni í ákveðið eldi og verðmætara prótín sem gæti farið lengra inn á gæludýramark- aðinn. Síðan til lengri framtíðar getum við séð fyrir okkur að framleiða duft til manneldis en ég tek skýrt fram að þetta er allt á byrjunarstigi og langt inni í framtíðinni. Við erum að setja upp litla tilraunaverk- smiðju í samstarfi við Matís sem mun byggja undir þessar rannsóknir og þróun. Ég tel að þetta sé mjög áhugaverð þróun og trúi því að hún muni að lokum skila okkur lengra.“ Þarf að geta þolað sveiflurnar – Það er stefna Síldarvinnslunnar að eigin- fjárhlutfallið skuli ekki fara undir 50% en í lok árs 2020 var eiginfjárhlutfallið 68%. Þá var eig- in fé meira en veltan, sem er fáheyrt hjá ís- lenskum fyrirtækjum af þessari stærð. Nú eruð þið í sóknarhug og hafið boðað töluverðar fjár- festingar. Hvernig sérðu fyrir þér að eiginfjár- hlutfallið muni þróast á þessu fjárfestingar- skeiði? „Við kynntum fjárfestingaráætlun sem felur í sér fimm milljarða króna fjárfestingu í fiski- mjölsverksmiðjunni. Við erum að fá nýtt skip og erum búin að borga fyrir það. Við verðum að trúa því að áfram komi upp fjárfestingar- tækifæri sem skili félaginu fram á við. Varðandi eiginfjárstefnuna voru það skýr skilaboð frá stjórn félagsins að félagið yrði að hafa styrk til að takast á við sveiflur sem einkennt geta rekst- ur í sjávarútvegi. Rekstur Síldarvinnslunnar spannar yfir 60 ár og á þessum tíma hefur oft gefið á bátinn. Það er félagi eins og okkar mik- ilvægt að hafa sterkt eiginfjárhlutfall til að tak- ast á við slíkar sveiflur. Svo er það félaginu auð- vitað verðmætt að vera með sterkt eigin fé til þess að geta nýtt tækifæri sem skapast. Þær fjárfestingar sem eru fyrirhugaðar rúmast inn- an stefnu félagsins um 50% eiginfjárhlutfall.“ Má teljast til arðgreiðslu – Síldarvinnslan skilaði um fimm milljarða króna hagnaði í fyrra en stjórnin lagði til að hagnaður yrði fluttur milli ára. Er eitthvað að frétta af því hvernig honum verður ráðstafað? „Hann flyst á eigin fé félagsins. En það má heldur ekki gleyma því að það var verið að flytja úr félaginu SVN eignarhaldsfélag sem fór með hlut félagsins í Sjóvá almennum yfir til hluthafa. Það má líta á það sem arðgreiðslu líka.“ Talið berst næst að gengi krónunnar en spáð er frekari styrkingu með bata í ferðaþjónustu. Spurður hvaða áhrif gengisstyrking muni hafa á útflutningsfyrirtæki á borð við Síldar- vinnsluna segir Gunnþór ljóst að krónan skipti sjávarútveginn gríðarlega miklu máli. Hann bendir á að mikil uppbygging í vinnslum hafi átt sér stað í löndum á borð við Pólland og Litháen, og víðar í kringum okkur, þar sem vinnuaflið sé margfalt ódýrara. „Íslenskur sjávarútvegur svarar þessu með aukinni tæknivæðingu. Við erum með virðis- keðjuna á einni hendi sem gefur okkur forskot. Það er hins vegar ljóst að þessir þættir munu hafa áhrif og geta, ásamt gengi krónunnar, veikt samkeppnisstöðu íslensks sjávarútvegs.“ Eitt „grænasta“ skipið Annað dæmi um hagræðingu félagsins sé að tengja skipin við rafmagn í landi, í stað þess að keyra ljósavélar með olíu. „Þegar við vorum að gera upp við skipasmíðastöðina kom fram að nýi Börkur væri eitt grænasta skipið sem hún hefur smíðað. Þar erum við að reyna að smíða skip sem lágmarkar olíunotkun við veiðar og má þar nefna skrokklag og stefni og að afgangsvarmi er nýttur til upphitunar. Auk þess erum við að setja upp 500 kw landtengingu við frystihúsið í Neskaupstað þannig að afli verði kældur og honum dælt í land með raforku við bryggju í stað olíu áður.“ Staðan í Hvíta-Rússlandi áhyggjuefni – Varðandi Rússland og viðskiptabannið, hvaða áhrif hefur það haft á ykkar útflutning? „Síldarvinnslan var einn stærsti einstaki út- flytjandinn á fiski til Rússlands þegar bannið skall á okkur. Nú er síldarmarkaðurinn að jafna sig en hann var mjög erfiður eftir að Rússland lokaði. Við höfum ekki verið í stórum loðnu- vertíðum síðustu ár en Rússland hefur verið stór markaður fyrir loðnu. Hér er ég að ræða um tegundir sem þú flytur ekki út um allan heim – það borða ekki allir þá loðnu sem Rúss- arnir borðuðu. Aftur á móti vissum við að það myndu finnast nýir markaðir fyrir makrílinn sem fór til Rússlands. Þannig að fyrir Síldar- vinnsluna og uppsjávariðnaðinn á Íslandi var og er Rússabannið slæmt. Ég get líka viðurkennt að ég hef áhyggjur af ástandinu í Hvíta- Rússlandi. Ef þar kemur einnig til viðskipta- banns mun það hafa töluverð áhrif á íslensk uppsjávarfyrirtæki sem eru að selja töluvert inn á Hvíta-Rússland.“ Vannýtt afkastageta Gunnþór víkur næst að samstarfi innan sjávarútvegsins um markaðssetningu á íslenskum fiski erlendis. „Ég held að við getum gert betur í þeim efnum og stillt betur saman krafta okkar. Ákveðnar tegundir skila okkur ekki nægilegum verðmætum og má þar nefna karfa og ufsa sem dæmi. Þar er um að ræða góðan fisk sem oft selst á lágu verði. Síldarvinnslan hefur ekki fjárfest mikið í bolfiskvinnslu en þar sé ég hugs- anleg tækifæri til samstarfs. Það hefur verið fjárfest mikið í hátæknifrysti- húsum á undanförnum árum og þar er töluverð vannýtt afkastageta. Það er ekki skynsamlegt að allir séu að gera sama hlutinn eða við séum að offjárfesta í vinnslum hér og þar. Þarna eru samstarfsfletir sem ég trúi að við munum nýta í auknum mæli. Það er auðvitað svo að íslenskur sjávarútvegur er í alþjóðlegri samkeppni. Síldarvinnslan er stærsta fyrirtæki landsins í uppsjávarfiski og við framleiðum 50-60 þúsund tonn á ári í manneldisvinnslunni. Fiskeldisfyrirtækin á mikilli siglingu Til samanburðar er stærsta fyrirtækið í Nor- egi að framleiða 500-700 þúsund tonn. Við erum með kvótahámark og búum við ákveðinn ramma sem 12% eru. Það þýðir á mannamáli að ef það er 250 þúsund tonna þorskkvóti skilar það til dæmis 30 þúsund tonnum í þorski að hámarki. Við horfum fram á mjög jákvæða þróun í fisk- eldi og það má sjá fyrir sér að eitt og sama fyrirtækið verði komið með 50 til 80 þúsund tonna eldi. Fiskeldisfyrirtækin eru á gríðarlegri siglingu og ég held að þau geti, ef fram heldur sem horfir, orðið með stærstu sjávarútvegs- fyrirtækjum landsins. Þeir sem nýta fiskveiði- auðlindina geta ekki vaxið með sama hætti. Þá er spurningin hvort það sé einhver samstarfs- flötur á framleiðslu- og markaðshliðinni sem getur skilað okkur auknum árangri. Sú ábyrgð hvílir á sjávarútveginum að há- marka verðmæti auðlindarinnar. Þannig mun hún undirbyggja betri lífskjör í landinu,“ segir Gunnþór Ingvason. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021 7VIÐTAL Síldarvinnslan er stærsti framleiðandi af- urða úr uppsjávarfiski á Íslandi og er starf- semin á nokkrum stöðum á landinu. Í Nes- kaupstað eru fiskimjölsverksmiðja, uppsjávarfrystihús og frystigeymsla. Á Seyðisfirði eru fiskimjölsverksmiðja og bol- fiskvinnsla. Þá er starfsemi víðar á landinu. Félagið gerir út þrjú uppsjávarskip, fjóra ís- fisktogara og einn frystitogara. Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnsl- unnar, segir að gott árferði í uppsjávar- veiðinni hafi verið nýtt til að efla fyrirtækið í bolfiskheimildum og treysta þannig undir- stöður þess. „Stór skref í þá átt voru kaup á Bergi-Hugin ehf. í Vestmannaeyjum, afla- heimildum Stálskipa hf. í Hafnarfirði, Gull- bergi hf. á Seyðisfirði og nú síðast Bergi hf. í Vestmannaeyjum. Áður en þessi vegferð hófst vorum við með 70-80% af okkar aflaheimildum í upp- sjávarfiski en í dag eru þessi hlutföll nokkuð jöfn. Ég tel að þetta skref styrki félagið til að takast á við framtíðina, því uppsjávarveiðum fylgja mun meiri sveiflur eins og tvö loðnu- laus ár sýna okkur,“ segir Gunnþór. Fram kemur í fjárfestakynningu vegna út- boðsins að búið sé að selja vinnslubúnaðinn í fiskimjölsverksmiðjunni í Helguvík. Gunn- þór segir búnaðinn hafa verið seldan til Mar- okkós. Húseignir á besta stað við höfnina séu óseldar en það verði spennandi að koma þeim í notkun sem fyrst. Svigrúm til að auka heimildir í bolfiski Uppsjávarfiskur Bolfiskur Aflaheimildir Síldarvinnslunnar eftir helstu tegundum 2020/21 Heimild: Síldar- vinnslan hf., fjárfesta- kynning % af heild Hámark % af heild Hámark 18,5% 16,6% 29,9% 21,4% 12,6% 12%20% 20% 20%8,9% 20%7,6% 35%7,2% 35%7,0% Þorskur Ýsa Ufsi Djúpkarfi Gullkarfi Loðna Síld Kolmunni NÍ-síld Makríll 4,3%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.