Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Page 29
með föður þeirra en aldrei formlega
verið með honum í hljómsveit. Hann
syngur í dag með grúvmálmbandinu
Incite en Zyon og Igor Amadeus eru
á hinn bóginn saman í seyru-
málmbandinu Lody Kong. Fjórði
bróðirinn, Jason, 35 ára, er trommu-
tæknir Zyons í Soulfly og Lody
Kong, og fer því um víðan völl með
föður sínum og bróður.
Mér er ljóst að margir lesendur
Morgunblaðsins hafa brennandi
áhuga á ættfræði og einhverjir
spyrja sig ugglaust núna hvernig
Max Cavalera, sem verður ekki
nema 52 ára í sumar, geti átt svona
gömul börn. Svarið er að eiginkona
hans, Gloria, sem er 68 ára, átti fyrir
fjögur börn þegar þau kynntust,
Richie, Jason, Roxanne, 38 ára, og
Dana Wells, sem lést í bílslysi árið
1996, aðeins 21 árs að aldri. Max
ættleiddi síðar hin þrjú.
Hrökklaðist úr eigin bandi
Max Cavalera er maður eigi einham-
ur og fáir hafa verið afkastameiri í
málmi á umliðnum áratugum. Hann
stofnaði Sepultura heima í Brasilíu
árið 1984 ásamt Igor bróður sínum,
sem síðan hefur raunast tvígéast
með þeim afleiðingum að hann heitir
nú Iggor. Max hrökklaðist úr Se-
pultura 1996, eftir sex breiðskífur,
og setti þá Soulfly á laggirnar sem
er enn í fullu fjöri; ellefta breiðskífan
kom út árið 2018.
Já, það er sumsé aldarfjórðungur
síðan leiðir skildi en Iggor varð sem
frægt er eftir í Sepultura í heilan
áratug. Bræðurnir töluðu ekki sam-
an allan þann tíma en ágreining-
urinn hverfðist um fyrrnefnda Glo-
riu, eiginkonu Max, sem hinir þrír í
Sepultura vildu ekki hafa lengur
sem umboðsmann bandsins. Max
stóð með sinni konu og vék því úr
bandinu. Grátlegt mál og óuppgert
gagnvart Andreas Kisser og Paulo
Jr. sem enn eru í Sepultura og lík-
urnar á því að þetta sögufræga band
eigi eftir að koma saman aftur í upp-
runalegri mynd því miður litlar sem
engar.
Svo því sé til haga haldið þá hefur
Gloria haldið því fram í viðtölum að
Sepultura hafi ekki rekið hana, held-
ur hafi hún hætt að eigin frumkvæði
vegna tillitsleysis sem henni hafi
verið sýnt eftir að sonur hennar lést.
Þá hafi Max ekki treyst sér til að
starfa áfram með slíkum mönnum
enda þótt hún hafi lagt hart að hon-
um að yfirgefa ekki bandið.
Þó greri um heilt milli bræðranna
og þeir eru nú saman í Cavalera
Conspiracy, sem tróð upp á Eistna-
flugi árið 2017, og eftir það band
liggja fjórar breiðskífur, sú nýjasta
frá 2017.
Síðan er það stjörnubandið Killer
Be Killed sem Max stofnaði ásamt
öðrum Íslandsvini, Troy Sanders úr
Mastodon, Greg Puciato úr The Dill-
inger Escape Plan og fleirum fyrir
nokkrum árum. Það ágæta band hef-
ur gert tvær breiðskífur saman, þá
seinni á síðasta ári.
Og nú hefur Go Ahead and Die
bæst í hópinn og hverfandi líkur á
því að Max Cavalera eigi eftir að
falla verk úr hendi í bráð. Enda ligg-
ur okkar manni alltaf jafnmikið á
hjarta.
AFP
20.6. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
EDRÚ Gary Holt, gítarleikari Ex-
odus og Slayer undir það síðasta,
hefur lagt flöskuna á hilluna.
„Fyrsti dagurinn hjá mér, áfram
gakk,“ skrifaði hann á samfélags-
miðlum á þriðjudaginn. „Síðasta ár
hefur orðið til þess að ég geri mér
grein fyrir því að drykkjunni þarf
að ljúka. Samkvæmið hefur staðið
lengi hjá mér en það er lítill sam-
kvæmisbragur á þessu núorðið. Ég
er hvergi nærri fullkominn og
Bakkus hefur læðst aftan að mér.
Hér eftir verð ég skýr og glöggur.“
Holt að hætta að drekka
Gary Holt er lítill Kardashian-maður.
AFP
BÓKSALA 9.-15. JÚNÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Palli PlaystationGunnar Helgason
2 DauðahliðiðLee Child
3 Fjölskylda fyrir byrjendurSarah Morgan
4 BréfiðKathryn Hughes
5 Rím og romsÞórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn
6 BarnalestinViola Ardone
7 Færðu mér stjörnurnarJojo Moyes
8 BBQ kóngurinnAlfreð Fannar Björnsson
9 Aðeins eitt leyndarmálSimona Ahrnstedt
10 Morðið við HulduklettaStella Blómkvist
1 Palli PlaystationGunnar Helgason
2 Rím og romsÞórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn
3 Bekkurinn minn 3 – lús!Yrsa Þöll/Iðunn Arna
4 Ja, þessi EmilAstrid Lindgren
5
Ég fer í fríið með Andrési
og félögum
Walt Disney
6 Handbók fyrir ofurhetjur 6Elias/AgnesVahlund
7 Stjáni og stríðnispúkarnirZanna Davidson
8
Depill heimsækir
afa og ömmu
Eric Hill
9
Risasyrpa – botnlaus
byggingarvinna
Walt Disney
10 Brandarar, gátur og þrautirÝmsir höfundar
Allar bækur
Barnabækur
Eins og eflaust margir er ég týpan
sem þarf alltaf að lesa nokkrar ólík-
ar bækur í einu, því þar sem ég er
ekki alltaf í skapi fyrir vissa bók-
menntagrein, finnst
mér svo skratti gott
að hafa aðra hand-
hæga á náttborð-
inu.
Á bókasafninu
greip ég bækur úr
bókaröðinni Hand-
bók fyrir ofurhetjur
eftir Elias og Agnesi Våhlund. Þess-
ar vinsælu myndabækur eru mjög
einfaldar aflestrar og í framsetn-
ingu, og því lesvænar fyrir alla,
sama hver lestrargetan er. Ég skil
vel að þær hitti í mark hjá litlum
lesendum sem líklega dreymir
marga um að vera með ofurkrafta,
ekki bara til að ráða við einelt-
ispúkana, heldur líka til að öðlast
meira vald og sterkari rödd í sam-
félaginu til að geta sýnt hvers
megnug þau í raun eru, alveg eins
og aðalsöguhetjan Lísa gerir.
Á bókamarkaðinum í Laug-
ardalshöll keypti ég
Sögu Borgarætt-
arinnar eftir Gunn-
ar Gunnarsson og
kom bókin mér
mjög á óvart. Eins
og flestir vita segir
hún frá ævilöngum
átökum milli hins
örláta og réttsýna Örlygs bónda á
Borg og illa bróður hans síra Ketils,
sem og sonar Örlygs, hins fjölhæfa
og hjartagóða Ormars Örlygs-
sonar, fiðlusnillings og við-
skiptasénís. Og hvílíkur texti! Ég
hef svei mér aldrei lesið jafn tilfinn-
ingaþrungna bók; þéttskrifaðar of-
ur hástemmdar lýsingar á tilfinn-
ingum persónanna sem velkjast
um í rosalega melódramatískum
örlögum sínum. Á þessum tilfinn-
ingum smjattaði ég hátt.
Bróðir minn í
Svíþjóð keypti fyrir
mig bókina Häst-
pojkarna eða
Hestadrengirnir,
eftir Johan Ehn.
Hún var tilnefnd til
Bókmenntaverð-
launa Norður-
landaráðs í ungmennaflokki, enda
einstaklega falleg og snilldarlega
skrifuð bók. Þar segir frá ungum
rótlausum og samkynhneigðum
manni sem fær vinnu í heimaþjón-
ustu við eldri borgara. Hann er
sendur til austurevrópsks ofur-
sérvitrings, og þótt sá hafi verið
sirkuslistamaður, m.a. í Þýskalandi
nasismans, reynast þeir félagarnir
eiga margt sameiginlegt.
Vinkona mín í Frakklandi færði
mér bókina Betty Boob eftir Vero
Cazot og Julie Rocheleau í fimm-
tugsafmælisgjöf. Síðan eru liðin
þrjú ár og ég er enn að lesa, skoða
og dást að bókinni.
Þetta er mynda-
saga um unga
konu sem fær
krabbamein og
þarf að fara í
brjóstnám. Það
veldur henni mikl-
um andlegum
þjáningum og kemur hart niður á
lífi hennar. Í örvinglan sinni lendir
hún á hálfgerðum vergangi og end-
ar loks í „burlesque“-ferðaleikhópi
þar sem hún öðlast nýja sjálfsmynd
með hjálp skrautlegra félaga sinna.
Dásamlega myndskreyttur óður til
líkamlegs og veraldlegs frelsis.
HILDUR LOFTSDÓTTIR ER AÐ LESA
Smjattað á tilfinningum
Hildur Lofts-
dóttir er rit-
höfundur.
Vissir þú
að mbl.is
4%
11%
13%
31%
41%
er með hærra hlutfall
(%) flettinga en aðrir
miðlar *
mbl.is visir.is dv.is
ruv.is frettabladid.is
31%
fleiri flettingar en hjá
helsta samkeppnisaðila *
Notendur + flettingar = árangur
*
G
a
llu
p
to
p
p
lis
ti
Q
1
2
0
2
1