Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.11.1973, Page 2

Skólablaðið - 01.11.1973, Page 2
Bíku börnin. Nastei inspeotor verður Stakkels. Annar kandídat?? Það er á margan hátt sem stéttaskiptingin kemur fram í þessu hálfþroskaða þjóðfélagi Hassið flæðir nú um hverja gátt í þessari elztu og virðulegustu menntastofnun þjóð- arinnar og er jafnvel reykt í skólastofum, svo ekki sé minnst á klósett og aðrar hirzlur fyrir nemendur utan kennslustunda. Svo undarlegt er að þetta er nær undan- tekningarlaust bundið við "góðu og yndis- legu" börnin, þessi sem hafa verið við nám erlendis á sumrin og geta að vild gengið í vasa pabba eða inHmmu. Hin halda sig flest við brennivínið, enda ódannaður djöfuls lýður. En gaman verður þegar börn framkvæmda og forstjóranna, læknanna og lögfræðinganna, bankastjóranna, þing- mannanna, diplómatanna, bísnismannanna og bísanna, verða dregin út úr skúmaskot- unum frá þessum flótta sínum frá raunveru- leikanum, en^firrtari en fyrr og rúmpu^ stónd. i Benedikt Zóega Jóhannesson hefur nu nað fullum þroska tilinspectorstarfa. Hann_ er viðurkenndur námsmaður, afburðafyndinn, jafnt dags daglega sem á vinafundum, snjall ræðumaður, reyndar hvers manns hugljúfi þegar betur er að gáð. Hann er réðdeildarsamur og ákveðinn, enþó frjáls- lyndur og umburðarlyndur. Hann á hauka í horni á kennarastofunni og kann lagið á Guðna (að eigin sögn að vísu), auk þess er hann með sæta stelpu uppá arminn og er alltaf sætur og smart eða hvað? Auk þess hefur hann ættarnafn og býr á Laugarás- veginum og svei mér þá ef bróðir hans, sem nú er orðinn læknir,var ekki inspector líka................ Það mun gjarnt að beztu menn fyllist ótakmarkaðri drambsemi við að falla um bekk. Þeir verða eldri og því sjálfkrafa bæði reyndari og greind- ari. Nýjasta og bezta dæmi þessa er Kalli Matt. Síðan kennsla hófst hefur hann i hvorugan fótinn getað stígið, að eigin sögn vegna dópa neyzlu, en auðvitað er það af engu öðru nema grobbi. Mikilvægi hans mun orðið svo gífurlegt að ef hann næði ekki að spanna yfir allt "félags- líf skólans" félli^það saman. En það sem verra er, og þá sérstaklega fyrir framgang allra mála, er að Karl hefur aldrei gert ærlegt hand- tak svo vit sé í. En til þess að bæta úr þeim skaða gefum vér Karli ráð: nefnilega þegja^um aktívitet og nikótín, en gera í því í eitt skipti fyrir öll , að leggjast út í horn í rúsi. juitf tmi P mid ttm Jæja, lesandi góður. Haltu þér nú fast. Andaðu djúpt að þér og frá. Slappaðu af. Lestu áfram. í>ú ert viðbúinn þvi versta. -Sigurður Helgason hefur lótiS'sér detta i hug að hann gæti orðið inspector '74- ?5-(þegar Guðni frétti þetta hló hann svo mikið, að í einu bakfallinu datt hann aftur úr’''Stólnum. Ekki er getið að höggið hafi neitt bætt úr ástandiinnviðanna.) Jæja, við vorum að tala um Sigurð greyið. Hann langar víst í inspectorinn, en veit ekki hvernig hann ætti að komast í stólinn. Hann hefur þegar gert þvílíka skándala í skripu starfinu að engu er til að jafna, enda er Maggi að varSa alveg sköllóttur og þau fáu hár sem eftir eru, hafa nú fengið gráa slikju. (Reyndar hefur þetta gerzt einu sinni áður, en þá var það ðfugt.Mark Markús inspeetor var að gera Karl V. alveg sköllóttann í skrípumni og má þess enn sja merki á Karli.) . aiid nwi ? Væntanlegur Dúx? Sigurður Pálmason ( ) Bera Nordal ( ) María Sigurðar ( ) Þið megið krossa við væntanlegan dúx, að ykkar spá. Sendið síðan blaðinu. Lausn birt i vor. oli isleifs. I þá góðu og gömlu daga, þegar allir voru að skríða yfir gelgjuna, gerðist það st stundum, að sniðugir strákar og jafnvel stelpurfundu upp á hinu og þessu og fram- kvæmdu oft. Eitt var kvikmyndun sem var í senn skemmtilegt hobbý og hættulegt, því svo gat hent að filmurnar geymdust og var þá voðinn vís ef allt í einu var svipt hulunni og barnaskapur og tiltektir gelgju skeiðsins voru hafðar að leiksoppi, því eins og öllum er kunnugt, sem á annað borð þekkja sjálfan sig eitthvað þá þolir maður sizt af öllu,að það sé gert grín að manni sjálfum. Því undrar engan að öli Isleifs hefur nú eyðilagt allar þær filmur, sem hann asnaðist til að gera með Píska hér um árið. En þeir léku nokkur ævintýri Piska á filmu. Það var meðan Öli var enn fullur af lífi og sál. Öla var falin varðveizlan, en þegar hann varð ábyrgðarfullur ungur maður tók hann sig til og brenndi allt. Nú er piltur orðinn stokkfreðinn í gegn sannkallaður íshleifur. Re-back* afturhvarfT Hverfum aftur til náttúrunnar predikaði Rousseau, eins og við höfum lært í mann- kynssögunni. Þetta viðhorf hefur hú verið tekið upp í.starfi Listafélagsins, sem er nú óðum að leggja niður laupana opinber- lega. Forsetinn, Rebekka, hefur nú fyrir- skipað að einbeita skuli sér að innra starfi og hafa því verið stofnaðir sér^ stakir klúbbap,þar sem stjórnirnar geta virkilega notið sín. Svo eru líka kjafta- klúbbar, sem Rebekka hefur stofnað og er það i samræmi við þá hugmynd að öll umræða sé nauðsyn. Hel^ti og dyggasti þjónn for- setans er undirsetinn eða undirsetan Jðn Viðar. fiann bauð sig fram að nýju í bók- menntadeild eftir að hafa hálfdrepið hana á síðasta vetri. Sbr. Tarzan apabróðir- Tarzan snýr aftur. Vér óskum þess inni- lega að þau skötuhj'u taki mark á öðru ágætu sögulegu fordæmi, en eins og kunnugt er dó Voltaire étandi skít, meira að segja sinn eiginn. Verði þeim að góðu.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.