Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Síða 32
SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 2021
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Sími 554 6969
lur@lur.is • lur.is
Verið velkomin
í heimsókn
Mikið úrval
hvíldarstóla
fyrir alla
Hvíldin
byrjar í LÚR
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
„Er þægindaramminn úr sér genginn? Veldur hann
ómældum óþægindum? Við bjóðum smásögur eftir sex-
tán upprennandi rithöfunda sem gætu endurnýjað
rammann,“ segir í tilkynningu frá ritstjórn Þæg-
indarammagerðarinnar, nýjustu bókar ritlistar- og rit-
stjórnarnema við HÍ, en hana skipa Karitas M. Bjarka-
dóttir, Sigríður Inga Sigurðardóttir, Sigríður Wöhler og
Sæunn Þórisdóttir. Þægindarammagerðin er komin í
forsölu hjá Unu útgáfuhúsi, sem hélt utan um útgáfuna,
og kemur í verslanir á fimmtudaginn. „Hér birtast
ógreinileg spor, afskekktur viti, fiðrildi, bréfaskriftir,
garðyrkja, draumkennd sambönd, barn með brjóst og
annað með rófu, skrifstofuangist og langar göngur.
Sendu okkur mál og við sníðum þægindaramma eftir
þörfum.“
Höfundarnir eru: Ásdís Björg Káradóttir, Berglind
Ósk Bergsdóttir, Birna Hjaltadóttir, Bryndís Eva Ás-
mundsdóttir, Elín Edda Þorsteinsdóttir, Halldór Magn-
ússon, Ingólfur Eiríksson, Jónína Óskarsdóttir, Kristín
Nanna Einarsdóttir, Númi Arnarson, Rannveig Lydia
Benediktsdóttir, Sigríður Láretta Jónsdóttir, Sig-
urbjörg Aðalsteinsdóttir, Ugla Egilsdóttir, Þuríður Sól-
ey Sigurðardóttir og Ægir Þór Jahnke.
Huldar Breiðfjörð hélt utan um námskeiðið.
Hópurinn sem kem-
ur að Þæginda-
rammagerðinni.
Endurnýja þægindarammann
Þægindarammagerðin, nýjasta bók ritlistar- og ritstjórnarnema við HÍ,
er komin í forsölu og væntanleg í bókabúðir á fimmtudaginn kemur.
„Við Íslendingar ætlumst til þess
af öðrum þjóðum og leiðtogum,
að þeir leysi deilumál sín frið-
samlega. Við kunnum ekki að
meta þá ættjarðarást, sem er
fólgin í því að hata aðrar þjóðir.
Hin raunverulega ættjarðarást
er fólgin í óeigingjörnu starfi í
þágu eigin þjóðar, starfi, sem
m.a. miðar að því að efla skiln-
ing og samúð með öðrum þjóð-
um.“ Þannig komst Geir Hall-
grímsson borgarstjóri að orði í
ræðu hinn 17. júní 1961.
Hann sagði að til lengdar
stæði sá einstaklingur og sú þjóð
sterkast að vígi, sem gæti kynnt
sér hvert ágreiningsmál með ró-
legri yfirvegun og tekið síðan af-
stöðu og framfylgt henni.
„Áhuga- og ágreiningsmál á
Íslandi eru oft talin varða sjálf-
stæði landsins og mörg minni
háttar mál þar nefnd. Það slævir
meðvitund þjóðarinnar, þannig
að hættara er við, að hún verði
ekki á verði, þegar sjálfstæði
hennar er í raun og veru í veði.
En víst er, að það, sem sker úr
um, hvort Íslendingar halda
sjálfstæði sínu út á við og vernda
lýðræði sitt inn á við, er, að þeir
gefi sér tíma til að kynna sér
deilumál í öðru ljósi en sínu eig-
in, yfirvegi þau með skynsemi,
efli með sér skilning og góðvild
og þroski með sér tilfinningu fyr-
ir réttu og röngu.“
GAMLA FRÉTTIN
Með rólegri
yfirvegun
Geir Hallgrímsson heldur ræðu á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn 1977. Þá
var hann ekki lengur borgarstjóri, heldur orðinn forsætisráðherra Íslands.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Páll
bréfberi
Jóhann Karl Þórisson
aðstoðaryfirlögregluþjónn
Benny Hill
grallaraspói