Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Side 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Side 17
inn hefði fallist á þessar kröfur og komið frá því prófi með fljúgandi fánum, 32 stig af 32 stigum mögulegum. Fyrir fundinn með Pútín hafði Biden sagt við blaða- menn að eitt af því mikilvægasta í viðræðunum fram- undan væri að fara alvarlega yfir stöðuna í Líbíu með Pútín. Nefndi forsetinn Líbíu þrisvar sinnum í þessu sambandi. Eftir fundinn var utanríkisráðuneytið spurt út í hvað forsetinn væri að fara. Þá var send út leið- rétting um að forsetinn hefði átt við Sýrland! Þetta vakti undrun því að forsetinn les nánast hvert orð af spjöldum aðstoðarfólks og þarf því að hafa töluvert fyrir því að gera slík mistök. Alþingi 140 ára Það er hefðbundið að hnjóðað sé í Alþingi og minni- hlutahópinn, þingmennina, sem þar vinna. En það er ekki deilt um að Alþingishúsið sjálft er fagurt hús og stílhreint. Hinn 1. júlí næstkomandi, eftir rúma viku, verða 140 ár frá því að Alþingi kom í fyrsta sinn sam- an í Alþingishúsinu. Öll vitum við hversu tækni við mannvirkjagerð hef- ur fleygt fram. Það vekur því nokkra undrun hve góð- ur gangur var í byggingum þessa tíma. Þarna átti gríðarlegt hús í hlut, á þeirra tíma mælikvarða. Húsið var reist úr höggnum grásteini, sem að sögn Páls Lín- dals var aðallega tekinn neðarlega í Skólavörðuholti. „Fjöldi manna lærði steinsmíði í sambandi við þessa framkvæmd. Verkinu þokaði vel áfram og sumarið 1880 er lagður hornsteinn hússins.“ Það er að minnsta kosti táknrænt að hinn 30. apríl þetta ár koma líkkistur Jóns forseta og Ingibjargar, konu hans, til Reykjavíkur. Jarðað var frá dómkirkj- unni þann 4. maí og eru gular kistur þeirra bornar hjá grunni hins nýja Alþingishúss. Þar er heilsað og kvatt! Kisturnar eru þungar. Þær eru tvöfaldar og önnur úr blýi og líkmenn því fjölmargir og skiptast á. Næsta vetur er hið mikla hús fullgert. Þar voru ekki aðeins vistarverur Alþingis heldur var Lands- bókasafnið þar og Landsskjalasafn. Það rýmkaðist mjög um húsið þegar að þessi söfn fengu annað og betra húsaskjól. En það þrengdi aftur að þegar að Háskóla Íslands var komið fyrir í Alþingishúsinu 1911 og var skólinn þar í tæp 30 ár! Eftir að skólinn fór varð skrifstofa ríkisstjóra Ís- lands, og síðar forseta Íslands í þinghúsinu til ársins 1973, en flutti þá í Stjórnarráðshúsið við Lækjar- torg. Þar voru skrifstofur forsætisráðherra og for- seta saman til ársins 1996, en þáverandi forsætisráð- herra ákvað þá að kaupa Staðarstað við Sóleyjargötu undir skrifstofu fyrir embætti forseta Íslands. Það hús tengdist þremur forsetum og fjölskyldum þeirra, Sveini Björnssyni, Kristjáni Eldjárn og Ólafi Ragn- ari Grímssyni. Hafa þessi kaup reynst vel. Einstæð risna Það hefur um nokkra hríð verið augljóst að þeir sem telja sig eiga að vafstra í stjórnmálum en hafa þar fátt og lítið fram að færa, telja ódýrt efni fyrir sig að kasta steinum í íslenskan sjávarútveg sem um árabil hefur verið hvað drýgstur að draga björg í þjóðar- búið. Á sama tíma eru slíkar greinar víðast reistar á ríkisstyrkjum sem eru auðvitað að lokum numdir úr vösum borgaranna. Íslendingar eru í miklu betri færum til að bregðast við stórbrotinni vá, eins og kórónuveirunni nú, sem tekið hefur toll í eitt og hálft ár. Spánska veikin var miklu grimmúðlegri en veiran nú og auðvitað kemur þar til að þjóðin býr miklu betur í öllum efnum nú en þá og er sama hvar borið er niður. Páll Líndal, sem áður var nefndur, birtir eftirfar- andi kafla í bók sinni undir yfirskriftinni Einstæð risna: „Þegar spánska veikin geisaði í nóvember og des- ember 1918 kom Thor Jensen upp matgjafaeldhúsi og veitti þar öllum fæði sem vildu. Húsnæðið fékk hann lánað hjá Sláturfélagi Suðurlands, því að þar voru suðupottar stórir svo og langborð og bekkir. Í fyrstu komu þarna um 100 börn og 20-30 fullorðnir en fjölgaði brátt í 450 börn og 40-50 fullorðna. Allir bekkir voru þá þétt setnir. Eldhúsið afgreiddi auk þess 250-400 matarílát af hafragraut og mjólk út á og einnig hafraseyði handa þjáðu fólki. Nýr, ósoðinn fiskur, var og afgreiddur eftir ávísun lækna. Mat- reitt var frá kl. 6-7 á morgnana og fram á nótt. Eftir að matargjafirnar hófust hélt Thor Jensen út þrem- ur togurum og gaf bæjarbúum afla þeirra.“ Morgunblaðið/Eggert 20.6. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.