Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.6. 2021
F
undur Pútíns og Bidens í Sviss skilaði
fáu svo séð verði. En talsmenn banda-
ríska forsetans segja það ekki hafa
verið nein sérstök vonbrigði, enda
ekki fyrirfram gert ráð fyrir sláandi
árangri á þessum fyrsta fundi, sem
Biden hafði óskaði eftir.
Sendiherrar í bakhöndinni
Hið eina handfasta eftir fundinn virtist það, að
sendiherrar ríkjanna, sem kallaðir höfðu verið heim
til að sýna pólitískan pirring út af einhverju, sem all-
ir eru búnir að gleyma hvað var, fengu nú að snúa á
ný, hvor í sitt sendiráð. Það er mikilvægt að slíkir
séu þar til staðar, ekki síst ef eitthvað kemur upp
sem kallar á alþjóðlega athygli og jafnvel fordæm-
ingu, eins og orðið er daglegt brauð. Þá getur verið
þægilegt að vísa sendiherra úr landi eða kalla sinn
heim, í hegningar- eða mótmælaskyni og þá óþarft
að grípa til einhvers sem væri þyngra í vöfum og
hefði áþreifanlega þýðingu.
Biden sagðist hafa á toppfundinum rakið sitthvað
sem Rússar hefðu staðið fyrir að undanförnu sem ýft
hefði Bandaríkin til reiði. Pútín fór yfir öll þau mál
og þurfti ekkert spjald frá undirsátum sínum til
þess. Niðurstaða hans var sú, að Rússland og eink-
um hann sjálfur hefðu hvergi komið nærri neinu af
því sem Biden hefði lesið upp af tossalistanum og
myndi enginn þekkja þá staðreynd betur en Pútín
sjálfur.
Biden rétti þá Pútín styttan lista yfir hið helsta af
fyrrnefndnum þáttum, sem Pútín hefði að sögn
hvergi komið nærri, en Bandaríkjamenn myndu líta
sérlega alvarlegum augum ef Rússar endurtækju.
Navalní andófsmaður kom til umræðu og Biden
virtist draga línu í hans sand og sagði að því yrði
sérlega illa tekið vestra ef Navalní myndi ekki koma
lifandi út úr fangavistinni sem hann sæti í núna.
Ekki fylgdi þó þessum aðvörunum hvaða refsiað-
gerðir kæmu helst til athugunar ef svo illa tækist til.
En auðvitað má ímynda sér að þá yrði ekki hikað
við að kalla sendiherra Bandaríkjanna heim frá
Moskvu fyrst að nú stendur svo vel á að hann sé
mættur á staðinn aftur.
Hittir ekki blaðamenn
ef hann kemst hjá því
Biden hafnaði því að svara spurningum blaðamanna
sameiginlega með Pútín að loknum fundi. Sagði hann
ástæðu þess vera þá að slíkur blaðamannafundur
gæti hæglega þróast yfir í að leiðtogarnir reyndu að
koma hvor öðrum í vanda í þeim tilgangi að slá sér
upp hjá heimspressunni. Pútín hefur hins vegar fyrir
reglu að sitja fyrir svörum blaðamanna í tugatali úr
öllum heimshornum og geta slíkir fundir staðið
klukkustundum saman. Minna slíkir fjöldafundir
helst á fund Gorbasjeffs í Háskólabíói eftir lokafund-
inn í Höfða 1986.
Umsjónarmenn Bidens reyna að tryggja að forset-
inn svari helst ekki meira en svona þremur til fjór-
um spurningum á hverjum blaðamannafundi, sem
eru sjaldgæfari en fornleifafundir á Íslandi. Biden
kemur þó jafnan vel undirbúinn á slíka fundi. Hefur
hann með ljósmynd og nafn blaðamanna, sem óhætt
er að heimila spurningu frá (helst CNN). Þótt Biden
myndi samt fipast gagnvart slíkum innansveitar-
manni er sett undir þann leka með því að innsti
koppur er ekki aðeins með spurninguna sína heldur
hefur hann svarið líka áður en hann spyr.
En því má ekki gleyma að CNN og síamsþrí-
burarnir geta þó orðið æði persónulegir gegn Biden,
eins og síðast þegar þeir spurðu hann hvasst út í
hvaða ístegund honum þætti best og fylgdu spurn-
ingunni fast eftir með spurningu um það hvort að
mat rannsóknarblaðamanna væri rétt að Biden tæki
súkkulaðibragð fram yfir vanillu.
Harkan hjá fjölmiðlunum sést best á því að þeir
höfðu spurt forsetann sömu spurningar aðeins
tveimur vikum fyrr og nokkrum sinnum áður einnig!
Mættur
Tema umsjónarmanna Bidens á fundinum í Cornwall
var einkum það að með komu Bidens til fundar
„væru Bandaríkin komin aftur“ gagnvart Evrópu-
ríkjum og NATO. Aldrei var skýrt nánar hvað fras-
inn þýddi, en sennilega var verið að vísa til þess að
vondi karlinn Trump væri nú á bak og burt. En
spurningin, sem þá vaknar, er hvernig lýstu þau sér
hin hörðu tök Trumps á NATO og Evrópuþjóðum?
Trump vildi ekki veikja NATO eða draga úr fjár-
hagslegum styrk þess. Hann krafðist þess einungis
að loforð sem NATO-ríkin höfðu margoft gefið um
að hækka framlög sín til bandalagsins, þótt ekki
væri nema í örlitla átt að Bandaríkjunum, yrðu loks
efnd, að minnsta kosti að hluta til. Það eru jú ár og
jafnvel tugir ára síðan þau loforð voru gefin.
Annar á hleri
Trump hafði aldrei látið hlera síma Merkel eða ann-
arra leiðtoga NATO. Það var Obama góði sem gerði
það. Þegar upp komst um strákinn Obama sagðist
hann hvorki vilja játa þessu eða neita. En hann gæfi
hins vegar loforð sitt um að hér eftir myndu Banda-
ríkjamenn ekki hlera síma Merkel. Sagan segir að
þegar Pútín heyrði þetta hafi honum þótt loforð
Obama bæði sanngjarnt og snjallt. Það væri sann-
gjarnt að tilkynna Merkel að sími hennar yrði ekki
hleraður hér eftir og eitursnjallt væri svo að gefa
Merkel engin loforð um að símarnir, sem hún væri í
sambandi við hverju sinni, yrðu undanþegnir hler-
unum. Niðurstaða þessa var þá sú, að á meðan Merkel
talaði eingöngu við sjálfa sig í síma, þá yrði hennar
sími ekki hleraður.
Það sem Pútín, fyrrverandi yfirmanni hjá KGB í
Austur-Þýskalandi, þótti þó allra best í þessari sögu,
var að þýski kanslarinn þakkaði Obama góða fyrir
þetta feita fyrirheit til sín, sem væri sér dýrmætt.
„Ekkert að þakka,“ gæti Obama hafa sagt og væru
það svo sannarlega engar ýkjur.
Láttu kíkja á þig
Nú hafa 9 þingmenn repúblikana í fulltrúadeildinni
lagt fram kröfu um að Biden gangi undir sérstaka
læknisskoðun til að kanna þekkingargetu hans og
hvort að hann búi orðið við óþolandi ellihrörnun. Þeir
nefna fjölda dæma sem bendi óneitanlega til slíks.
Flutningsmennirnir segja vegna andmæla demókrata
við tillögugerðinni að samsvarandi kröfur hafi verið
settar fram af þeim gagnvart Trump forseta. Forset-
Sagan, ný og gömul,
geymir myndir og
tryggir samhengi
’
Fyrir fundinn með Pútín hafði Biden
sagt við blaðamenn að eitt af því mikil-
vægasta í viðræðunum framundan væri að
fara alvarlega yfir stöðuna í Líbíu með Pútín.
Nefndi forsetinn Líbíu þrisvar sinnum í
þessu sambandi. Eftir fundinn var utanríkis-
ráðuneytið spurt út í hvað forsetinn væri að
fara. Þá var send út leiðrétting um að forset-
inn hefði átt við Sýrland!
Reykjavíkurbréf18.06.21